Morgunblaðið - 12.02.1967, Side 8

Morgunblaðið - 12.02.1967, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRUAK 196T. BONNARD HUNDRAÐ ÁRA PIEBRE Bonnard er að Sllu leyti mjög mikil andstæða við Picasso, bæði sem listamaður og persónuleiki. Annar spænskur, hinn franskur. í>að er því skemmtilegt, að það skuli vera yfirlitssýningar á verkum þessara frægu málara sitt hvoru megin við Concorde torgið í París. Það •r í Orangerie safninu, sem Prakkar halda upp á hundrað ira afmæli og tuttugu ára dá\i- •rafmæli Bonnard. Þótti enda aumum tími til kominn að fá að *já yfirlitssýningu í heimaland- inu á verkum eins þekktasta mál ara Frakklands. Bretar og Ame- ríkumenn höfðu riðið á vaðið með stórar sýningar á verkum Bonnard, og margir komizt að þeirri niðurstöðu eftir þær sýn ingar, að hann væri mesti málari aádarinnar. Nú eru slíkar fullyrð ingar heldur hæpnar og því vart mark takandi á þess háttar, en það virðist vera orðin ein af far aóttum nútímans, að vilja endi- lega gera einihverja Olympíu- leika úr myndlist. Ekkert er fjar kegara góðri list en keppni, list ia er í eðli sínu lengi í mótan og getur ekki tekið hlaupa- spretti eða stór stökk, nema á lðngum tíma. Að flýta sér um of I listum, held ég að aldrei hafi borgað sig til lengdar. Ekkert var fjær Bonnard en að flýta sér í listsköpun sinni. Hann var svo hlédrægur í dag- legu lífi, að vinir hans telja, áð það hafi stundum verið óþægi- legt að umgangast hann af þehn aökum. Hann vann í sum verk sín ár eftir ár, og ein fyrirsæta hans hefur sagt frá því, að hún hafi setið fjörutíu sinnum fyrir hjá honum, án þess hann væri ánægður með árangurinn. Bonnard gerði engar formbylt- ingar í málaralist, en samt tókst honum með litasnilld sinni að hafa gríðarleg áhrif á samtíð *ína og ekki hvað minnst á unga menn. Það er ekki ofsagt, að hann hafi hafið málaralist sam- tíðar sinnar á æðra stig mcð ótrúlegri litameðferð, sem á sér enga samstæðu á þessari öld, Svo ótrúlega einstæður listamað ur var Bonnard. Stíll hans var það, sem við getum kallað síð- impressionisma, eða eitthvað í þá áttina, en samt er hann það sjálfstæður listamaður, að hann verður ekki dreginn í neinn ákveðinn dilk. Hann er þó mjóg tengdur franskri hefð, og til dæmis eru elztu myndirnar á þessari sýningu sama eðlis og málverk Corot, og ekkert virð- ist eðlilegra. Annars ber mjög snemma á sjálfstæði Bonnards og jafnvel furðulegt, hve hann virðist fljótt hafa komizt inn á þá hluti, er gerðu myndir hans svo sérlega aðlaðandi og gríp- andi. Ég veit ekki um neinn ann an málara á þessari öld, sem virð ist eiga að baki sér eins jafna framleiðslu og vandaða og Bonn ard. Ef skipta á listferli Bonn- ard í tímabil, verður frekar grip ið til þess að fara eftir fyrir- myndum, en formibreytingum eða litameðferð. Litir virðast hafa verið Bonnard svo eðlileg- ir, að hvergi verður vart við sérstök átök eða erfiði hjá lista- manninum, en það er algengt, að hægt sé að sjá slíkt í verkum málara. Svo er það annað, sem er algerlega einstætt hjá málara, það er bókstaflega ekki hægt að finna eina einustu slæma mynd í öllum þeim verkum, sem sýnd eru á þessari sýningu. Það er fyrst og fremst litasnilld Bonn- ard, sem mest áhrif hefur haft á list nútímans. Nú getur verið að einhverjum þyki það undarlegt, að maður sem alltaf var málandi uppstillingar, landslög og fólk, skuli vera talinn einn af máttar- stólpum nútíma abstrakt listar, en það er staðreynd um Bonn- ard. Hann kunni vel þann gald- ur að notfæra sér abstrakt mynd byggingu í verkum sínum, og auðvitað varð listagleði hans meir en uppörvandi fyrir hvern þann listamann, sem á annað borð var sjáandi. Svo geislandi eru þessir heitu sterku litir, sem í sjálfum sér eru ekki minni bylting í mólaralist en öll þau stílbrögð, sem notuð hafa verið á síðustu áratugum. Hér sjáum við ekki síður en hjó Picasso, að st'ílí hefur nauðalítið að segja, það er kraftur litar og línu, sem gerir út um hlutinn. Bonnard var heldur fámáll um list sína og málaralist yfir- leitt. Samt er haft eftir honum, að málverkið sé ekki eftirlíking af neinum fyrirmyndum, heldur lítill heimur fyrir sig, sem sé fullkominn í sjálfum sér. Bonn- ard hafði þann vana að gera frummundir úti í náttúrunni, að eins nokkur strik rissuð á papp- írsblað, síðan málaði hann myndir sínar í vinnustofunni og sagði, að það truflaði hjá sér málverkið