Morgunblaðið - 01.10.1964, Page 19
' Fimmtudagur 1. okt. 1964
MORCU NBLAÐIÐ
19
ti
ÞorvaWur Garðar
JóJiannes Árnason. Matthías Bjarnason. Sigurður Bjarnason. Guðmundur H. Garðarsson.
Vestfjarðaráðstefnur
SUS um næstu helgi
^ Framtíð byggðarinnar á Vestfjörðum
^ Atvinnuuppbygging á Vestfjörðum
'm' Samgöngur á Vestfjörðum
CM næstu helgi efna Samband
ungra Sjálfstæðismanna og fé-
lagssamtök ungra Sjálfstæðis-
manna á Vestfjörðum til þriggja
helgarráðstefna á Vestfjörðum.
1 Á Patreksfirði verður ráð-
Btefnan n.k. laugardag kl. 16.00
i Skjaldborg og fjallar hún um
Framtíð byggðarinnar á Vest-
fjörðum. Frummælendur á þess-
•ri ráðstefnu verða þeir Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
alþm. og Jóhannes Árnason,
Nýír
Irnmkvæmda-
sljóror
Heimdollar
og SUS
NÝLEGA hefur Valur Vals-
son, stud. oecon, verið ráðinn
framkvæmdastjóri Heimdall-
ar mun hann gegna því starfi
í vetur. Valúr Valsson hefur
tekið mikinn þátt í starfsemi
Heimdallar undanfarin ár og
átt sæti í stjórn félagsins sl.
starfsár. Er félaginu mikill
fengur af því, að hann hefur
nú ráðizt til starfa hjá því.
NÝLEGA hefur Gunnar?
Gunnarsson stud. oecon, ver-7
ið ráðinn framkvæmdastjóril
Sambands ungra Sjálfsætðis-1
manna og tekur hann við þvít
starfi ef Styrmi Gunnarssyni, /
sem hefur gegnt því frá sl.l
vori. Gunnar Gunnarsson
hefur tekið virkan þátt í fé-
lagsstarfsemi ungra Sjálfstæð
ismanna, átt sæti í stjórn
Heimdallar og gegnt fjölmörg
um öðrum trúnaðarstörfum á
vegum félagsins. Væntir Sam
band ungra Sjálfstæðismanna
sér góðs af starfi hans í þess
þágu.
sveitarstjóri. 1 Bolungarvík
verður ráðstefna n.k. sunnudag
4. okt. og fjallar hún um At-
vinnuuppbyggingu á Vestfjörð-
um. Frummælendur á henni
verða Matthías Bjarnason alþm.
og Guðmundur H. Garðarsson,
viðskiptafræðingur. Og á ísa-
firði verður ráðstefna n.k. laug-
ardag 3. okt. í Uppsölum og
hefst hún kl. 16.00. Þessi ráð-
stefna fjallar um Samgöngu-
mál Vestfirðinga og flytja fram
söguræður þeir Sigurður Bjarna
son alþm. og Páll Aðalsteinsson,
skólastjóri, Reykjanesi.
félaga ungra Sjálfstæðismanna
á Vestfjörðum. Er þess að vænta,
að ráðstefnur þessar vérði vel
sóttar enda er á þeim fjallað
um helztu hagsmunamál Vest-
firðinga og mæta á þeim allir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins í
Vestfjarðakjördæmi. Ráðstefnur
Vestfjarðakjördæmi. Ráðstefn-
urnar eru sem fyrr segir öllum
opnar, Sjálfstæðismönnum yngri
sem eldri, svo og öðrum þeim
sem hug hafa á að sækja þær.
Fjármálaráðherra á
klúbbfundi Heimdallar
— talar um skattamálin
N.K. laugardag 3. okt. verður
fyrsti klúbbfundúr Heim-
dallar á þessu hausti. Er
fundurinn í Sjálfstæðishús-
inu og er húsið opnað kl.
12.30 en borðhald hefst kl.
13.00.
Á fundi þessum mun fjár-
málaráðherra Gunnar Thor-
oddsen flytja ræðu um Skatta
málin og svara fyrirspurn-
um að ræðu sinni lokinni.
Eru Heimdallarfélagar ein-
dregið hvattir til þess að fjöl
menna á klúbbfundinn og
taka með sér nýja félags-
menn og gesti.
Ráðstefnur þessar verða með
líku sniði og helgarráðstcfnur
þær sem SUS hefur gengist fyrir
áður. Að loknum framsöguræð-
um eru almennar umræður og
fyrirspurni. Ráðstefnurnar eru
opnar öllum sem hug hafa á að
sækja þær, yngri sem eldrL
AUKIÐ FÉLAGSSTARF
UNGRA SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA Á VESTFJÖRÐUM
Ráðstefnur þessar eru upphafið
að auknu félagsstarfi ungra
Sjálfstæðismanna í Vestfjarða-
kjördæmi. 'Um þessa sömu helgi
verða einnig aðalfundir Fylkis
FUS á ísafirði og Neista FUS
á Patreksfirði. Er í undirbún-
ingi mjög aukið starf • á vegum
þessara félaga sem og annarra
NÝTT - IMÝTT
lízkuefnið SEASKIÍV
er komið, hentugt í kjóla, pils, skokka,
vesti, jakka og kápur.
Ilaustog vetrartízkan
er seaskin.
KOMIÐ O G SKOÐIÐ
Dömu og herrabúðin
Laugavegi 55.
/ Garðahreppi!
Afgreiðsla Morgunblaðsins í Garðahreppi,
viU ráða dreng eða stúlku til að bera
Morgunblaðið til kaupenda í Hraunsholts
hverfi (Ásarnir). — Afgr. Mbl. IToftúni við
Vífilsstaðaveg. — Sími 51-247.
Lokað
Vöruskoðun- og farangursafgreiðsla Tollgæzlunn-
ar verða lokaðar frá kl. 1 á hádegi, fimmtudag-
inn 1. þ. m. vegna jarðarfarar.
Tollstjórinn í Reykjavík.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör 35 fulltrúa Landssambands ísL
verzlunarmanna og 35 til vara á 29. þing Alþýðu-
sambands íslands.
Framboðslistum skal skilað í skrifstofu L.Í.V.,
Tjarnargötu 14, uppi, fyrir kl. 12 á hádegi laug-
ardaginn 3. október 1964.
Kjörstjórnin.