Morgunblaðið - 12.02.1967, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.02.1967, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1967. Páskaferðirnar ‘67 Mallorea Kanarieyjar — London 22. marz — 6. apríl Þessi vinsœla ferð hefir verið fullskipuð morg undan- farin ár og færri komizt en vildu. í gær voru aðeins 12 sæti laus í þessa vinsælu ferð þó góður tími sé gefinn til stefnu. Estoril (Lissabon) og London 23. marz — 4. apríl Vegna fjölda áskorana efnum við nú í fyrsta sinn tíl íslenzkrar hópferðar á hina undurfögru sólarströnd Portugals. Estroil er baðstranda- og skemmtanahær um 20 km frá Lissabon, og tengd höfuðborginni með ný- tízku rafmagnshraðbraut. Við búum á tveimur beztu hótelum staðarins við ströndina, Hotel Atlantic og Estoril Sol, sem er stærsta og glæsilcgasta hóteli I Portugal, tveggja ára gamalt. Estoril er víðfrægur skemmtana- og baðstrandarbær, enda heldur þar að jafnaði til mikið af tízkugestum, svo sem kvikniyndaleikarar og kóngafólk Evrópu. Auk hinn ar fögru baðstrandar og nálægðar við stórborgina, Lissa bon, hefur borgin annað frægasta spilavíti og „Casino“ skemmtistað álfunnar, þar sem dansað er fram undir morgun alla daga. — Þar er einnig einn bezti golfvöllur Evrópu. Farið er í stuttar skemmtiferðir um fagrar byggðir Portugals, þá 10 daga, sem þar er dvalið, en jafnan komið heim á hótel aftur samdægurs. Frá Lissa bon er flogið til London og dvalið í þrjá daga, áður en farið er heim. — íslenzk flugvél alla leið lækkar ferða kostnaðinn stórlega. SumarferÖirnar til Mallorca 14 dagar á Mallorca og einn dagur í London kr. 9,800.— Að þessu sinni efnir SUNNA til tveggja slíkra ferða í hverjum mánaðanna, júní, júlí, ágúst og september. Nú er óþarfi að fara til Kaupmannahafnar og ferðast með danskra prestinum, eða Spies, því þið fáið ódýrari ferð ir með íslenzkum flugvélum, sem SUNNA leigir beint til Mallorca. I verði ferðar er innifalið hótel og fullt fæði á Mallorca, gisting og morgunverður í London. Ungt fólk getur fengið ferðirnar gegn vægum mán- aðarlegum greiðslum ef pantað er fyrir 1. marz. Dragið ekki lengi að panta þessar vinsælu ferðir. Þær verða áreiðanlega uppseldar fljótt. Kynnið ykkur hinar ódýru gæðaferðir SUNNU. Aðeins góð hótel og skemmtilegt fólk í SUNNU-ferðum. Ferðaskrifstofan SUNNA, Bankastræti 7. Símar 16400 og 12070. 1 — Bonnard Framhald af bls. 8 áhuga á lögum og oft gefið vin- um sínum lögfræðileg ráð, sern jafnan hafi reynzt ágætlega. En hvernig sem á því stendur, þá tókst Bonnard fyrir dauða sinn að brengla erfðaskrá sinni þann- ig, að ættingjar hans lentu í miklum málaferlum út af arfm- um, og ekki virðist það sanna, að hann hafi verið afburða lög- fræðingur. Á myndlistarskólanum, Aca- démie Julian, hitti Bonnard fyr- ir unga menn, eins og Vuillard, sem varð ævilangur vinur hans, og Maurice Denis, Ranson og Sérusier, sem allir urðu þekkt- ir listamenn. Þeir félagar stofn- uðu klíku, sem þeir kölluðu „Nabis“ (dregið af hebreska orð inu Nebiim, sem þýðir spá- menn) og héldu hópinn nokkur ár. Fyrsta einkasýning Bonnard var haldin í París árið 1896. Verk þessara félaga hanga nú í sama sal á Nútímasafninu í París. Bonnard var, eins og áður er sagt, mjög hlédrægur maður, og það er líklegast einsdæmi í landi eins og Frakklandi, að hann neit aði að taka við Heiðursfylking- ar-orðunni frönsku. En hann lét sig ekki um það muna í landi, þar sem orðusýki og lifrarveiki virðast vera almennastir kvillar. Hann lifði mjög einföldu og kyrr látu lífi, hann kunni bezt við sig úti á landsbyggðinni og um- gekkst mjög fáa. Hann ferðað- ist dálítið til útlanda, þar á með al til Ameríku, en honum voru veitt Carnegie-verðlaun fyrir myndlist