Morgunblaðið - 24.09.1965, Qupperneq 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 24. sept. 1965
Skólafólki leyfð
síldarvinna til 14. okt.
BLAÐINU bar'st í gær eftirfar-
andi frétt frá menntamálaráðu-
iieytinu:
Landssamband ísl. útvegs-
manna og Félag síldarsaltenda
á Norður- og Austurlandi hafa
farið þess á leit við ríkisstjórn-
ína, að nemendur unglinga- og
framhaldsskóla, sem starfandi
eru á síldveiðiskipum og við
síidariðnað á Austurlandi, fái
leyfi til þess að mæta ekki í
skóla fyrr en 14. október, enda
leggi þeir fram vottorð frá
vinnuveitanda um, að þeir hafi
verið við framangreind störf.
Vegná hins alvarlega skorts á
vinnuafli í síldariðnaðinum hef-
ur rikisstjórnin fallizt á framan
greind tilmæli. Nemendur geri
skóla sínum þegar aðvart, ef
þeir notfæra sér þessa heimild.
Sáttanefnd skipuð
Ðlaðinu barst í gær eftirfar-
andi fréttatilkynning frá félags-
máiaráðuneytinu:
-Sámkvæmt ósk samninganefnd-
ar Bandalags starfsmanna rikis
Og bæja, hefur félagsmálaráð-
fherrsi, samkvæmt heimild i 3.
mgr. 12. gr. laga nr. 55/1962,
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna, í dag skapað hæsta-
réttardómarana Jónatan Hall-
varðsson og Loga Einarsson, til
að taka ásamt sáttásemjara ríkis-
ihs sæti í sérstakri sáttanefnd,
er hafi til meðferðar kjaradeilu
fyrirsvarsmanna ríkissjóðs og
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja.
Félagsmálaráðuneytið,
Sáttanefndin hefur boðað fund
með aðilum að þessari kjaradeilu
kl. 4 e.h. í dag, föstudag.
Metropolitan söngvari
syngur hér á þriðjudag
FINNSKI óperu og ljóðasöngvar-
inn Tom Krause kemur hingað
til Reykjavíkur á vegum Tón-
Iistarfélagsins um næstu helgi,
og ætlar að halda hér tvenna
tónleika.
Tom Krause er fæddur árið
1934. Hann stundaði tónlistar-
nám í Helsinki og að því loknu
hélt hánn til Vínarborgar til
framihaldsnáms. Árið 1959 var
hann ráðinn til Berlínar og söng
þar ýms óperuhlutverk, auk þess
sem að hann hélt fjölda tónleika
í ýmsum löndum.
Árið 1962 var hann ráðinn til
að syngja með Filharmonisku
hljómsvéitinni í Hamborg og að
því loknu réðist hann til óperunn
ar þar f borg og þar hefir hann
verið búsettur síðan og sungið
ýihs óperuhlutverk, bæði í Ham-
borg og öðrum borgum Þýzka-
lands. f>á hefir hann haldið
fjölda tónleika.
Nú er Tom Krause á leið til
Bandaríkjanna, er ráðinn þar til
að syngja við Metropolitanóper-
una, einnig mun hann halda
fjölda tónleika í ýmsum borgum
þar í landi.
Landi hans Pennti Koskimies
píanóleikari er með í ferðinni og
annast undirleik á tónleikunum.
Tom Krause heldur tvenna tón-
leika hér, á þriðjudagskvöld og
miðvikudagskvöld 28. og 29. þ.m.
Verða þeir í Austurbæjarbíói kl.
7 bæði kvöldin. Á efnisskránni
sem er mjög fjölbreytt, eru lög
eftir Hugo Wolff, Rioh. Strauss,
Ravel og Sibilius. Tónlistarfélag-
ið hefir gefið út mjög vandaða
efnisskrá, þar sem allir frumtext-
ar Ijóðanna eru prentaðir. >or-
steinn Valdimarsson skáld hefir
þýtt þá alla í bundið mál, og eru
þær þýðingar einnig prentaðar í
efnisskránni.
Þetta verða aðrir tónleikar
Tónlistarfélagsins á þessu hausti,
en þeir áttundu í röðinni þetta
ár.
