Alþýðublaðið - 24.07.1920, Page 1
Alþýðublaðið
Greíið lit af Alþýðuílokknum.
1920
Laugardaginn 24. júlí
167. tölubl.
€rle>ð simskeyti.
Khöfn 22. jú!í.
Herfangarnir í Síberín.
Símað er frá Kristjaníu, að
Noregur og Svíþjóð stýðji heim-
íiutning herfanga frá Síberíu með
fjárlánum.
Bolsivíkar og bandamenn.
Símar frá London, að banda-
menn hafi hvatt Pólverja, til þess
að biðja bolsivíka um vopnahié.
Símað frá Berlín, að bolsivfkar
hafi sett setulið í borgina Grodno,
75 km. frá lándamærum Þýzkaiands.
Símað frá Stokkhólmi, að
Krassin sé kominn til Reval á
leið til London.
Grikkir og Tyrkir í hár saman.
Símað er til Parísar frá Soffiu,
að Grykkir hafi ráðist á Tyrki í
íÞrakíu.
Óeirðirnar í Kína.
Símað er frá Washington, að
amerfskur her vinni að því með
kínverskum stjórnarher, að koma
reglu á f Peking og umhverfi
Siennar.
Khöfn, 24. júlí.
Ófarir Pólverja.
Símað er frá París, að senda
<eigi fransk-brezka nefnd til Pól-
3ands, til þess að rannsaka ástand-
ið þar.
íbúar Warsjá flýja hópum sam-
•an. Bolsivfkar nálgast bæinn.
Sjálfstæðisbarátta frlands.
Lundúafregn hermir, að blóð-
-Ugar óeirðir séu f Belfast:
Bela Kun, AnstnrríkiogUngarn.
Símað frá Berlín, að Austur-
ríki hafi reynt að koma Bela Kun
{ laumi til Rússlands yfir Þýzka-
land. Ungverjar hafa mótmælt
þessu athæfi, en Austurríki svarar
skætingi einum. Búist er við á-
greiningi miklum út af þessu.
Símað er frá Budapest, að Tel-
eki sé orðinn forsætisráðherra.
Bylting í Lithá?
Simað er frá Kovno, að bolsi-
víkar reyni að stuðla til byltingar
í Lithá.
fískhringuriun.
Það hefir oft verið tekið fram
hér í blaðinu, að það er hin mesta
óhæfa hversu ófróður almenningur
er um landsmál, og þá sérstaklega
þau mál, sem þó mest snerta
stundarhag fjöldans, verzlunar-
málin. Það hefir einnig skýrt
verið tekið fram í blaði þessu, að
í þessum málum fer sem oft, að
vandi fylgir vegsemdinni. íslenzk
alþýða verður þá fyrst fær um
að stjórna þeim málum sfnum og
öðrum, er hún hefir þekkingu á
meðferð þeirra.
Af fyrirsögninni munu menn
sjá, hvert er umræðuefni þessarar
greinar; og vona eg að eigi þurfi
nánar að skýra hugtakið »hringur<
íyrir mönnum; reynslan hefir kent
þeim hvað það þýðir, þótt vart
getum vér sagt að vér höfum
fengið þá ókeypis (sbr. hið »ís-
lenzka«!) En þótt menn viti hvað
orðið hringur þýðir, þá er eigi
víst að þeir viti hverrsig hintt ís-
lenzki Jiskkringur er til eráinn
eða, um starfsemi hans. Skal reynt
að gera almenningi grein fyrir
þvf máli.
Mr. Geo. Copland.
Maður er nefndur Geo. Copland.
Hann er brezkur að ætt. Hann
settist hér að fyrir nokkrum ár-
um og tók brátt að reka stóra
fiskiverzlun. Mun hann á stríðsár-
unum hafa verið orðinn einna
stærstur fiskikaupmaður hér. Að
sjálfsögðu hefir hann stuðst í fyrstu
við erlent (skoskt?) fjármagn, og
trúlegt að svo sé ennþá að nokkru.
Einnig er eigi ólíklegt að hanat
hafi að minsta kosti á síðustts
árum áður enn hinn eiginlegi
fiskihringur var myndaður, veriS
búinn að taka í félag við sig"
íslenzka fiskikaupmenn.
Fiskikanpin af útftutnings-
nefndinni 1918.
Fyrst munu slík samtök haf*
sýnt sig 1918, er samlag fiskí-
kaupmanna (Jes Zimsen, Copland,
Þorsteinn Jónsson, Flygenring o.
fl) keypti afgang af fiski útflutn-
ingsnefndarinnar og seldi til Spánar
og stórgræddi á. Hafi hringurinrt
eigi verið til orðinn áður, hefir
hann myndast upp úr þessu sam-
lagi fiskikaupmanna, þótt allir
fylgdu eigi með (t. d. Þorsteinit
Jónsson). Mr. Geo.. Copland sá
um söluna á þessum fiski til
Spánar.
Það er að minsta kosti vitað
með áreiðanlegri vissu, að hring-
urinn er þegar stofnaður snemma
á árinu 1919.
Firmatilkynning er í Lögbirt-
ingablaðinu n. marz 1920 um
H/f Leranta
(alías fiskhringurinn). í Lögbirt-
ingablaðinu stendur, að félagið sé
stofnað með þeim tilgangi að
reka siglingar.
Lög félagsins eru dagsett 30.
apríl 1919.
Stjórn félagsins skipa: Th.
Thorsteinsson kaupm, formaður
félagsins, Pétur J. Thorsteinssou>
og Jes Zimsen kaupm. Varastjórn-
andi er Loffcur Loftsson útgerðar-
maður.
Stjórnin ritar firmað, en sem
útgerðarstjóri ritar Geo. Copland
það.
Höfuðstbll fclagsins er iljz
miljón, sem er skift i 300 hluti á
5000 kr. hvern. Alt hlutafé er
innborgað.
Þótt £ firmatilkynningunni standi,
að félagið sé stofnað með þeim