Morgunblaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 20
20 MORCU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 24. marz 1965 ANN PETRY: STRÆTiÐ Annað árið silaðist áfram. Á því ári tók hún fjögur eða fimm próf, en í öll skiptin lenti hún neðarlega í röðinni. Tók svo fleiri próf og beið eftir atvinnu. Fjögur ár hírðist hún í þvottahúsinu, áður en hún fékk loksiná at- vinnu á skrifstofu. Þetta eldhús í Connecticut hafði algjörlega breytt öllu lífi hennar — þetta eldhús, með öll- um þessum margvíslega ú.tbún- aði, eins og hitt í auglýsingunni þarna. Lestin þaut að 125. stræti og hún tók að ryðja sér braut til dyranna, en leit við til þess að líta á auglýsinguna i síðasta sinn um leið og hún færi út úr vagninum. Hún ruddi sér braut gegn um þröngina á pallinum. í>að var ekki nema fárra mín- útna gangur til 116. strætis, en íbúðin þar var þó í hennar aug- um smásigur og árangur af öll- um undirbúningi hennar og ráða gerðum. í fyrsta lagi var þessi siðaðra manna atvinna og í öðru lagi hitt að hafa íbúð ú.t af fyrir sig þar sem hún og Bub gætu verið í næði og laus við hina hávaðasömu kunningja pabba hennar og Lil með litaða hárið og argandi röddina, og burt frá þessum leigjendaskríl, sem borg- uðu húsaleiguna fyrir pabba. Þetta var sigur að vera komin hingað, þrátt fyrir allt. Hvað strætið snerti, þá var hún ekki svo mjög hrædd við áhrif þess, því að gegn þeim ætlaði hún sér að berjast. Stræti eins og þetta, sem voru annaðhvoft al- svört eða blönduð, höfðu gert pabba að bragðaref, sem drakk ofmikið — þau höfðu gengið af mömmu dauðri meðan hún var enn á bezta aldri. í þessu húsi, sem hún átti nú heima í, hafði sama atvikarás komið frú Hedges, sem sat við gluggann, til að breyta íbúðinni sinni í vel rekið hóruhús —en hóruhús samt — og húvörðurinn — honum hafði sama atvikarás ýtt niður í loftlausa kjallara, þangað til hann þjáðist af ein- hverri hræðrilegri áráttu, og eitt- hvert annað stræti hafði gert Min, sem bjó með honum, að sóðalegri subbu, sem var svo máttlaus og beinlaus, að hún Kkt ist mest blautri gólftusku. En Lutie einsetti sér, að láta ekki neitt þessu líkt ná taki á sér — hún skyldi berjast gegn því og aldrei hætta að berjast. Hún yfirgaf lestina og henni datt í hug, að í rauninni fyndist sér hún aldrei vera manneskja fyrr en hún var komin til Harlem inn í augatilliti hvítu kvennanna, og losnaði þannig við fjandskap- sem störðu á hana í miðborginni og neðanjarðarlestunum. Og losn aði við rannsóknaraugu hvítu karlmannanna, sem eins og horfðu gegn um fötin á henni til þess að komast að löngu, dökku lærleggjunum á henni. Og þetta augnatillit orkaði þannig á hana, að hana langaði mest til að taka til fótanna. Þetta fólk hugsar allt það aama — að þegar það er íaust ▼ið fyrirlitninguna í augnaráði miðborgarfólksins, verður það strax að sjálfstæðum persónum. Hérna í Harlem er það ekki bara ,,negrar“ og því allt steypt í sama mótið. Hún tók eftir því, að þegar hópurinn fjarlægðist eftir braut- arpailinum, þandist hann út. Sama fólkið, sem hafði gert sig fyrirferðarlítið í lestinni, stækk- aði nú svo mjög, að það komst varla upp á tröuppurnar út að götunni. Hún komst út aftast í hópnum