Morgunblaðið - 29.12.1964, Blaðsíða 21
ÞriSJudagUr 29. des. 1964
MORGU N BLADIÐ
21
I»rír fyrstu forsetar ítalíu. Enrico de Nicola, sá er fyrstur
hafði á hendi embættið, er lengst til vinstri, í miðið stend-
ur Giovanni Gronchi, fyrirrennari Segnis og til hægri er
Luigi Einaudi, sem tók við emhætti af de Nicola á sínum
tima.
— Forseti Italíu
Framhald af bls. 1
fyrr 1 dag var ákveðið að
flokkurinn skyldi fylkja sér
um Saragat, ef með Iþví móti
mætti takazt að binda enda á
þessar forsetakosningar, sem
eru þær lengstu og erfiðustu
sem sögur fara af á Ítaliíu.
Saragat er fyrsti forseti It-
alíu sem er sósíalisti og er
kjör hans talið mikill ósigur
fyrir kristilega demókrata,
sem í fyrstu reyndu að fá
kosinn flokksmann sinn, Le-
one, en létu loks til leiðast að
styðja Saragat, ef honum
kæmi þar á móti enginn
stuðningur frá kommúnistum,
en það var fyrir atkvæði
beggja, sem Saragat loks náði
kosningu.
Fráfarandi Italíuforseti,
Antonio Segni, hlaut kosningu
í maí 1962 og hefði að réttu
lagi átt að gegna embætti
áfram til ársins 1969, því for-
setar á Ítalíu eru kjörnir til
sjö ára í senn, en hann veikt-
ist í sumar er leið, svo sem
kunnugt er af fréttum, og hef-
ur ekki síðan náð þeirri
heilsu, að hann treysti sér til
þess að hafa á hendi forseta-
embættið, sem hann nú hefur
sagt lausu.
Forsetakosningarnar 1962
þóttu allsögulegar því ekki
náði Segni kosningu fyrr en
við níundu atkvæðagreiðslu.
Svo sem kunnugt er, þarf tvo
þriðju atkvæða til að ná kosn
ingu við fyrstu þrjár atkvæða
greiðslurnar, en við síðari at-
kvæðagreiðslur dugir einfald-
ur meirihluti. Allar eru at-
kvæðagreiðslurnar leynilegar.
Þá var aðalkeppinautur Segn-
is sá hinn sami Saragat, sem
nú hefur hlotið kosningu.
Þeir Segni og Saragat voru
einu opinberu frambjóðend-
urnir það sinnið og var Segni
frambjóðandi kristilega demó-
krataflokksins, en naut Iþó
ekki stuðnings vinstra arms
flokksins. Saragat var þá í
framboði fyrir sósíaldemó-
krata, sem lagt höfðu til, að
stjórnarsamsteypuflokkarnir 4
styddu hann til kjörs. Kristi-
legir demókratar höfnuðu
þeirri tillögu og kusu að bjóða
fram Segni svo sem áður
sagði.
Við fyrstu atkvæðagreiðsl-
una 1962 hlaut Segni 333 at-
kvæði og Saragat ekki nema
4i2 og leit þá ekki út fyrir að
lengi myndi þæft um málið.
En það fór á annan vég. Með-
an Segni jók fylgi sitt í mestu
atkvæðagreiðslum um nokkra
þingmenn hverju sinni, 340 -
341 - 354 - 396 og 399 í
sjöundu umferð bætti hann þó
aftur við sig og hafði þá 332
en Segni 389. Þá dró loks
sundur með þeim og fékk
Segni 424 atkvæði við átt-
undu atkvæðagreiðslu en Sara
gat 337. Varð þá uppþot í
þinginu, en í níundu umferð
var loks lokið einvíginu og
fékk Segni þá 443 atkvæði (15
fleiri en hann þurfti (428)) en
Saragat sat eftir með sárt enn
ið og 334 atkvæði í sínu hlaut.
Fráfarandi forseti 1962,
Giovanni Gronchi, fékk 20 at-
kvæði við fyrstu atkvæða-
greiðslu, Piccioni 12, Merza-
gora 2, Terracini 200 og Volpi
120, en við níundu atkvæða-
greiðslu voru ekki eftir nema
Merzagora og Gronchi, sem
fengu fimm atkvæði hvor.
