Morgunblaðið - 12.02.1967, Page 6

Morgunblaðið - 12.02.1967, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1967. Erlendur Jónsson skrifar um BÓKMENNTIR ÁVOXTUR ATHYGLINNAR l»orsteinn Jósepsson: LANDIÐ ÞITT. Saga og sérkenni nær 2000 einstakra bæja og staða. Bókaútgáfan Örn og Örlygur h.f. 1966. LANDIÐ ÞITT eftir Þorstein Jósepsson er stór bók. Og þörf bók. Og að flestu leyti góð bók. Það er hárrétt, sem höfundur segir sjálfur í formála og hefur eftir öðrum manni, að frumsmíð af þessu tagi getur aldrei „orð- ið annað en gallagripur“. Verk þetta var samið af ein- um manni. Einstaklingsvinnan hefur sína kosti. Eðlilegra má þó telja, að uppsláttarrit sem þetta sé samið af mörgum mönn- um, þar sem hver og einn hefur af sérþekkingu að miðla. Ekki þar fyrir — gölluð verður frum- smíðin, hversu margir sem að henni vinna. En sé höfð hliðsjón af þeirri staðreynd, að Landið þitt er sam- ið af einum manni á skömmum tíma, má furðu gegna, hve ritið er í rauninni gallalítið. Frágang- urinn er að vísu stórvitaverður; prentvillur eins og mý á mykju- skán, svo talið sé hið versta. En þar mun vera við útgefanda ein- an að sakast. Tel ég ekiki vafa á, að sumar efnisvillur í textanum séu í raun og veru prentvillur, t.d. ártalavillur og aðrar tölu- skekkjur, nafnavillur og fleira. Þau afglöp kunna að vera fyr- irgefin í hraðunninni frumútgáfu. En þeim mun strangari kröfur verða líka gerðar til fyrstu endur útgáfu, hvenær sem hún birtist. Hvað skal þá segja um efni þessa staðfræðilega uppsláttar- rits? Fljótt á litið virðist mér höf- undur hafa leitazt við að segja lesendum sínum nokkurn veginn hið sama, sem venjulegur farar- stjóri hefur verið að segja algeng um ferðamannahóp á undanförn um árum. Höfundur hefur farið eftir þeirri reglu blaðamanns að virða óskir lesenda, komið á framfæri því, sem hann taldi sjálfur markvert, um leið og hann hefur tínt til, það sem gera mátti ráð fyrir, að lesendum þætti forvitnilegt. Það er enda- laust álitamál, hvað ber að leggja áherzlu á í svona löguðu riti. Mér — fyrir mitt leyti — þykir fara of mikið fyrir þjóð- sagnaefni í bókinni. En það efni er fráleitt tilkomið vegna neinn- ar sérvizku höfundarins. Leið- sögumenn hafa mjög ástundað að uppfræða ferðafólk um drauga, skrímsli og aðrar kynja- vættir. — Ég hef heyrt allþekkt- an fararstjóra segja sama fólkinu sömu draugasöguna sjö sinnum. Og fólk lætur sér það vel lika. Spyrja má, hvers vegna það sé svona sólgið í draugasögur. Ætli ástæðan sé ekki sú, að íslending- ar, þeir sem komnir eru á miðj- an aldur og þar yfir, séu_flestir aldir upp í draugatrú? Annars bendir nú margt til, að draugarnir taki senn að þoka fyrir öðrum áhugamáium. Þjóð- trúin á sinn tíma eins og hvað annað. Valt er að staðhæfa, að þjóðsögurnar rýri gildi ritsins. Að vísu hefði sums staðar þurft að gera skýrari greinarmun á sannfræði og þjóðsögu. Til dæm- is segir svo í grein'um Svínavatn í Austur-Húnavatnssýslu: „Kirkjustaður í Svínadal. Sam nefnt vatn allstórt er skammt frá bænum. í því er veiði. Oft hafa slys orðið í Svínavatni, eink um með þeim hætti, að menn hafa farið niður um veikan ís. Meðal annars hafa nokkrir Auð- kúluprestar drukknað í vatninu. Hafa þeir gengið aftur og sum- ir leitazt við að draga vegfar- endur niður í vakir til sín“. Hér er sagt frá afturgöngun- um, eins og um heilagan sannleik væri að ræða. Og svo er miklu víðar. Til fornsagna er vitnað á líkan hátt. Sagt er um Njál á Bergþórshvoli, að hann hafi ver- ið „mestur