og horfði á hann dreif- ast í allar áttir, hlæjandi og mas andL Ksnsaan 7 3. kafli. Þegar Lutie var komin út úr neðanjarðarlestinni, gekk hún hægt upp eftir strætinu, og var að hugsa um það, að ekki hefði maður fyrr leyst eitt vandamál- ið en annað hefði skotið upp koll inum í staðinn. Nú þegar þau Bub voru orðin ein, var enginn til að hafa auga með honum eftir skólatima. Henni hafði dott- ið í hug, að hann gæti borðað há- degismat í skólanum, því að það var ekki svo mjög dýrt — aðeins 50 sent á viku. En eftir þrjá hádegisverði í skólanum, reis Bub upp á aftur- fótunum: — Ég get ekki étið þennan óþverra. Við fáum sápu á hverjum degi og ég hata hana! Undir eins og hún hefði efni á því, skyldi hún losa sig úr vinnunni eftir einn eftirmiðdag og fara í skólann og kynna sér af eigin raun, hvernig mataræð- ið þar væri. En þangað til yrði Bub að fá hádegismat heima, og það var nú ekkert áhyggjuefni. En það var, hvað af honum yrði eftir skólatímann, sem hún var að velti fyrir sér á göngunni, því að þá var hann annaðhvort einn heima, eða þá að leika sér á göt- unni. Hún mátti ekki á milli sjá, hvort verra var — að hann léti sér leiðast í leiðinlegu íbúðinni, eða væri stöðugum hættum undir orpinn úti á götunni, en þar var umferðin óverulegasta hættan. Hann var of ungur og óreyndur til að varast allar hætturnar, sem biðu hans á götunni. Þar voru til dæmis að taka óaldarflokkar stráka, sem sátu um smælki eins og Bub, sem gátu verið handhæg- ir til að skriða inn um glugga að húsabaki eða til að dreifa athygli búðarmanna, meðan hinir létu greipar sópa um vörurnar í búð- inni. En þrátt fyrir óvistlegu íbúð- ina og skarðið, sem hún hafði gert í vikukaupið hennar og áhyggjurnar út af Bub, þá fór hún að raula fyrir munni sér á göngunni meðan hún greikkaði sporið. En þegar hún var komin móts við húsið, snarstanzaði hún, af því að hún hafði alveg gleymt að kaupa í kvöldmatinn. — Hálfpund af hamborgara, sagði hún, þegar röðin kom að henni í slátrarabúðinni. Það mundi nægja í kvöldmatinn og hún mundi hafa afgang ofan á brauð handa Bub um hádegið á morgun. Hún horfði á slátrarann vefja matinn inn í vaxpappír og setja hann síðan í brúnan bréfpoka. Hún rétti honum dollaraseðil og stakk pakkanum undir handlegg inn, en í hinni hendinni hélt hún veskinu sínu, til þess að hann yrði að láta peningana á borðið. Hún tók aldrei við peningum úr hendi hans, og nú þegar hann lagði peningana á borðið, tók hún að velta fyrir sér ástæðunni til þess arna. Var það af því að hún vildi ekki snerta þessar grófu og skornu hendur? Eða var það af því að hann var hvítur og þetta að neyða hann til að leggja peningana á borðið, gæfi henni einhverja valdakennd? Hún hélt á peningunum laus- um í hendinni, þegar hún gekk út úr kjötbúðinni og inn í mat- vörubúðina við hliðina á henni, en þar stanzaði hún sem snöggv- ast í dyrunum og horfði á stræt- ið. Það leit út eins og hver-önnur fátækleg gata í borginni. Ef til vill þó ofurlitið ruslaralegri. Gluggarúðurnar voru óhreinni og þarna var meira af smábúðum en i öðrum hlutum borgarinnar. Einnig var þarna meira af börn- um og meira af fólki, sem ráfaði um, iðjulaust og tilgangslaust. Hún gekk inn í