Morgunblaðið - 01.10.1964, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.10.1964, Qupperneq 1
28 slðtir - 3 iW m f jfÆt lyoftleiðir fengu afhenta aðra Rolls Royce — flugvél sína s.l. föstudag og verður hún tek- in í notkun í þessum mánuði. Hefur hún hlotið nafnið „VilhjálmUr $tefánsson“ eins og sjá má á þessari mynd, sem tekin var í síðustu viku, — Sjá grein Þorbjörns Guðmundissonar á bls. 1® «f 11. i hlaðinu í dag, en hann fór til Kanada eg heimsótti Canadair verksmiðjurnar í Montreal Og íslendingana, sem þar dveljast nú. Margir nýkjörmr þingmenn gegn afhendingu — segir próf. Bröndum - Nielsen i samtali HANDRITAMÁLIÐ er aft- ur komið á dagskrá, því frumvarp dönsku stjórnar- innar verður lagt fyrir þingið í næstu viku og þá er gert ráð fyrir að enn hefjist deilur um málið í Danmörku. Ailir íslend- ingar fylgjast með þessu máli af miklurn áhuga, og ekki síður nteð því, sem andstæðingar þeirra segja. Johannes Bröndum-Niel- sen, prófessor, fyrrverandi forntaður stjórnar Árna- safns er af mörgum talinn höfuðandstæðingur þess, að handritin verði afhent. Hann segist a.nt.k. hafa verið andstæðingur Jörg- ens Jörgensens nr. 1, en Jörgensen var mennta- málaráðherra, þegar hand- ritafrumvarpið var lagt fyrir danska þingið á sín- um tínta og aðaltalsntaður þess, að handritin verði af- hent íslendingunt. Nú spyrja allir: Hvað gera andstæðingar hand- ritamálsins í Danmörku nú þegar málið er aftur efst á haugi, menn eins og Brönd- V/ð Mbl. unt-Nielsen? Talið er fullvíst að frumvarpið um handritaafhendinguna verði saniþykkt á þinginu og fræðsluntálaráðherra Dana, K. B. Andersen, hef- ur gefið í skyn nú í vik- unni að afhendingin fari jafnvel frant fyrir febrúar- lok. (Sjá Morgunblaðið í gær). En Bröndum-Nielsen er ekki á santa ntáli. Morgun- blaðið átti símtal við hann í gær og er það birt í heild í blaðinu í dag, enda má telja fullvíst að íslendingar hafi áhuga á að kynnast afstöðu hans og santherja hans. Bröndum-Nielsen segir ýmislegt athyglisvert, nt.a. að margir nýir og ungir þingntenn verði nú helztu andstæðingar handrita- fruntvarps dönsku stjórn- arinnar, en aðalandstæð- ingurinn sem fyrr sé íhaldsþingmaðurinn Poul Mpller. Og — hvað segir Brönd- um-Nielsen um Reykjavík sem geymslustað handrit- anna? — Sjá bls. 2. Lange um deilumál SAS og Loftleiða: Biður blöðin að fara varlega í sak- irnar meðan viðræður standi yfir Einkaskeyti frá fréttaritara Mbl. í Noregi, Skúla Skúlasyni. VEGNA mikilla umræðna og blaðaskrifa um Loftleið- ir og afstöðu norrænu flug- málastjóranna til félagsins á fundum þeirra í Reykja- vík nýverið, gerði Mbl. fréttaritara sínum í Noregi, Skúla Skúlasyni, orð að falast eftir ummælum Hal- vards Lange, utanrikisráð- herra Noregs um málið. Það gekk nokkuð erfið- lega að ná tali af utanríkis- ráðberranum, þvi hann var nýkominn frá Belgíu eftir þriggja vikna nær óslitna samfylgd með Olafi Nor- egskonungi um þrjú þjóð- lönd og hafði auk þess ver- ið við brúðkaupið í Aþenu, er þau áttust Konstantín kóngur og Anna-María af Danmörku. Þó hafðist það að lokum og lét Lange svo ummælt við fréttamann Mbl. í gærmorgun: ,.Mér þj'kir vænt um að fá tækifæyi til þess að leið- réíta misskilning þann sem vart verður í Möðum varð- andi viðræður norrænu flugmálastjóranna um Ioft- ferðir milli landa þeirra. Það hefur nefnilega engan veginn slitnað upp úr þess- um viðræðum, heldur halda þær áfram í Reykja- vík innan skamms. Ég beini þeim eindregnu til- mælum til blaðanna, bæði á Islandi og í Noregi, að ' þau fari varlega í sakirn- ar er þau gera málið að umtalsefni, meðan viðræð- urnar standa yfir. Ef það er ekki gert, gæti reynzt erfitt að komast að sam- komulagi í málinu. Sam- komulag hefur þegar náðst um ýmis mikilvæg atriði og ég vona, að málið verði leitt til lykta á þann hátt að öllum líki er hlut eiga að því. Meira get ég ekki sagt eins og á stendur.“ Heyrzt hafði, að norski flugmálastjórinn hefði ver- ið einna harðskeyttastur viðskiptis á fundum þeirra starfsbræðranna hér í Reykjavík. Aðspurður hvort svo væri og hverju það sætti, anzaði Lange af bragði: „Um það hef ég ekkert heyrt“. Halvard Lange

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.