Morgunblaðið - 11.03.1964, Page 15

Morgunblaðið - 11.03.1964, Page 15
Miðvikudagur 11. marz 1964 MORCUNBLAÐID 15 Túlf mílna sigurinn oröinn aö veruleika Eftir daginn ■ dag eru Íslendingar einráðir innan tólf mílna fisk- veiðilögsögunnar DAGURINN í dag, ellefti marz árið 1964, er á sinn hátt hátíðisdagur í sögu íslands. Þegar hann er liðinn, er út- lendum skipum óheimilt að stunda veiðar, — togveiðar sem aðrar veiðar að sjálf- sögðu, — innan takmarkaðra hólfa á takmörkuðum árs- tíma milli sex og tólf mílna fiskveiðitakmarkanna. — Við erum orðnir einráðir innan tólf mílna. Kaunverulega var þessi sigur unninn fyrir rúmum þremur ár- um, þegar samkomulag náðist við Breta um að láta allan ó- frið niður falla gegn algerri við- urkenningu á kröfum íslendinga um tólf mílna fiskveiðilögsögu. Þótt ekki vildu allir islenzkir aðil.jar viðurkenna það á prenti á þeim tíma, að við gætum með engu móti haft bolmagn til þess að halda stríðsskipaflota gei;n verndarskipum hrezkra togara, munu allir nú sammála um, að hér var fundin rétt og sann- gjörn lausn. Það hljómar hlægilega nú, að fyrrverandi forsætisráðherra og fiormaður næststærsta stjórn- málaflokks íslands sagði ber- um orðum á Alþingi íslendinga, að Bretar mundu misnota hin litlu og tímabuhdnu réttindi sín, til þess að láta skrásetja erlend skip í Bretlandi, svo að þau gætu stundað veiðiskap í hin- um takmörkuðu hólfum milli •ex og tólf mílna undan fslands- ströndum. Staðreyndirnar hafa talað sínu máli, og rödd þeirra er sterkari en hins fyrrverandi fiorsætisráðherra. Þótt hann segði, að svæðin væru „auðsjá- anlegia valin með tilliti til þess, hvar fiskigengd er mest á hverj- um tíma, og hægast að sitja fyr- ir fiskigöngum inn á svæði, þar sem veiði er ekki leyfð“, þá vildi nú samt svo til, að erlend skip leituðu lítt sem ekki inn á þessi svæði Hermanns Jónas- sonar samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæzlunnar. Þessi mikli sigur í sjálfstæðis baráttu þjóðarinnar átti sér langan aðdraganda og ýmsar or- sakir. Páir munu hafa átt von á því, að slikur árangur næðist svo skjótlega, sem raun bar vitni og hér skal ekki gerð tilraun til þess að skýra það. Þó verður ekki hjá því komizt að minna á, að fulltrúair íslands í þessari orrahríð fluttu mál íslands af einurð og skörungsskap, enda var hvergi vanþörf á. Þeir voru vel undir málið búnir; voru bein línis betur að sér í flræðunum en andstæðingar okkar; og m.a. vegna þess áunnum við okkuir samúð og skilning fjölmargra þjóða, sem ella hefðu engan á- huga á málinu haft. Saga málsins. Sögu landhelgismálsins ætti að vera óþarfi að rekja í ýtar- legu máli; svo oft hefur það verið gert á undanförnum árum. Langt er síðan íslendingar gerðu sér ljóst, að veiðar á hin- um auðugu fiskimiðum umhverf- is landið er undirstaða þess, að íbúar landsins geta lifað mann- sæmandi lífi. Á seinni tímum gera æ fleiri sér þess ljósa grein, að aflaskerðing getur jafngilt uppgjöf landsmanna á að hafa hér bólfestu. Bókstaflega talað eru aflabrögð og hagnýting sjáv Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra og Mr. Andrew C. Steward sendiherra Breta ganga frá samkomulaginu um landhelgina 1961. arafla undirstöður þess, að menn lifa á þessari ey. Pram að árinu 1901 var útlend ingum bannað að veiða hér við land innan fjögurra mílna (mið að við beinar grunnlínur). >á gerðu Danir hinn fræga samn- ing við Breta um 3ja milna landhelgi. Togaraveiðar voru þá að koma til sögunnar, og leik Um mánaðamótin janúar, febrúar 1960 kom Albert að togaranum Bengali 2.7 mílum innan tak- markanna undan KrisuvíkurbergL Togarinn reyn di ítrekað að sigla á varðskipið. Efri myndin sýnir togarann en sú aeðri er varðskipsmenn senda ho num kveðjur. — Helgi Hallvarðsson