matvörubúð- ina og hugsaði með sér, að þessi íbúð henni gæti nú gengið til bráðabirgða, en bráðlega skyldi hún samt flytja sig í betra hverfi. Úr því að hún hafði getað komizt svona langt, án nokkurrar hjálp- ar, þá þurfti hún ekki annað en áætla vandlega næsta skref upp á við. Það greip hana eitthvert sjálfstraust, og hún hugsaði sem svo: ég er ung og sterk og treysti mér til hvers sem vera skal. Hún gekk hægt, hlaðin böggl- um og það var eins og hún hik- aði við að fara inn í húsið og taka til við matarmallið. Hún forðaðist krakkana, sem buðu fram þjónustu sína við að bursta skóna hennar og hugsaði með sér, að þessi veslings börn ættu að hafa einhverja heppilegri at- vinnu til að vinna sér inn aura en þessa skóburstun. Það mundi venja þau á að geta ekki hugsað sér aðra framtíðarvinnu en gólf- þvott og stigasópun, það sem eftir væri ævinnar. Rétt áður en hún kom að dyr- unum hjá sér, heyrði hún enn einu sinni sama sóninn: „Bursta, frú?“ Og svo var skríkt. — Ha, mamma, þú þekktir mig ekki einu sinni! Hún snarsneri sér við og varð að líta tvisvar áður en hún gat trúað sínum eigin skilningarvit- um. Jú, það var ekki um að vill- ast — þetta var Bub. Hann sat klofvega á skóburstunarkassa með húsvegginn að bakgrunni. Hann brosti til hennar, Ijómandi af kæti yfir því að hafa komið henni á óvart. Hann hallaði aftur höfðinu og hún gat séð sterkleg- ar, jafnar tennurnar. Á þeirri stuttu stund, sem hún var að færa alla bögglana undir vinstra handlegginn, sá hún ail- an skóburstunarkassann í smá- atriðum. Það var stykki af rauðu gólfteppi neglt ofan á kassann, Hausarnir á teiknibólunum, sem það var neglt með, glitruðu í kvöldsólinni. Lítið glas af svetru, gamall skóbursti og smurningabursti var snyrtilega uppstillt á lítilli hillu undir sæt- inu. Og svo hafði hann skreytt hliðarnar á kassanum með eld- spýtubréfum úr safninu sínu. Hún rak honum rokna löðrung. Og þegar hann setti upp skelfing- arsvip, sló hún hann aftur, og nú fastar, og hún fyrirleit sjálfa sig fyrir að gera það og það með an hún var að reiða til næsta högg. — Snáfaðu inn, skipaði hún og rykkti honum á fætur. Hann beygði sig til að taka upp kass- ann, en þá sló hún hann aftur. Láttu þetta drasl eiga sig, sagði hún hvasst og hristi hann, þegar hann reyndi að slíta sig lausan. Röddin í henni var loðin af reiði. — Ég er að þræla til þess að halda þér uppi, og svo ertu úti á götunni og hagar þér eins og hinir negrakrakkarnir. En við sjálfa sig sagði hún. — Þú veizt, að það er ekki það eina, sem hér er um að ræða. Það er líka hitt, að hann Henry litli Chandler er jafngamall Bub, og þú veizt, að hann er í gráum flúnelsfötum með bláa húfu og háa, bláa sokka og fallega brúna skó. Hann lærir lexíurnar sínar við arininn í fallegri stofu. En þinn krakki er útí á götunni með skóburstara- kassa. Hann er í heimafötunum sínum, sem eru alveg eins og hin, sem hann er í skólanum — slitn- ar stuttbuxur og sokkar með gati á hælunum, af því að hann fer út úr öllum sokkum, hvað mikið sem þú stagar þá. Það er líka hitt, að þú ert hrædd um, að ef hann er að bursta skó, átta ár, þá verði hann að þvo glugga þegar hann er sextán, og vinna í lyftu, tuttugu og eins og heldur því