Morgunblaðið - 07.08.1964, Blaðsíða 23
1 Föstudagur 7. ágúst 1964
MORCU NBLAÐIÐ
23
SEX fjölskyldur, ein frá
tiverju Norðurlandann-a, fóru
fyrir verzlunarmannahelgina
út í Refshammerskaga við Ny-
köbíng Mors og dvelja þar út'
þessa viku í sumarbústaða-
hverfinu „Oasen“ á kostnað
danska útvarpsins, sem stend
ur fyrir þessari tilraun með
norræna sambúð í sjón og
raun.
Á hverju kyöldi eru um-
ræðufundir með fjölskyldun-
um sex og er þeim útvarpað
um upptökustöðina í Skive,
sem er þar nærri. Ákveðið
efni er tekið fyrir dag hvern
og snerust umræðurnar fyrsta
kvöldið um Svía (Svenskerne
er nú s& stilige), næsta kvöld-
Andrés Björnsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, ásamt konu
sinni, frú Margréti Viihjálmsdóttur og dætrunum Valgerði, 15
ára, Margréti Birnu, 6 ára og syninum Ólafi Bjarna, sem er níu
ára, fyrir utan einn sumarbústaðanna í Nyköbing -Mors. —
Fjöiskyldan dvelst þarna næstu viku á vegum danska útvarps-
ins ásamt sex fjölskyldum öðrum og hygigst útvarpið með þessu
komast að raun um hve mikið kveði að norrænni samvinnu
í verki.
Norræn samvinna í sjón og raun
- sex fjölskyldur í sumarbústað
ið um Færeyinga (Er Danne-
brog máske ikke godt nok til
Færingerne?), þá um ísland
; (Hvad skal Island med vore
h&ndskrifter?), Norðmenn
| (Dovregubben kan ikke
tæmmes), Finna (Finnerne
drikker og stikker med kniv),
Dani (Danskerne er hygge-
lige og har humor) og loks er
þátturinn „Kan vi sammen?“
á laugardag og gera þá fjöl-
skyldurnar það upp við sig
hvort norræn samvinna sé
annað óg meira en skrúð-
mælgi og fögur fyrirheit,
hvort mismunur þjóðanna
innbyrðis, framandi tungumál
o.fl. geri það að verkum að
þær þoli hver aðra ekki til
lengdar. x
Fjöiskyldurnar sex, sem þátt taka í tilraun danska útvarpsins um norræna samvinnu í sjón og
rauú. Lengst til vinstri er fulitrúi Norðmanna, lektor Trygve Bull, stórþingsmaður, með fjöl-
skyldu sinni, þá dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, Andrés Björnsson og fjölskylda hans og danski
tæknifræðingurinn Frank Mortensen sem sér um hina tæknilegu hlið útvarpssendinganna,
ásamt konu og syni, og landi hans, Poul Erik Söe, dagskrármaður, sem sér um allt útvarpsefnið
frá sumarbúðunum að öðru leyti, ásamt fjölskyldu sinni. Fulltrúi Færeyja, Heðin Brú, rithöf-
undur, með f jölskylduL sinni kcmur næst, þá finnska fjölskyldan, magister Christian Mahlem og
hans fólk, og loks fulltrúi Svíþjóðar, Jörgen Vyeibuil, dósent, Lundi, kunnur fyrirlesari um
málefni Norðurlandanna.
— Stefna
Framhald af bls. 1.
ar grafgötur um, að stjórn N-
Vietnam geti auðveldlega orðið
sér úti um eldsneytisbigðir í stað
þeirra, er eyðilögðust í loftár-
ásunrun í gær. Kínverjar verði
fljótir að sjá þeim fyrir öllum
hernaðarlegum nauðsynjum og
jafnvel sé talið, að Kússar hafi
þegar hafið hergagnaflutninga
til N-Vietnam.
í NTB frétt frá Bangkok segir
eftir bandariska sendiráðinu, að
akveðið hafi verið að senda tvær
flugvéladeildir til Thailands.
Verði þær þar viðbúnar ef til
frekari átaka skyldi koma. Og
AP-frétt frá Honolulu segir, að
tvær deiidir orrustuþota og könn
unarþota séu komnar til, Hickam
herstöðvarinnar og þaif sé við-
búið nær 25.000 manna lið úr
landher og flota.
Frá Formósu berast fregnir
um viðbúnað vegna ástandsins í
SA-Asíu.
• Stuðningur við
Bandaríkjastjórn
Á Bandaríkjaþingi lögðu
Dean Rusk, utanríkisráðherra og
Robert McNamara, landvama-
ráðherra, fram tilmæli um ein-
dreginn stuðning þingsins við
stefnu stjórnarinnar í Vietnam.
