Morgunblaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 13
T-.augarclagur 23. júlí 196®
MORCU N BLAÐIÐ
13
Svona getur farið, þegar ekið er framhjá löghoðnum varúðar-
merkingum.
Varúð! Vegavinna!
Akstur á
Flestar stærstu umferðar-
götur höfuðborgarinnar eru
merktar með akreinum, sem
stuðla m.a. að því, að um-
ferð verði greiðari um þær
og göturnar geti flutt meiri
umferð. Hins vegar skapast
oft hætta á þessum götum,
vegna þess að ökumenn aka
ekki rétt eftir þeim, t.d. skjót-
ast sitt á hvað milli akreina,
án þess að gefa stefnumerki
og enn aðrir aka alltof mik-
ið á hægri akrein, stundum á
mjög hægfara ökutækjum,
þannig að allur framúrakstur
verður á vinstri akrein, sem
er fremur óæskilegur. Ef
vinstri akrein er auð, þá á
fyrst og fremst að aka eftir
henni, en ef mikil umferð er
á vinstri akrein, skal hægri
akrein notuð, þannig að ak-
brautin flytji meiri umferð.
Þó verða ökumenn að gæta
þess, að allur hægri akstur
verður ætíð að "ara eftir
vinstri akrein.
En hvað er akrein?
Svar við þessari spurningu
fæst í 2. gr. umferðarlaganna
3. málsgr. Þar segir svo: Ak-
reinar: Samhliða reinar, sem
skipta má akbraut í, að endi-
löngu, hæfilega breiðar, hver
um sig fyrir eina röð öku-
tækja.“ í 45. gr. umferðar-
laganna segir, að ökumenn
skuli halda ökutækjum sín-
um vinstra megin á akbraut
eftir því, sem við verður kom
ið og þörf er á, vegna annarr-
ar umferðar.
Samkvæmt þessu eiga öku-
menn fyrst og fremst að aka
A8
Vegur þrengist. Hægið ferð-
ina, lítið í bakspegilinn og
fylgist vel með umferðinni,
því að vegurinn framundan
þrengist.
akreinum
á vinstri akrein. Hægri ak-
rein er fyrir framúrakstur og
svo að sjálfsögðu eiga þeir
ökumenn, sem ætla að taka
hægri beygju að færa sig í
tíma yfir á hægri akrein.
D5
UMFERÐ Á MÓTI. Þetta
merki notar umferðarlögregl-
an mikið er loka þarf annarri
akbrautinni á miklum um-
ferðargötum til þess að gefa
til kynna, að tvístefnuakstur
sé á annarri akbrautinni. Öku
menn skulu hafa það vel hug-
fast, að aka vel vinstra meg-
in við merkið, en það er
venjulega staðsett á miðri göt
unni.
Það er því miður ekki
óalgeng sjón, að sjá stórar
flutningabifreiðar aka hægt
yfir hægri akrein, t.d. á
Skúlagötu og Hringbraut. Öll
hægfara ökutæki eiga skil-
yrðislaust að halda sig á
vinstri akrein.
Og þá má ef til vill minn-
ast á enn eitt atriði, sem
mjög er ábótavant í sam-
bandi við akstur á akreinum
og það er notkun stefnuljósa.
Oft hefur verið bent á það, að
stefnuljós eru nauðsynleg
leiðbeiningarmerki sem skapa
greiðari og öruggari umferð,
séu þau rétt notuð. Á akrein-
um er það mjög algengt að
sjá ökumenn setja stefnuljós-
in á um leið og hann skiptir
um akrein. En þannig koma
þau ekki að notum. STEFNU
MERKI GEFUR ÖKUMAÐ-
URINN TIL ÞESS AÐ SÝNA
ÖÐRUM ' VEGFARENDUM
HVAÐ HANN ÆTLAR AÐ
GERA, enda er það laga-
skylda að gefa stefnumerki,
þegar breytt er um aksturs-
stefnu.
ÞAÐ er ill, en oft brýn nauð-
syn, að loka verður götum í
bæ og borg eða vegum úti á
landi, vegna ýmissa fram-
kvæmda.
Því miður vill verða mis-
brestur á, að ökumenn virði
lokanir og skapa með því
bæði óhagræði fyrir vinnu-
flokka og tjón fyrir verktaka
og sjálfa sig.