Ótilgreindir frambjóðendur
fengu tvö atkvæði og 52 þing-
menn gátu ekki einu sinni við
níundu atkvæðagreiðslu gert
upp við sig hvernig þeir
skyldu kjósa og skiluðu því
auðu.
Frambjóða.ndi kristilegra
demókrata fór einnig með
sigur af hólmi árið 1955, er
kjörinn var eftirmaður Luigi
Einaudis, sem gegnt hafði for-
setaembættinu undangengin
sjö ár. Það var Giovanni
Gronchi, þingforseti, sem
hlaut kosningu við fjórðu at-
kvaeðagreiðslu. Ekki blés þó
byrlega fyrir honum framan
af, því við fyrstu atkvæða-
greiðsluna fékk hann 30 at-
kvæði en Einaudi, fráfarandi
forseti 120. öldungadeildar-
forseti Cesare Werzagora fékk
228 og Ferruccio Parri ( einn
af leiðtogum andspyrnuhreyf-
ingarinnar í stríðinu og for-
sætisráðherra 1946) 308 at-
kvæði. Parri dró sig í hlé þeg-
ar í stað og vildi gefa Merza-
gore færi á forsetaembætt-
inu, en klofningur kristilegra
demókrata varð til þess að
spilla fyrirætlun Parris. Þeg-
ar talin voru atkvæði eftir
þriðju umferð var fylgi
Gronchis miklu mest eða 281
atkvæði, en Merzagora hafði
245. Vildu þá margir kristi-
legir demókratar að Gronchi
drægi sig í hlé og Merzagora
hlyti embættið, en þegar ljóst
varð, að Gronchi myndi njóta
stuðnings mikils fjölda kristi-
legra demókrata auk vinstri
sinna, varð það úr að
Merzagora dró sig í hlé, en
flokkurinn lýsti Gronchi opin
berlega frambjóðanda sinn.
Hlaut þá Gronchi 658 atkvæði
er gengið var til atkvæða í
Þessi mynd var tekin 6. mai
1962, við níundu atkvæða-
greiðslu í forsetakosningun-
þá, er Segni skilaði sinu at-
kvæði,
fjórða sinn og þar með kosn-
ingu til embættis ítaláufor-
seta. Hann tók við embætti
11. maá 1955, en við embætti
forseta neðri deildar, sem
Gronchi hafði gegnt tók
Giovanni Leone, sá er lengi
þótti sigurstranglegastur í
kosningunum núna.
Harðir bardagar
í S-Viet Nam
Á ýmsu hefur oltið í
Saigon 28. des. — AP-NTB
Harðir bardagar hafa geisað í
S-Viet Nam undanfarna daga. Á
sunnudag vann stjórnarlierinn
einn stærsta sigur sinn á Viet
Cong kommúnistum. Am.k. 87
skæruliðar kommúnista voru
drepnir, og auk þess náðu stjóm-
arhermenn á sitt vald miklum
birgðum vopna Viet Cong, þeim
mestu sem fundist hafa. Þessi
bardagi var háður um 145 km. SV
af Saigon, en stjómarherinn beið
hinsvegar ósigur í öðrum bardaga
um varðstöð um 80 km. frá
Saigon. Þar féllu 43 hermenn
stjórnarinnar, 36 særðust og 32
er saknað. — í dag, mánudag,
varð meira tjón með Bandaríkja
mönnum í Viet Nam en nokkurn
enn dag áður í styrjöldinni í
landinu, en 16 bandarískir her-
menn og einn ljósmyndari særð-
ust. Átta Bandaríkjamanna sem
særðust vom þyrluflugmenn á
tveimur þyrlum, sem fluttu liðs
auka til stjórnarhersins, en hann
gerði áhlaup á mikilvæga stöð
uppreisnarmanna. Tvær þyrl-
anna voru skotnar niður af
þeim 54 sem fóru í leiðangur-
inn.
Á ýmsu hofur olti'ð í Viet Nam
undanfarna daga. í dag var birt
yfirlýsing Tran Van Huong, for-
sætisráðherra, og Palm Khac
Suu, ríkisleiðtoga, þar sem þeir
skora á her landsins að fá völdin
aftur í hendur borgaralegri
stjórn.
Á aðfangadagskvöld varð
miikill sprenging í gistibúsi í
Saigon, en bandarískir liðsfor-
ingjar halda þar til. Tveir Banda-
ríkjamenn biðu bana og 68 særð
ust. Talið er að um 100 kg. af
sprengiefni hafi verið komi'ð fyr-
ir í gistilhiúsiniu, og eru fæstir í
landinu síðustu daga
vafa um að hér hafi Viet Cong
kommúnistar verið að verkL
Þrj'ár hæðir hótelsins stór-
skemimdust við sprenginguna.