Misræm' í Irétlalluln-
ingi irá Grikklcmdíi
í MORGUNBLAÐINU í gær
birtist frétt, sem hlaðinu
barst í fyrrakvöld þcss efnis
sUS forseti Islands, sem nú er
staddur í Grikklandi í einka-
erindum, hafi setið hádegis-
verðarboð K- tantíns
Grikkjakonungs í hrll kon-
hngs í Aþenu. Frej:n þessi
barst Morgunblaðinu frá
norsku fréttastofunr.i NTB,
en öll islenzku dagblöðin fá
fréttir frá NTB. Nýtur NTB
álits sem áreiðanleg frétta-
stofriun.
Mbl. vildi hins vegar
kynna sér þetta mál nánar,
og spurðist fyrir um það hjá
Associated Press. í svari AP
í gær segir hins vegar, að for
setinn hafi ekki gengið á
fund konungs, heldur aðeins
sent honum kveðjur, og virð-
ist því eitthvað hafa farið
milli mála í fréttaflutningn-
um frá Aþenu. — íslenzka
utanrikisráðuneytið sagði í
gær, að því væri ókunnugt
með öllu utn málið, enda
væri' forsetinn I einkaerind-
um érleridis. Mun forsetinn
dvelja í Grikklandi þ-r iil 2,.
október n.k.
„Ég er ekki kommúnisti
og mun aldrei veria það"
segSr Súkarno í sjálfsævisögu sinni
í SJÁLFSÆVISÖGU Sukarn-
ós, Indónesíuforseta, sem
verður gefin út innan skamms,
segir hann um sjálfan sig:
„Hann er „mikill elskhugi".
Hann elskar land sitt og þjóð,
hann elskar konur og listir,
en sjálfan sig elskar hann
allra mest“.
Sjálfsævisöguna ritar Suk-'
arnó með aðstoð bandaríska
rithöfundarins Cindy Adams,
eiginkonu gamanleikarans Jo-
ey Adams, og unnu þau að
samningu bókarinnar í fimm
mánuði, Úr dráttur úr henni
hefur þegar birzt í tímaritinu
„Esquire“.
„Sukarnó er tilfinninga-
maður“, segir Sukarnó um
sjálfan sig, „hann kann að
meta fagra hluti, grípur and-
ann á lofti, þegar hann sér
fagurt landslag, kefnst í ljóð-
ræna þanka, þegar hann horf-
ir á indónesíska sólarlagið, og
grætur þegar hann heyrir
negrasálma".
Og hann heldur áfram:
„Sagt hefur verið um mig:
„Forseti Indónesíu hefur of
mikíð listamannseðli". En ég
þakka fyrir að mér er í blóð
borin ást á listurn, það er m.a.
hún, sem hefur gert mig að
miklum byltingarleiðtoga“.
Sukarnó gagnrýnir blöð á
Vesturlöndum og segir, að þau
gefi ekki rétta mynd af ástand
inu í Indónesíu .„Blaðamenn-
irnir tönnlast á. því, að ég sé
þræll Rússa. En ég vil taka
Sukarnó.
það skýrt fram í eitt skipti
fyrir öll, að ég er ekki komm-
únisti, hef aldrei verið það og
mun aldrei verða það“.
„Það er fáránlegt að segja,
að ég beygi mig í duftið fyrir
Rússum. Hver sá, sem hitt hef-
ur Sukarnó yeit, að hann er
of mikill persónuleiki til að
vera þræll einhvers annars en
þjóðar sinnar“.
I úrdrættinum, sem birtist
í „Esquire" verður Sukarnó
tíðrætt um konur og afstöðu
sína til þeirra. „Jú, jú, auðvit-
að elska ég konur, ég viður-
kenni það fúslega, en ég er
ekki kvennabósi eins og blaða
menn vilja halda fram.. .
„Mér þykir gaman að hafa
ungar konur í kringum mig í
skrifstofu minni. Þegar gestir ,
tala um hina ungu áðstoðar-
menn mína af veikara kyninu,
segi ég í gamni: Það er eins
með konur og gúmmít'ré, það \
er ekkert varið í þær eldri en
30 ára“.
Síðan heldur Sukarnó á-
fram: „Fólk segir, að Sukarnó
finnist gaman að gjóta horn-
auga á fagrar konur... . Þetta
er ekki rétt. Sukarnó finnst
gaman að horfa á fagrar kon-
ur. Ég elska fegurðina af ein-
lægni“. En honum geðjast
ekki að viðræðum og hann seg
ir: „Ég vil ekki að kona fari
að æsa mig upp í rökræður,
þegar liðið er á kvöld. Ég kýs
fremur falslausa ást bónda-
dótturinnar, sem lætur vel að
mér, hlúir að mér, hughreyst-
ir mig og nuddar fætur mina,
þegar ég er þreyttur“.
