Morgunblaðið - 24.07.1964, Blaðsíða 12
12
MOHGUNBLAOIÐ
Fostudagur 24. jölí 1964
JMtágtmlfóifrtfr
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjorar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands •
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
ENDURSKOÐUN
FRÆÐSL UKERFISINS
rinn þýðingarmesti þáttur
hverSiþjóðfélags er fræðslu
kerfi þess. Þýðingarmesta
auðlindin er fólkið, hæfileik-
ar þess og starfsorka.' Skipu-
lag og löggjöf um fræðslu og
menntamál eru því snarundin
öllum áætlunum um framfar-
ir og hagsæld. Fræðslumálin
eru þannig mikilvægur þátt-
ur efnahagsmála hvers þjóð-
félags.
Þessari staðreynd er oft
ekki gaumur gefinn, vegna
þess að árangur og afleiðing-
ar af ráðstöfunum í fræðslu-
málum á atvinnulífið koma
ekki í ljós fyrr en eftir nokk-
uð langan tíma, og oft virðist
mönnum nærtækara að leita
annarra skýringa á því, sem
miður fór.
Stórum hluta þjóðartekna
er árlega varið til fræðslu-
mála, bæði reksturs fræðslu-
kerfisins og uppbyggingar.
Mörgum vex þessi upphæð í
augum og enn örlar á hinni
gömlu skoðun, að menntun sé
munaður. Þeim fjölgar þó
stöðugt, sem sjá og vita, að
menntun og fræðsla þegn-
anna, bæði tæknilega og vís-
indalega, er ekki aðeins svöl-
un á lærdómsþorsta og for-
vitni, heldur efnahagsmál og
sjálfstæðismál allrar þjóðar-
innar. Og menntun einnar
þjóðar hlýtur að vera sam-
tvinnuð, almenn menntun,
tæknimenntun og æðri mennt
un.
Bóklegt nám hlýtur að
fara saman með verklegri
kennslu og ekki má gleyma
líkamsrækt, því að tilgangur
fræðslulaga á ekki að vera að
ala upp heilsulitla bókaorma,
sem slitnað hafa úr tengslum
við það þjóðfélag, sem þeir
eiga að starfa í og lifa. For-
senda þess árangurs, sem
vænta verður af fræðslukerf-
inu, er auk skipulagningar,
vandaðri kennslubækur, vel
menntaðir kennarar, hús-
næði, áhöld og f járhagsleg að-
staða fyrir þá, sem eru að
afla sér menntunar. Á öllum
þessum sviðum er umbóta
þörf hér á landi. Margt strand
ar að vísu á fjárskorti fá-
mennrar þjóðar, en sú afsök-
un dugar þó ei fyrr en það er
gert, sem hægt er.
Um fræðslumál gilda nú
u.þ.b. fimmtíu lög og eru flest
þeirra nokkuð komin til ára
sinna. Við lestur þessara fjöl-
mörgu lagafyrirmæla er erfitt
að grípa á heildarstefnu eða
tilgangi fræðslukerfisins. —
Margt er úrelt eða handahófs-
kennt, en annað er ástæða til
þess að ræða með hugsanlega
endurskoðun fyrir augum.
Það virðist því kominn tími
til þess, að fram fari heildar-
endurskoðun menntunar og
fræðslukerfisins. í síðastliðn-
um mánuði ritaði Bjarni
Benediktsson, forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis
flokksins, bréf til ungra Sjálf-
stæðismanna. í bréfi þessu
ræðir formaður Sjálfstæðis-
flokksins hinn mikla þátt, sem
ungir Sjálfstæðismenn hafi
átt í mótun stefnu flokksins.
Óskar Bjarnj eftir því, að
ungir Sjálfstæðismenn skipi
nefndir til rannsóknar á til-
teknum, afmörkuðum við-
fangsefnum með það fyrir
augum, að álit þeirra megi
verða til þess að móta stefnu
flokksins. Segir Bjarni Bene-
diktsson í bréfinu, að vel fari
á því, að fyrsta viðfangsefnið
verði: Menntun íslenzkrar
æsku.
Það er ekki að efa, að ung-
ir Sjálfstæðismenn bregðist
hressilega við óskum for-
manns flokks síns. Fer vel á
því, að hugsjónaríkir og bjart
sýnir forustumenn æskunnar,
sem enn eru við skólanám
eða hafa nýlokið hverskonar
námi, stigi fyrsta skrefið til
heildarendurskoðunar hins ís-
lenzka fræðslukerfis.