lögvitringur allra forn manna“. Njáll er persóna í sagnfræði- legu skáldverki. Og víst er hann mikill „lögvitringur" sem slíkur. En að telja hann mesta „lögvitr- ing allra fornmanna" — það er vægast sagt hæpið. Með sama rétti mætti kalla Ólaf Kárason Ljósvíking mesta alþýðuskáld á tuttugustu öld, svo hliðstætt dæmi sé tekið. öðru máli gegnir um eftirfar- andi athugasemd varðandi Giss- ur Þorvaldsson undir uppsláttar- orðinu Flugumýri. Þar segir: „. . . komu óvinir hans að hon- um óvörum að nóttu til með her manns að Flugumýri og brenndu bæinn og heimafólk, þar á meðal konu Gissurar og þrjá sonu. Sjálfur bjargaði Gissur sér með því, að sögur segja, að hann faldi sig í sýrukeri í búri“. „að sögur segja“, stendur hér, og mætti samkvæmt því ætla, að nú væri vitnað til þjóðsagna. En svo er vitanlega ekki. Frá- sögnina af Flugumýrarbrennu er að finna í íslendingasögu í Sturlungu, sem er sagnfræðirit. •Þessi atriði þarf að endurskoða sem og fáein önnur, er nú verður vikið að og ég tel, að breyta þurfi eða leiðrétta fyrir endurútgáfu ritsins. Þar sem fjallað er um Bergþórs hvol, segir meðal annars: „Tengdasonur Njáls, Kári Söl- mundarson, komst einn karl- manna óséður úr eldinum . .“ í greininni um Dyrhólahverfi er sama staðhæfing endurekin. Þar segir: „Kári komst einn karla lifandi úr Njálsbrennu". Þetta er ekki rétt. Flosi leyfði, að út væri hleypt úr brennunni húskörlum, svo og bryta Njáls. Vera má, að í Landið þitt sé átt við, að Kári hafi sloppið úr eld- inum einn þeirra karla, sem ætl azt var til, að brynnu þar inni. En það kemur í sama stað. Frá- sögnin þarf engu síður að vera skýrari, afdráttarlausari. Um Biskupsbrekiku segir svo: „Þar veiktist Jón biskup Vída- lín skyndilega 30. ágúst 1720 á vísitazíuferð til Vesturlands“. Ekki hef ég við höndina frum heimildir um þann atburð. En nær er mér að halda, að biskup hafi ekki verið á leið í neina vísitazíuferð og vitna í því efni til Sögu íslendinga eftir Pál Eggert Ólason og Þorkel Jó- hannesson, sjötta bindi. Þar seg- ir um ferðalag biskups og dánar- dægur: „Þeir biskup og mágur hans, síra Þórður Jónsson á Staðastað, höfðu heitið því hvor öðrum, að sá þeirra, er lengur lifði, skyldi flytja líkræðu yfir hinum. Síra Þórður andaðist 21. ágúst 1720, og frétti biskup látið 24. eða 25. sama mánaðar. Lagði hann þegar af stað, til þess að fylgja síra Þórði til grafar. Hafði hann verið á sífelldum erli og ferðalögum það sumar fram að þessu. Sama dag kenndi hann verkjar fyrir brjóst inu, einkum eftir að hann kom vestur á Sleðaás, og komst með naumindum í sæluhúsið. Versn- aði honum svo um nóttina, að hann treystist ekki að fara lengra Lét hann þá taka sér blóð, og linaði það verkinn, en við það dró úr honum mátt. Andaðist hann þar í sæluhúsinu aðfara- nótt 30. ágúst“. Biskup hefur sem sagt verið á leið að jarðarför og veikzt 24. eða 25. ágúst, en ekki 30. eins og segir í Landið þitt. f greininni um Breiðabólsstað í Fljótshlíð er vikið að „Fjölni, sem olli á þeim árum byltingu í íslenzkri menningu og viðreisn“, að þar stendur skrifað. Þau orð tel ég eiga litla stoð i veruleikanum. Fjölnir hratt ekki af stað neinni byltingu, að minnsta kosti ekki samkvæmt venjulegri merking þess orðs. Annað mál er, að í sjálfstæðis- baráttunni, mörgum áratugum síðar, tók þjóðin að rækja minn- ing Fjölnis og hóf hann til vegs í almennri vitund. f greininni um Hóla í Hjalta- dal segir, að Jón Arason hafi verið hálshöggvinn „ásamt son- um sínum þrem“. Það er ekki rétt. Aðeins