Morgunblaðið - 25.04.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 25. ÁPRÍL 1967.
3
Utfðr Adenauers gerð í dag
Bonn, 24. apríl AP, NTB.
Á MORGUN, þriðjudag,
verður gerð frá Kölnar
dómkirkju útför Konrads
Adenauers, fyrrum kanzl-
ara Vestur-Þýzkalands,
sem lézt að heimili sínu í
Rhöndorf á fimmtudag sl.,
sumardaginn fyrsta, 91 árs
að aldri. Úför Adenauers
verður gerð með mikilli
viðhöfn og meiri en dæmi
eru til í Þýzkalandi síðan
borinn var til grafar Paul
forseti von Hindenburg
1934. Margt stórmenna
verður viðstatt útförina
þar á meðal Johnson
Bandaríkjaforseti, Charles
de Gaulle, Frakklandsfor-
seti og Harold Wilson,
forsætisráðherra Breta og
hafa ekki svo margir leið-
togar vestrænna ríkja kom
ið saman síðan gerð var
útför Johns F. Kenne-
dys Bandaríkjaforseta
1963.
Adenauer hefur legið á
viðhafnarbörum í Palais
Schaumburg síðan á laugar-
dag, á skrifstofu kanzlara-
enibættisins, þar sem hann
starfaðí allt til þess er hann
lét af störfum 1963. Lögreglu-
vörður var við höllina og
hermenn úr landamæralög-
reglunni fluttu kistu kanzl-
arans að heiman og til Schaum
burg-hallar sömu leið og
kanzlarinn var sjáifur vanur
að fara til vir.nu sinnar áður.
Síðdegis í dag mánudag,
var kista kanzlarans flutt til
Kölnardómkirkjunnar og
stendur þar á viðhafnarbör-
um til morguns. Þúsundir
manna höfðu, er síðast frétt-
ist, komið í dómkirkjuna að
votta hinum látna leiðtoga og
landsföður virðingu sína. Á
morgun klukkan tvö síðdegis
hefst svo útför Adenauers
með messu er Jósef kardí-
náli Frings flytur í Kölnar-
dómkirkjunni, en að henni
lokinni verður kista Aden-
auers flutt á bátsfjöl og siglt
með hana upp Rín til greftr-
unarstaðarins í Rhöndorf-
kirkjugarðinum. Þar verða
aðeins viðstaddir nánustu ætt
ingjar Adenauers.
Um alla tilhögun útfarar
Adenauers eru embættis-
menn sagðir hafa haft hlið-
sjón af útförum Kennedys
Bandaríkjaforseta, Jóhannes-
ar páfa XXIII og Sir
Winstons Churchills.
Bátsförin upp Rín er sögð
ákveðin að fordæmi því sem
sett var með jarðarför Sir
Winstons og þykir vel við
eiga, svo hjartfólgin sem áin
Rín var kanzlaranum alla tíð.
Hann bjó á Rínarbökkum
lengst af ævi sinnar, talaði
Rínar-mállýzku og átti
manna mestan þátt í því að
valin var til höfuðborgar V-
Þýzkalands borgin Bonn á
bökkum Rínar.
»
FÁNI blaktir í hálfa stöng úti fyrir dómkirkjunni í Köln
þaðan sem gerð verður útför Adenauers í dag, þriðjudag.
WiMiii’ÍÚ
- GEIMFARIÐ
Framhald af bls. 2
hann Bandaríkin og Sovétrikin
til að vinna meira saman á
sviði geimkönnunar. Sagði hann
að Johnson væri reiðubúinn að
samþykkja slíka samvinnu, sér-
staklega með tilliti til þess, að
hún hefði getað orðið til þess að
koma í veg fyrir dauðá Koma-
rovs og bandarísku geimfaranna
þriggja 27. jan. sl. Webb spurði
að lokum: „Gætum við hafa
bjargað þessum mannslífum, ef
við hefðum þekkt betur vonir,
éskir og áætlanir hver ann-
arra?“
Johnson Bandaríkjaforseti,
*em viðstaddur er útför Aden-
auers í Köln, sendi í dag sam-
úðarskeyti til Nikolaj Podgorny,
forseta Sovétríkjanna. Segir
hann í skeytinu, að allar þjóðir
heims tækju þátt í harmi rúss-
nesku þjóðarinnar. Hinn reyndi
og hæfileikaríki geimfari hefði
látið lífið í þágu vísindanna og
mannlegrar fróðleiksfýsnar eins
og bandarísku geimfararnir
þrír. Lýsti forsetinn samúð
bandarísku þjóðarinnar vegna
þessa atburðar.