UNDIRLÆGJUR
KOMMÚNISTA
rT'íminn sækir oft dæmisögur
til útlanda í málflutningi
sínum. Það skortir þó oft skiln
ing og vit á hinum erlendu
aðstæðum til þess að aðhæfa
dæmin íslenzkum staðháttum.
Um skeið voru dæmin sótt til
Suður-Ameríku og reynt að
færa firn úr stjórnmálum þar
í álfu heim og saman við ís-
lenzka stjórnmálaflokka. Inn-
sýn í orsakir og afleiðingar í
stjórnmálum þar syðra skorti
þó til þess að dæmin yrðu tal-
in skynsamleg. Hefur því á-
hugi Tímans á fordæmum-frá
Suður-Ameríku dvínað.
Nú hyggst Tíminn hagnast
með bandarískum afturhalds-
mönnum á framboði Gold-
waters, öldungadeildarþing-
manns. En enn skortir skiln-
inginn á hinu erlenda ástandi
til þess að dæmisagan gangi
upp. Tíminn vitnar réttilega
til þess, að samtök öfgamanna
í Bandaríkjunum hafa oft kall
að þarlenda stjórnmálamenn
„hálfkommúnista eða undir-
lægjur kommúnista“, eins og
sagt er í forustugrein í Tím-
anum í gær. Menn eins og
Eisenhower, Johnson forseti
"ÞAÐ brúffkaup, sem vakið
heíur mesta athygli í Loadon
í sumar, fór fram fyrir nokkr-
um dögum. Ástæðan til jþess
hve mikið var rætt og ritað
um þetta brúðkaup er fyrst
og fremst sú, að brúðguminn
heitir Winston Spencer Churc-
hill og er sonarsonur Sir
Winstons. Brúðurin Minnie
d’Erianger er dóttir fyrrv.
„Brúðkaup sumarsins/y í London
framkvæmdastjóra b r e z k a
flugfélagsins B.O.A.C.
Winston og Minnie voru gef
in saman borgaralega vegna
þess að hann tilheyrir ensku
kirkjunni, en hún er kaþólsk.
Athöfnin var mjög látlaus, en
á eftir hófust veizluhöl-d með
miklum glæsibrag. Fyrst
drukku brúðhjónin kampavín
í garði afa brúðgumans, Sir
Winstons, ásamt fjölskyldum
sínum. Síðan tóku þau á móti
tæplega 200 gestum í Hyde
Park Hotel. Þar skar brúð-
guminn brúðartertuna með
sverði, sem einn af forfeðrum
hans bar í orustu 1706.
Brúðguminn, sem er 23 ára,
hefur þegar fetað í fótspor
föður síns, Randolphs, og afa
og gerzt stjórnmálafréttarit-
ari. Einnig hefur hann skrifað
bók, sem kemur út á næst-
unni og fjallar um ferð hans
um Afríku í lítilli flugvél við
annan mann.
Winston og Minnie vonast
til þess að geta eytt hluta
hveitibrauðsdaga sinna í Kín-
verska alþýðulýðveldinu, en
þau hafa ekki enn fengið
vegabréfsáritun. Takist þeim
að fá áritun ætlar Winston að
nota tækifærið og skrifa
nokkrar greinar frá Kína.
Hugum aðvopnunum
segir Krúsjeff, og ræðir dhrif Goldwaters
d stefnu USA, ndi hann kjöri
Varsjá 21. júlí — AP, NTB
NIKITA Krúsjeff, forsætis-
og Stevenson hafa oft verið
kallaðir slíkum nöfnum
vestra.
Þetta þykir Tímanum sam-
bærilegt við það, þegar ýms-
ar beinar aðgerðir forustu-
manna Framsóknarflokksins
til stuðnings kommúnistum
hérlendis hafa verið nefndar
réttu nafni og sagt, að Tím-
inn og leiðtogar Framsóknar-
flokksins hafi þar komið fram
sem undirlægjur kommúnista.
Auðvitað eru nefndir banda
rískir stjórnmálamenn ekki
undirlægjur kommúnista.
Þvert á móti. Hvenær hafa
þeir t.d. stofnað til æsinga á-
samt kommúnistum eða stað-
ið með þeim gegnum þykkt og
þunnt í stjórnarandstöðu?
