Morgunblaðið - 01.10.1964, Síða 24
24
MORCUNBLAÐIÐ
Fímmtudagur 1. okt. 1964
i
HERMINA BLACK:
Eitur og ást
Corinna var enn óráðin í hvern
ig hún aetti að fitja upp á þessu
máli við Söndru, og hún reyndi
að einbeita sér að því, sem
hún var að gera. Síðdegis var
drepið á dyr hjá henni og Sandra
Lediard kom inn. Hún var prúð-
búin að vanda. í ljósgráum lín-
kjól. Á beltinu var sylgja úr jade
og eyrnarhringirnir í sarrja stíl.
Hún var dálítið meira förðuð en
hún var vön. Þegar Sandra kom
að skrifborðinu, svo að birtan
varð sterkari á andlitinu, varð
Corinna skelkuð er hún sá breyt
inguna, sem orðin var á henni
frá því daginn áður. Hún var
miklu ellilegri og augun í henni
öðruvísi — augnaráðið var rauna
legt.
— Eigið þér mjög annríkt?
— Nei, eiginlega ekki.
Sandra gekk að glugganum og
starði út. Svo leit hún við og
tók vindling úr gullhylkinu sinu.
Hún lagði það frá sér á skrif-
borðið meðan Corinna var að ná
í eldspýtu handa henni.
— Viljið þér reykja?
— Nei, þökk fyrir, sagði Cor
inna og snerti við vindlingahylk
inu. — En hvað þetta er fallegt,
sagði hún.
— Já, hann Philip lætur allt
eftir mér, þó hann segi að hann
ætti ekki að örva mig til að
reykja svona mikið.
— En þér hafið yndi af að mik
ið sé látið eftir yður, er það
ekki?
Sandra yppti aðeins öxlum.
— Stundum getur það verið
. . . þreytandi . . . Hún settist
fyrir handan skrifborðið. — Það
kemur manni til að finnast mað
ur vera svo . . . óverðugur. Og
það er tilfinning, sem ég hélt að
aldrei mundi ásækja mig . . .
Hún hnyklaði brúnirnar, eins
og hún iðraðist eftir að hafa gert
þessa játningu. Reykti nokkrar
mínútur þegjandi. Svo sagði hún:
— Lífið er enginn leikur,
finnst yður það? Æ, ég gleymdi
alveg, að frá yðar sjónum hlýt-
ur tilveran að vera eins og himna
ríki núna.
— Ekki alveg, sagði Corinna
rólega. — Blake fór í nótt.
— Fór? hváði Sandra. — Það
hefur borið bráðan að.
Allt í einu datt Corinnu nokk
uð í hug. Hún opnaði töskuna,
sem stóð hjá ritvélinni, og tók
upp bréfið frá Blake.
— Eg held að það sé rétt að
þér lesið þetta, sagði hún.
Sandra tók forviða við bréf-
inu. Corinna sá að hún fölnaði
meðan hún var að lesa það. En
þegar hún var búin og leit upp
aftur, var andlitið á henni eins
og sviplaus gríma.
— Hvað gengur að mannin-
um? sagði hún. — Hvað hafið
þér gert til þess að gera hann
afbrýðisaman?
— Þér voruð í hvítu kvöldkáp
unni minni í gærkvöldi, var það
ekki, frú Lediard?
— Eruð þér að gefa í skyn, að
ég hafi haft stefnumót, meðan ég
var í kápunni yðar.
— Ég er að gefa í skyn að þér
hittuð Wrayman á leiðinni heim
til yðar, sagði Corinna.
Sandra hristi öskuna af vindl-
ingnum. — Hversvegna í ósköp-
unum hefði ég átt að gera það?
— Ég held að það sé rétt að
þér fáið að vita, að ég sá yður
og Wrayman saman þarna um
daginn — daginn sem ég trúlof
aðist, sagði Corinna alvarleg.
— Þér hafið oft séð okkur sam
an áður, sagði Sandra.
— Við þetta tækifæri voruð
þér í faðmi hans og hann kyssti
yður . . .
Sandra spratt upp, sótrauð af
reiði. — Hvernig dirfist þér að
njósna um mig? Og auk þess er
þetta haugalygi. Ef þér farið til
Philips . . .
‘— Ég ætla mér ekki að fara til
mannsins yðar, svaraði Corinna,
og nú brann reiðin í augunum á
henni. — Dettur yður í hug að ég
38
vilji særa einn bezta manninn,
sem ég þekki í veröldini? Og
hvað það snertir að njósna, þá
mundi mér vera mjög kært að
vita sem minnst um . . . að þér
séuð ótrú.
Sandra varð svo skelfd við
þessa óvæntu andstöðu, að allur
roði hvarf úr andlitinu á henni
og málningin á henni varð enn
grímukenndari en áður. Hún
lygndi augunum og reyndi í ör-
væntingu að hafa stjórn á sér, en
svo fleygði hún sér niður í stól-
inn aftur og fór að hágráta.
Að sjá Söndru, jafn borgin-
mannleg og hún var að jafnaði,
engjast sundur og saman í grát-
hviðum, var svo óvænt að Cor-
inna gat ekki annað en starað á
hana, orðlaus af undrun.
— Vesrið þér ekki að gráta,
frú Lediard — og gerið þér það
fyrir mig að gráta ekki. Corinna
studdi hendinni á öxlina á henni.
— Mér dettur ekki' x hug að
segja prófessornum frá þessu.
Sandra fór að leita að vasa-
klút. — Hérna, takið þér þennan,
sagði Corinna og rétti henni
hreinan klút. Hún dró stólinn að
snyrtiborðinu og fór inn í bað-
klefann og hellti í glas síjuðu
vatni úr flösku, sem stóð á gler-
-hillunni.
