Alþýðublaðið - 03.05.1930, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBDA0IÐ
son fram tillögu, að málinu yrði
frestað til nánari athugunar, og
'var sú tillaga sampykt.
I greinargcrd fyrir síldar-
bræðslustöð á Austurllandi í blað-
Inu I fyrra dag varð línuruglun.
Þegar tvær línur eru eftir af 3.
dálkinum eiga að koma línurnar,
sem stóðu neðarlega í 2. dálki:
„iagi til að ^tryggja það, ....
þar sem það hafði.“
Samsœti halda guðspekifélagar
frk. H. Kjær* á Skjaldbreið í
kvöld kl. 8i/2-
Sjómannastofan. Kristileg sám-
kOma í Varðarhúsinu kl. 6 á
morgun.
Húsgagnaverslun Reijkjao'kur
heitir ný húsgagnasala, er þeir
LJón Magnússon og Guðm. H.
Guðmundsson hafa opnað að
Vatnsstíg 3.
Hjálprœdisherinn. Samkomur á
morgun: Kl. 11 árd. og kl. 8V2
Síðd. Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
og útisamkoma á Lækjartorgi kl.
4 síðd., ef veður Ieyfir.
Heimilasambandíð heldur fúnd
mánudaginn 5. maí kl. 4 síðd.
Stud. theol. Valgeir Skagfjörð
talar.
Prentvilla hefir orðið í öðru
erindi Verkamannaóðsins í gær.
Rétt er erindið svona:
Vélin syngur og arðurinn erjar,
,en öllu er jafnskift nú,
sem vinnandi hendur af
verðmætum skapa
og vitið 'dregur í bú.
SystmféLagíð Alfa. Eins og sjá
má af auglýsingu annars staðar
Paér í blaðinu, ætlar Systraféalg-
Í5 Aífa að harda Dazar a morgun
(sunnudag). Tilgangurinn með
bazarnum er sá, að efla sjóð
þess, sem eingöngu er notaður
fil að hjálpa bágstöddmn og
sjúkum. Geta því þeir, sem koma,
orðið fátækum til hjálpar um leið
Og þeir kaupa ódýra vöru sjálf-
Sim sér til gagns.
Ármcnningarl Glímuæfing
verður í kvöld kl. 8—10 í fim-
leikasal Metaskólanns.
Karlakór Reykjavíkur endurtek-
Hr söngskemtun sína á rnorgun
ftd. 3 í Nýja Bíó.
Aðalstöðin heitir ný bifreiða-
stöð, sem þeir Magnús Biama-
son og Páll Guðjónsson opna í
. dag við Kalkofnsveg.
Sém Arni S'.gurðsson biður
fermingarböm sín, þau, sem
fermast eiga 11. þ. m., að koma
til viðtals, öll, sem geta, í frí-
kirkjuna í dag kl. 6.
HafnaLrffJðrðuK1.
/ gœr og í nótt hafa komið
þessi skip: Togaramir Sviði (87
tn.), Venus (88 tn.) og Surprise
(78 tn.). Línuveáðararnir Eljan
með 80 skpd. eftir 3 lagnir og
Sigriður með 311/2 sinál.
J Slys. 1 gær um h|lf fimm leyt-
ið varð 9 ára gamall drengur, ti)
heimilis á Hverfisgötu 51 í Hafn-
arfirði, fyrir bifreið á hafskipa-
bryggjunni. Var hún á fullri ferð
og hlaðin kolum, og fór annað
aftara hjólið yfir drenginn. Síð-
ast þegar fréttist leið drengnum
eftír vonum, en einkennilegt er,
að enginn veit hver bifreiðin var,
'því í þvarginu á bryggjunni tók
enginn eftir þessu, þegar það
skeði. Og þar sem enginn bif-
reiðarstjóri hefir gefið sig fram,
er sennilegast að bifreiðarstjór-
inn, sem þetta gerði, hafi alls
eigi veitt því eftirtekt þegar það
varð.
