Morgunblaðið - 12.09.1964, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.09.1964, Qupperneq 1
24 siðu* S1 árgangur 213 tbl.. — Laugardagur 12. september 1964 ’ Prentsmiðis Morgunblaðsins Missirinn er þjóð- arinnar í heild Bjami Benediktsson forsætisráðherra minntist forsetafrúar Dóm Þórhallsdóttur BJARNl Benediktsson, forsætis- ráðherra minntist forsetafrúar- innar, Dóru Þórhallsdóttur,*í út- varpinu í gær. Honum fórust svo or^: Dóra Þórhallsdóttir var þegar á æskuárum víðkunn sem glæsi-k leg biskupsdóttir og ötull liðs- maður ungmennafélaganna á fyrsta blómaskeiði þeirra. Síðar giftist hún Ásgeiri Ásgeirssyni, sem gegnt hefur mörgum vanda- sömustu og virðingarmestu stöð- um á landi hér síðasta manns- aldur. Frú Dóra hefur frá upp- hafi verið manni sínum ómetan- leg stoð í öllum hans erilsömu störfum, enda hin ágætasta hús- móðir bæði eiginmanni og böm- um. Tignasta húsfreyja landsins varð frú Dóra, þegar maður henn ar var kosinn forseti íslands á árinu 1952. Síðan hafa þau hjón setið í sæmdum að Bessastöðum og víða farið utan lands sem innan. Hvarvetna þar sem þau hafa komið eru allir á einu máli um að frú Dóra Þórhallsdóttir hafi með glæsimennsku sinni og göfuglegri framkomu orðið sér og þjóð sinni til sæmdar. Við óvænt andlát hennar ríkir því söknuður meðal allra íslendinga Og annarra þeirra sem henni hafa kynnzt. Veit ég að ég mæli fyrir munn þeirra allra þegar ég votta herra Asgeiri Asgeirssyni og öðr- um vandamönnum frú Dóru inni- lega samúð vegna þeirra mikla missis enda er missirinn ekki iþeirra einna, heldur íslenzku þjóðarinnar í heild. Tító ræðir við Junos Kndar um deilumól Sovétríkjanna og Kína Búdapest, 11. sept. -*• NTB FORSETI Júgóslavíu, Josef Broz Tító, kom í dag með einkajárnbrautarlest il Búda- pest, í sex daga opinbera heim sókn til Ungverjalands. Forsetinn mun eiga þar við- ræður við ungverska ráða- menn um deilu kínverska og sovézka kommúnistaflokks- ins. Viðræðurnar hófust skömmu eftir komu Títós. Forsetinn hélt ræðu við kom- una til Búdapest. Þar lýsti hann því yfir, að samband Júgóslavíu og Ungverjalands hefði farið mjög batnandi í seinni tíð, og ættu löndin nú mörg sameiginleg stefnumál. Forsætisráðherra Ungverja- lands, Janos Kadar — sem er einnig leiðtogi ungverska komm- únistaflokksins — sagði, að bæði löndin stefndu að svipuðum mark miðum í túlkun sósíalismans. Með Tító í förinni er kona hans, Jovanka, og Koca Papovic, utan- ríkisráðherra, svo og einn fremsti hugmyndafræðingur jógóslav- neskra kommúnista, Veljko Bla- hovic. Sérgrein hans er efnahags- kenningar. Margir aðrir. háttsett- ir embættismenn í Júgóslavíu eru með í förinni. iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiKnmiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiMiiiiiiiim Fá Bretar bikarinn heim eftir 113 ár? Peter Scott stjórnar brezka bátnum í - siglingakeppninni um „Ameríkubikarinn44 „Langar til að koma aftur til íslands" segir hann í samtali við Morgunblaðið EINS og skýrt er frá ann- ars staðar í blaðinu, hefst á þriðjudag keppni, sem vakið hefur heimsathygli og mikið hefur verið skrif- að um í erlend blöð. Er hér um að ræða siglingakeppni milli Bandaríkjamanna og Breta, sem fram fer undan ströndum Rhode Island. — Mun keppnin að öllum lík- indum standa yfir 7 eða 8 daga, og verður fylgzt með henni af áhuga víða um heim. Bandaríska snekkj- an, sem tekur þátt í keppn- heitir Constellation, en sú brezka Sovereign, og er skipstjóri á henni mað- ur sem íslendingum er að góðu kunnur og á hér marga vini og kunningja, enda heíur hann ferðazt víða um landið og tengzt því órjúfandi höndum. Það er fuglaáhugamaðurinn Pet er Scott, sonur Scotts hins þeimsfræga landkönnuðar Breta. Peter Scott liefur ekki verið við eina fjöl felldur í lífinu eins og sjá má á ævisögu hans, sem út kom ekki alls fyrir löngu og margir munu kannast við hér á Iandi, enda er þar að finna ýmsan fróðleik um ferðalög hans hér. — Ævisaga hans heitir „Eye of the Wind“. Morgunblaðið aflaði sér upp lýsinga um það í gær, hvar Peter Scott er nú staddur og náði tali af honum í síma. Hann virtist fagna þeim áhuga, sem margir hafa hér á landi á keppninni og leysti greiðlega Peter Scott (í miðju) ásamt dr. á ísland í fuelaleiðaneri Scotts keppninnar um Ameríkubik- arinn, eins og hún hefur ver- ið nefnd. Hann sagði: „1 113 ár hefur bikarinn verið í Bandaríkjunum, eða síðan skonnortan America vann hann í keppni við Eng- land 1851. Af heiti þessa skips hefur keppnin dregið nafn sitt. 18 sinnum hefur keppn- in farið fram um bikarinn, án þess að áskorendum hafi tekizt að heimta hann úr höndum Bandaríkjamanna. Þetta er þvi í 19. skiptið, Framh. á bls. 2. úr þeim spflrningum, sem fréttamaður blaðsins lagði fyr- ir hann. Peter Scott reynir nú skip sitt og þjálfar áhöfnina á þeim slóðum, þar sem keppnin fer fram, þ.e.a.s. undan strönd um Rhode Island í Bandaríkj- unum. í upphafi samtalsins báðuim við Peter Scott að segja sögu Finni Guðmundssyni og Valentínusi Jónssyni. Myndin var tekin §| til landsins. = IMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIimillllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIMIMIMIMIIIIMIIIIIIMIIIIMIIMIIillU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.