Morgunblaðið - 31.10.1963, Side 22

Morgunblaðið - 31.10.1963, Side 22
22 MORCU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 31. okt. 1963 * P IÞBOTTAFRETTIR MORGUNBLADSIKS Tékkar gersigruðu gestgjafa sína 31:14 Þrautþjálfað og samæft llð þeirra ef til vill sterkasta félagið, sem hér hefur leikið TÉKKNESKA liðið Spartak Pilsen sem hér er í boði ÍR vann yfirburðasigur á gestgjö; un* sínum í gær að Hálogalandi. Vann Spartak lið ÍR með 31 marki gegn 14, verðskuldaður yfirburða- sigur þar sem Tékkarnir voru betri r öllum listum handknattleiks- ins, bæði þeim er til feguiðar og árangurs leiða og eins í hinum. Hjá ÍR var vörnin afa? slöpp og meira kom af ódýrum mörkum hjá ÍR en eðlilegt getur talizt. Tékkamir hlupu fram fyrir ÍR- inga og afhentu hverjum liðs- manni keppnísskó að gjöf. ÍR- ingar sæmdu Tékkana merkí fé- lags síns. Fyrirliðar skiptust á oddfánum og allt var þetta skemmtileg byrjun. ★ FYLKT LIÐI. í upphafi gengu liðin fylktu liði inn á völlinn ástunt for- manni ÍR Reyni Sigurðssyni og stjórnanda tékkneska liðsins. Liðsmenn stilltu sér upp og Reyn ir Sigurðsson flutti vel valin á- varpsorð þar sem hann fagnaði komu þessa góða liðs, kvaðst vona að hún yrði handknattleiks mönnum lærdómsrík og til aukn ingar vináttu ísl. og tékkneska handlknattleiksmanna. Fögnuðu áhorfendur gestunum með fer- földu húrrahrópi. ★ GJAFIR. Liðsmenn skiptust á gjöfum. Hirti 8I/2 millj.j úr ruslaiötunni! MAÐUR heitir William Morg- an og er þrítugur að aldri, býr í Cumbran í Wales. Fyrir síðustu helgi fyllti hann út getraunaseðil, en var óá- nægður með hann og fleygði honum í ruslakörfuna. Síðar sá hann eftir þessu, leitaði að seðlinum í körfunni slétti úr krumpunum og sendi hann til eins af getraunafirmunum. Á þriðjudag fékk hann til- kynningu um að iiann hefði unnið 70.247 sterlingspund á þenna seðil eða tæplega átta og háifa milljón Lsl. kr. ★ RÓLEG BYRJUN. Leikurinn byrjaði rólega, Tékk ar með knöttinn og léku fram- an varnar. Síðan kom skotið frá landsliðsmanninum Kranat 'yfir vörnina og í netið. Kranat sem er óvenjulega hávaxinn átti oft eftir að leika þennan leik og var enda markhæstur Tékkanna. Við dynjandi fögnuð jafnaði Reynir formaður ÍR sæmir stjórnanda tékkneska liðsins merkí ÍR meðan Gunnlaugur Hjálm arsson og Eret fyrirliði Tékka skiptast á oddfánum. (Ljósm. Sv. Þ.). Hermann fyrix ÍR eftir fallega sendingu frá Gunnlaugi. Á 3 min skora Tékkar og var Kranat aft ur að verki. Síðan eru skot var- in frá Herði og Hermanni en í mark ÍR og varði þegar 3 skot. Hörður fékk svo enn skorað á sama hátt og áður 7—3. ★ BARÁTTU LOKIÐ. En þarna var bardaganum lok- Svona smeygðu Tékkamir sér gegnum óþétta vörn IR. Hér skorar Karnold. Gylfi er kominn í skotfæri en þá er Valenta markvörður á réttum stað. Kranat bætir þriðja markinu við með uppstökki og skoti yfir vörn. !>á voru 5 mín. af leik. ic ÖRUGG FORYSTA. Á næstu mínútum auka Tékkar í 5—1, og Hörður Kristinsson sem er^álíka stór og Kranat fær skorað með því að stökkva upp og skjóta yfir vörn, 5—2. Tékk- ar auka í 7—2 en gekk nú ver því Guðmundur Gústafsson kom ið. Gunnlaugur var hundeltur af einum Tékkanna svo hann fékk vart kontakt við liðsmenn sína og hann var slíkur maður fyrir ÍR-Iiðið að áin hans verður bar- áttan ekki mikiL Tékkarnir breyttu stöðunni í 11—3 í fyrri helming fyrri hálfleiks. Hefði enn ver farið ef Guðmundur hefði ekki varið mörg skot, sum erfið. Á 16—18 mín skora ÍR-ingar tvisvar Hörður hið fyrra og Gunn ar Sigurgestsson síðara. Cejka bætir marki við fyrir Tékka en siðan skorar Gunnlaugur úr víti og það var annað tveggja marka hans úr vítaköstum í leiknum — og er slíkt óvenjulegt fyrir hann, 3. markhæsta mann í síð- ustu heimsmeistarakeppni. Tékk arnir hafa vitað um hættuna og byrgðu brunninn með því að láta elta hann og þrælvalda svo að úr hófi keyrði. Hörður bætti 7. marki ÍR við og litlu síðar iþví 8., en Tékkamir skoruðu 3 fyrir leikhlé svo stað- an var 16—8. ★ deyfð í síðari hálfleik dofnaði yfir leiknum á löngum köflum, bar- áttan var búin, vörn ÍR var eins og rifið net. Framan af tókst þó liðimu að halda í við Tékk- ana en svo kom langur kafli þar sem ÍR fékk ekki svarað hverju marki Tékka af öðru. öll mótspyma var sundurbrotin, aðeins tilraunir einstaklinga. — Lokatalan var 31—14. ★ Liðin. Tékkamir leika sem afar» sterk heild. Allir leikmenin liðs- ins skomðu mörk og í vöm voru þeir sá veggur sem stórskot Harðar, Gylfa, Gunnlaugs og Hermanns brotnuðu látlaust á og í markinu stóð kannski skær- asta stjarna liðsins, sem varði at mikilli prýði Þetta er þraut- þjálfað lið og hefði því vart þurft á að halda hrindingum i vörn og öðru sem miður fór. En liðið er sjálfsagt vant að leika ai Framhald á bls. 23. Svíar slegnir út í undan- keppni OL í knattspyrnu SVÍAR hafa nú verið „slegnir út“ í undankeppni, knatt- spyrnukeppni Olympíuleik- anna í Tokío næsta sumar. Á sunnudaginn léku Ungverjar og Svíar síðari leik sinn í undankeppninni. Forleikurinn fór fram á Nya Ullevi leik- vanginum í Gautaborg og lykt aði 2—2. Fyrri leikinn höfðu Ungverjar unnið í Budapest með 4—0, svo Ungverjar halda áfram í keppninni með samanlagða markatöku 6—2. Svíarnir Iéku í síðari leikn- um mjög vel fyrsta stundar- fjórðunginn og skoruðu tvö mörk, h. úth., Tord Grip og v. innherji Harry Bild. En eftir stundarfjórðung var krafturinn búinn í Svíum og allt gekk á afturfótum. — Ungverjarnir jöfnuðu fyrir hlé og eftir það gerðist lítið. Ungverjamir lögðust í vörn í síðari hálfleik og brutu all- ar sóknartilraunir Svía.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.