Morgunblaðið - 23.07.1966, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. júlí 1966
mátti þakka fyrir sigur 4-3
Valur náði 4-0 forystu, en
í skemmtilegasta leik sumarsins
EINHVER skemmtilegasti, sókn
mesti og jafnframt einkennileg
asti leikur íslandsmótsins var
leikinn í gærkvöldi og áttust við
forustuliðin í 1. deild, Valur og
Keflavík. Valur vann leikinn
með 4 mörkum gegn 3 og réði
baggamunin vítaspyrna, sem
Valsmenn fengu. Var það harð-
ur dómur og sannarlega var ekk
ert mark „í loftinu" er brotið
var á Bergsteim alveg út við
endalínu.
Hraði og spenr.a
í>að einkennilega
við leikinn
var að Valsmenn skoruðu fjög-
ur fyrstu mörkin og staðan í hálf
leik var 4:0 Hefðu líkíega flest
lið brotnað við slíkt, en Kefl-
vikingar, sem verið höfðu óheppn
ir við mark Vals, þar sem gaefan
sneri öllu Valsrnönnum í vil,
komu tvíefldir til síðari hálf-
leiks, héldu uppi stanzlausri
sókn í 30 míri og uppskáru 3
mörk. Og 4il siiustu mínútu var
hraði í leiknum, barátta og
spenna og gat sannarlega allt
skeð. En fieiri urðu mörkin ekki
og mega Valsmenn sannarlega
heppni hrósa að hljóta tvö stig
FRI í sök ekki Skotar
„Falsaðar tölur“ nefndist grein
sem birtist hér á ílþróttasíð-
unni um daginn og var þar rætt
um óheiðarlega framkomu Skota
fyrir landskeppnina, þar sem
þeir gáfu ekki upp rétta árangra
á sínum mönnum fyrir keppn-
ina. Olli þetta því að allir spá-
dómar sem birtust í blöðunum
um jafna keppni, reyndust hjóm
eitt.
Vegna þessarar greinar kom
Þórður B. Sigurðsson fyrirliði
íslenzka frjálsíþróttalandsliðsins
og formaður F.R.R., að máli við
íþróttasíðuna, og kvað þessa gagn
rýni á Skotana ekki maklega.
Þeir hefðu komið mjög prúð-
mannlega fram bæði fyrir keppn
ina og í keppninni sjálfri, og ef
um óheiðarlega framkomu væri
að ræða, varðandi upplýsingar á
áröngrum Skotanna fyrir keppn-
ina, lægi hún hjá F.R.Í. en ekki
hjá Skotunum.
Þórður kvaðst hafa séð hréf
frá Skotunum, þar sem upp voru
gefnir allir nýjustu árangrar
skozku iþróttamannanna, og hefði
það borizt hingað til lands ekki
siðar en s.l. föstudag. Hefði F.R.Í.
því átt kost á því að leiðrétta
fyrri tölur til dagblaðanna, eða
a.m.k. láta þulinn á landskeppn-
inni lesa upp réttar tölur, en svo
hefði ekki verið gert.
Þórður kvað það hafa komið
greinilega fram í þessu bréfi
að Skotar stóðu íslendingum
mun framar í öllum hlaupagrein
unum. T.d. kvaðst hann hafa
séð það í þessu bréfi að lakari
maðurinn í 400 m. hlaupi átti
49.1 (umreiknað úr 440 yards),
og því út í hött að tala um
möguleika á því að íslendingur
50 þús kr. fyrii
að vinna N-Kóreu
FORRÁÐAMENN knatts-
pyrnumála í Portúgal hafa
heitið hverjum leikmanni í
portúgalska liðinu 400 sterl-
ingspunda verðlaunum fyrir
að vinna N-Kóreu í 8 liða
úrslitum HM í dag (laugar-
dag). Þessi verðlaun eru 275
pundum hærri en verðlaunin
sem Eusebio og Co. unnu fyrir
að vinna Brasilíu á dögunum.
En þessi peningaverðlaun
trufla ekki N-Kóreumenn.
kæmist upp á milli skozku 400
m. hlauparanna. Ennfremur hefði
það komið fram í bréfinu að eini
Skotipn, sem hafði 3000 m. hindr
unarhlaup í sumar, ætti tímann
9.17.4, en ekki um tíu mínútur,
eins og fyrri afrekaskráin sagði.
Loks mætti nefna tímann í 100
m hlaupi, þar hefði betri Skot-
inn átt timann 10,8 (umreiknað
úr 100 yards) en sá lakari 11.0.
í leik, sem mrtherjar-' ir áttu
meira í hv^ð knattleikni snerti
og hraða — en byggðu allt upp
á miðjusókn, einkum framan af,
sem Valsmenn áttu auðveldara
með að verjast.
Mörkin
Keflvíkingar sóttu mjög fast í
byrjun og komust í góð færi en
klúðruðu öllum tækifærum.
