Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 1

Morgunblaðið - 29.12.1964, Síða 1
28 síð&ir 51. árgangur. 293. tbl'. — Þriðjudagur 29. desember 1964 _ Prentsmiðja MorgunTblaðsins. Nattúruham- farir um jólin — en þó voru þau hin friðsömustu að öðru leyti miðað við mörg undanfarin ár Frá messu páfa í Sixtusarkapellu. Jólahátíð um víða veröld London 28. des. — NTB. JÓLIN voru afl vanda hátíðleg haldin um gjörvallan heim, baeði í kristnum löndum og öðr- um. tm 50.000 ferðamenn og pílagrímar voru saman komnir á torginu fyrir framan Fæðing- arkirkjuna í Betlehem á aðfanga dagskvöld, en þar messaði róm- versk-kaþólski patríarkinn, Al- herto Gori. Að messu lokinni gtkk patríarkinn fyrir skrúð- fylkingu æðstu embættismanna í Jerúsalem og sendiherra krist- inna landa til staðar þess, sem talið er að hafi verið fæðingar- staður Krists. Mikið var að vanda um dýrðir í Páfagarði. Páfi flutti messu af svölum Péturskirkjunnar, en sök um rigningar var fámennara á Péturstorginu en venjulega. Á miðnætti á aðfangadagskvöld messaði páfi í Sixtusarkapellu, og voru 'þar sendiherrar erlendra ríkja í Páfagarði. Tass-fréttastofan sovézka skýrði frá því að þúsundir mótmæl- enda og kaþólskra hafi sótt jóla- messur og guðsþjónustur í Moskvu og öðrum borgum Sovét- rikjanna. í Peking tóku kristnir menn þátt í jólamessum á að- fangadag. Jóladagur var hins- vegar venjulegur vinnudagur í Kína. Elísabet Englandsdrottning flutti hinn árlega boðskap sinn um jólin. Hún sagði m. a. að æska Bretlands yrði að beita hugrekki sinu, gáfum og hug- viti í þágu þess að byggja upp nýjan og betri heim, svo mann- kynið megi lifa áfram. Fjármáladeilan innan SÞ er komin á alvarlegt stig U Thant kominn til starfa úr veikindaleyfi til þess að reyna að miðla málum á síðustu stundu New York, 28. des. (NTB-AP) FORSETI Allsherjarþingsins. Alex Quaison-Sackey, hóf í dag aftur tilraunir sínar sem miða að því að finna lausn á deilu þeirri, sem uppi er milli Bandaríkjanna og Sovétríkj- »nna varðandi skuldir síðar- nefnda aðilans og nokkurra fleiri þjóða vegna friðargæzlu SÞ í Kongó ©g víðar. Talið hafði verið að heldur hefði þokað í samkomulagsátt síð- iistn vikur, en siðustu daga fyrir jól og sjálfa jóladagana hefur aftur sigið á ógæfuhlið- ina varðandi samkomulag. — Talsmaður SÞ skýrði frá því i «I»S *ð U Thant, fram- kvæmdastjóri samtakanna, mundi í kvöld hitta ýmsa full- (rúa að máli vegna deilunn- »r, þeirra á meðal Adlai Stev- . enson, sendiherra Bandaríkj- anna, og sendiherra Sovétríkj- anna, Nikolai Fedorenko. Quaison-Sackey ræddi i dag við iþá Pedorenko og fulltrúa Kan- ada, Paul Tremblay. Um niður- stöður þessarra viðræðna er ekki vitað. U Thant, sem útskrifaður var af sjúkrahúsi 18. des. sl., og skip- að hafði verið að læknum að hvíla sig frá störfum þar til eftir nýár, ákvað að koma aftur til starfa ef vera mætt.i að hann gæti aðstoðað við lausn deilunn- ar. Öllum atkvæðagreiðsium um málið í Allsherjarþinginu hefur verið fréstað um óákveðinn tíma til þess að reyna að firra því að til stórvandræða dragi. 19. grein sáttmála SÞ mælir svo fyrir að ríki, sem skuldi samtökunum fé í tvö ár, glati atkvæðisrétti sin- um. Vona menn nú, að innan skamms finnist einhver sú iausn, sem geri það kieift að sneiða framhjá þessari grein sáttmáians. Á sunnudag töldu ýmsir sendi- menn hjé SiÞ, að deilumálið kunni að komast á mjög aJvar- legt stig nú um áramótin, og bú- izt er við því að enn minni samn- ingsvilja gæti nú af hálfu Sovét- ríkjanna en áður. Talið er að Sovétríkin munu knýja fast á að Framh. á bls. 21 San Francisco og víðar, 28. des. — AP-NTB. E N D A þótt jólin hafi um margt verið þau friðsamleg- ustu, sem menn muna, eiga þó margir um sárt að binda. Á Kyrrahafsströnd Banda- ríkjanna hafa