Morgunblaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ i FimmtudagUr 1. akt; 1964 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslustjóri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. BYLTING í VEGA - OG GATNAGERÐAR- MÁLUM Ckilningur á nauðsyn þess að' ^ verja miklu og vaxandi fé tíl vega- og gatnagerðarmála hefur mjög farið vaxandi. Eft- ir því sem hagur landsmanna hefur batnað og þjóðarauður- inn aukizt, telja fleiri og fleiri unnt og sjálfsagt að auka framlög til vegamála. Nýju vegalögin marka þátta skii í þessum mikilvægu mál- um. Nú er ekki einungis hald- ið áfram við að fullgera mal- arvegakerfi um land allt, heldur er og hafizt handa um að malbika og steinsteypa þjóðvegi. En hin auknu fram- lög, sem fengust með nýju vegalögunum, auðvelda ekki einungis gerð þjóðvega, held- ur hjálpa þau líka sveitafélög- unum til þess að gera stór- átak í gatnagerðarmálum. Mesta átakið í gatnagerð er nú unnið af Reykjavíkurborg, en hvert hverfið af öðru hef- ur nú verið malbikað, gang- stéttir lágðar og gengið frá götum, þannig að borgin er óðum að breyta um svip, um- ferðin verður greiðari, slysa- hætta minni, fegurð og holl- ustuhættir aukast. Önnur sveitarfélög hafa einnig hafizt handa, og nú er einmitt verið að malbika og ganga frá aðalgötunni á Sel- fossi, sem mun stórum breyta ásýnd þess byggðarlags. En þetta nýja átak í vega- og gatnagerðarmálum er að- eins upphaf þess, sem koma skal. Þegar menn sjá hve miklir kostir eru samfara full- kominni vega- og gatnagerð, sannfærast þeir um nauðsyn þess að auka enn framlög í þessu skyni, og er þess vegna ekkert vafamál að innan mjög skamms tíma mun vega- og gatnakerfi um land allt taka á sig nýjan svip. Við getum að vísu ekki gert allt í einu, og nauðsynlegt er að tak- marka álögur á landslýðinn. En tæknin auðveldar okkur stórátak á þessu sviði eins og mörgum öðrum. Fyrir forgöngu Reykjavík- urborgar hefur nú fengizt reynsla af stórvirkum vinnu- aðferðum við malbikun, og við gerð Keflavíkurvegar fæst reynsla af því að stein- steypa meiriháttar þjóðvegi. Þessi reynsla spáir góðu um að unnt verði að láta stórvirk- ar vélar vinna þessi verkefni og þannig verði unnt að fram- kvæma þau þrátt fyrir vinnu- aflsskort og takmörkuð pen- ingaráð þjóðarheildarinnar. HANDRITIN HEJM T Tandaritamálið er nú enn á dagskrá eftir dönsku þing- kosningarnar, og hefur K. B. Andersen, fræðslumálaráð- herra Dana, skýrt frá því, að hann telji að leggja megi frumvarp um afhendingu handritanna fyrir danska þingið í októbér. Afhending handritanna var samþykkt á síðasta þingi Dana en gildis- tökunni frestað. Þótt nokkur andstaða sé í Danmörku gegn afhendingu handritanna til íslendinga, er ekki ástæða til annars en treysta því, að nú verði hún samþykkt og handritin muni senn koma til landsins, Verð- ur afhending þeirra innsigli þeirrar vináttu, sem tekizt hefur með Dönum og Islend- ingum síðan deilunum um sjálfstæði Islendinga lauk, og upp frá því munu íslendingar enga þjóð virða og meta meir en hina dönsku. Undirbúningur er hér á landi hafinn að því að taka við handritunum og má ekk- ert til spara að búa sem bezt að Handritastofnuninni, enda mun það ekki verða gert FÖR TIL KINA TITaður er nefndur Magnús Kjartansson og síðari ár- in kenndur við Kúbu. Hann fór fyrir nokkrum árum að heimsækja Castro, einvalds- herra, og tókust með þeim miklir kærleikar, enda höfðu þeir náið andlegt samneyti, þar sem báðir keppa að hinu sama, að undiroka þjóð sína undir kommúníska áþján. Eitthvað mun Magnús þessi vera farinn að vantreysta hæfileikum Castros á sviði kúgunarinnar, því að hann hefur haft heldur fá orð um afreksverk hans síðustu mán- uðina, enda benda nú öll teikn til þess, að Castro sé á undan- haldi og megi þakka fyrir, ef hann lafir enn um nokkurt skeið við völd. En þá var að taka til nýrra ráða. Einhvers staðar hlutu þó að vera menn með bein í nefinu, sem hægt væri að leita hjá andlegrar uppbygg- ingar og forsjár. Og Magnús Kjartansson lagði upp í austurveg, alla leið austur til Kína. Þar er hann Gler er til | margra J hluta gagnlegt ' i GLER er eitt mikilvægasta byggingarefni nútímans, og nýverið var í Hannover sýn- ing á ýmiskonar glervöru og þróun gleriðnaðar allt fró mið öldum og fram á okkar daga. Frakkar og Þjóðverjar stóðu saman að sýningu þegsari og myndin sem sýnir mjög skemmtilega unnið glerplast, er þar tekin. Kínversk kjarnspreng- ing I náinni