Morgunblaðið - 21.08.1968, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.08.1968, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1968 - SVÍVIRÐA Framhald af bls. 3 — Ja, finnst mér? Nú við verðum að bjarga þeim! — Og hvernig? — Nú, við verðum að ráðast á Rússana. Eins og við gerðum við Ungverjalands-árásina forð um, 1956. Bara ráðast á Rúss ann og láta þá vita, hvað við meinum! • Fullur sársauka KRISTJAN frá Djúpalæk sagðist ekki hafa heyrt neitt um atburðina í Tékkósló- vakíu í útvarpinu, sér hefði verið sagt þetta í morgun. „Það fyrsta setn ég fann við fréttina var sársauki yfir því, að þjóðir skuli ekki fá að ráða málum sínum sjálf- ar. Ég er harmi lostinn yfir því, að fólk skuli ekki fá að vera frjálst í starfi sínu og hugsun. Þetta er mikið áfall fyrir þá, sem vonuðu, að sósíalisminn væri stefna frjálslyndis og vináttu milli þjóða, væri húmanismi.“ „Þið líka, Un,gverjar!“ Jón Grímsson málfærslu- maður á ísafirði, sag'ði: „Þetta er hörmulegur at- burðuir, en ég vona að hanm verði byrjunin á sundurlyndi Rússlands og kommúniismans í heiminum. Það furðulegasta er þó, að Ungverjar skuli vera með í þessum ljóta leik, ég hélt að þeir myn-du of vel sína eigin kúgun. Nú ættu augu manna að opnast fyrir því, að það er ekki út í bláinn, að Nato var stofnað og að við skulum hafa hervernd. Þessir atburðir hafa sýnt, að menn ættu að hætta áróðri gegn Atiants'hafs- bandalaginu. Vestræn ríki verða að standa saman og skakka leikinn áður en komm únisminn gleypir heiminn. • Hreinir glæpamenn Björn J. Blöndai, rithöfund w í Laugarholt, sagðist hafa verið að veiða, þegar hanm heyrði um innrásina í Tékkó- slóvakíu: „Ég hef ekkert getað veitt, eftir að ég heyrði þessar fregnir. Þetta er versta fregn, sem ég get heyrt. Ég hef allt- af haldið mikið upp á Tékka, en annars skil ég ekki þessa pólitík, þetta eru allt meira og minna hreinir glæpamenn. Tékkar ættu að berjast með- an nokkur stendur uppi og seinast með tómum flöskum, eins og Churchill sagði. Ég hélt og vonaði, að Rúss- ar væru að verða frjálslyndir og betri, en svo er víst ekki. Ég vona, að þeir verði það einihvern tíma, en hvenær það verður er víst ómögulegt að segja um“. • Rússar ekfcert lært í Vonarstræti hittum við 3 ungar stúlkur á rauðum Skoda — tékkneskum sögðu þær og lögðu áherzlu á orðið. — Þær heita Ragnheiður Kristjana Þorláksdóttir, Guðrún Helga Agnarsdóttir og Ingibjörg Jó- hannesdóttir. Þær eru al'lar verkstjórar í stimar í Skólagörð um Reykjavíkur. — Við heyrðum þessa frétt í útvarpinu í morgun og reynd- um síðan að fylgjast með eftir því sem vinnan leyfði. Fréttirn ar höfðu g ysileg áhrif á okk- ur. Okkur gat ekki órað fyrir því að slíkt gæti gerzt og Rúss ar gengju svo langt. Þetta sýn ir og sannar að Rússar hafa ekkert lært og ekkert séð. • Níffst á þeim veikari Sigurffur Tómasson, bóndi á Barkarstöðum, sagðist hafa verið að slætti síðan klukkan fjögur í morgun og ekkert hafa heyrt um atburðina í Tékkóslóvakíu. Þegar við sögðum howum frá því, hvað væri að gerast þar, þagði hann smástund, en sagði svo: „Já, — það endaði með því, já. Ég sé ekki bebur en hér sé verið að sýna svívirðilegt ofbeldi, og sá sterki notar þarna krafta sína til þess að niðast á þeim veikari. Maður var annars orðinn vongóður um að Tékkar fengju að vera í friði, en þær vonir hafa því miður ekki rætzt“. • Ösfciljanlegt Finnur Th. Jónsson, bókari í Bolungarvík, sagði, er Mbl. hafði samband við hann í morgun, að Bolvíkingum hefði brugðið mjög í brún við þessar fréttir: „Mér varð ómotarlega við að heyra þessar