Raforkuveitur
i sveitum.
Ræða Haraids Guðmundssonar
viö 1. umr. í n. d.
--- . (Frh.)
Hver maður sér, að það getur
ekki borgað sig að leggja langar
leiðslur, ef til .vill fjölmarga kíló-
metra, heim að bæ, þar sem 4
—6 manneskjur eiga heima og
reisa þar spennubreytistöð, ef
rafmagníð á svo ekki að nota til
annars en ljósa og suðu og e. t.
v. lítillega til hitunar fyrir þess-
ar fáu manneskjur. Rafmagnið
hlýtur að verða alt of dýrt. Eigi
slikt að geta borgað sig, verður
bóndinn að hafa eitthvað annað
og meira með rafmagnið að gera.
pinmitt í sambandi við þetta mál
þarf að rannsaka, að hve miklu
leyti bændur og káúptúnabúar
geta notað rafmagnið til vinnu.
Tel ég fulla ástæðu til þess, að
stjórnín setti á laggirnar neínd
séríróðra manna — ég veit að
vísu, að orðið nefnd lætur illa í
eyrum sumra hv. þm. til þess
að athuga, hverjár breytingar það
gæti haft í för með sér í búnað-
arháttum íslendinga, ef rafmagns-
málið yrði leyst þannig, að lands-
búar yfirleitt ættu kost á nægu
og ódýru rafmagni.
Einn er eitt. Það liggur í aug-
um uppi, að þegar á að fara að
leggja rafmagnsleiðslur víða um
sveitir landsins, veltur mikið á
þvi, að nýbyggingar séu skipu-
lega reistar og öllu svo hagan-
lega fyrir komið, að leiðslurnar
verði sem beinastar og styztar.
Er þar tilvalið verkefni til athug-
unar og meðferðar fyrir eins kon-
ar skipulagsnefndir í sveitum.
,Ættu þær þá jafnframt að hafa
hliðsjón af vegalagningum og
öðru slíku.
Hv. frspi. (J. S.) drap réttilega
á það, að á áætlunum væri lítið
áð byggja, einkum í málum eins
og þessu, þar sem framkvæmd-
| irnar geta náð yfir heilan manns-
I aldur eða jafnvel enn þá lengri
tíma, að því, er hann sagði. Ég
er hv. frsm. sammála um þetta at-
| riði. Ég hefi enga trú á því, að
; verkfræðingar, hversu lærðir og
ágætir sem þeir kunna að vera,
semji áætlanir, sem geti staðist
j heilan mannsaldur eða lengur.
Hins vegar veit ég þess engin
dæmi, að í máli, sem er jafn stór-
kostlegt fjárhagsmál og þetta, sé
engin viðleitni sýnd til þess að
gera grein fyrir kostnaðinum,
kostnaði, sem hlýtur að verða
risavaxinn á okkar mælikvarða.
(Frh.)
Uiig elagl®3-® vefgÍB&KB.
M* I® ©« G. T. I
FUNDIR og TILKYNNINGAR. . |
UNGL.-ST. SVAVA nr, 23. Fund-
m’ á morgun á venjul. stað og
stundu. Kosning og innsetning
embættismanna. Str. Þuríður
Sigurðardóttir skemtir. Komið
sem allra flest á fundinn.
Næturlæknir
'er í nótt Ölafur Helgason, Ing-
ólfsstræti 6, sími 2128, og aðra
nótt Sveinn Gunnarsson, óðins-
götu 1, sími 2263.
Næturvörður
%
er næstu viku í lýfjabúð
Laugavegar og Ingólfs-lyfjabúð.
Dagsbrúnarfundur
er í kvöld ld. 8 í Templara-
salnum við Bröttugötu.
Dönsku leikararnir
sýndu í gær fyrir fuliu húsi
og var afskaplegur fögnuður hjá
áheyrendum, enda var það engin
furða ,því sjaldan hafa Reykvík-
ingar átt kost á betri skemtun.
