Morgunblaðið - 25.04.1967, Síða 32
Pierpont-dr
Hermann
Jónsson
úrsmlður
Lækjargötu 2.
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Leit hafin
að flugvél
— sem lenti siðar á
Klaustri benzinlitil
í GÆR var óttast um f jóra menn
í lítilli flugvél á leið frá Akur-
eyri til Reykjavikur. Veður var
slæmt og skyggni lítið, en þeim
tókst að komast til Kirkjubæjar-
klausturs og lenda þar. Var elds
neytisforði þeirra þá orðinu
mjög lítili Þeir ætluðu að vera
á Kirkjubæjarklaustri í nótt, en
halda áfram ferðinni í dag. Flug
maður vélarinnar er Kristján
Hafþór Helgason, og hafði Morg-
unblaðið símsamband við hann i
gær.
„Við vorum bara í ske nmti-
ferð, og ætlum að halda hsnni
áfram. Við lögðu-m upp frá Ak-
ureyri stundarfjórðung yfir
ellefu og ætluðum að fara svotil
beint yfir, koma niður Borgar-
fjarðarmegin. En veðrið var
mjög slæmt, rok og skýjjið svo
að við færðum okkur austur
eftir, fylgdum skýjabakkanum.
Flugbraut er ágæt á Kirkjubæj-
srklaustri og þar lentum við
klukkan 2.34. Flugvélin sem við
erum á er Piper Tri-Pacer, ný-
leg og mjög góð með um fjög-
urra klukkustunda flugþol. Við
vorum alls ekki í neinni hættu
og vissum alltaf hvar við vorum
staddir. Hinsvegar eru talstöðv-
arnar í þessum litlu vélum ekki
injög sterkar svo að við gátum
Framhald á bls. 12.
Þessi mynd var tekin af nýkjörinni miðstjórn Sjálfstæðisflokksins þegar eftir að 17. Landsfundi Sjálfstæðisfiokksins hafði
verið slitið si. sunnudag. Fremri röð frá v.: Magnús Jónsson, Pétur Ottesen, Bjarni Benediktsson, Jóhann Hafstein, Ingóifur
Jónsson. Aftari röð frá v.: Birgir Kjaran, Sigurður Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen, Ragnhiidur Helgadóttir Geir Hall-
grimsson, Árni Grétar Finnsson og Gunnar Helgason.
Stdrbruni og mil Ijdnatjdn í Eyjum
Mjölskemmur Fiskmjölsverksmiðjunnar brunnu til kaldra kola
SIF lók
brezkan
togara
FLUGVÉL Landhelgisgæzl-
unnar, Sif, stóð brezka togar-
ann Brandur GY-111 frá
Grimsby, sem er um 750 tonn
3<ð stærð, að meintum ólög-
legum veiðum um 3% sjómílu
innan fiskveiðitakmarkanna
suðvestur af Eldey um kl. 16
í gær.
Togarinn sinnti ekki beiðni
flugvélarinnar um að halda
til hafnar, og var flugvél á
sveimi yfir honum, þar til um
kl. 22 í gærkvöldi að varðskip
kom að honum. Varðskipið er
nú á leið til Reykjavíkur með
togarann.
ELDUR kom upp í mjölskemm-
um Fiskmjölsverksmiðjunnar í
Vestmannaeyjum í fyrrinótt og
var slökkviliðið í Eyjum kvatt
út kl. 03.35. Var þá mikill eldur
í tveimur skemmum og urðu þær
alelda á svipstundu. Sunnan
kaldi var á og var vindáttin hag-
stæð með tilliti til nærliggjandi
húsa. Þó munaði minnstu að eld-
ur kæmist í verksmiðjuhúsið, en
fyrir góða framgöngu slökkvi-
liðs tókst að aftra þvi að hann
breiddist út. Klukkan 19 í gær-
kvöldi var lokið við að slökkva
síðustu glæðurnar og voru
skemmurnar þá brunnar til
kaldra kola. f nótt hélt slökkvi-
liðið vörð við rústirnar.
Mbl. náði í gær tali af Kristni
Sigurðssyni, slökkviliðsstjóra í
Vestmannaeyjum og sagði hann
þá, þegar slökkviliðið hafi kom-
ið á staðinn, en Fiskmjölsverk-
smiðjan er staðsett upp af Frið-
hafnarbryggjunni, sem er innsta
bryggjan í bænum, hafi austur-
endi annarrar skemmunnar verið
orðinn alelda. Mjölskemmurnar
voru sambyggðar, önnur úr
timbri, en hin steinsteypt með
járnklæddu timburþaki Tók
slökkviliðið þegar að dæla sjó á
eldinn, en ekkert vatn var að fá.
Oft leit út fyrir að ekki tækist
að verja verksmiðjuhúsið og í
eitt skipti komst eldur í þekju
þess, en hann var slökktur. Við
slökkvistarfið voru notaðar 14
slöngur, sem tengdar voru venju-
legum dælum, en að auki voru
notaðar tvær háþrýstidælur. Yf-
irleitt var öllu tjaldað, sem til
var, sagði Kristinn, ennfremur
hafnarbát, sem dældi sjó úr
höfninni.