Utanríkis- og varnamálanefndir
beggja deilda tóku tilmælin
þegar til meðferðar. Á sameig-
iiilegum fundi nefndanna í öld-
ungadeildinni voru þau samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
nema einu — atkvæði Wayne
Morse, öldungadeildarþingmanns
demókrata frá Oregon. Síðan
var tilmælunum vísað til öld-
ungadeildarinnar sjálfrar.
nefndum fulltrúadeilda^innar fer
atkvæðagreiðsla fram í kvöld
eða á morgun og búist er við,
að tilmælin verði afgreidd í báð-
um deildum á morgun.
Meðal erlendra ríkisstjórna, er
lýstu stuðningi við stefnu Banda
ríkjastjórnar í dag voru stjórnir
Bretlands, Malaysíu og Ítalíu.
Sir Douglas Home, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði við frétta-
menn í dag, að Bandaríkjastjórn
væri í fullum rétti og Richard
Butler, utanríkisráðherra Bret-
lands væri reiðubúinn að fara
vestur um haf hvenær sem væri
til skrafs og ráðagerða.
Af hálfu norsku stjórnarinnar
var lýst áhyggjum yfir ástandinu
í Vietnam, en í yfirlýsingu Hal-
vard Lange," utanríkisráðherra
um málið, kveðst hann og stjórn-
in setja allt traust sitt á Örygg-
isráð Sameinuðu Þjóðanna.
Tunku Abdul Rahman, forsætis-
ráðherra Malasíu, sem staddur
er í London, birti yfirlýsingu
í dag, þar sem lýst var eindegn-
__ um stuðningi við Bandaíkja-
stjórn. En meðal þeirra, sem for-
dæmt hafa aðgerðir hennar eru
kommúnistaflokkar Noregs og
Japanis og stjðrn Kúbu.
• Yfirlýsingar kommúnista
Stjórnir N-Vietnam og Kín-
verska alþýðulýðveldisins hafa
báðar sent frá sér opinberar yfir
lýsingar um atburðina í gær,
þar sem Bandaríkjastjórn er harð
lega vítt. í morgun hvatti stjórn
N-Vietnam Banaaríkjastjórn til
að binda þegar í stað enda á
aljar hernaðaraðgerðir gegn
Vietnam. Var lögð áherzla á, að
það, sem gerði mál þetta sérstak-
lega alvarlegt, Yseru sú stað-
reynd, að Johnson, Bandaríkja--
forseti hefði sjálfur gefið beinar
skipanir um loftárás. HLjóti
árásin að teljast vandlega undir-
búin fyrirfram enda varpi hún
skýru ljósi yfir fyrirætlanir
Bandaríkjamanna um að gera
innrás í Norður-Vietnam.
Segir stjórnin í Hanoi árás
Bandaríkjanna gróft brot á Gen-
farsáttmálanum frá 1954 um
sjálfstæði ríkjanna í Indó-Kína
og auki hún mjög þá hættu, að
átökin í SA-Asiu breiðist út eins
og eldur í sinu. Loks segir, að
staðhæfing Bandaríkjanna um
hina endurteknu árás tundur-
skeytabátanna á bandarísku her-
skipin á Tonkin-flóa sé uppspuni
einn og Bandaríkjastjórn beri
fulla ábyrgð á afleiðingum gerða
sinna.
Þá var tilkynnt í Hanoi síð-
degis í dag, að átta bandarískar
flugvélar hafi verið skotnar
niður í loftárásunum í gær og
þrjár aðrar laskaðar mjög. Einn
bandarískur hermaður var tek-
inn til fa-nga, og fylgdi fregn-
inni, að hann héti Everett
Alvarez og væri 27 ára að aldri,
Síðdegis í dag voru sendiherr-
ar og aðrir starfsmenn erlendra
séndiráða í Peking kallaðiir á
fund í kínverska utanríkisráðu-
neytinu og þeim afhent yfirlýs-
ing kínversku stjórnarinnar, um
atburðina í N-Vietnam er birt
var í morgun. í yfirlýsingunni
segir, að loftárás Bandaríkja-1
manna á hafnarbæi í N-Vietnam
hafi verið fyrirfram undirbúin
og tilefnislaus með öllu. Segir
og, að samkvæmt Genfar sátt-
málanum frá 1954 um sjálfstæði
ríkjanna í Indó-Kína beri hverju
þeirra takmarkalaus réttur til
sjálfsvarnar. Sé það skylda allra
þjóða, er virða vilja Genfar sátt
málanna, að koma N-Vietnam
til aðstoðar.
Pekingstjórnin leggur áherzlu
á, að Kína og N-Vietnam séu
bræðraþjóðir, árás á N-Vietnam
sé sama og árás á Kína, sem
muni veita hinu fyrrnefnda alla
hugsanlega aðstoð. Megi
vænta þess, að öll kommúnísk
ríki leggist á eitt um að verja
N-Vietnam gegn Bandaríkja-
mönnum.