Og á 11. mín. eru það Vals-
menn sem skora. Aðdragandinn
Framhald á bls. 23.
Tveir keppendanna, Lars Krans Jenssen og Guðmundur Gísla-
son í viðbragði. Myndin var te kin er Guðm. stakk sér í fyrsta
sinn í laugina.
t
I
Landskeppni við Dani
sundi í nýju sundlauginni
í D A G gerast þáttaskil
notkun nýja sundlaugin
sögu sundsins er tekin verður í
Laugardal. Eins og margir hafa
þegar augum litið er mannvirkið hið fegursta og vonandi
reynist það ekki síðra í notkun en útlitið gefur til kynna.
Þessi markverðu fímamót eru vörðuð með landskeppni við
Dani og keppa bæði konur og karlar.
Landskeppnin er ekki með karla og 5 greinum ’ venna,
fullri landskeppnisdagskrá.
Verrður keppt í 5 greinum
og einn keppandj frá hvoru
landi í hverri grein. Fyrir
Það er glæsiiegt að sjá keppni í nýju lauginni.
Golfmótið:
Magnús náði 6 högga
forskoti og er nú sigurviss
MAGNÚS Guðmundsson tók af
skarið á landsmótinu í golfi í
gær, eftir að Einar Guðnason
hafði i fyrradag óvænt unnið
upp forskot hans frá fyrsta
keppnisdegi. í gær lék Magnús
hringina tvo í 35 höggum og síð
an 39 höggum og hefur þá notað
227 högg á 54 holui og hefur 6
högga forskot er gengið er til
siðustu 18 holanna í dag. Er ó-
líklegt að nokkur ógni sigri
hans héðan af. Þó getur allt skeð
t.d. fór Magnós síðustu holuna
í dag í 7 höggum, en „par“ þar
er 4 högg
í erfiðleikum
Og þessi síðasla hola í síð
ari hring varð mörgum erfið
í dag. Norðanstrekkingur var
á og ölium orðið hálfkait og
svo hagar til að beggja meg-
in við holuflötina eru sand-
gryfjur. Margir lentu í þeim
ekki sizt vegna vindsins og
fór Magnús, sem fyrr segir
holuna í 7 höggum. Óttar
Yngvason í 8, Hermann Ingi
mundarson í 8 og Ilafliði Guð
mundsson í 9 höggum — en
allt eru þetta mjög góðir kylf
ingar og leika holuna marg-
oft í pari.
Magnús hafði nokkra yfir-
burði í keppninni í gær. Fór
hringina í 35 og 39 höggum. —
Einar Guðnason fór í 39 höggum
og 41 höggi og er nú annar með
Framihald á bls. 23.
tveim árum fór samskonar
keppni fram í Danmorku og
unnu þá Danir með 39 stigum
gegn 38.
Fullvíst má telja að keppn-
in verði og jöfn nú og undir
smáatriðum komið hvernig
lokaúrslit verða. Lið okkar í
kvennagreinum er veikara nú
en fyrir 1—2 mánuðum síðan,
þvi Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir hefur litið sem ekki
getað æft. En hún verður þó
með.
Danir komu hingað til lands
með 10 manna sundflokk en ein
stúlknanna mun ekki synda nema
forföll verði. í íslenzka liðinu
eru 4 karlmenn og 4 konur. Það
eru Guðmundur Gíslason, Davíð
Valgarðsson, Fylkir Ágústsson og
Kári Geirlaugsson, og í stúlkna-
flokki Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir. Hrafnhildur Kristjánsdótt
ir, Matthildur Guðmundsdóttir
og Kolbrún Leifsdóttir.
Landskeppnisgreinar í dag erp
200 m. flugsund, sem Guðmund-
ur Gíslason ætti að vera nokkuð
öruggur með að vinna, 200 m.
bringusund kvenna, þar sem
danskur sigur er líklegur, 200 m.
bringusund karla sem er mjög
óviss grein og getur farið á báða
vegu og 100 m. baksund kvenna.
þar sem danskur sigur er öllu
líklegri, þó ekki sé hann örugg-
ur.
A sunnudaginn eru keppnís-
greinar: 100 m. bringusund
kvenna, 100 m. skriðsund karla,
200 m. baksund karla og 100 m,
skriðsund kvenna.
Ánægður nteð
nýju lauginn
. NÝJA sundlaugin í Laugar-
’ dal sem vciður vettvangur
I landskeppni Dana og íslend-
| inga í dag og á morgun var
i fyllt fyrst í gær og fengu þá
I keppendur að reyna hana. —
1 Létu allir vel af.
Guðniundur Gíslason sagði
( eftirá að sér fyndist mjög
, gott að synda i iauginni og
[ sagðist hafa fengið betri tíma
iá 50 m í gærkvöldi en hann
I hefði náð á 25 m braut.