Morgunblaðið - 24.02.1966, Síða 16
MORCU N BLADIÐ
Fimmtudagur 24. febrúar 1966
16
Stúlka oskast
til aðstoðar í brauðgerðarhúsi, nú þegar.
JÓN SÍMONARSON HF.
Bræðraborgarstíg 16.
Tyggigúmmi framleiðandi
i l\lew Vork
óskar eftir sambandi við heildsala, er vildi taka
að sér söluna á íslandi. Örugg sala allt árið. Tilboð
merkt: „Góður hagnaður — 8658“ afh. Morgun-
blaðinu, sem fyrst.
Kvensokkabuxur
krepnælon. Litir: svart og brúnt.
Verð aðeins kr. 98.00.
Miklatorgi — Lækjargötu 4
Akureyri.
IJtgerðarmenn — Skipstjorar
Höfum fyrirliggjandi netastein 3 og 4 kg.
Hellusteypan
sími 52050
eftir kl. 7:00 á kvöldin sími 51551.
BJÁLPARSETT TVRIR TISKISKIP
Fyrirliggjandi núna með 11 hestafla loftkældri
Diesel-vél, 4 kílówatta, 32 v., rafal, loftþjöppu og
sjódælu.
STURLAUGUR JÓNSSON & CO., Sími 11754.
Svefnbekkir
Krónur 4.200,06.
2ja manna svefnsófar kr. 8.500,00.
SÓFASETT
Húsgagnaverzlun
Þorsteins Sigurðssonar
Grettisgötu 13. (Stofnsett 1918). Sími 14099.
Umboðsmaður —
Notaðir traktorar
Óskum eftir umboðsmanni til
að selja standsetta, notaða
tiaktora. Mikið úrval. Lágt
verð. Myndalisti fylgir.
Frenderup Maskinfabrik
Grevinge St., Danmark.
flúseigendafélag Reykjavíkur
Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla
virka daga, uema laugardaga.
Seljum og
sýnum
næstu daga
eftirtalda notaða bíla, sem
umboðin hafa tekið upp í
nýja bíla:
Rambler
Ambassador '59
Glæsilegur einkabíll með
V8-vél, sjálfskiptingu, —
power-bremsum o.g stýri.
Verð kr. 140.000.
Chrysler
New Yorker
1956 árgerð. Fallegur einka-
bíll. Verð kr. 65.000,00.
Rambler
Classic 1963
Nokkrir bílar. Verð frá kr.
190.000,00.
Simca
Ariane 1963
Vel með farinn leigubíU.
Verð ca. kr. 125.000,00.
Willys
Jeppi 1964
Verð ca. kr. 170.000,00 með
útvarpi, driflokum, læstu
mismunadrifi og „orginaT-
miðstöð.
Ford
Fairline 1963
Vel með farinn einkabill.
Verð ca. kr. 240.000,00.
Rambler
American „330"
1964 árgerð, sem nýr og
lítið ekinn einkabíll. Verð
ca. kr. 245.000,00.
Fleiri bílar vaentanlegir. Verð-
in eru miðuð við lán á allt
að helmingi kaupverðsins í
eitt ár með mánaðarlegum
greiðslum.
Chrysler-umboðið
Vökull hf.
Rambler-umboðið
Jón Loftsson ht.
Hringbraut 121
— Sími 10600
Runólfur Elíus Run-
ólfsson — Minning
F. 2. marz 1893. D. 14. feb. 1966. |
MIG Setti hljóða, þegar mér var ,
sagt að Elli væri dáinn. Sorg
og söknuður fyllti huga minn,
við fráfall fjölskylduföður og
góðs vinar.
Það eru aðeins nokkrir dagar
síðan hann talaði við mig, og
virtist þá hress, og kátur var
hann að vanda.
Við vissum að hann átti við
vanheilsu að stríða, en að dauð-
inn væri svo nálægur, áttum við
ekki von á.
Hann andaðist eftir stutta legu
á Landakotsspítala.
Ekki kann ég að rekja ætt
Ella, það verða ef til vill aðrir
mér kunnugri til þess.