tók myndirnar Allt er eins í stjórnmálunum. Þeir þykjast virða sjálfsákvörðun- arréttinn, en enginn hefur spurt okkur, hvort við viljum láta veiða okkur. ur enginn vafi á því, að fiski- stofnum við íslandsstrendur var þá og eftir það hætta búin af ofveiði. Þetta var mönnum þó ekkj al- mennt ljóst, fyrr en nokkru fyr- ir seinni heimsstyrjöld. Meðan á henni stóð, var tómt mál að tala um verndarráðstafanir af skiljanleg)um ástæðum, en hér á íslandi var hafizt handa um und irbúning gagnráðstafana. Árið 1948 beitti Jóhann Þ. Jósefsson þáverandi sjávarútvegs málaráðherra, sér fyrir setningu laga um vísindalega verndun fiskimiða á landgrunninu, og á árinu 1950 var sett reglugerð á grundvelli þeiirra laga. Þá var ákveðin fjögurra sjómílna fisk- veiðilögsaga fyrir Norðurlandi frá grunnlínum, sem jafnframt voru ákveðnar. Um leið var sú stefna mörkuð, sem síðan var farin, að því er grunnlínur varð ar. Samningnum við Breta var sagt upp í október 1949, og þar sem hann var með tveggja ára uppsagnarfresti, voru gildisslit hans í október árið 1951. Skömmu síðar, eða í desember 1951, kvað Alþjóðadómstóllinn í Haag upp dóm í máli Norðmanna og ,Breta um grunnlínur. Unnu Norðmenn dóminn í helztu atrið- um og fengu gjrunnlínur sínar viðurkenndar. Hafði dómur þessi að sjálfsögðu milcil áhrif við ákvörðun grunn- lína og myndun reglna, enda var þegar 19. marz 1952 gefin út reglugerð hér á íslandi, þar sem grunnlínur voru dregnar og flóum og fjörðum lokað og fisk veiðilögsaga ákveðin fjórar sjó- mílur út frá þeim. Fjórar ríkisstjómir mótmæltu reglugerðinni. Ein þeirra, sú brezka, skipti allmiklu máli fyr ir íslendinga, þar sem aflasala íslenzkra togara í Bretlandi var mikilsverð fyrir okkur. Brezk- ir togaraeigendur settu löndunar bann á íslenzka togara, og verð- ur sú þræta ekki rakin hér. Minna má þó á, að íslenzka rík- isstjórnin var reiðubúin að skjóta deilumálunum til alþjóða- dómstóisins í Haag, ef brezka ríkisstjórnin vildi aflétta lönd- unarbanninu. Brezka ríkisstjórn in gat ekki miðlað málum, og var banninu ekki aflétt fyrr en 1. nóvember 1956, þegar Efnahagssamvinnustofnun Bvr- ópu beitti sér fyrir samkomu- lagi milli íslenzkra og brezkra togaraeigenda. 30. júní árið 1958 gáfu ís- lendingar út reglugerð, þar sem fiskveiðilögsagan var ákveðin 12 mílur frá 1. sept. sama ár. Grunnlínum þótti aftur á móti ekki fært að breyta. Vakti þessi ákvörðun megnan úlfaþyt víða um heim. Við henni hafði þó alltaf mátt búast. Nú var þess freistað á vegum þeirra ráðlherra, sem máttu telj- ast vestrænt sinnaðir í vinstri stjórninni, að ná samkomulagi fyrir forgöngu Atlantshafsbanda lagsins, enda hafði NATO ávallt sýnt vilja til þess að setja deil- ur niður meðal bandalaglsþjóða. Kommúnistar voru því vitaskuld mótfallnir, og verður hið al- ræmda hlutverk Lúðvíks Jóseps sonar ekki rifjað upp hér að þessu sinni. Þegar umræðurnar höfðu þannig farið út um þúfur, skap- aðist hreint styrjaldarástand á Islandsmiðum eins og kommún- istar ætluðust til. Þrjár ríkís- stjórnir létu nægja að senda mótmæli, en hin fjórða, sú brezka, sendi herskip til að vernda togara sína, er þeir voru að veiðum innan hinna nýju fiskveiðitakmarka. Var það ó- jafn leikur og hættulegur, eins og öllum er enn í fersku minni. í tvö ár, frá sumri árið 1958 til sumars 1960, var þessi ó- jafni hildarleikur háður á haf- inu. Margt gerðist á meðan, sem litla eða enga þýðingu hafði, svo sem ályktanagerðir í Bretlandi og á íslandi. Upphaf þess, að samkomulag náðist við Breta, —þá þjóð, sem helzt skipti hér máli, má rekja til byrjunar Genfar-ráðstefnunn ar um landhelgismál um miðjan marz-mánuð árið 1960. Þá á- kváðu Bretar, að hætta verndar Framh. a bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.