Söngleikurinn verður sýndur í
þriðja og síðasta sinn á morgun.
Marteau
fiðlumeistari hélt hljómleika á
Akureyri fyrir fullu húsi. Hann
kemur aftur með Drotningunni
á morgun og heldur kveðjuhljóm-
leik á þriðjudaginn í Iðnó.
Hestur druknar.
1 gær var verið að aka kolum í
hestvagni niður á litlu bryggj-
unni við eystri garöinn. Fældist
þá hesturinn og fór vagninn út
af bryggjunni. Hesturinn drukkn-
áði.
Morgunblaðið.
talar í dag um að Alþýðublaðl-
ið „Ijúgi vísvitandi“. Hvað mein-
ar blaðið ? Er ekki öll lygi vis-
vitandi? Eða er blaðið svo bilað
á geðsmunum, að það ljúgi ó-
sjálfrátt? Sé svo, er gott til þess
að vita, að Helgi læknir Tómas-
son hefir nú nægilegt tóm tíl
þess að gefa sig við lækningu
ritstjóranna.
Messur á morgun.
1 Aðventkirkjunni sunnud. kl. 8
síðd. Ræðuefni: „Hvernig er sátt-
máli góðrar samvizku við guð
réttilega gerður?“ 0. J. Olsen.
í Fríkirkjunni ld. 12 séra Árni
Sigurðsson, fenning.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN,
Hvorfisgötu 8, sími 1294,
tekur að sér allskon-
ar tækifærisprentun,
svo sem erfiljóð, að-
göngumiða, kvittanir,
reikninga, bréf o. s.
frv., og afgreiðir
vinnuria fljótt og við
réttu verði.
Sængurdúkar, fiðœr og
dúim, rekkjuvoðaefni, sæng-
urveFaefni hvit og mislit,
handklæði stór og smá, hvit
og mislit f lúnel o. f I. nýkomið,
Törubúðin Laugavegi 53.
ffiflstjórahanskar, ieður,
ódýrir f ¥örubúðmni,
NankinsfSt, allar stærðir;
hvítir málarasloppar, nan«
kinsfðt á drengi, allar stærð«
ir frá 2 ára, vinnufataefni
hrúnt og blátt, virniuvetling-
air, striga, skinn og prjdn,
nærfötin sterku og ddýru,
vinnusokkar, enskar húfur,
dreng jafaúf ur enskar og
matros. M er lágt verðið
bjá Georg. ¥örubúðin Lauga-
vegi 53.
Gardínustengur og hringir
ddýrastir £ Bröttngötu 5. —
Innrömmun á sama stað.
NÝMJOLK fæst allan daginn í
Alþýðubrauðgerðinni.
ELDRI HJÓN óska eftir íbúð, 2
herbergjum og eldhúsi, í rólegu husi
á neðstu hæð. 3 í heimili. A. v. á.
MIINIÐ: Ef y.kkur vantar hös*
gögn ný ag vðnduð — einnig
natuð —, þá komið í fornsðlun*,
Vatnsstíg 3, sími 1738.
LS
munníóbak
er bezt.
Innbrot.
Tveir fullir íhaldsstrákar brut-
ust inn í alþýðuhúsið Iðnó þegar
l.-maí-hátíðin var þar. Skildu þeir
eftir föt sín úti í porti og kom-
ust inn án þess að eftir þeim
væri tekið. Kristinn Eiríksson,
formaður F. U. J., sem var einn
úr nefnd þeirri, er sá um há-
tíðina, lét lögregluna taka þessa
innbrotsseggi, sem éru í Heim-
dalli, og hygst annar þeirra að
hefna sín á Kristni með þvaðri
íim hann í Mogga í dag. — Nú
vita menn hvað það er, sem stýr-
ir penna Morgunblaðsins.
Ritstjóri og ábyrgðarmaðuri
Haraldur Guðmundssou.
Alþýðuprentsmiðjan.