Morgunblaðið - 12.02.1967, Page 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1967.
--------------------------------1---------
— Já, við koœum reyndar
með allt tilbúið upp með okkur,
en það þurfti að taka hér vatn
og vistir, skrá mannskap og
ganga frá einu og öðru áður en
haldið var út á veiðarnar.
— Er öruggt að þið hafið ekki
reynt hér í Flóanum fyrst?
— Já, við héldum beint suður
á Selvogsbanka og vorum við
Vestmannaeyjar alla vertíðina.
— Fannst þér vera mikið rif-
rildi þessa fyrstu vertíð?
— Já, við rifum mikið, eilíft
rifrildi og rimpingar. Þegar við
voru að fiska hér í Bugtinni,
lágum við oft inni í Reykjavík
í bætingu allan daginn, stundum
dag eftir dag. Það var líka von,
þetta var ekkert net, sem við
vorum með, þrítvinningur í því
öilu nema rétt í pokanum, og
hann var ekki húðaður, svo að
þú getur imyndað þér að það
var engin furða, þó að við rifum,
og svo þekktum við ekki botn-
inn.
— Voruð þið með trébobb-
inga?
— Nei, við reyndum þá, en þá
versnaði rifrildið um allan helm
ing. Hann nefnilega tróð það,
dró ekki nóg, svo að við tókum
þá af og vorum bara með vafið
fótreipi, bæði á miðju og vængj-
um, og svo keðju til að þyngja
það niður.
— Hvernig var mataræðið á
Forsetanum?
— Ágætt. Miklu betra en á
skútunum. (Hér ber að gæta
þess, að Bergur miðar við það
sem var, en Þórður við hitt, sem
varð).
— Hvað er þér minnisstæðast
af Forsetanum .Bergur?
— Ég á margar miningar af
Forsetanum, það held ég nú.
Einu sinni misstum við stýrið,
ég held það hafi verið annað
árið. Við vorum á leiðinni vest-
ur og fengum djöfuls mótvind og
svínarí, og út af Látrabjargi
hlunkast stýrið af honum. Hann
kom framí hann Páll Jónsson
og sagði:
— Látið ykkur ekki bregða,
piltar, stýrið er farið af kollunni.
Jæja, það var ekkert annað en
það. Snarvitlaust veður, við í
röstinni og Látrabjarg gapandi
á stjórnborða. Við lásuðum í for
hlerann og fíruðum honum nið-
ur, en hann var eins og ótamið
andskotans tryppi og lamdist við
skipsbúkinn og þá lásuðum við
í hann afturvírnum og síðan
messangírnum og hífðum hann
pinnfastan þvert út af skipinu.
Síðan heistum við messaninn og
létum han vinna á móti hleran-
um, vindurinn var orðinn á bak-
borða, og þannig komumst við
inn til Patreksfjarðar. Þar var
rekið saman einskonar tréstýri
á hann og svo kom dráttarbát-
ur og fylgdi okkur suður, og þar
urðum við að bíða í mánuð eftir
stýri að utan.
Mér er líka minnisstæð ein ferð
okkar vestur f vestan-suðvestan
brælu og miklum sjó. Við vor-
um nærri lentir uppi á Snæfe'.ls
nesinu. Við höfðum tekið stefn-
una frá Garðskaga og laust fyrir
Malarrif, en afdriftin varð meiri
en við reiknuðum með. Það mun
aði mjóu. Ég var á vakt í brúnni
og allt í einu fundust mér sjóirn
ir vera orðnir ískyggilega krapp
ir, líkt og v_ið værum komnir á
grunnsævi. Ég rýndi út í myrkr-
ið og skyndilega sá ég bregða
fyrir ljóstýru framundan líkt og
þar væri týra í glugga, og þá
þóttist ég vita, hvað væri að
ske og kalla til Þórarins fiskrag-
ara, sem var við stýrið:
— Hart í bak, hart í tfak. Hann
snarsneri og þá voru sjóirnir
orðnir svo krappir að hann hafði
sig ekki upp á þá, heldur stakk
sér í, en hann kom upp aftur og
út komumst við.
Halldór kom upp í þessu, leit
á kompásinn og sagði:
— Nú, er það þetta sem þið
stýrið núna?
— Ei myndi síðar vænna,
sagði ég og fór í koju, því að
rnín vakt var úti. Halldór breytti
ekki stefnunni heldur hélt lengi
áfram að keyra út áður en hann
tók stefnuna norður með aftur.
— Var Halldór mikill sjómað-
ur?
— Já, hann var mikill sjómað-
ur, en hann gat tekið uppí sig
á stundum.
Iðnfyrirtæki
til sölu nú þegar af sérstökum ástæðum. Iðnfyrir-
tæki þetta er eitt sinnar tegundar hér á landi með
framtíðarmöguleika. — Vélar að miklu leyti sjálf-
virkar. Tilvalið tækifæri fyrir einn eða tvo menn
til að skapa sér sjálfstæðan atvinnurekstur. —
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld,
merkt: „Iðnaður — 8157“.
Innflytjendur
Ungur maður með nokkra verzlunarþekkingu og
fullkomið vald á enskum bréfaskriftum óskar eftir
vinnu, helzt hjá litlu innflutningsfyrirtæki. Tilboð
sendist afgreiðslu Morgunblaðsins merkt: „Áhuga-
samur — 8772“.
Innriuínlngsfyrirtæki
óskar eftir að ráða duglega stúlku hálfan daginn.
Ensku og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 17. þ. m. merkt: „8595“,
Lóð á Arnarnesi
Af sérstökum ástæðum kemur til mála að skipta
á glæsilegri sjávarlóð á Arnarnesi, og lóð í Reykja-
vík eða Seltjarnarnesi, sem liggur að sjó.
Upplýsingar sendist Morgunblaðinu, merkt: „8750“.
Launþegaklúbbur
Heimdallar
Kvikmyndakvöld
Launþegaklúbbur Heimdallar efnir til kvilímyndakvölds nk. þriðjudagskvöld kl.
8,30 í „HIMINBJÖRGUM“, Félagsheimili Heimdallar við Suðurgötu.
Sýndar verða góðar myndir um VERZLUN OG IÐNAÐ.
Ungir verzlunar- og iðnaðarmenn eru hvattir til að mæta.
ÓKEYPIS AÐGANGUR. NEFNDIN.
Enskir karimannaskðr frá John White
Heimsþekkt merki, ódýrir, fallegir og vandaðir, ný sending í fyrramálið.
Skóbúð Ausfturbæjar
LAUGAVEGI 100.
v ■
OMH HEFUR FEIMGIÐ EIIMKARETT
—^ Á BIRTIIMGU
niinni
BFTIR; mLUAM MANCHESTER
BÓKIN SEM JACQUEUNE KENNEDY BAÐ UM AÐ YRDI
jjjjg SKRIFUÐ UM ATBURÐINN í DALLAS, AÐDRACANDA 03
AFLEIÐINGAR
Fyrsti hluti bókarinnar kemur í vikunni 23. febrúar