Á sunnudag var síðan varpaö
sprengju inn í veitingahús í bæn
um Mo Cai, um 50 mílur SV af
Saigon. Fjórir Bandaríkjamenn,
sem staddir voru í veitingaíhús-
inu, særðust, þar aif einn hætfcu-
lega, 12 ára telpa beið bana og
15 innfæddir særðust.
Bandjríska blaöið New York
Times g \, li frá því í dag, að
Bandaríkiastjóm hefði uppi
ráðagerðir um að auka aðstoð
sína við S-Viet Nam um 60 — 70
millj dollara á næsta fjárhags-
ári. Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins í Waóhington sagðl
hinsvegar á bla’óamannafundi 1
dag að hann vissi ekki til þess að
neinar álkvarðanir um aukna að
stoð við S-Viet Nam hefðu verið
teknar af stjórninni.
— Fjármáladeilan
Framhald af bls. 1
málið verði tekið upp í Alls-
herjarþinginu innan fárra daga,
þannig að uppgjör um það fari
þá fram. Er talið að Sovétrikin
æski þessa sökum þess að þau
telji sig nú hafa stuðning svo
margra landa, að þau geti jafn-
vel orðið ofan á í Allsherjar-
þinginu, eða í það minnsta hindr
að að Bandaríkjamenn og Vest-
urlönd verði það. Bandaríkja-
menn, Bretar og Vesturlönd yfir-
leitt vilja helzt komast hjá siíku
uppgjöri að því talið er, og er
ástæðan sú, að þessi lönd telja
að á hvorn veginn sem það
mundi fara, yrði niðurstaðan sú
að Sameinuðu þjóðirnar sjálfar
töpuðu sem slíkar.
Stórþjófnaður á jólanótt
Asgeir Emarsson, verzlunarstjor i í Gevafoto við Lækjartorg,
Býnir okkur ljósmyndatæki af sömu gerð og hurfu úr verzluu-
inni á jólanótt.
Leifur Jonsson
rannsóknariögreglumaður
Brotizt inn í Gevafoto og stolið ljósmynda-
varningi að verðmæti um 100 þús. kr.
AÐFARANÓTT jóladags var
brotizt inn í ljósmyndaverzl-
unina Gevafoto við Lækjar-
torg og stolið þaðan ljós-
myndavörum að verðmæti
um 100 þúsund krónur miðað
við útsöluverð. Vekur slík bí-
ræfni að sjálfsögðu nokkra
furðu, þegar þess er gætt, að
verknaðurinn er framinn hina
helgu jólanótt, þegar sízt
hvarflar að mönnum, að pöru-
piltar leiki lausum hala.
Að því er Leifur Jónsson, rann-
eóknarlögreglumaður, tjáði Mbl.
var hér um að ræða myndavélar,
sjónauka, kvikmyndatökuvélar
cg ljósmæla, hina verðmætustu
gripi. Vart hefur verið unnt að
fela slík ósköp innan klæða, og
eru það því eindregin tilmæli
rannsóknarlögreglunnar til borg-
arbúa, sem kunna að hafa verið
á ferli í miðbænum aðfaranótt—
jóladags og orðið hafa einhvers
grunsamlegs varir, að þeir láti
henni þær upplýsingar í té.
Blaðið leitaði einnig upplýs-
inga hjá Ásgeiri Einarssyni, verzl
unarstjóra í Gevafoto. — Hann
sagði, að þegar Sveinn Björns-
son, forstjóri, hefði komið í
verzlunina annan jóladag, hefði
allt verið þar á tjá og tundri.
Myndavélar lágu eins og hráviði
um allt gólf, en brotizt hefði ver-
ið inn um rúðu. Þjófurinn hefur
vafalaust haft poka meðferðis og
aðstoðarmann, því að ránsfeng-
urinn var það umfangsmikill. Úr
verzluninni hurfu m.a. tveir sjón-
aukar af Leitz-gerð, hvor um
sig að verðmæti 8 þúsund krón-
ur, tvær Voigtlander-ljósmynda-
vélar, að verðmæti 10 og 12 þús-
und krónur, kvikmyndatökuvélar
og fleira verðmætL