hörmulegu fregnir i útvarpinu, ég bjóst ekki við þessum atburðum. Þetta eru meixi andskotarws bandíttarnir, sem þama eru að verki. Það er i rsun og veru ekkert hægt að segja, ó- skiljanlegt, að hægt skuli vera að haga sér svona". frasögnum um Tékkó slóvakíu hafði Morgun- blaðið farið hörðum orð- um um tilraunir hernaðar bandalags til að hlutast til um innanlandsmál smárík is, talið heræfingar stór- veldis í landi smáríkis eða við landamæri þess jafn- gilda hótunum um ofbeldi og litið á það sem alvar- legustu fréttir að stór- veldi hefði hug á að koma upp herstöðvum innan landamæra smáríkis“. MAGNÚS Kjartansson, ritstjóri „Þjóðviljans“ rit- ar í blað sitt í morgun: ,,Það skal fúslega viður- kennt, að með þessari leiðréttingu, fær Morgun- blaðið á sig kunnuglegri svip. Hins vegar staðfestir hún einnig þá ályktun, sem birt var hér í blaðinu fyrir skömmu, að mikið mega Tékkóslóvakar fagna því að hafa engan „Sjálfstæðisflokk“ í landi sínu. — Og ekkert Morg- unblað“. Ennfremur segir í þess- ari grein: Vitið þér enn eða hvað? Magnús Kjartansson ,Eins og þruma úr heiöskíru íofti1 Hér fara á eftir viðbrögð þriggja kcmn: únistaleiðtoga, sem Morgunblaðið hafði samband við í morgun vegna atburð- anna í Tékkóslóvakíu ic Eins og þruma úr heiðskiru lofti Morgunblaðið ræddj við Brynjólf Bjarnason, einin helzta leiðtoga kommúnista- flokksinis hér á landi, um há- degisbiliff í morgun. Brynjólf- ux sagði, aðspurffuir um álit sitt á atburðunum í Tékkósló- vakíu: „Þetta kemur yfir mig eins og þruma úr heiffskíru loftL Þetta kemur mér alveg á ó- vart. Annars hef ég hvorki lesið blöð né hlustað á út- varp, svo að ég get lítið um þetta sagt“. — Teljið þér framferði kommúniistaríkjianin'a verj- andi? — Nei, mér virðist það ekki verjandL it Fordæmanlegt meff öllu Guðmundur Hjartarson, formaffur framkvæmdastjóm- ar Alþýffubandalagsins og jafnframt einn af helztu for- ustumönnum Sósíalistaflokks- ine. sagði: „Það er fljótsagt, að maffur er furðu lostinn og ég tel þetta fordæmanlegt með öllu“. — Teljið þér þetta jafnast á við innrás Sovétríkjanna í U ngver jaland 1956? — Það er erfitt að skil- greina þetta í fljótu bragði en þetta er fyrirbæri, sem ekki er hægt annað en að fordæma þegar vilji þjóðar er brotinn niffur. —Má búast við ályktun frá Alþýðubandalaginu um mál- ið? — Það er öruggt. Lizt jafn furffulega á þetta allt Lúðvík Jósepsson sat á viðskiptasamningafundi með fulltrúum Rússa í Þórshamri, þegar fréttamaffur Mbl. náði snöggvast tali af honum, og skýrði howum frá fréttum um að Kosygin. forsætisráffherra Sovétríkjanna, og A. Grechko landvamaráðherra, hefffu far- ið frá. Lúðvík varð mjög hugs aindi og virtist sleginn. Hann svaraði spurningunni um hvernig honum litizt á: — Mér lízt jafn furðulega á þetta allt samanl Og um fréttimax frá Tékkc- slóvakíu, sagði hann: — Ég er undrandi yfir þess tim fréttum, sem nú hafa box- izt um hertöku Varsjárbanda- lagsins á Tékkóslóvakíu og lýsl fullkominni andstöðu við þessa atburði. Ég tel að það hafi komið ótvírætt fram í fréttum undanfarna daga, að forustumenn í Tékkóslóvakíu hafi haft þjóðina fullkomlega að baki sér í þeim breytingum sem þeir hafa verið að koma á. Og ég tel að ekkert ríki hafi leyfi til að blanda sér í innanríkismál annars sjálf- stæðs rikis og að forustu- menn kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu eigi að hafa fullkomið frelsi til a-ð vinna að framgangi kommúnisma þar í landi, eins og þeir telja réttast og mest í samræmi við vilja þjóðarinnair.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.