Morgunblaðið - 05.05.1964, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 5. maí 1964
Feröafélagið ráðgerir
104 ferðir í sumar
18 sumarleyfisíerðir og 86 helgarferðir
FERÐAFÉLAG íslands ráðgerir
104 sumarleyfis- og helgarferðir
í sumar, en ferðaáætlun félagsins
er komin út. Þar af eru 18 sum-
arleyfisferðir, sem taka 4—13
daga, 39 fastar helgairferðir, 3
hvítasunnuferðir, 5 verzlunar-
mannahelgarferðir og 39 aðrar
helgarferðir. Auk þess verða 6
skíðanámskeið í Kerlingarfjöll-
um. Flestar eru ferðir þessar
svipaðar og verið hajfa undan-
farin ár, langar og stuttar
skemmtiferðir á fegurstu og sér
kennilegustu staði og svæði
landsins og gönguferðir um ná-
grenni Reykjavíkur og á fjarlæg
ari fjöll. En félagið tekur nú upp
nýja ferð, sem ekki hefur verið
farin áður, til Lakagíga. Þá má
nefna ferð norður á Hornstrand
ir, eins og farið var í fyrra, aðra
þvert yfir Ódáðahraun og ferð í
Öræfasveitina.
Fyrsta ferðin á þessu ári var
Þórsmerkurferð um páskana. Á
hvítasunnu eru áformaðar þrjár
ferðir, á Snæfellsnes, í Þórsmörk
og í Landmannalaugar. Og um
verzlunarmannahelgi verður far
ið á 5 staði, í Þórsmörk, Land-
mannalaugar, í Breiðafjarðar-
eyjar, til Kerlingarfjalla og
Hveravalla og í Hvanngil á
Fjallabaksleið syðri.
4—13 daga sumarleyfisferðir.
Fyrsta sumarleyfisferðin hefst
20. júní, 6 daga ferð á Barða-
strönd, í Látrabjarg og Arnar-
fjörð. Um sólstöður er ráðgerð
ferð um Homstrandir, haldið
vestur í Jökulfirði og gengið það
an á Homstrandir og tekur ferð
in 9 daga. 27. júní verður lagt
upp í 9 daga ferð í Herðubreiðar
lindir og Öskju. Og sama dag í
7 daga ferð austur í Öræfi. 2.
júlí liefst 4 daga ferð um Snæ-
fellsnes- og Dalasýslu. Og tveim
ur dögum seinna farið í 9 daga
ferð til Vopnafjarðar og um
Melrakkasléttu. 9. júlí verður
fjögurra daga ferð um Síðu að
Lómagnúp. Og 11. júlí er áætlun
9 daga ferð um Vesturland, ekið
að ísafjarðardjúpi og siglt um
Djúpið.
15. júli verður 12 daga ferð að
Öskju, í Ódáðahraun og um
Sprengisand. 18. júlí verður ferð
um Kjalvegssvæðið í 6 daga og
gist í sælubúsum félagsins. Sama
dag er lagt upp í 9 daga ferð
um Fjallabaksveg nyrðri. Qg 25.
júlí hefst 5 daga ferð um Kjal
veg, Goðdali og Merkigil. S. ->
dag er farið í 6 daga ferð um
Fjallabaksveg syðri.
Ágústferðimar eru fjórar, 12
daga ferð um Miðlandsörætfin, í
Veiðivötn, um Ódáðahraun, í
Öskju og niður um Mývatns-
sveit, 9 daga ferð norður fyrir í
Herðubreiðarlindir og öskju, 6
daga ferð að Lakagígum og loks
4ra daga ferð til TT~:*’vatna og
um nágrennið.
Mjög fjölbreyttar helgarferðit.
Helgarferðir í Þórsmörk og
Landmannalaugar hefjast 23.