að gera það á staðn- um. Á öðrum stað er haft eftir honum, að það nægi ekki að sjá fyrirmyndina, heldur verði að elska af öllu hjarta það, sem maður ætli að fást við. Litirnir verði ekki séðir, þeir verði að koma frá hjartanu. Þessi sjónar- mið listamannsins eru öll í sam- ræmi við verk hans. Það er ein- hver innileg tilfinning og ást, sem auðkennir þau litríku verk, sem listamaðurinn lét eftir sig. Þessi yfirlitssýning á verkum Bonnard er þýzkt/franskt sam- starf, og var byrjað á að sýna hana í Haus der Kunst í Múnehen. Eins og áður er sagt. er hún nú opin í Orangerie sáfninu 1 París og stendur til 15. apríl næstkomandi. Á sýning- unni eru 183 olíumálverk, ásamt svartlist, teikningum, auglýsinga spjöldum og vatnslitamyndum, eða 272 verk alls. Þessum verk- um er miklu betur fyrir komið en verkunum á sýningu Picasso og því miklu betra að kynnast við hvert verk fyrir sig. Þarna var mikið af fólki, þegar ég var þar, en hvergi nærri svo mikill sægur sem hjá Picasso. Það er ekki gott að spá um aðsókn að þessari sýningu, en ég gæti trú- að, að hún yr'ði mjög mikil. Bonnard. er ástsæll listamaður meðal Frakka og dáður um víða veröld. Myndir hans hanga í listasöfnum, sem eitthvað kveð- ur að, um allan heim, og allir, sem eittJhvað vita um listir, álíta hann einstakan listamann í sinm röð. Þó nokkuð hefur verið skrifað af bókum um Bonnard, og sum- ar myndir hans hafa verið kynnt ar í eftirprentunum. Ekki hefur verið sett saman listasaga síð- ustu áratuga, svo að hans sé þar ekki getið sem eins af þeim stóru á þessu timabili. Þessi sýn ing Bonnard er I stuttu máli al- veg stórkostleg, og svo eru verk- in jöfn að gæðum, að vart verð- ur eitt tekið öðru fram. Ber og öllum saman um, að það sé alveg sérstakt, hve jafnt lífsstarf þessa meistara sé. Hann hefur sannað það áþreifanlega, að hægt er að mála fígúratívt enn þann dag í dag, ef það er gert á réttan hátt. Nú má ekki rugla list Bonnard saman við leiðinlega kerfisbundna akademíska list, sem er löngu dauð úr öllum æð- um. Þá má heldur ekki rugla henni við náttúrustælingar. Ekkert er fjær Bonnard. Hann hefur sjálfur sagt: Engin list án náttúrunnar. Þar á hann ekki við náttúrustælingu, heldur að- eins að listamaðurinn eigi að láta náttúruna verka skapandi á hug sinn. Þetta tókst honum i ríkum mæli og þannig skapaði hann meistaraverk á léreftinu, sem hann gæddi glóandi, iðandi lífi. Það er einnig einkennandi fyrir teikningar hans, hvernig hann notar fyrirmyndirnar að- eins til að tjá sínar innri tilfinn- ingar og einfaldleika. Þar er hann meistari, dálítið sér á parti en sérstaklega lifandi. Og þar sér maður greinilega, hvernig hann stundum leikur sér að því, sem hann er að teikna. Allt virð ist áreynslulaust hjá Bonnard, jafnvel tilviljunarkennt. Margir óvaningar í listum, láta stund- um blekkjast á list Bonnard og álíta, að hann sé undanrenna Impressionistanna, en það er mikill misskilningur, sem getur ekki orðið til nema af hreinni vanþekkingu. Um tíma var ungum lista- mönnum ekki meir en svo vel við Bonnard, vegna þess að þeim þótti hann heldur íhaldssamur í list sinni. Var það aðallega á ár unum milli heimsstyrjaldanna, sem Bonnard féll í dálítinn skugga fyrir til dæmis Kúbist- unum. En það leið ekki á löngu, þar til hann var aftur kominn í brennidepilinn. Hann var ein- faldlega of góðui málari til að hægt væri að sniðganga hann. Og ekki man ég eftir að hafa nokkru sinni hitt svo uppskrúf- aðan ungan listamann, að hann viðurkenndi ekki Bonnard. Þann ig er það ævilega með góða, sanna myndlist. Hún verður ekki sniðgengin, hún getur ekki ann- að en sigrað, hvernig svo sem fyrstu móttökur eru. Bonnard var ekkert undra- barn eins og Picasso, og hann var heldur ekki kominn af lista- fólki. Faðir hans var ráðuneytis- stjóri í hermálaráðuneyti Frakk- lands og lét son sinn nema lög. Bonnard er fæddur í einni út- borg Parísar, og það er ekki fyrr en að laganámi loknu, að hann fer á myndlistarskóla. Það má til gamans geta þess, að Henry Matisse, sá mikli málari, var l'íka lögfræðingur að menntun, og ég held, að þeir hafi útskvif- ast sama ár, Bonnard og hann, en ekki frá sama skóla. Einn af vinum Bonnard segir svo frá, að Bonnard hafi alla ævi haít Framhald á bls. 14 Bonnard: „Nakin kona íyrir framan spegil“ (1919). Bonnard í vinnustofu sinnL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.