nú staðið mikil flóð vegna stórrigninga í heila viku, og hafa þúsundir manna misst heimili sín og a.m.k. 48 hafa farizt. Rigningin hefur nú gengið niður, en í nótt var stormur og snjókoma á flóða- svæðunum og jók það enn á erfiðleika manna. Þá hefur fellibylur herjað á Ceylon og Indlandsstrendur, og liðlega 500 manns fórust í umferðar- slysum í Bandaríkjunum jóla- dagana. Loks urðu jarðskjálft ar í suðurhluta Irans og lögð- ust þar tvö þorp í rúst. Ekki er getið um manntjón af þeim sökum. Á sunnudag var búizt við því, að mesta hættan af flóðunum á norðvesturströnd Bandaríkjanna væri úr sögunni, en þá skall á óveður af Kyrrahafi. Ekki varð þó mikið tjón af því, en gripið var til öryggisráðstafana víða, m.a. í borginni Portland í Ore- gon. Óttuðust menn að hið mikla veður af hafi mundi verða til þess að ár flæddu yfir bakka sína í ósum. Rauði krossinn segir, að alls hafi 16,300 fjölskyldur misst heimili sín, bóndabæi eða verzl- anir í ríkjunum Kaliforníu, Ore- gon, Idaho, Washington og Nev- ada. Eignatjón er af opinberri hálfu talið nema einum milljarði dollara, eða um 43 milljörðum ísl. króna. Snjókoma og frost í norður- hluta Kaliforníu og Oregon hafa gert allt björgunarstarf erfiðara, og enn eru hundruðir manna ein- angraðir á ýmsum stöðum á flóða svæðunum. Meðal þeirra eru 500 námuverkamenn og skógarhöggs- menn ásamt fjölskyldum þeirra á mörkum Kaliforníu og Oregon. Fellibylur og flóðbylgja Talið er að um 850 manns hafi farizt er fellibylur og flóðbylgja herjuðu á Ceylon og eyjarnar fyrir suðurodda Indlands á Þor- láksmessu. Um 500 manns biðu bana er flóðbylgja skall á bæn- um Danushkodi á Rameswharan- eyju. Þá hafa menn gefið upp alla von um að 350 fiskimenn frá Ceylon, sem saknað er, séu á lifi. Talið er að eignatjón á Ceylon og Indlandi skipti milljónum doll ara, en brýr hafa hrunið, vegir og járnbrautir eyðilagzt, og aðal- útflutningshöfn Ceylon, Trincooa lee, hefur orðið fyrir miklum skemmdum. Þá hafa þúsundir manna misst heimili sín. Giuseppe Saragat, hinn ný- kjörni forseti ítaliu. Þá er bara að reyna aftur Giuseppe Saragat kjörinn, sem íimmti íorseti Italíu Róm, 28. desember, AP. AÐ kvöldi mánudags var loks lokið hinum feiknarlega löngu forsetakosningum á Ítaiíu. Voru þá talin atkvæði í tutt- ugasta og fyrsta sinn og er kunngert var, að Giuseppe Saragat, utanríkisráðherra, frambjóðandi hægri jafnaðar- manna, hefði fengið þau 482 atkvæði, sem til þurfti til að ná lögmætri kosningu, biðu þingmenn ekki boðanna, létu sér á sama standa um hve mörg viðbótaratkvæði Saragat hafði fengið en upphófu langt og mikið klapp. Loksins var þessum ósköpum lokið! Það hefur oltið á ýmsu í forsetakosningum á Ítalíu áð- ur, en aldrei hefur iþó gengið eins seint og erfiðlega og nú, er kjósa átti eftirmann Ant- onii Ségnis, sem lætur af embætti forseta sökum van- heiisu. Atkvæðagreiðsiur í italska þinginu hafa verið á forsíðum heimstoiaðanna siðan löngu fyrir jól og yfirleitt undir einhverri fyrirsögn á borð við .gengur hvorki né rekurí ..Enn langt í )and“ o. þ. h. Lengi vel N*virtisl svo sem frambjóðandi kristilegra demókrata, Giov- anni Leone, þingforseti, myndi sigurstranglegastur, en þegar gengið hafði verið til atkvæða fimmtán sinnum á níu dögum og Leone enn ekki fengið til- skilinn meirihluta, gafst hann upp og dró sig í hlé. Síðan hafa þeir bitizt um embættið Giuseppe Saragat, utanríkisráðherra, hinn 66 ára gamli stofnandi ítalska sósdal- demókrataflokksins, og Pietro Nenni, leiðtogi vinstri jafnað- armanna. Það hefur einkum verið Saragat til trafala, að á annað hundrað vinstrisinnaðra kristilegra demókrata vildu lengi framan af ekki veita honum fulltingi sitt, en á fundi kristilegra demókrata Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.