maí og verður farið þangað um
(hverja helgi út júlí. Á Hvera-
velli og í Kerlingarfjöll varður
fyrst farið 4. júlí og verður far
ið þangað út ágúst. Það eru allt
hálfs annars dags ferðir. Aðrar
helgarferðir eru 39 talsins og á
ýmsa staði: skíðaferðir yfir Kjöl
gönguferð á Hengil, gönguferð
á Skarðsheiði, gönguferð um ,31á
fjöll, gönguför á Esju, ökuferð
suður með sjó, gönguferð á
Henglafjöll, ferð á Keili o.fl.,
gönguferð á Hengil, Reykjanes-
ferð til Krísuvíkur og víðar,
ferð að Tröllafossi og á Móskarðs
hnjúka, gönguferð á Vífilsfell,
ferðir um Heiðmörk að Kaldár-
seli gengið á Botnssúlur, farið
að Hvalfelli og Glym, ferð á
Krísuvíkurberg og Óbrennis-
hóla, gönguferð á Skjaldbreið,
ferð á Tindafjöll, ferð til Vest-
mannaeyja, farið í Brúarárskörð
gengið á Eiríksjölcul, gönguferð
á Grímansfell og víðar, Heklu-
ferð, ferð í Þjórsárdal, göngu-
ferð á Brennisteinstfjöll, ferð á
Fimmvörðuháls, ökuferð að Haga
vatni, sögustaðir Njálu skoðaðir,
farið kringum Snæfellsnes, ekið
í Hvammsgil, farið í Þórisdal,
ferð að Hagavatni, ferð á Þóris-
jökul, hringferð urn Borgar-
fjörð, gengið á Kálfstinda, ferð
í Hrafntinnusker, farið í Hítar-
dal, gengið á Hlöðufell og síðasta
ferðin í Langavatnsdal 5.—6.
september. Ferðirnar eru netfnd
ar nokkum veginn eftir tíma-
röð.
Skíðanámskeiðin í Kerlingar-
fjöllum verða á vegum F.í. og
íþróttakennaranna Eiríks Har-
aldssonar og Valdimars Örnólfs
sonar og skiptast í 3 átta daga
námskeið og þrjú sjö daga nám-
skeið, byrja 6. júlí og enda 26.
ágúst.
Gisting fyrir á 3. hundrað manns.
í sæluihúsum Ferðafélagsins
geta gist samtals á þriðja hundr
að manns, þegar gólfpláss er
Flökun síSdar
fyrir Ameríku
markað
SIGLUFIRÐI, 24. aprfl. _
Niðurlagningarverksmiðja S.
R. (Siglósíid) hefur starfað
með minna móti í vetur, enda^i
afsetningarmöguleikar fram-
leiðslunnar takmarkaðir enn
sem komið er.
I
Undanfarnar vikur hefur^j
þó verið unnið að flökun síld-
ar í húsakynnum verksmiðj-
unnar, fyrir Ameríkumarkað,
á vegum Haföldunnar hf.
(Sveins Benediktssonar). — í
Hafa þarna starfað um tutt-
;ugu stúlkur og þrír karlmenn, _
auk verkstjóra. — Stefán.
Frá tónleikunum á ísafirði
>1
notað auk rúmstæða. Þar er
ferðamönnum heimil gisting eft
ir reglum, sem þar eru birtar.
Til þess er ætlast að ferðamenn
leggi hæfilegt gjald fyrir gist-
ingu í fjárhirzlur húsanna eða af
hendi það skrifstofu félagsins við
heimkomu, og að sjálfsögðu að
gengið sé vel um og farið gætfi
lega með eld. Ferðamannahóp-
um er ráðlagt að leita um það
leyfis með góðum fyrirvara er
þejr óska eftir gistingu í húsum
félagsins, svo þau hafi ekki ver
ið lotfuð öðrum áður.
Skrifstofa Ferðafélagsins í Tún
gÖtu veitir allar nánari upplýs-
ingar. Framkvæmdastjóri félags
ins er Einar Þ. Guðjohnsen.
Hollywood, 29. apríl (AP).
BREZKI leikarinn Peter Sell-
ers hefur nú legið í sjúkra-
húsi í HoIIywood í hálfa
fjórðu viku vegna hjarta-
áfalls. Átti hann að' fá að fara
heim í dag, en þá tilkynntu
læknar hans að hann yrði að
vera þar í nokkra daga enn.
Ekki var gefin nein ástæða
fyrir frestun heimfararinnar.
Kirkjutónleikar
á ísafirði
ísafirði, 30. apríl.
SÍHASTLIÐIÐ þriðjudagskvöld
voru haldnir kirkjutónleikar i
ísafjarðarkirkju að viðstöddu
fjölmenni. Komu þar fram frú
Aðalheiður Guðmundsdóttir
messosópran og Árni Arinbjarn-
arson organleikari.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Aðalheiður Guðmundsdóttir held
ur hljómleika hér á landi, en
hún hefur stundað söngnám í
Reykjavík, Salzburg og í Múnc-
hen. Efndi hún til kirkjuhljóm-
leika í Múnchen í fyrrahaust.
Á hljómleikunum í ísafjarðar-
kirkju söng hún aríur úr verk-
um eftir Handel, nokkur innlend
lög og loks nokkur andleg lög
með undirleik Árna.