svo áfram það sem hann á ólifað. Og þú heldur, að gatan sú arna hindri hann í því að ljúka við skólann, og sem verra er — hún geti kom- ið honum í bölvun og vandræði, svo að hann verði settur í vand- ræðabarnaskóla, bara af því að þú getur ekki litið eftir honum — af því að þú þarft að vinna. — Haltu áfram, sagði hún og ýtti honum í áttina að dyrunum á leiguhúsinu. Hún varð þess vör, að frú Hedges var að horfa út um gluggann, eins og hún var vön. Hún herti á Bub, til þess að þau gætu sem fljótast komizt úr augsýn frú Hedges, sem var að glápa á þau. En frúin fylgdist með ferðum þeirra alla leið inn í dyrnar, því að hún teygði höf- uðið út um gluggann, svo að rósaklúturinn hennar virtist svifa í loftinu. Þegar Lutie gekk upp stigana á eftir Bub, datt henni í hug, að þetta væri rétt eins og að búa í tjaldi, þar sem allt, sem inni fyrir gerist, er sýnilegt vegna þess að tjaldið vill ekki lokast. Að minnsta kosti var það svo, hvað þessa síglápandi frú Hedges snerti. Á liðinni upp dimmu stigana, sem voru svo mikil viðbrigði frá sterku sólskininu úti fyrir, varð hún þess vör, að Bub var að gráta. Snökta. Hann hlaut að hafa eytt miklum tíma í þennan skó- burstarakassa. En hvar hafði hann fengið aurana fyrir svert- unni og burstanum? Kannski hafði hann verið að sendast fyrir húsvörðinn, því að þeir höfðu strax orðið mestu mátar. Hún var nú ekkert hrifin af þeirri vin- áttu, af því að húsvörðurinn var — vægast sagt — skrítinn. Hún mundi það alveg fyrir víst, að hún hafði sagzt vilja hafa íbúðina hvítmálaða. Hann hlaut að hafa gleymt þvi, því að þegar hún flutti inn, sá hún, að herbergin höfðu verið máluð rauð, blá og græn, og engin tvö eins. Þessir litir gerðu herberg- in ennþá minni en þau voru í raun og veru og hún flýtti sér að segja: — En þeir hræðilegu litir! En vonbrigðasvipurinn, sem Höfn i Hornafirði BRÆÐURNIR Ólafur og Bragi Ársælssynir á Ilöfn í Hornafirði eru uinboðsmenn Morgunblaðsins þar. Þeir hafa einnig með höndum blaðadreifinguna til nær- liggjandi sveita og ættu bændur, t.d. í Nesjahreppi að athuga þetta. Sandur UMBOÐSMAÐUR Morgun- blaðsins á Sandi er Herluf Clausen. Gestum og gang- andi skal á það bent, að í Verzl. Bjarg er Morgun- blaðið selt í lausasölu. Grundarfjörður VERZLUN Emils Magnús- sonar í Grundarfirði hefur umboð Morgunblaðsins með höndum, og þar er blaðið einnig selt í lausasölu, um söluop eftir lokunartíma. fttorgttnMa&ifr KALLI KÚREKI Teiknari: J. MORA FWE SHOTS IN MYCOLT, AH'TWO IWTH DER(?IWG-ER' THAT'S TWO APIECE FOR TOU AN'ASPAREIF I WEED ITf NIOW JUST HOLD ST- THAT'STWICE YOU KEPT BLABBERIN’ IMSTEAD 0’ BURNIM’ PDWDER-'AN’OAVEME TIME T'MAkE f A FOOL OF TOU/ YOU AIM'TffOT TH' BgAIKJS jj OAN&TAf X CAN’T — Það eru fimm skot í Coltaranum og tvö í Derrinerinum. Tvö ættu að nsegja á. þig og ég hef efni á meiru ef þese þarf með. Svo stattu kyrr.... — Tvisvar sinnum hefur það hent sig að þú hefur verið að mögla í stað þess að tendra púðrið og þar með gef- ið mér tíma til að gera þig að fífli. í>ú ert auðsjáanlega ekki nógu gáfað- ur til að vera í hópi þessara skotglöðu náunga, er nú vaða uppi. — Bölvaður, ég get ekki séð neitL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.