framtíð Ráðherrann harmaði það að Kínverjar hafi ekki viljað fylgja fordæmi þeirra mörgu ríkja, er undirrituðu samninginn um til- raunabann, en ætluðu nú að fara að eitra andrúmsloftið með nýj- um tilraunum. Hins vegar sagði hann að Bandaríkin hafi reiknað með þessum árangri Kínverjasog gert ráð fyrir honum í öllum áætlunum um eigin kjarnorku- vopn og hernaðaraðstöðu. Talsmenn bandaríska utanrík- isráðuneytisins segja að fyrir- ætlanir Kínverja varðandi kjarn- orkuvopn hafi verið rædd á fund rm fulltrúa Vesturveldanna. Telja bandarískir sérfræðingar öruggt að enn hafi Kínverjar engar tilraunir gert. Þá segja þeir að árangur þeirra á þessu sviði sé eingöngu eigin vísinda- mönnum að þakka, þar sem mörg ár séu síðan rússneskir vís- indamenn hættu að veita Kín- verjum tilsögn á þessu sviði. Bílþjófnaður f FYRRAKVÖLD var bláum sendibíl af Internationalgerð stolið frá Bílasölunni að Borgar- túni 1. f gærdag fannst bíllinn óskemmdur á Laugarásvegi, þar sem hann hafði orðið benzín- laus skömmu eftir að honum var stolið, — Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um mál þetta, eru vinsamlegast beðnir að gera rannsóknarlög- reglunni aðvart. Hvetnr tíl ndn- Btn snmstnrís kommúnista og sósíald emokrafa Moskvu, 28. sept. NTB if Einn af helztu Leiðtogum sti/ézkra kommúnista, Boris Poa omarev hvatti í dag flokka sósíaldemókrata til þess að taka upp nánara samsitarf viS flokka kommúnista. Koimiu tiL- mæli þessi fram í ræðu mikiLií, er hann flutti í Bolsjoi Leikhús- irnu í Moskvu, í tiiefni þess, að hundrað ár eru liðin frá því Kari Marx kom á iaggirnar Fyrsta aiþjóðasambandinu í Lond on. Ponomarev lagði á það ríka á herzlu, að alþjóðleg einimg kommúnista væri þeim lífsnaiuð syn — en sú eining yrði að vera í samræmi við núveramdi þroun- arstig kommúnismans. Ha,nr» kvað sovézka kommúnista 011» ekki hafa í huga að útiloka, kínverska kommúnista úr alþjóS Legiu bræðralagi komimiúnisita—. þvert á móti réttu sovézkir hin um kía(/ersku bræðrum sínum vinarhönd, þrátt íyrir bafctai þeirra og slæma framkomiu, Þeir ættu í samieiningu að gefcia barizt fyrir friði, þjóðtegu sjálf stæði og sósíalisma — og geg,a heimsvaldasinnum. Innhrotenn Washington, 29. sept. (NTB-AP) DEAN RUSK, utanríkisráðherra Bandarikjanna, lýsti því yfir í dag að búast mætti við því að Kínverjar sprengdu fyrstu kjarn orkusprengju sína á næstunni. Sagði ráðherrann að ef svo yrði, fengju Bandaríkjanienn vitneskju um sprenginguna, og yrði þá til- kynnt um árangurinn. Ráðherrann bætti því við að þótt Kinverjum tækist að sprengja eina kjarnorkusprengju þýddi það ekki að þeir ættu birgðir af sprengjum. Hins veg- ar hefðu Bandaríkjamenn lengi átt von á því að Kínverjar reyndu að gerast aðilar að kjarn- orkukappiilaupinu. — Það hefur lengi verið vit- að að Kínverjar voru að undir- búa sprengingu fyrstu kjarn- orkusprengjunnar, sagði Rusk. Benti hann á að þegar fulltrú- ar rúmlega 100 ríkja undirrit- uðu samning um bann við til- raunum með kjarnorkuvopn, hafi Kínverjar ekki aðeins neitað að vera með, heldur einnig mót- mælt samningnum harðlega. Um margra ára skeið hafa kínversk- ir vísindamenn unnið að smiði fyrstu sprengjunnar, og munu þeir vera það langt komnir að búast má við fyrstu tilrauninni á hverri stundu. nú í góðu yfirlæti hjá Mao, þeim sem telur kjarnorku- styrjöld alveg sjálfsagða, því að svo sem eins og helmingur Kínverja muni lifa hana af en flestir aðrir týna lífi. Vænt- anlega fer vel á með þeim fé- lögunum. En meðal annarra orða: Furðar nokkurn á því, þótt „félaga“ Einar Olgeirsson langi mest til að gera Magnús þennan að eftirmanni sínum í kommúnistaflokknum, þeg- ar hann hrökklast frá. Frá Höfðaströnd BÆ, Höfðaströnd, 28. sept. Slátrun stendur nú sem hæst hér, og féð reynist sæmilega vel. Flokkast það betur en í fyrra. Ærslátrun er sama og ekkert byrjuð. Fyrstu göngur eru yfirleitt búnar, en miðgöngur og eftirleit ir eftir. Fiskafli ar mjog sæmilega góð •íc. Björo. SNEMMA í gærmorgun var Iög- reglunni tilkynnt að innbroí hefði verið framið í MR-búðina að Laugavegi 164. Hafði verið brotizt inn í húsið bakdyrameg- in, komizt þar inn um lyftu. — Verkfæri til innbrotsins höfðu verið sótt í nýbyggingu á bak við húsið. Einhverju var stolið a£ sígarettum í búðinni, en það vakti eínkum athygli, ið lítill peningakassi hafði verið sprengd ur upp, eu ekkert tekið úr ölojev- um!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.