Árni Arinbjarnarson lék ein-
leik á kirkjuorgelið verk eftir
Buxtehude, Bach og Reger.
Vöktu þessir listamenn mikla
og verðskuldaða athygli. í lok
hljómleikanna ávarpaði sóknar-
presturinn, sr. Sigurður Kristjáns
son, prófastur, listamennina og
færði þeim þakkir fyrir þá list,
sem þeir hefðu kynnt ísfirðing-
um. Bað hann söngkonuna að
lokum að endurtaka eitt lag.
H. T.
Gjafir til blóð-
bankans
BLÓÐBANKANUM hafa borizt
peningagjafir til minningar um
frú Soffíu Sch. Thorsteinsson:
Kr. 1.373.75 frá bekkjarsystkin-
um hennar úr Menntaskólanum i
Reykjavík, sem bætist við fyrri
gjöf kr. 8.825.00 frá gagnfræðing-
um úr Flensborgarskólanum 1946.
Með þakklæti móttekið fyrir
hönd Blóðbankans.
Mikið um framkvæmdir
Ég er hálftómur í dag eftir
allt góðviðrið yfir helgina. Þeg
ar maður tekur heilan dag í að
sleikja sólina — eða láta sólina
sleikja sig — þá þarf maður
svolítinn tkna til að jafna sig.
Nú er fól-k farið að aka út úr
bænum um helgar. Eiginmenn-
írnir fara út að aka með konurn
ar, sem snúizt hafa í húsiverk-
um og kring um blessuð börn-
ín alla vikuna — og finnst þær
eigi skilið að fá örlitla upplyft-
jngu. Það er eftirtektarvert hve
bílarnir í þessum sunnudags-
akstri fara hægt (sérstaklega
ef maður er að flýta sér — og
kemst ekki fram úr). En ástæð
an til þess að engum liggur neitt
á er sú, að fólkið er að líta í
kring um sig, skoða fram-
kvæmdirnar, virða fyrir sér
byggingarnar, sem alls staðar
risa. Það er margt, sem breytist
á einni viku í Reykjavík og ná-
grenni.
Aukinn straumur
í Surtsey
Mi'kið var farið til Surtseyj-
ar um þessa helgi og ég spái
því, að þeir sem ætla sér að
annast flutninga ferðafóliks til
eyjarinnar í sumar, fái nóg að
startfa — svo tframarlega sem
veðurguðimir líta ekki slíkar
könnunarferðir óhýru auga.
Nýja flugfélagið í Vestmanna-
eyjum virðist hafa ýmislegt á
prjónunum — og svo veit ég að
ferðaskrifstofan Lönd & Leiðir,
isem nú er að verða einn at-
kvæðamesti aðili í ferðamál-
unum hér, 'hefur sitt hvað í
undirbúningi.
Stendur til bóta
Ég hef fengið brétf frá Lands
spítalanum, sjúklingi, sem þar
liggur. Segist hann ékki hafa
getað setið á sér að senda mér
línu, þegar hann las það í blöð-
unum, ag Reykjavíkurflugvöll-
ur yrði enn um skeið á sínum
stað. Segir sjúklingurinn mikið
ónæði vera í sjúkraibúsinu af
flugumferðinni. Segir sjúklinga
oft vakna upp um miðjar nætur
við hávaðann.
Allir gera sér grein fyrir því
að sjúíklingarnir þar hljóta að
verða fyrir einhverju ónæðl
vegna umferðar um flugvöllinn.
En innan skamms mun draga
verulega úr umferð um völlinn
á siðkvöldum og um nætur —■
þ.e.a.s. þegar Loftleiðir flytja
starfsemi sína suður á Keflavík
urflugvöll. Þetta stendur því
allt til bóta.
Vanþakklátt verk
Og hér kemur ein ag austan:
Ulbricht svamlaði í á einni
og var alveg kominn að drukkn
un, þegar unglingspilt bar þar
að. Náði hann til Ulbriohts og
dtró hann upp á árbakkann.
Þegar Ul'bricht náði loksins and
anum sagði hann við drenginn:
„Drengur minn — hvað get
ég gert til þess að launa þér
það, sem þú hefur gert fyrir
mig?“
„Útför á kostnað ríkisins",
svaraði drengurinn — og bætti
við: „Þegar pabbi fréttir, að ég
hafi bjargað þér, þá drepur
hann mig.“
ÞURRIIlOfiUR
ERt ENDINGARBEZIAR
BRÆÐURNIR ORMSSON hf.
Vesturgótu 3.
Sími 11467.