Það hafa Framsóknarmenn
hinsvegar gert og því rétti-
lega verið nefndir „undirlægj-
ur kommúnista“. Öfgamenn
vestra mundu þó varla sýna
þeim þá sanngirni, enda lítt
kunnir aðstæðum hér heima
fyrir og kviklyndi .Fram-
sóknarflokksins og aðferðum.
Þeir myndu áreiðanlega kalla
Framsóknarleiðtogana ó-
svikna línukommúnista!
Tíminn ætti því að vera
gagnrýnendum Framsóknar-
flokksins þakklátur fyrir sann
girnina og skilninginn á því,
hve ýmsar freistingar hafa
reynzt flokknum erfiðar.
ráðherra Sovétríkjanna, lýsti
því yfir í Vairsjá í dag, að
sovézkum ráðamönnum
standi ekki á sama uim frama
Barry Goldwaters, forseta-
efnis Repúblikana í Banda-
ríkjunum.
Krúsjeff sagði, að athygli
að beinast að þeim manni,
sem gæti orðið forseti Banda
ríkjanna, og því haft utan-
ríkisstefnu þeirra í hendi sér
á næstu árum.
„Sé hernaðaryfirlýsingu'm
haldið á lofti, meðan á kosn-
ingabaráttunni stendur, fer ekki
hjá því að sásíalistalöndm
dragi af því sína eigin álykt-
anir“.
Forsætisráðherrann kom í dag
til Varsjár til að taka þátt í
hátíð, sem haldin er til að mina
ast þess, að 20 ár eru liðin, síð-
an kommúnistar komust til
valda í PóllandL
Knisjeflf skýrði frá því 1
ræðu sinni, að A-Evrópulöndin
væru á varðbergi, „og huguðu
að vopnum sínum, ef til þess
kæmi, að breyting yrði gerð á
utanríkisstefnu Bandaríkj anna“.
Krúsjeflf, sem var all þungur
í tón, sagði að heimurinn horfð-
ist nú í augu við, að velja þyrftt
millum „þjóðarsjálflselsku og aU
þjóðasamstarfs“.
Um 300 manns voru á fllug-
vellinum í Varsjá, er Krúsjeff
kom þar í dag, að því er AP-
fréttastofan segir.
Tyrkland, íron og Pokistnn
tnkn npp nónori somvinnu
Istanbul, 22. júlí — (AP) —
ÞRJÚ aðildarríki Mið-Asíu-
bandalagsins, Tyrkland, íran og
Pakistan, hafa haldið hér tveggja
daga ráðstefnu um nánari sam-
vinnu í ýmsum málum, „til þess
að flýta fyrir almennri þróun
landanna“ eins og sagt var í yfir-
lýsingu sem gefin var út er ráð-
stefnunni lauk.
Samþykkt var að setja á stofn
sameiginlegt flugfélag til að ann-
ast millilandaflug og ef til vill
einnig alþjóðlegt skipafélag. —
Einnig var ákveðið að lækka póst
burðargjöld og afnema vega-
bréfaáritanir milli landanna og
stuðla að aukinni verzlun þeirra
í milli.
Til þess að annast framkvæmd
samningsins mun sett á stofn
nefnd utanríkisráðherra land-
anna og henni til aðstoðar verð-
ur önnur nefnd sem í eiga sæti
forstöðumenn skipulagsmála í
löndunum þrem.
Öðrum löndum mun heimilt að
gerast aðilar að samningi þess-
um, sem talinn er algerlega ópóli-
tískur. Rætt hefur verið um a8
höfuðstöðvar samvinnu landann*
verði í Afghanistan.
í tilkynningu, sem íranskeis-
ari, Mohamed Reza Pahlevi,
Ayub Khan, forseti Paikstan og
forseti Tyrklands, Kema Gurzel,
gáfu út í dag, sagði að þeir von-
uðu að samningurinn myndl
verða til þess að flýta fyrir þró-
un landanna og stuðla að friði og
öryggi.
Afríkuleiðtogar
Kairo, 2. júlí, AP.
f DAG fóm leiðtogar Afríku-
ríkjanna sem undanfarið hafa
setið hér á ráðstefnu um vandar
mál Afríku, að tygja sig til heim
ferðar. Allir eru leiðtogarnir
kvaldir með mikilli virðingu.
Skotið er úr 21 byssu þeim til
heiðurs og Nasser Egyptalands-
forseti fylgir þeim á flugvöllinn.
Hefur forsetinn átt svo annríkt
við að kveðja gesti sína að hann
hefur dvalizt á flugvallarhótel-