tveir synir Jóns, Björn og Ari. voru með honum höggnir. í greininni um Hraunhafnar- tanga er nefndur Þorgeir og sagð ur Hávarðsson. Þar er skakkt farið með föðurnafn. Faðir Þor- geirs hét ekki Hávarður, heldur Hávarr. í kauptúninu Hvolsvelli, Rang- árvallasýslu, eru íbúar sagðir „um 375“. Sú tala mun vera allt of há. Hins vegar gæti talan áítt við íbúafjölda alls hreppsins. í greininni um Jökuldalsheiði er getið um bæinn Rangárlón, eins og þar setndur ritað. Man ég ekki rétt, að hann væri jafn- an kallaður Rangalón, enda þó fyrrgreinda nafnið kunni að vera upprunalegra? í smágrein um Kúvíkur standa þessi orð: „í Kúvíkum er Jakob skáld Thorarensen upprunninn, fæddur 1886“. Þessi klausa er kelzti óskýr, því eftir henni mætti ætla, að Jakob væri fæddur í Kúvíkum. Svo er ekki. Hann fæddist á Fossi í Hrútafirði. Svipuðu máli gegnir um það, sem sagt er um Gest Pálsson skáld, að hann væri upprunninn í Mýrartungu. Þar sannast hins vegar, að ekki er átt við fæðingarstað, því fæð- ingarstaðar Gests er rétt getið annars staðar í bókinni. Hér þarf því einnig að breyta orðalagi til greinilegri vegar. Um Reykholt í Borgarfirði segir meðal annars, að þar hafi Snorri verið „myrtur“. Vafasamt er að viðhafa slíkt orð í því sam bandi. Snorri var veginn, en ekki myrtur, enda þó óvinirnir fyndu hann á felustað. í greininni um Reykjavík seg- ir, að „Svíar (Málmeyjarkaup- menn)“ hafi fengið „einokunar- aðstöðu til verzlunar árið 1602“ í Hólminum. Villandi er að tala um Svía í því sambandi, nema hins sé um Þorsteinn Jósepsson. leið getið, að Málmey var á þeim tíma hluti af Danaveldi og Málm eyjarkaupmenn voru þá danskir þejjnar. í sömu grein segir, að um miðja nítjándu öld hafi byrjað „starfsemi hins almenna Mennta skóla í Reykjavík". Sú athuga- semd er lí'ka hæpin. Skólinn hét þá öðru nafni. Og „almennur" var hann ekki í líkingu við það, er síðar varð. Það var ekki fyrr en í byrjun þessarar aldar, ef ég kann með að fara, að tekið var að kalla hann hinn almenna menntaskóla". En jafnvel það tíðkast nú ekki lengur. Þá er í sömu grein minnzt á „svokallaðan Hljómskálagarð“. Garður sá heitir nú Tjarnar- garður. í greininni um Snæfellsjökul segir: „Við rætur Snæfellsjökuls að sunnan er sæluhús, sem Ferða félag íslands á“. — Þarna skakk ar áttum. Sæluhúsið stendur aust an við jökulinn, og þó norðar fremur en sunnar. Um Holtavörðuheiði segir, að hún liggi „milli Norðurárdals í Mýrarsýslu og Hrútafjarðar í Strandasýslu“. Málsgreinin er villandi, því af henni mætti ráða, að Stranda- sýsla lægi að Hrútafirði öllum. Svo er ekki. Húnavatnssýsla ligg ur að honum austanverðum. Þá eru fáein ártql. Davíð Stefánsson skáld er sagður hafa andazt 1963. Hið rétta mun vera 1964. Dánarár Guðmundar á Sandi er talið 1940. Hið rétta er 1944. Einar H. Kvaran er sagður fæddur 1854 og dáinn 1921. Hvor ugt er rétt. Einar fæddist 1869 og dó 1938. Um Þjórsárbrú segir, að hún væri „upphaflega byggð 1885“. Þar held ég skakki áratug, því Þjórsárbrú var vígð 1895. — ★ — Fáum tveim mönnuin mun koma saman um, hvað sé van- sagt og hvað sé ofsagt í riti sem þessu. Svari ég fyrir mig, þykir mér íslenzkum bókmenntum gerð þar fulllítil skil miðað við önnur fræði. Tilfæri nokkur dæmi. Sagt er um Odd Hjartalín, að um hann hafi „myndazt þjóðsög- ur“. Mátti ekki eins geta um kvæði það, sem Bjarni Thor orti um Odd? Sannfærður er ég um, að fleiri kannast við það en þjóðsögurnar. Getið er um Ás- hildarmýrarsamþykkt. Þar hefði, tel ég, átt að minna á kvæði