Árekstrar og umferðarslys
A
A9
Varúð, vegavinna. Þegar þið
komið akandi að þessu merki,
dragið úr hraða og sýnið sér-
staka varkárni. Ef merkið
LOKAÐ er fyrir neðan, þá
þýðfr það, að óviðkomandi
umferð sé ekki leyfð um göt-
una.
hafa orðið vegna þess að ekið
var fram hjá lokun og ofan í
skurð eða malaúbing. Einnig
hefur verið misbrestur á að
verktakar eða verkstjórar
hafi séð um að lögboðnar var-
úðarmerkingar eða lokanir
hafi verið uppi á vinnustað
og þar með ekki séð um, að
ökumenn fengju viðvörun
um, að þeir væru að aka um
á vinnusvæði, en enn þann
dag í dag má sjá það, hvar
verkamenn eru að grafa í
gangstéttar eða akbrautir og
engin varúðarmerki eða girð-
ingar við vinnus'taðinn, og
enn skeður það, að ökumenn
aka ofan í ómerktan skurð
eða á ómerktan uppgröft sem
er á veginum.
Verkstjórum, sem þurfa að
láta vinna í eða á vegi, ak-
braut eða gangstíg, skal á það
bent, að fyrst verða þeir með-
al annars að fá leyfi lögregl-
unnar til framkvæmdanna og
síðan hafa samráð við iög-
reglu um hvort sem um var-
úðarmerkingu'er að ræða eða
lokun á gangstignum eða ak-
brautinni.
Þegar loka verður akbraut
og gangbraut, vegna t.d. götu
málningár, malbikunarfram-
kvæmda, hitaveitufram-
kvæmda o.s.frv. hefur það í
för með sér að íbúar í við-
komandi götum verða fyrir
talsverðu ónæði og einnig
þeir sem til þeirra þurfa að
komast, en flestir verkstjórn-
endur gera sér grein fyrir
þessu og reyna að hliðra til
fyrir nauðsynlegri umferð
eins og hægt er.
Verkstjórnendur! Sjáið um,
að allar framkvæmdir ykkar,
á gangstigum og akbrautum
séu vel merktar aðvörunar-
merkjum og að lokunarmerki
séu vel sjáanleg og rétt stað-
sett.
Ökumenn virðið aðvörunar-
merkin og lokunarmerkin,
akið varlega við vinnustaði
verkamannanna. Stuðlum að
bættri umferðarmenningu,
gerum okkar til þess að stuðla
að slysalausri umferð. Látum
ekki ökuferðina enda í sjúkra
húsi.
Eftirtaldar bifreiðar og
önnur farartæki voru viðrið-
in þau 360 umferðarslysatil-
felli á fólki, sem urðu árið
1D64, og komu til kasta rann-
sóknarlögreglunnar í Reykja-
vík, þar sem 477 manns hlut’.
meiri og minni meiðsli.
Leigubílar (stöðvarbílar) 33
Einkabílar 318
Rútubílar 3
Strætisvagnar 13
Vöruibílar 30
Sendiferðabílar 39
Reiðhjól 37
Bifhjól 11
Reiðhjól með hjálparvél 24
Samtals 508
Samkvæmt þessu eru bíl-
arnir samtals 436. Vitað er
aldur 412 þeirra bílstjóra,
sem þar áttu hlut að máli og
var hann sem hér segir:
17-20 ára 99
21-25 — 68
26-30 — 48
31-35 — 44
36-40 — 43
41-45 35
46-50 — 21
51-55 — 22
56-60 12
61-65 \ 11
66-70 — 6
71-75 — 3
Samtals 412
Ökuferðin endaði á ómerktum malarbing, sem náði út á
miðja akbraut. Bifreiðin stórskemmd, ökumaður og farþegi
slasaðir í sjúkrahúsi.
Þetta er ekki tekið í malarnámi borgarinnar heldur á einni af aðal umferðaræðum Reykja-
víkurborgar. Verkstjórinn sá ekki ástæðu til að koma fyrir varúðarmerkingum við malar-
binginn. Afleiðingin varð al varlegt umferðarslys.
Umferð og slysahættn