— Barizt
Framhald af bls. 1.
vélar með lækna og lyf, ef nauð-
syn krefur. Þegar eru í borginni
tveir læknar, er starfa á vegum
SÞ og nokkrir bandarískir og
evrópskir trúboðar.
Stanleyville hefur frá því
Kongó hlaut sjálfstæði ávallt
verið miðstöð andspyrnu- og
uppreisnarhreyfinga. Þaðan er
stjórnarandstæðingurinn '‘Antoine
Gizenga, sem nýlega var látinn
laus úr fangelsi fyrir tilstilli
Moise Tshombe, sem áður fyrr
var höfuðandstæðingur hans. —
Tshombe fór nýlega í heimsókn
til Stanleyville og var þar vel
tekið af borgarbúum, en forystu-
menn uppreisnarmanna ségjast
aldrei inunu sætta sig við_stjórn
hans.
• Struelens ekki sendiherra
Moise Tshombe hefur borið
til baka þá fregn að Belgíumað-
urinn, Michel Struelens, eigi að
verða sendiherra Kongó í Was-
hington. í tilkynningu frá
Tshombe um málið, segir, að
þótt Struelens hafi vissulega
unnið Kongó' mikið gagn, ætti
öUum að vera ljóst, að Kongóbú-
ar sjálfir hljóti að skipa sendi-
herrastöður lands síns en ekki
evrópskir menn.
• Hvítir fluttir frá Manono
Að sögn AFP-fréttastofunnar
hafa allir hvítir menn í bænum
lyianono í Norður-Katanga verið
fluttir þaðan til Elisabethville.
í Manono hafa stjórnarhermenn
hörfað til baka af ótta við árásir
uppreisnarmanna,' er koma frá
Gaudouinville við Tanganyika-
vatnið.
— Blekkingar
. Framhald af bls. 24.
255.270 kr., en ekki lækkun
um rúmar tvö hundruð þús-
und, eins og „Þjóðviljinn“
segir.
Hér er áð lokum til fróð-
leiks birt skrá yfir heildar-
gjöld þeirra aðila, sem „Þjóð-
viljinn" telur upp í gær á
lækkunarlista, sínum. Þeir
greiða í ár til ríkis og borgar,
sem hér segir:
Þorvaldur Guðmundsson
633.653.00
SteindóV Einarsson
506.662.00
Kornelíus Jónsson
101.045.00
Jónas Hvannberg
471.192.00
Sighvatur Einarsson
260.753.00
Guðni Ólafsson
176.548.00
Björgvin Schram
163.157.00
Sigurliði Kristjánsson og
Valdimar Þórðarson
721.325.00
Óskar Einarsson
46.737.00
Helga Marteinsdóttir
159.402.00
(Gjöld Hvannbergsbræðra,
Silla & Valda og Röðuls eru
hér talin með eigendum, ef
bera á þessar tölur saman við
árið 1958, en þá greiddu þeir
aðiiar persónulega skatt af
•þessum fyrirtækjum).
Pierpont
Kvenúr hefur tapazt. Skilvís
finnandi hringi í síma 40687.
— Fundarlaun.
Adenauer og
Goldwater
Bonn, 4. ágúst (AP).
ADENAUER, fyrrum kanzlári
V. Þýzkalands, átaldi í dag
þýzk dagblöð fyrir .árásir
þeirra á framboð Barry Gold
wates í Öandaríkjunum.
Sagði Adenauer að hér væri
um innanríkismál Bandaríkj-
anna að ræða, og með tilliti
til fortíðarinnar og nazism-
ans í Þýzkalandi færi það
Þjóðverjum illa að kenna
öðrum þjóðum hvernig þær
ættu að ráða málum sínum.
• Ho Chi Minh farinn frá?
NTB-fréttastofan skýrði einnig
frá því í morgun, að orðrómur
væri upp um, að leiðtogi komm-
únista í Norður-Vietnam, Ho
Chi Minh hefði sagt af sér og
í hans stað væri kominn maður
að nafni Le Duan, er vinveittari
væri Kínverjum en hinn fyrr-
nefndi. Ekki hefur þessi orðróm-
ur fengizt staðfestur og heldur
þykir ólíklegt, að hér sé rétt með
farið. Alla vega fylgdi fréttinni,
að Ho Chi Minh hefði farið frá
vegna þess, að stefna hans hefði
leitt til þessara átaka við Banda-
ríkin — og að Le Dunan væri
leiðtogi þess árms stjórnarinnar
í Hanoi, sem vinveittari væri Kín
verjum en Ho Chi Minh.
/
Stjórnarnefnd ,
Lyngássheimilisins
biður sjálfboðaliða úr Styrktarfélagi vangefinna
aðstoðar við hreinsun á lóð heimilisins eftir hádegi
á laugardag, 8. ágúst, ef veður leyfir’. Vinsamlegast
hafið garðverkfæri með ykkur. ’ \