Brezki geimferðasérfræðing-
urinn Kenneth Gatland lét í dag
svo ummælt, að slysið virtist
tæknigalla að kenna. Sagði
hann, að þetta væri mjög dapur
dagur fyrir geimrannsóknir, og
fjölskylda geimfara og vísinda-
manna í austri og vestri liti á
lát Komarovs sem sameiginleg-
an missi.
Einkalíf Komarovs
Vladimir Komarov lætur eftir
sig konu og tvö börn, 9 ára gamla
telpu og 15 ára son. 1 viðtali
sem Pravda birtir í dag við eig-
inkonu hans, Valentinu Jakov-
levnu, segir hún, að hún sé
áhyggjufull vegna manns síns,
sem fór þessa geimferð án þess
að skýra fjölskyldu sinni frá
hvað ti'l stæði. Hafði hann það
fyrir reglu, að ræða aldrei um
það heima fyrir hvenær hann
færi í geimferðir. Útgáfa
Pravda með viðtalinu við Valen-
tinu var seld á strætunum, þeg-
ar fregnin um slysið barst.
Á þessari síðustu ferð sinni
um geiminn bað Komarov fyrir
kveðjur til þjóðarinnar í Viet-
nam sem gerðist gegn banda-
rískri heimsvaldastefnu. Hann
bað einnig fyrir kveðju til íbúa
Ástralíu, sem hann kvað dug-
lega þjóð og harðfegna.
Með Komarov er ef til vill
fallinn gáfaðasti geimfari Sovét-
ríkjanna. Honum var ' lýst sem
vísindalegri alfræðiorðábók inn-
an sinnar sérgreinar — flug-
vélaverkfræði og geimkönnunar.
Hann var fertugur að aldri,
flugvélaverkfræðingur að mennt
og offursti í rússneska hernum.
í tómstundum sínum las hann
bókmenntir og orti ljóð. Vinir
hans sögðu, að hann væri gam-
ansamur maður, sem hefði yndi
af að spila á gítar, syngja þjóð-
lög og segja sögur. Um tíma stóð
til að láta hann hætta þjálfun
fyrir geimferðir, vegna hjarta-
sjúkdóms, en Komarov neitaði
og gekkst undir ítarlega læknis-
rannsókn. Að henni lokinni var
hann úrskurðaður hæfur til geim
ferða.
Af hálfu sovézkra stjórnvalda
er áherzla lögð á að slysið hafi
að engu leyti verið sök
Komarovs, heldur hafi um
tæknibilun í geimfarinu verið
að ræða. Sérfræðingar á
Vesturlöndum álíta að marg-
ar misheppnaðar tilraunir
hafi verið gerðar til að lagfæra
tæknigallann, allar án árangurs.
Ekki er enn vitað hvar geim-
farið kom niður, en kunnugt er
að það kom niður á landi. Segja
sérfræðingarnir, að engu hefði
breytt um örlög Komarovs þótt
geimfarið hefði lent á sjó eða
í vatni.
Leonid Brezhnev aðalritar so-
vézka kommúnistaflokksins hef-
ur sent ekkjunni og börnum
hennar samúðskeyti og segir
þar, að milljónir manna um all-
an heim taki þátt í barmi henn-
ar. Sagði Brezhnev að nafn
Komarovs mundi lifa • meðan
geimrannsóknir yrðu stundaðar
og hans minnzt sem hetju, er
hefði látið líf sitt í þeirra þágu.
Þá hafa hinir 47 geimfarar Banda
ríkjanna vottað henni hluttekn-
ingu sína.
Moskvubúar lesa fregn ir um lát Komarovs í siðdcgisú tgáfu Izvestia (AP-mynd).
Stúlka fyrir bíl
KLUKKAN 14.25 siðastliðinn
laugardag var ekið á stúlku á
Austurvegi á Selfossi. Gerðist
þetta á móts við húsið nr. 8.
