Morgunblaðið - 24.03.1965, Page 10

Morgunblaðið - 24.03.1965, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 ,0ræfakyrrðin hefir veitt mér bezta hvíld' Afmælisrabb við ÓBaf Jons- son, ráðunaut, sem varð sjötugur i gær HANN er fæddur að Freys- hólum í Vallahreppi í Suður- Múlasýslu 23. marz 1895. Ekki vill hann þó viðurkenna, að nafn Freys, guðs akuryrkju og jarðargróða, í bæjarnafninu, hafi nokkru ráðið um val lífs- starfsins, sem hefir að mestu verið helgað framförum í jarð rækt og búskap. Með því hef- ir Ólafur unnið bændastétt- inni ómetanlegt gagn á mörg- um sviðum, ekki sízt í norð- lenzkum sveitum. Þó er það margra manna mál, að hjáverk hans og tómstundagaman, könnun öræfaslóða og marg- vísleg fræðimennska um ó- byggðir og náttúru íslands, eigi eftir að halda nafni hans enn lengur á loftL Ég geri mér ferð heim til hans og Guðrúnar Halldórs- dóttur, konu hans, til þess að ræða við hann og fræðast af honum stundarkorn, en hús þeirra stendur á hinni eigin- legu Akureyri, syðst í kaup- staðnum og er nr-. 3 við Aðal- stræti. Setztur í stól í stofunni spyr ég hann um æskudagana. — Foreldrar mínir fluttust til Reykjavíkur 1907, en við fórum fljótlega austur á Hérað aftur og var ég þar, þangað til ég fór á Hvanneyrarskól- ann 1915. Þar var ég til vors 1917. Námið var fremur erfitt en flestir höfðu áhuga á að læra og því var námið okkur skemmtun. Ég fór svo aftur austur, en gerðist starfsmaður Búnaðarsambands Bongar- fjarðar og síðan Hvanneyrar- búsins til ársins 1921. Þá um vorið fór ég til Danmerkur og vann á tilraunastöð í Hem- ing á Jótlandi sumarlangt, en settist svo í Landbúnaðarhá- skólann í Kaupmannahöfn um haustið. Þar var ég til vors 1924 og lauk þá prófi frá skól- anum. — Voru margir fslendingar samtímis þér í skólanum? — Við byrjuðum þar jafn- snemma Steingrímur Stein- þórsson og ég og fylgdumst al- veg að í námi. Ári áður hafði Pálmi Einarsson hafið þar nám, og ári á eftir okkur Stein grími komu svo þeir Guð- mundur Jónsson, nú skóla- stjóri á Hvanneyri, Jón Jónas son á Kambi í Eyjafirði, Björn Símonarson kennari á Hólum og Gunnar Árnason, gjaldkeri og skrifstofustjóri Búnaðar- félags íslands. Við vorum því 7 landar samtímis i skólanum. — Komstu svo hingað beint frá prófborðinu? — Eiginlega var ég ráðinn til Ræktunarfélags Norður- lands ári áður, þeir biðu eftir mér þetta ár. 1924 varð ég sem sé framkvæmdastjóri Ræktunarfélagsins og á að heita það enn að nafninu til, þó að ég sé búinn að segja af mér. Annars tel ég, að megin- starfi mínu þar hafi lokið 1945, þegar Gróðrarstöðin var gerð að ríkistilraunastöð, og ég fór þaðan alveg 1949 og hætti þá sem tilraunastjóri. — í hverju voru fyrstu störf þín fólgin? — RN var þá búnaðarsam- band fyrir allt Norðurland, og í Gróðrastöðinni hafði frá upp hafi, árið 1903, farið fram margskonar og merkileg starf- semi og tilraunir. En nú var fjárhagurinn í rústum og meg inverkefni mitt var í fyrstu að hressa hann við, byggja upp og endurbæta húsakynni, því að margt var illa gengið úr sér. Fyrstu tilraunirnar, sem ég vann að hér, voru áburðar- tilraunir, þær voru auðveldast ar viðfangs og ódýrastar. En merkilegasta nýmælið var belgjurtatilraunir. Ég notaði