Tómasar, Að Áshildarmýri. Hins vegar álít ég meira en óþarft að geta um Kristin nokk- urn Stefánsson skáld, fæddan á Egilsá í Skagafirði, „sem síðar íluttist alfarinn til Vesturheims“. Hundruð slíkra hefðu með sama rétti mátt standa í bókinni. í greininni um Kirkjuból I Mýrarsýslu er ekki aðeins getið um Guðmund Böðvarsson, held- ur einnig um Böðvar skáld, son hans. Það er vel. Verra er hins vegar, að hann er næstum eina skáldið undir miðjum aldri, sem inni hefur fengið í ritinu. Um Skinnalón í Norður-Þing- eyjarsýslu segir, að „þar bjuggu foreldrar Magnúsar Eiríkssonar guðfræðings (1806-1881). Lagði hann sig mjög eftir trúarefnum og gaf á því sviði út fjölda rita, flest á dönsku. Hann hafði um tíma áhuga á dönskum stjórn- málum og bauð sig þar fram til þings. Bjó lengst af ævinnar i Kaupmannahöfn". Magnúsi þessum má að skað- lausu sleppa. Hann er stein- gleymdur. Um Elliðavatn við Reykjavík er rituð allýtarleg grein, meðal annars getið um veru Benedifcts Sveinssonar þar og sagt frá því, að Ólafur Haukur, sonur hans, hafi drukknað í vatninu, en — aðalatriðið hefur gleymzt: að á þeim stað fæddist Einar Ben. sjálfur. í sumum greinum þyrfti að auka við atriðum, þó ekki væri vegna annars en samræmis. Dæmi: Þess er getið um flest stórfljót landsins, hve löng þau séu frú upptökum til ósa. Um einhver — en fæst þó — er einnig tekið fram, hversu mikið sé vatns magn þeirra samkvæmt meðal- rennsli. En sá fróðleikur þyrfti að vera tiltækur varðandi allar stórór, sem nefndar eru í bók- inni. Að vita um vatnsmagn ár kann í sumum tilfellum að vera nauðsynlegra en kunna skil á vegalengd þeirri, sem hún streym ir frá upptökum til ósa. í ritinu eru margar myndir, teknar af höfundi bókarinnar. Daufar eru þær flestar. Höfundur var svo mikill ljósmyndari, að manni hlýtur að koma í hug, að þessar myndir hans hafi hlotið misjafna meðferð á einhverjum •'áföngum áleiðis til prentunar. Sitthvað fleira mætti að riti þessu finna, ef allt væri týnt tiL En um leið verður að táka skýrt fram, að jafnvel margar rétt- mætar aðfinnslur gefa harla lítið til kynna um svona mikla bók. Það er létt verk og löðurmann- legt að benda á fáeina, smávægi lega ágalla. En það er mikið af- rek að semja svona lagað rit og ekki á mannlegu valdi að ganga svo frá því við fyrstu gerð, að ein og ein missögn slæðist ekki með þeim aragrúa atriða, sem hárrétt eru og skipulega fram talin. Þorsteinn Jósepsson var mikill blaðamaður og ágætur rithöf- undur. Hann samdi Landið þitt á undraskömmum tíma, og mun þó hvergi hafa gengið heill til skógar, meðan hann vann það verk. Því síður mun nokkrum, sem les ritið, blandast hugur um, að það hlýtur að vera árangur mikils ævistarfs. Þeirri þekking, sem höfundur skrifaði saman á bók á fáeinum mánuðum, hefur hann verið búinn að viða að sér á mörgum áratugum. Landið þitt er og verður hans opus magnum. Heyrt hef ég, að bókin hafi selzt svo vel fyrir jólin, að upp- lag hennar sé nálega þrotið. Gleði legt er til þess að vita, því þarna er á ferðinni rit, sem er í senn skemmtilegt og gagnlegt. Sjálfsagt líður ekki á löngiu, þar til ritið verður gefið út á ný. Þá yrði minning hins látna höf- undar verðugast heiðruð, ef það yrði gert svo vel úr garði, sem því bezt má hæfa. Erlendur Jónsson. ENSKUSKÓLI LEO MUNRO Baldursgötu 39. Símar 19456. Nýtt námskeið fyrir fullorðna hefst 20. febrúar Aðeins W í flokki Innritun í síma 79456 alla virka daga frá fiff. 7 til 4 eh.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.