Slökkvistarfinu lauk um kl. 19
í gærkvöldi, en þá var slökkt í
síðustu glæðunum. Kristinn
sagði, að mjög erfiðlega hefði
gengið að slökkva í mjölinu, því
að það var í pappapokum, sem
staflað hafði verið í stæður og
væru trégrindur á milli. Komst
eldurinn því inn á milli og var
illkleift að komast að við
slökkvistarf. Hins vegar voru öll
tæki, sem notuð voru í full-
komnu lagi og reyndust mjög vel
að sögn Kristins.
1 mjölskemmunum voru um
900 lestir af loðnumjöli, sem mun
hafa ónýzit með öllu. Ennfremur
voru í skemmunum færibanda-
útbúnaður, mjölkvarnir og ýmis-
legt, sem viðkemur mjölsekkjum.
Húsin féllu tiltölulega fljótt, en
milli þeirra var steinveggur, en
hann var ekki heill, svo að eld-
urinn komst á milli. Við slökkvi-
starf störfuðu um 60 manns,
25—30 manna slökkvilið og
starfsfólk verksmiðjunnar 30—40
manns. í nótt var vaktmaður við
brunarústirnar.
Mbl. náði í gær tali af Þor-
steini Sigurðssyni, forstjóra Fisk-
mjölsverksmiðjunnar. Þorsteinn
Framh á bls. 30
Norðmenn í bótamál
við Síldarútvegsnefnd?
í NTB-FRÉTT i gær segir, að
norsku verksmiðjurnar, sem
íhugi nú, hvort höfða skuli mál
gegn Síldarútvegsnefndinni,
vegna afhendingar á skemmdri
kryddsíld, hafi samtals keypt
10.729 tunnur af íslenzkri krydd
síld til framleiðslu á gaffalbitum
o.fl. 1601 tunna eru sagðar eftir
á íslandi, sem verksmiðjurnar
Utanríkisráðherrafundur Norður
landa hefst í Reykjavík í dag
Hin nýju viðhorf í Crikklandi á meðal þeirra mála, sem rœdd
verða, sagði Lyng utanríkisráðherra Noregs í viðtali við Mbl.
t DAG hefst í Reykjavík ut-
anríkisráðherrafundur Norð-
urlanda og munu taka þátt '
honum utanríkisráðherrar
fjögurra Norðurlanda, þeir
Ahti Karjalainen, Finnlandi,
John Lyng, Noregi, Torsten
Nilson Sviþjóð og Emil Jóns
son, utanríkisráðherra fs-
iands. Af hálfu Danmerkur
sækir fundinn Hans Splvhoj,
ráðherra, en Jens Otto Kragh,
forsætis- og utanríkisráðherra
Dana er forfallaður vegna út-
farar dr. Konrads Adenauers,
fyrrum kanzlara V-Þýzka-
lands. Áttu hinir erlendu ráð
herrar að koma til íslands
ásamt fylgdarliði sínu í gær,
nema Karjalainen, utanríkis-
ráðherra Finnlands, sem kom
á sunnudag.
Tíðindamaður Morgunblaðs
ins hitti Karjalainen snöggv-
ast að máli í gær á heimili
Jóns Kjartanssonar, forstjóra
og ræðismanns Finna hér á
landi. Var Karjalainen fyrst
spurður að því, 'hvort hann
vildi nokkuð segja um það
ástand sem skapazt hefur við
neitun lendingarleyfis til
handa Rolls Royce-flugvélum
Framh. á bls. 5
neiti að taka við. Af heildar-
magninu hafa 4294 tunnur
reynzt ónothæfar, og er krafizt
fullra bóta fyrir um 1000 tunnur,
sem henda varð. Er verðmæti
þessa magns metið á um 1.5 millj
ón ísl. krónur. Ennfremur er
krafizt bóta fyrir þá síld, sem
flokka varð og henda úr 1739
tunnum, og fyrir kostnað við
flokkun og flökun. Til viðbótar
þessu er krafizt riftunar á kaup-
samningi fyrir áðurnefnda 1601
tunnu, sem enn liggi á íslandi.
Finnland hefur keypt um 70
þús. tunnur af ísl.- kryddsíld, seg
ir ennfremur í NTB-fréttinui, og
þar af munu um 20—30 þús.
tunnur vera af lélegum gæða*
íiokki. 19 þúsund tunnur nata
enn ekki verið afhentar og
neita Finnar að taka við þe;m.
Sænskir síldarkaupendur eiga
enn um 3.500 tunnur af krvdd-
sild hér á íslandi, og neita þeir
að taka við þeim. Danskir sild-
arkaupendur hafa heldur ekki
íarið varhluta af þessari ’élígu
síld, segir NTB að lokum, og einn
kaupandinn þar hefur látið hafa
eftir sér, að 2 þús. tunn ir séu
ónothæfar. Annar síldarkaup-
andi þar mun einnig hafa fengið
fleiri þúsund tunnur af úldinni
síld, að sögn fréttamanns Berg-
ens Tidende, sem fyrst sagði frá
þessari frétt.