bæði smára, flækjur, ertur, lú- pínur og lúcernur. Smáranum var sáð um leið og grasfræi eða honum sáð í gróið land, en flækjum var aðalleiga sáð með höfrum. Aðrar tegundir gáfu svo sem enga raun. Ég notaði alltaf smit, þ.e. smitaði plönturnar með viðeigandi bakteríum, sem vinna köfnun- arefnið úr loftinu og breyta því í áburð. Það kom í ijós að tilgangslaust var að nota belgjurtir öðruvísi. Þessar bakteríur finnast í íslenzkum jarðvegi fyrir smára, en er- lendis hafa verið ræktaðir sér stakir bakteríustofnar í þessu skyni. Við þyrftum að koma upp slíkum stofnum, sem vel henta hérlendum aðstæðum. Hvítsmárinn íslenzki vinnur bara of hægt vegna veðrátt- unnar m.a., rauðsmárinn er hraðvirkari, og hann notaði ég mikið og flutti fræið inn. Verst er, að smári frjóvgast illa hér, af þ víað okkur vant ar réttar skordýrategundir til frævunarinnar, t.d. býflugur. En það er skemmst af að segja að þessar belgjurtatilraunir féllu niður í miðju kafi, og skal ég ósagt láta, hvort eða hvenær þær verða teknar upp aftur. Þó mun sennilega eitt- hvað vera fengizt við þær hjá Atvinnudeild Háskólans. — Nú er allmikið ræktað af Alaska-lúpínu, t.d. á Þverár- aurum í Fljótshlíð, en ég held, að útbreiðsla þeirra sé von- lítil nema að smita fræið, því að viðeigandi bakteríur finn- ast ekki í íslenzkum jarðvegi. — Hvað segirðu mér um matjurtatilraunir og Ólafs- rauð? — Gerðar voru samanburð- artilraunir bæði á tegundum og aðferðum við ræktun. • Ég gerði einu sinni úrval úr rauð- um íslenzkum, sem bar nokk- urn árangur og olli því, að rauðar ísl. ' eru farnar að ganga undir nafninu Ólafs- rauður, sem er alls ekki rétt. Þó slíkt úrval sé gert, þarf að halda því vel aðgreindu frá tegundinni, sem fyrir var, en smeykur er ég um, að Ólafs- rauður_ sé orðinn blandaður aftur. f sumum gömlum kart- öflutegundum er mörgum lín- um blandað saman, en þær einkennast af mismunandi sprettu, en ekki ólíku útliti. Ég valdi kartöflur undan 30- 40 beztu grösunum eitt haust- ið og hélt þeim sér undan hverju grasi. ræktaði áfram og bar saman, fleygði þeim lé- legustu, en hélt þeim beztu. Þetta tók nokkur ár að vinza þannig úr. — Mér finnst, að meta verði kartöflutegundir eftir gæðum, en ekki eftir upp skerumagni, en sjónarmið seljendanna er náttúrulega annað, einnig er mikið atriði, að vöxturinn sé þannig, að þægilegt sé að vinna að upp- skerunni. En hvað sem því líð ur, finnst mér engar kartöfl- ur betri en þær rauðu ís- lenzku, þegar þær eru komnar á diskinn. Mikið af kartöflum er líka eyðilagðar með alltoi miklum áburði og röngum á- burðartegundum. Margir halda, að hægt sé að fá góðar kartöflur með hóflausum á- burði, en það er vægast sagl spurning, hvort það sé rétt. — Svo hefur þú fengizt vif komrækt. — Já, ég byrjaði seinna í korninu, einkum byggi. Til- raunir voru í samræmi vit tilraunir annars staðar á land- inu, aðallega á Sámsstöðum Kornrækt hér reyndist í heilc svo áfallasöm, að mér fanns mjög hæpið að fást við hana Sum árin gafst hún vel, en ai meða.Rali 4. hvert ár stór skemmdist hún af ýmsum á stæðum, af foki eða kuldum Kannski höfum við ekki nógu' góðan jarðveg. En það tekur langan tíma árlega að fá þroska í kornið. Frostnætur, sem eru algengar