oftar en einu sinni. Hann málaði dálítið á Sf>áni og í Norður-Afríku, en kærustu við- fangsefni hans voru París og ná grenni og Suður-Frakkland, en þar bjó hann seinustu árin, sem hann lifði. Hann hafði sömu fyr- irsætuna í áratugi og bjó með henni, þar til hún lézt nokkru á undan honum sjálfum. Þetta var einasta kona, sem hann felldi ástanhug til, svo að sé vitað, og þau giftust, rétt áður en hún and aðist. Það merkilega við þetta samband var, að Bonnard mál- aði þessa konu alltaf jafn unga, þrátt fyrir háan aldur hennar. Bonnard var oft brugðið um að vera allt of borgaralegur í háttum, en sannleikurinn er sá, að hann var hvorki borgari né bohem. Hann var feiminn og hlé drægur og kunni bezt við sig heima fyrir, án þess að hafa of marga í kringum sig. Hann var barnlaus og elskaði að dútla við sitt í friði og spekt. Um peninga var hann hirðulaus og útlit sitt einnig, Það er sagt, að hann hafi bezt kunnað við sig illa búinn, jafnvel í lörfum, og að hann hafi helzt viljað kaupa notuð föt af öðrum. Þeir, er hittu þennan fræga mann, undruðust yfir því, hev alúðlegur og alþýðlegur hann var, og virtist hann alger- lega óvitandi um frægð sína. Hann vildi sem minnst um list tala við ókunnuga, en hafði hins vegar gaman að því við nánustu vini. Það var eins og um trún- aðarmál eða jafnvel feimnismál væri að ræða. Einn vina hans hefur eftir honum eftirfarandi: Það má ekki þvinga málverkið, það verður að fá að vaxa eins og jurt, hægt og hægt, og því er raunverulega aldrei lokið. Hinn kunni listaverkasali Pierre Loeb segir frá því í end- urminningum sínum, að hann hafi keypt fjögur málverk eftir Bonnard. Hann þekkti listamann inn ekkert, en varð mjög hrif- inn að þessum málverkum við nánari kynningu, svo að hann skrifaði Bonnard og bað hann um að koma í heimsókn við tæKi færi. Dag nokkurn tilkynnti vinnukonan, að það væri verka- maður að spyrja eftir húsbónd- Einars B. GuSmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar, Aðalstræti 6, III. hæð. Símar: 12002 - 13202 - 13602. anum. Loeb fór til dyra, og þar var þá Bonnard kominn í dá- lítið óhreinum vinnufötum með lítinn málarakassa undir hendi. Þeir gengu til stofu og fóru að athuga máiverkin. Loeb fann strax, hve aðgengilegur persónu leiki Bonnard var, og sagði hon um í hreinskilni, að sér fyndist eitt málverka hans ekki alveg samræmt í litnum, hvort ekki gæti verið, að neðst til hægri væri liturinn of sterkur. Bonn- ard athugaði málverkið nokkra stund, en sagði síðan, að það væri ekki þar, en það væri efra hornið, sem ekki félli nógu vel inn í heildina. Síðan opnaði hann málarakassa sinn, tók upp pensil og byrjaði að laga mynd- ina. Loeb vildi ekki trufla og fór í aðra stofu, og svo sem eftir klukkutíma heyrði hann, að gengið var um útidyrnar. Það var Bonnard að læðast út. L^eb sagði vini Bonnard frá þessu, en vinurinn varð ekkert hissa og fræddi Loeb um það, að það hefði komið fyrir, að Bonnard hefði stolizt til að mála í myndir sínar á Luxemborgarsafninu, þegar verðirnir tóku ekki eftir. „Því er aldrei lokið,“ sagði hann sjálfur. Það væri ósvinna að fara að telja hér upp einstaka verk á sýningu Bonnard, en elzta mynd in á sýningunni er frá árinu 1888, Edwin Porter. — Kvikmyndir Framhald af bls. 4 sem framleiðenda og 1925 missti hann ver sitt og lét sig hverfa af sjónarsviðinu. Hann vann fyrir sér með ýmsum hætti, m.a. blaðasölu, en um síðir skutu vinir hans saman fyrir lítilli sælgætis- og leik- fangabúð við Gare Montparn- asse. Þegar hann var orðinn of aldraður til að fást við sælgætissölu var hann gerður að Riddara Heiðursfylkingar- innar og leyft að eyða ævi- kveldinu á dvalarheimili upp gjafaleikara í Orly. Þar