Elli giftist 15. janúar 1924,
Jónínu Gísadóttur frá ísafirði og
bjuggu þau fynstu búskaparár
sín í Garðslhorni á fsafirði og
eignuðust þar 5 börn. Dóu tvö
þeirra á unga aldri, en hin eru á
lífi og eru þau Ólöf, sem er gift
Árna Sigursteinssyni, eiga þau 2
syni, Anna Margrét, gift Jóni
Björgvinssyni, eiga þau 2 syni og
er fjölskyddan búsett í Banda-
ríkjunum ,og yngsta dóttirin,
Dagbjört er gift Sigmundi Lúð-
víkssyni og eiga þau 5 börn.
Ég veit að barnabörnin voru
augasteinar afa síns. Hann hafði
yndi af börnum og talaði oft um
barnabörnin.
Elli stundaði sjóinn á fsafirði
og yar matsveinn á bátum þar.
Ég man þegar Elli var að
koma heim af sjónum, og dætur
hans hlupu fagnandi á móti hon-
um, þá fór ég oft með þeim, og
alltaf sýndi 'hann mér vinsemd
og var mér góður, enda var hann
ljúfmenni og bauð af sér góðan
þokka, og alltaf var gaman að
koma í Garðshorn, og leika sér
við lætur þeirra Jónu og Ella.
Árið 1938 fluttust þau Jóna og
Elli til Reykjavíkur frá ísafirði
og bjuggu mörg ár í sama húsi
og móðir mín og ég.
Við mæðgumar minnumst
hinna mörgu ánægjustunda frá
þeim tíma. Oft leitaði ég ráða
og aðstoðar hjá Jónu og Ela, eft-
ir að móðir mín dvaldist er-
lendis, vegna starfa sinna.
EUi var með afbrigðum
vinnuglaður maður. Hann vann
við höfnina hér í Reykjavík um
fjölda ára skeið. Hvernig sem
viðraði var hann í vinnunni, oft
í kalsaveðri og rigningu. Man ég
að honum leiddust allir frídagar,
vildi helzt ávallt vera að vinna.
Það tók hann sárt, þegar að
því kom, að heilsa hans leyfði
ekki frekari útivinnu, en þá út-
vegaði hann sér vinnu innan-
húss, hann vildi ek’ki gefast
upp, en loks kom þó að því, að
hann varð að hætta störfum.
Þau hjónin voru ákaflega
samhent í öllu. Þau voru búin
að byggja sér indælt heimili, að
Stigahlíð 8, hér í borg.
Nú ríkir sorg og söknuður á
litla vistlega heimilinu hjá Jónu,
og tómlegt er þar og autt skarð
eftir góðan og ástríkan föru-
naut. Börnin og barnabörnin
sakna hans og aðrir ástvinir.
Megi Guð vera þeim öllum
stoð og huggun og dreifa sorgar
skýjunum.
Mér kemur í huga upþhaf af
ljóði, sem móðir mín söng áð-
ur fyrr og jjefst á þessum orð-
um: „Ljóma veit ég land, laust
við sorg og strið.“
Við vitum að þar er okkur
staður búinn og þar er Elli
núna.
Vertu svo kært kvaddur, Elli
minn og þakka þér fyrir allt, '
Blessuð sé minning þín.
Þórey Þorsteinsdóttir.
S. Helgason hf.
Súðarvogi 20. — Sími 36177.
Mavinna — Sölustarf
Richard Company Inc. í New York vantar nú þegar
nokkra unga menn til sölustarfa í Reykjavík og
nágrenni. Tilvonandi sölumenn þurfa að hafa
nokkra þekkingu á ensku og verða þeir þjálfaðir
sérstaklega næstu daga fyrir þetta nýja starf.
Vinnutíminn frjáls. Hér er um að ræða vel borgaða
vinnu fyrir rétta menn. Allar upplýsingar veittar
hjá umboði Richard Company Inc. á íslandi.
Fyrirspurnum verður ekki svarað í síma.
Richard Company Inc. á fslandi
Austurstræti 9, önnur hæð.