í ágúst, valda því, að kímið deyr og kornið verður ófrjótt og lé- legt. Hauststormar ollu því, að alltof mikið korn hrundi af öxunum. — Ekki vil ég þó fordæma kornrækt hér alls- staðar. í lágsveitum sunnan- lands er frosthættan minni og þar er hægt að sá fyrr á vorin en hér, og það er geysimikið atriði. Svo eru veðurskilyrði efalaust góð víða annars stað- ar á takmöfkuðum svæðum, t.d. miklir sumarhitar í skjól- sælum dölum. En ekki tel ég neina framtíð í kornræktinni sem lið í almennum búskap. Við eigum heldur enga korn- ræktarmenningu eða gróna reynslu á kornrækt eins og bændur í akuryrkjulöndun- um, en það getur svo sem breytzt. — Hvað tókstu þér sv-o fyr ir hendur, þegar þú hættir í Gróðrarstöðinni? — Ég gerðist jarðræktar- ráðunautur Búnaðarsambands Eyjafjarðar í 5 ár, en þar næstu 2 árin vann ég mest við ritstörf, bæði við rit mitt skriðuföll og snjóflóð, Vasa- handbók bænda og Ársrit RN, en 1957 fékk Jónas Kristjáns- son samlagsstjóri mig til að gerast ráðunautur SNE í naut igriparækt, og það hef ég verið siðan. Vasahandbókin var ný- mæli hér og kostaði dálítið átak að koma benni af stað, en auðvitað studdist ég við er- lendar fyrirmyndir. Hún seld- ist ágætlega og er eina bú- fræðiritið, sem það verður um sagt. Mér þótti gaman að vinna við hana fyrst í stað og var ritstjóri í 10 ár, en þegar fram í sótti, fór mér að leið- ast hún og ég losaði mig við hhna. — Mér hefur alltaf þótt mest gaman að fást við rann- sóknar- og tilraunastörf, hvort . sem er í jarðrækt eða kvik- fjárrækt, og verið svo heppinn að fá að vinna mest á því sviði. — En svo við snúum okk- ur að öðru, Ólafur, — margan ertu búinn að leiða við hönd þér um undraheima Ódáða- hrauns og kenna mönnum að þekkja landið sitt betur en ella með þínu mikla ritverki. Hvenær fórstu fyrst inn í Ódáðahraun? — Það hafði verið draum- ur minn síðan í barnæsku að komast í Dyngjufjöll og sjá þau með eigin augum, ég hafði heyrt svo mikið frá Öskjugos- inu 1875 sagt fyrir austan, þeg ar ég var drengur, og öllu vik- urfallinu, sem frá því stafaði. Hitasumarið mikla 1933 var fyrri slætti lokið í Gróðrar- Ólafur J ór.isson stöðinni i júnílok, og þá ákváð um við Ármann Dalmannsson að láta verða af því að skreppa inn í Öskju. Hitinn var igeysilegur og Herðubreið sjólaus nema smáblettur norð- an í kollinum. Við lentum í vatnsleysi, sandstormum og margháttuðum erfiðleikum, en öræfaheimurinn heillaði mig svo, að ég hef ekki losnað und an töfravaldi hans síðan, enda ekki kært mig um það. Ég hef fundið mig knúinn til að skoða fleira og fleira, þó að ég ætlaði aðeins að skoða Dyngjufjöll í upphafi. Frá 1933 og til 1945 fór ég 2-3 ferð ir suður á öræfi á hverju sumri til að bæta við þekk- ingu mína og njóta fegurðar- innar þar. Þangað til ritið um Ódáðahraun kom út, notaði ég til þess öll mín sumarleyfi og alla samfellda frídaga aðra, þegar veður og færð leyfði. Á veturna las ég svo öll heim- ildarrit, sem ég komst yfir, og vann að ritstörfunum. Ég finn eftir á, að ég hefði átt að gefa mér lengri tima til að fuHgera verkið, mér finnst nú, að því sé í mörgu áfátt. — Hverjir voru helztu ferðafélagar þínir um Ódáða- hraun? — Framan af þeir Stefán Gunnbjörn Egilsson og