and- aðist hann 24. janúar 1938 og lifði í þeirri von síðustu ár sín að hann yrði á ný kallaður fram til að vinna ný afrek í þágu kvikmyndalistarinnar. Méliés var aðeins einn hinna fyrstu, sem fékk áþreif anlega að kynnast því, að innan kvikmyndalistarinnar er meira hugsað um framtíð en fortíð. Arftaki George Méliés hét Edwin Porter. Hann starfaði hjá Edison og að fengnu samþykki hans árið 1902 gerði Porter myndina „Líf banda- rísks slökkviliðsmanns", sem vakti feikna athygli. f henni mun vera fyrsta „close up“ eða nærmynd kvikmyndasög- unnar, (af hringjandi bruna- boða). Fram til þess tíma hafði Méliés sagt sögur sínar og skipt atriðum eins og í leik- húsi, en Edwin Porter kom fyrstur fram með hið „sinema tíska“ frásagnarform. Fyrsta atriði myndarinnar sýnir slökkvistjórann á vinnu stað, þar sem hann dreymir um konu sína, (mynd 1). Ann að atriði sýnir fyrstu nær- mynd sögunnar: Brunaboða á götuhorni og næst hönd, og sú yngsta var fullgerð nokkr um dögum, áður en Bonnard lézt, 1947. Þetta málverk var klárað þannig, að Bonnard var orðinn rúmfastur, en fékic frænda sinn til að mála seinustu pensilförin eftir sinni fyrirsögn, og heitir málverkið „Möndlutré í blóma". Dálítið skemmtilegt nafn á síðasta verki Pierre Bonnard, sem sagði, að málverk ið yrði að fá að vaxa eins og jurt, hægt og hægt. Það var orðið áliðið dags, þeg ar ég hafði lokið við að skoða sýningu Bonnard. Þegar ég kom út, var umferðin á Concorde- torginu komin í algleyming, og það féllu nokkrir dropar úr mild um janúarhimni. Hinum megin við torgið blasti Stóra höllin við, og þar var Picasso. En þær and- stæður Picasso oð Bonnard, þess ir jöfrar hvor á sínu sviði, en þó með sama takmark. Það flaug 1 gegnum heila minn einkenni'.ega snögg hugmynd. Frakkland er Bonnard, Bonnard var Frakk- land. Orðaleikur, hugsa ég með sjálfum mér, hneppti frskkan- um að mér og muldra í barm mér, eins og goðum hitiveitu fslending sæmir. Þetta er stór- kostlegt, stórkostlegra en sjálf París. Enginn hefur sett eins mikla fegurð á eins lítinn fiöt og Pierre Bonnard. Valtýr Pétursson. sem setur hann af stað, (mynd 2 og 3). Þvi næst er fjærmynd af slökkviliðsmönnum, sem stökkva úr rúmum sínum og renna sér niður járnstöng á slökkvistöðinni og leggja síð- an af stað til brunastaðarins, (myndir 4, 5 og 6). Síðustu myndirnar sýna konu og barni bjargað úr brennandi húsi). Með þessari stuttu kvik- mynd kóm til sögunnar „cross-cutting“ eða yfir- klipping, sem gerir leikistjór- um kleift að segja sögu sína án þess að vera háðir tíma og rúmi. Árið 1903 gerði Porter þá mynd sína, sem hefur orðið einna frægust: „Lestaránið mikla“. í henni birtust fyrst þeir tveir þættir, sem alla tíð síðan hafa tröllriðið amerísk- um kvikmyndum, þ.e.a.s. „villta vestrið“ og eltingaleik Luis Bunuel, urinn. Hún hefst og/eða end- ar á nærmynd af manni, sem dregur upp skammbyssu og hleypir af beint framan í áhorfendur. Þetta atriði er i engu samhengi við atburðarás myndarinnar, en vakti ei að síður geysilega hrifningu áhorfenda, en við þeirri hrifn ingu höfðu kvikmyndafram- leiðendur ekki búizt, því að þeir reiknuðu með því, að áhorfendur teldu sig svikna á því að sjá aðeins efri hlut.a mannsins í stað þess að sjá hann allan. Árið 1915 hafði Porter græðzt mikið fé og hann dró sig í hlé frá kvikmyndagerð, en í kreppunni 1929 missti hann aleigu sína og fram- fleytti sér upp frá því sem minniháttar starfsmaður hjá fyrirtæki nokkru. (Helztu heimildir við sam- antekt þessarar greinar eru: The Movies eftir Richard Griffith og Artíhur Mayer, The silent cinema eftir Liam O’Leary og The Film Till Now eftir Paul Rotha.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.