Sandra sat við snyrtborðð þeg
ar Corinna kom aftur.
— Hvað er þetta, dæsti hún.
— Það er ekki sjón að sjá mig!
Corinna náði í smyrsl og ýmis
glös, og ætlaði svo að fara út,
en þá kallaði Sandra gjallandi
eftir henni: — Æ, verið þér
hérna hjá mér-
Corinna settist á rúmstokkinn.
Henni fannst þessi óvænta breyt
ing allt annað en skemmtileg.
Nú farðaði Sandra sig aftur og
augun voru hörð er Corinna sá
þau í speglinum.
— Þér haldið þá að Blake
Ferguson hafi séð mig um kvöld
ið?
— Eruð þér ekki sammála? Ég
hef haft . . . ég man að þegar
hann sá mig með Wrayman áður,
varð hann alltaf . . . reiður.
— Hvaða ástæðu hafði hann
til að reiðast þó hann sæi yður
með Wrayman? Hvernig gat hon
um yfirleitt dottið í hug, að þér
munduð kveðja hann svona? Það
voru mikil líkindi til, að hver
sem var gæti séð yður. Þér eruð
trúlofuð Blake er ekki svo?
Hvernig hefði yður þá átt að
detta í hug að láta Robin sýna
yður ástarlot?
hægt hafi verið að sjá það?
— Víst var'það — og auk þess
sagði hann mér það sjálfur.
— Hann vissi að . . . að ég
hafði séð ykkur í faðmlögum,
sagði Corinna rólega.
Sandra þagði um7 stund eftir
að hún hafði heyrt Corinnu
segja að Robin Wrayman hefði
vitað frá upphafi að. Corinna
hafði séð hann og Söndru í heit
um faðmlögum. Hún nuddaði
vandlega svertuna af augna-
brúnunum. Hún hefði helzt vilj
að verða fokreið, telja sér. trú
um að njósnað hefði verið um
sig, en hvernig sem nú á því stóð
gat hún ekki hleypt í sig vonzku.
Hún gat séð að Corinnu leið illa.
Fyrst nú skildist þessari sjálfs
elsku manneskju að hún hafði
þörf fyrir samúð og skilning
annarra.
— Hvert fór Blake? spurði
hún.
— Ég veit það ekki.
— Hafið þér enga hugmynd
um það — eða hve lengi hann
verður fjarverandi?
— Ég hugsa að hann sé al-
farinn. Og ég hef enga hugmynd
um hvar hann er.
— En þér getið vafalaust skrif
að honum til Cairo — sagt hon
um að honum hafi skjátlast —
að þér getið ekki sagt honum
hvernig —.en að hann verði að
treysta yður.
— Ég hugsa að hann vilji ekki
treysta mér. Hann hatar svik
og iygi.
— Haldið þér ekki -að hann
hafi gleymt öllu saman þegar
hann . . . þegar hann kemur
aftur?
— Ekki held ég það. Blake
gleymir aldrei neinu.
BLAÐADREIFING
FYRIR !
Morgunblaðið þarf þegar í stað að ráða fólk til blaðadreifingar
í þessi blaðahverfi:
★
★
★
★
Seltjarnarnes — Laugavegur lægri númer.
Laufásvegur hærri númer.
Sigtún — Meðalholt — Austurbrún.
Gjörið svo vel að hafa samband við afgreiðslu
Morgunblaðsins.
tmblaíitíi
sími 22480.
— Ég geri ráð fyrir að hann
hafi ekki hugsað svo langt. En
hann sá kápuna mína.
— Þér hafið líklega rétt fyrir
yður. Flestir karlmenn og allt
kvenfólk eru bjálfar sagði
Sandra bitur. — Þér haldið þá
að ég hafi haft Robin fyrir frið
il af því að mér leiddist? Hugs-
um okkur að ég segði yður að
við höfum elskazt árum saman —
löngu áður en mér hafði dottið
í hug að giftast Philip.
— Ég veit það sagði Corinna.
— Það er langt síðan ég upp-
götvaði að hann elskaði yður út
af lífinu.
— Ætlið þér að segja mér að
KALLI KÚREKI -X—• k- *- —*— Teiknari; J. MORA
! — Allt í lagi. Nú er ég búinn að
borga honum peningana. Má ég þá
k ekki taka byssuna mína og fara.
—Vissulega. Ef þú vilt leggja aft-
ur út í tvísýnu ... notaðu hana.
— Ég verð á kránni. Ef þið þorið
einhvern tíma að hitta mig þegar
við stöndum jafnir að vígi, þá...
— Andartak.
— En hugsum okkur að ég tal
aði við hann — eða léti yður
segja honum sannleikann?
Mundi hanix þá ekki telja skyldu
sína að aðvara Philip?
— Það er fremur ólíklegt,
sagði Corinna þreytulega.
Hversvegna ætti hann að vilja
gera prófessornum skapraun,
fremur en ég?
Sandra leit snöggvast á hana
áður en hún svaraði:
— Menn eins og Blake Fergu-
son hafa mjög einkennilegan
skilning á — sómatilfinning-
Kópavogur 1
Afgreiðsla Morgunblaðsins i |
Kópavogi er að Hlíðarvegi 61, 1
sími 40748. I
Carðahreppur i
Afgreiðsla Morgunblaðsins i
fyrir Garðahrepp er að Hof- \
túni við Vífilsstaðaveg, sími
51247. 1
Hafnarfjörður
Afgreiðsla Morgunblaðsins ,
fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
er að Arnarhrauni 14, simi
50374.
Keflavík i
Afgreiðsla Morgunblaðsins 1
fyrir Keflavíkurbæ er að i
Hafnargötu 48.