Eð- varð Sigurgeirsson og siðar Jón Sigurgeirsson frá Hellu- vaði. Einnig var dr. Trausti Einarsson með í nokkrum ferð um. Ferðirnar voru yfirleitt mjög erfiðar, við urðum oftast að bera allt okkar hafurtask á bakinu, bæði tjöld, nesti og annan útbúnað, en alltaf skildu þær eftir góðar endur- minningar oig veittu mér hvíld og svölun. •— Hvaða ferð er þér minn- isstæðust? — Ég held ferðin, sem við Eðvarð, Þórarinn Björnsson, Kristján Eldjárn og Kristján Karlsson fórum til að grafa upp rústirnar í Hvannalind- um. Við Eðvarð héldum svo áfram suður í Kverkfjöll, með an hínir unnu að uppgreftrin- um, gengum á fjöllin og virt- um fyrir okkur þann undra- heim, sem þar er að sjá. Það er stórkostlegt ævintýri að sjá allan þennan jarðhita í ná- býli við jökulinn og öll þau umbrot og merki um umbrot, sem þarna hafa orðið. Ég gleymi heldur aldrei, þeigar ég sá í fyrsta sinn inn í Öskju, það var ægifögur sýn. Mörg atriði í sambandi við Öskju eru mér líka ofarlega í huga, þó ekki væri nema Öskjugosið síðasta. — Hvað hefur hrifið þig mest á öræfunum? — Ég held, að það sé kyrrð- in, þögnin og fjarlægðin frá ölíum skarkala og „menningu". Það er unaðslagt að vera úr seilingu við útvarp, blöð, síma og umferðargný, aðeins að reika frjáls og óháður um ó- snortin víðernin. Það er stór- kostlegt andleg hvíld þrátt fyr ir mikla líkamlega þreytu, og öræfin hafa tvímælalaust veitt mér bezta andlega hvíld. Mað- ur lifir líka lengi á eftir á end- urminningunni. Ferðirnar hafa bara yfirleitt verið of strangar og ekki verið nægur tími til að fara haagt yfir og ' njóta þeirra. Menn hafa senni- lega mesta ánægju af þeim viðfangsefnum, sem þeir kunna að þrengja og tak- marka. — Nú, svo hef ég alltaf haft gaman af jarðfræði og að lesa jarðsögu úr jarðmyndun- um. Sérstaklega hef ég verið áhugasamur um eldfjallafræði en óvíða er betra að stúdera hana en á þessu svæðL — Finnst þér ekki merki- legt, að miðhálendið skuli hafa verið mönnum óþekkt land að mestu fram á síðustu áratugi? — Víst má sagja svo, en þó er þetta mjög skiljanlegt. fs- lendingar höfðu lengst af öðr- um hnöppum að hneppa en leggj a stund á lystitúra upp um fjöll og firnindi, baráttan fyrir daglegu brauði og lífs- afkomunni leyfði slíkt ekki. Menn ferðuðust ekki í næstu sókn nema af nauðsyn. Fjár- leitir fóru fram á takmörkuð- um svæðum, þar sem menn vissu um haga og ógerningur hefði verið að þaulleita allt það flæmi, sem óbyiggðirnar ná yfir. Svo voru menn hrædd ir við útilegumenn fram á síðustu áratugi 19. aldar og viku ógjarna út af föstum leit- arslqðum,jafnvel þótt heimt- ur væru lélegar. En fé gat víða flækzt, og þurfti ekki að vera af völdum útilegumanna, þótt það fyndist ekki. Ég hef fundið merki um sauðkindur á ólíklegustu stöðum. Það er t.d. ekki langt síðan Bárðdæl- ingar fóru að ganga Nýjadal eða öðru nafni Jökuldal í Tunignafellsjökli. — Svo skrifaðir þú um skriðuföll og snjóflóð? — Já, ég var einu sinni byrjaður að safna efni um skaðaveður, en tíndi jafnframt saman það, sem ég rakst á um skriður og snjóflóð. Ég sá fljótt, að efnið var alltof stórt og fleiri ástæður lágu til þess, að ég einskorðaði mig við hið Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.