Stúlkan fékk höfuðhögg, marðist
og skrámaðist, en er óbrotin og
ekki talin hættulega slösuð.
i
STAKSTtlMAR
Framapotarinn
Það er harla fróðlegt og lýíH^
ir manninum vel, að athuga of-
urlítið með hverjum hætti fyrsta
manni á framboðslista kommún-
ista í Reykjavík tókst að tryggja (
sér það sæti, en svo sem kunn-
ugt er hafa mikil átök staðið
yfir um margra ára skeið, ekkl
einungis i Alþýðubandalaginu
milli Sósíalistaflokksins og
Hannibalista, heldur einnig inn-
an Sósíalistaflokksins sjálfs, og
þá fyrst og fremst Sósíalistafé-
lags Reykjavíkur. Af þeim ástæS
um þurfti engan að undra, þótt
erfiðlega gengi að ná samstöðu
innan Sósíalistaflokksins um
skipan efsta sætisins, en sá sem
hnossið hlaut hefur lengi að því
stefnt og hagað sér í samræml
við það. 1 öllum þeim átökum,
sem fram hafa farið innan
Sósíalistaflokksins og Alþýðu-
bandalagsins hefur hann vand-
lega gætt þess að hafa aldrel
neinar skoðanir um þau ágrein-
ingsefni, sem þar hefur verið um *
að ræða. Hann hefur einnig gætt
þess að mæta aldrei t.d. á þeim
fundum Sósíalistafélags Reykja-
víkur, þar sem búast mátti vi9»
miklum átökum til þess að þurfa
ekki að taka opinberlega afstöða
í þessum ágreiningsefnum.
Þannig hefur hann siglt hrað-
byri upp á við, skoðanalaus, og
þar af leiðandi hefur hann ekkt
kallað yfir sig neina mótspyrnu
svo orð sé á gerandi, eða and-
stæðinga. Menn sem engar skoð-
anir hafa mæta yfirleitt hvorkl _
meðbyr né mótbyr einfaldlega
vegna þess, að þeir eru ekkl
taldir þess virði. Þannig er hér
um dæmigerðan framapotara a®
ræða, ímynd þeirra skoðana-
lausu atvinnumanna í pólitik,
sem hann sjálfur hefur hneyksl-
azt manna mest á.
Enn ráðast þeir á Jón
Tíminn heldur enn áfram að r
vekja athygli á skömm Jóna
Skaftasonar vegna lágkúrulegra
ummæla hans um Ólaf Thors,
og fer ekki á milli mála, að þeir
sem Tímanum ráða hafa illan bif
ur á þessum Framsóknarþing-
manni, því að blaðið hefur ekkl
lagt jafnmikla áherzlu á nokkurt
mál í lengri tíma og að gera
skömmu Jóns sem mesta í þessu
máli. Er þetta einkar glöggt
dæmi um samkomulagið innan
Framsóknarflokksins og bendir
til þess, að það sé jafnvel enu
verra en menn hafa ætlað fram
til þessa.
Ungt fólk á landsfundi
Það vakti sérstaka athygli á
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins,''
sem lauk sl. sunnudag, að þar
var mikill fjöldi ungra manna
og kvenna hvaðanæva af land-
inu, og var þessi hópur æskufólka
stærri en nokkru sinni fyrr og
setti sterkan svip á störf lands-
fundarins og stefnuyfirlýsingru
hans. Æskan hefur jafnan verið
ein af meginstoðum Sjálfstæðis-
flokksins, enda hefur unga kyn-
slóðin jafnan fundið þar mestan
skilning á þörfum hennar, hug-
sjónum og draumum um framtíð
íslands. Það kom og glöggt frant
á Sambandsráðsfundi ungra
Sjálfstæðismanna, sem haldinn
var á sumardaginin fyrsta og
sóttur var af trúnaðarmönnum
ungra Sjálfstæðismanna víðs f
vega að af landinu, að samtök
ungra Sjálfstæðismanna eru nú
í mikilli sókn um land allt, fé-
lagsstarfsemi hefur verið stór-
efld og félagatala fer vaxandi.
Meðal annars má vekja athygll
á, að nær fjögur hundruð nýir
félagar hafa gengið í Heimdall,
félag ungra Sjálfstæðismanna f
Reykjavík, frá 1. nóv. sl. og e*
það mjög mikil aukning á ekkl
lengri tíma.