Hey með mesta móti
Kartöfluuppskera misjöfn — Slátrað í
tveimur húsum — Byggingaframkvæmdir
— Nýr vegur
Lxtli Hvammur, 19. sept.:
SLÆTTI í Mýrdal lauk almennt
um viku af september og hafði
staðið heldur með lengra móti
og stafar það af éþurrkakafla,
sem var hér í ágústmánuði.
Annars má telja þetta sumar
fremur gott og eru hey með
mesta móti og hafa menn víða
hlaðið upp stórum heyjum úti,
þar sem h.öðupláss hefur þrotið.
Kartöflugras féll sumstaðar
snemma af völdum frosts og er
kartöfiuuppskera mjög misjöfn,
þar sc-m búið er að taka upp.
Um miðjan mánuðinn hófst
sauðfjársláliun í Vík, slátrað er
í tveimur siáturhúsum.
Byggingarframkvæmdir eru
nokkrar. í Vík er unnið að bygg
mgu húss yfir Póst og síma,
einnig að stækkun barnaskóla.
Kaupféiag Skaftfellinga er að
reisa stór* verkstæðisbyggingu
og eitt íbúðarhús er í smíðum.
Á Ketilsstöðum er unnið í nýju
barnaskólahusi og í sveitinni er
unnið töluvert við útihúsabygg-
jngar, aðal ega hloður.
Nýhrga var opnaður nýr vegar
kafli við Vík. Nær hann úr
plássúiu inn fyrir svonefnt
Grafargil og fellur þar með úr
natkua vondur vegarkafli, þar
sem var Grafargil og Dalaskörð
er bæði var snjóþungt og erfitt.
Hinn nýi vegur er breiður og
góður og er að honum hin mesta
samgöngubót. Kemur hann yfir
| Víkursá, sem er brúuð með
tveimur stálrörum samliggjandi
3 metra viðum.
Tíðarfar hefur verið mjög gott
i haust, oftast þurrt, úrkoma
ekki teljaridi. — Sigþór.
SUNNUDAGINN 26. september
kl. 6 síðdegis verða orgeltónleik-
ar haldnir í Skállioltsdómkirkju.
Listamaðurinn, Martin Giinther
Förstermann, er einn hinna viður
kendustu orgelsnillina nú á tím-
um, er prófessor við tólistarhá-
skólann í Hamborg.
Prófessor Förstermann er ís-
lendingum að góðu kunnur, frá
því er hann hélt hér tónleika fyr-
ir nokkrum árum. Það er ekki
r.óg með að hann hafi farið í tón-
leikaferðir um gjörvalt föðurland
sitt, Þýzkaland, heldur hefir
hann einnig haldið tónleika í
flestum Evrópulöndum og Amer-
íku, auk útvarps- og sjónvarps-
sendinga.
Bfnisskráin hefst með' því að
leikin verður Tokkata, Variatiqn
og Fuga (quasi Improvisation)
eftir Förstemann við sálminn:
„Vakna Zions verðir kalla“, þá
Freymdður
sýnir í
Vestmonnneyjdni
AÐ tilhlutan Rotary-klúbbs
Vstmannayeja sýnir Freymóður
Jóhannsson, listmálari, um 50
myndir í Akóges-húsinu I Vest
mannaeyjum. Verður sýningin
opnuð á laugardag ki. 2 e.h. og
eru nokkrar myndii til sölu.
koma verk tveggja gamalla org-
elmeistara, Preludíum og Fuga
1 g dúr eftir lærisvein Buxte-
hudes, Nikolaus Bruhns, og til-
brigði eftir Georg Böhms, er eitt
sinn var organleikari við Jóihann-
esarkirkjuna í Lúneburg.
En verk þau, sem fyrst og
fremst bera tónleikana uppi, eru
orgeltónverk Jóihanns Sebastian
Backs. Preludíum og Fuga í f
moll, og einnig Preludíum og
fuga i a-dúr. Hin stórbrotna
Passacaglia og Fuga í c-moll er
svo síðasta viðfangsefnið á tón-
leikunum. Förstermann mun
einnig spila á öðrum stöðum á
landinu.
Á undan tónleikunum, kl. 4,30,
rriessar séra Guðmundur ÓU
Ólafsson, sóknarprestur í Skál-
höltL
Ferð verður fra BifreiðastöS
íslands kl. 2.
Förstermanns tón-
leikar í Skálholti