Morgunblaðið - 11.03.1964, Page 17
Miðvikudagur 11. marz 1964
MORGUNBLAÐIÐ
17
LANGHOLTSVEGUR
lægri húsnúmerin
BLAÐBURÐAFOLK
\ ÓSKAST
í þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú
þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk,
til þess að bera blaðið til kaupenda þess,.
GJörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins
eða skrifstofu.
; irqra.-iv't.-*
■
M
'i W ■1
verið góð. Auðvitað eru til
óþægir fiskimenn, líkt og ó-
þægir krakkar.
I marz 1960 tóku ísl. varðskipsmenn togarann Northem Foam að ólöglegum veiðum og héldu áleiðis til hafnar með hann.
Brezkir sjóliðar komu á vettvang, réðust um borð, og hindruð u íslendingana í framkvæmd skyldustarfa með valdi og fluttu
þá sem fanga í borð um hcrskipið hastbornt.
Lokun svæðanna hefir ekki stór-
vægileg áhrif á togveiðarnar
segir forstjóri landhelgisgæzlunnar
í TILEFNI þess að í dag
er lokað fyrir togveiðum
svæðum þeini milli 6 og 12
mílna, sem togarar hafa
haft heimild til að veiða
á takmarkaða tíma árs,
sneri Mbl. sér til Péturs
Sigurðsson forstjóra Land-
helgisgæslunnar og lagði
fyrir hann nokkrar spurn-
ingar. Forstjórinn svaraði
á þessa leið:
— Ég tel að I heild hafi
lokun þessara srvæða ekki
mikil áhrif á togveiðar hérr
við land hvorki hjá erlendum
né innlendum toguruim. Tog-
arar veiddu þarna aðeins tak-
markaða tíma úr árinu- og
veiðarnair á þessum svæfSum
hafa farið minnkandi og hafa
aldrei verið minni en nú í
vetuir.
Þetta sanna athuganir, sem
Landhelgisgæzlan hefir gert
með flugvél sinni. Ég skal
geta nokkurra athugana í
vetur.
Hinn 14. janúar fór vélin í
gæzlunnar sé hjálparstörf og
aðstoð við skip og báta. Með
því að fiskiskip okkar fara
stækkandi sækja þau dýpra
og þá verður aðstoð við þau
langsóttari. Viðbragðsflýtir-
inn er fyrir öllu og því er
gæzlunni nauðsyn hrað-
skreiðra skipa.
Pétur Sigurðsson
TTm viðskipti okkar við
fiskimenn er ekkert nema
gott eitt að segja. Þau hafa
hringflug kringum landið og
þá voru að veiðum hér 98
togarar erlendir og þar af
var aðeins 1 í hólfi vestur af
Grímsey. 18. janúar varð vart
75 skipa og þá var enginn tog
ari í hólfi. Hinn 21. febrúar
voru 21 togari að veiðum fyr-
ir Vesturlandinu frá Eldey að
ísafjarðardjúpi og enginn í
hólfi og nú hinn 9. marz voru„, ... . . _ ,
hér 59 togarar að veiðum Skoptelknarar vlða lttm heim ^erðu ser mat ur la ndhelgisdeilunm.
kringum allt landið og aðeinsús úr „Rogaland Avis“. Yfir henni stendur „Orrustan við ísland'
einn í holfi. land væntir þess að hver maður geri skyldu sína“.
Þetta eru dæmin tekin af
hringflugi á þessu ári.
Orsakirnair til þess geta
bæði verið góð veður, en þá
eru togararnir fjær landi, svo
og breyttar fiskigöngur.
Fyrir landhelgisgæzluna
hefir þessi útfærzla þau á-
hrif að hún þartf enn meira
á sínum stærstu tækjum að
halda. Raunar hvílir gæzlan
nú mest orðið á flugvélinni
og varðskipunum Óðni og
Þór. Hin skipin eru ýmist of
lítil eða ekki nógu hrað-
skreið.
Það er ekki lan.gt frá lagi
að um helmingur af störfum
Með tilkomu hinna nýju
fiskveiðimarka verður erfið-
ara fyrir skip að staðsetja sig
nákvæmlega og því eltki var-
legt fyrir þau að vera að
veiðum nálægt línu þar sem
lengst er til lands. Þetta mun
þó verða hægara þegar hið
svonefnda Loran C- miðunar-
kerfi er komið í full not. Lor-
anstöðin á Snæfellsnesi er
einmitt fyrir slíkt kerfi. Með
'því er hægt ag taka miklum
mun nákvæmari staðarákvörð
un en ella og ég tel víst að
þetta kerfi verði almennt tek
ið í notkun hjá fiskiskipum,
þegar tækin til þess vetrða
ódýrari, en með aukinni
framleiðslu þeirra og full-
komnun lækka þau í verði.
Við höfum fylgzt með þessu
kerfi um langt árabil og einn
af loftskeytamönnum okkar
hefir sérstaklega menntað
sig til meðferðar á tækjum
kerfisins.
Með útfærzlu landhelginnai-
virðast mér landhelgisbrat
ekki 'hafa aukizt. Frá þvi 1962
eru að jafnaði 9-10 togara-
tökur á ári, síðustu árin
mest enskir togarar. Líkur
benda því ekki til að stór-
vægilegar breytingar verði
á er fyrrgreindum svæðum
verður nú lokað.
Nauðsynlegustu framtíðar-
áætlanir Landhelgisgæzlunn-
ar er bygging nýs skips, sem
á að vera stórt og hraðskreytt
03 svo má með tiltölulega
litlum tilkostnaði auka flug-
gæzluna, sem nú hefir áþreif-
anlega sannað ágæti sitt,
sagði Pétur Sigurðsson að
lokum.
Myndin hér að ofan er til dæm-
en undirskriftin er .... „Eng-
Bezt að aug'ýsa í Morgunblaðinu
Breiðadalsheiði
ófær en snjólítil
ísafirði, 10. marz: —
Að undanförnu hefur verið hér
einmuna veðurblíða, nema hvað
SV rok og rigning var hér um
helgina. Tók þá upp mikinn snjó
til fjalla og þykir mönnum orðið
fyllilega tímabært að ryðja
Breiðdalsheiði, sem mun vera
eini ófæri fjallvegurinn á land-
inu. Fært er alla leið til Reykja | Lítill snjór mun vera á heið
víkur eftir að komið er yfir inni og tiltölulega fljótlegt að
Breiðdalsheiði. I ryðja hana. — HT.
Stúíka óskast
við afgreiðslustörf strax (helzt vön).
Sælacafé
Brautarholti 22.