Alþýðublaðið - 06.05.1930, Blaðsíða 4
4
AbÞKÐUBUSAÐtÐ
hafa mörg börn það að leik að
hanga aftan á og utan í bifreið-
iiim. Um þetta hefir verið lítið
skeytt og hefir þó ekki alls fyrir
lönglu orðið alvarlegt slys af [>ess
háttar leik bamanna. Smábörn
sjást oft hér á götu, ekki eldri
eri tveggja ára og sum yngri,
algerlega forsjárlaus. Þótt bifreið
koimi bmnandi að þeim sést eng-
'iinn líta eftir þeim. Oft hefir mig
furðað á, hve hugsunarlausar
smannverur slíkar mæður og feður
væru, sem róleg geta
látið börnin sín út á götu i
trausti þess, að bifreiðarstjórar
þeir, sem aka um bæinn, geti
alt af bjargað þessum smábörn-
um frá slysi og fjörtjóni.
Ég gat þess, að bifreiðastjórum
stafaði hætta af framferði bárn-
anna; ég vona, að allir bifreiða-
stjórar skilji mig, þess vegna gef
ég ekki nánari skýringu. En ráð
get ég gefið bifreiðastjórum. Það
ier í stuttu máli: Hagi barn sér
ösæmilega gegn bifreið yðar, þá
takið það og farið með barnið
beint á Iögreglustöðina. Ég mun
lita meira um þetta á morgun.
Þ. H. J.
Afsökim er að vísu nokkur.
iHvar eiga foreldrar í þröngum
húsakynnum, þar sem enginn
grasblettur er, sem börnin geta
leikið sér á, eins og algengt er
hér í Reykjavík, að hafa börnin
sín á daginn?
IadHand.
London (UP.), 5. maí, FB. Frá
Bombay er símað: Stjómin hefir
sent út tilkynningu þess efnis,
að Gandhí hafi verið handtekinn
vegna þess, að ólöghlýðnisbar-
áttan hafi leitt til alvarlegra ó-
jeirða og bert hafi verið orðið,
að Gandhi var hættur að geta
ráðið nokkurn hlut við fylgjend-
Ur sína.
London (UP.) 6. maí, FB. »Frá
Ðombay er símað: Eftirmaður
Gandhi sem leiðtogi sjálfstæðis-
manna verður Abbas Tyabji Ma-
jommedan, fyrrum dómari í Ba-
xoda-yfirrétti. Var Majommedan
útnefndur af Gandhi til þessa
starfs fyrir nokkru.
Vegna hræðslu um yfirvofandi
óeirðir hafa margir auðugir Gu-
jeratbúar hraðað sér heim frá
Bombay tii heimstöðva sinna í
borgum og þorpum. Hefir orðið
að hafa sérstakar lestir í förum
til Ahmedabad.
Gandhi verður haiður í haldi
án þess að hann verði yfirheyrð-
Ur, og ætla yfirvöldin að sjá hon-
Um fyrir „öllum þægindum“ í
fangelsinu, t. d. verða fluttar
þangað geitur, svo hann geti
fengið geitnamjóik.
Kaupmenn og götusalar hafa
lýst yfir því, að þcir loki búð-
um sínum í tvo daga, til þess
að láta í ljós sorg sína yfir
handtöku Gandhi. Æsinga verður
vart í borginni, en ekki hafa bor-
ist fregnir um neinar óeirðir.
Fregnin um handtöku Gandhi
olli rniklmn æsingum í Dehli, og
varð að loka öllum búðum og
bözurum.
6/5. Peshawar: Sjálf boðaliðar
og Gurkha-hermenn standa á
verði við borgarhliðin. Mikil æs-
Ing í borginni. Borgarbúum ekki
leyft að fara um að vild úr ein-
um borgarhluta í annan.
»
Um dagini) og vegfsiis.
Næturlaeknir
er í nótt Valtýr Altertssoh,
Austurstræti 7 uppi, sími 751.
Timinn
kemur út á morgun með grein-
um um Helga Tómásson og
læknaskiftin á Kleppi.
Vetrarmálverk Kristjáns Magnús-
sonar.
Þeir, sem ekki hafa séð mál-
verk þessi, ættu að koma í
Templarahúsið við fyrsta tæki-
færi. Þar er mörg snildarverk að
sjá.
Hjónaband.
4. þessa mánaðar voru gefin
saman í hjónaband af séra
Bjarna Jónssyni Guðný Kristjáns-
dóttir og Jóhann B. Jónsson vél-
stjóri. Heimili imgu hjónanna er
fyrst um sinn á Bergstaðastræti
42. ' ! .
Marteau
heldur síðustu hljómleifca sína
í Iðnó í kvöld kl. 8V2, sem er
óvenjulega hentugur tími. Meðal
viðfangsefna má nefna sónötu nr.
3 í es-dúr eftir Beethoven, Cha-
oonne eftir Bach, fiðlukonsert nr.
3 (g-dúr) eftir Mozart. Auk þessa
leikur Marteau adagio úr fiðlu-
konsert eftir sjálfán sig og hina
idásamlegu Carmen-fantasíu eftir
Sarasate. Þau hjónin taka sér far
með „Alexandrínu drottningu“
þenna skemtilega söngleik.
Bifreiðastjórafélag Reykjavíkur
heldur fund í kvöld í húsi K.
F. ,U. M. Fundurinn hefst kl. 11.
Danski söngleikurinn
var leiki'nn síðastl. sunnudag
og þótti áheyrendmn mikið til
hans koma. Eftir fjölmörgum á-
skorunum verður leikurinn end-
urtekinn enn einu sinni, þ. e. ann-
að kvöld kl. 8V2 í Iönó, og eru
það allra síðustu forvöð að heyra
þennan skemtilega söngleik.
_ Sfe mt .íí ‘áöLii áí-á iSÉI tJl.srf
Veðrið.
Háþrýstisvæði er yfir Græn-
•landi og tslandi, en lægð milli
Jan Mayen og Noregs. Veðurútlit
í dag og nótt: Hægviðri, þoku-
loít, sums staðar rigning. l)r-
komulaust þó hér við Faxaflóa.
Spaðkjot.
Nokkrar tunnur af góðu dilkakjöti
til sölu.
Sambaud fsl. samviunfélaga.
Sími 496.
Alltr kjésa
, að aka í bil
trá \
BIFROST
Slmi 1S29.
Vaidtttar Msraæðor
nota eingöngu
Vaa Hontens
heirasins besta
snðnsúkKalaði.
Fæst i ðllsn verzlanum.
í Morgunblaðinu
laugardaginn 3. maí stendur, að
formaður F. U. .1. hafi stigið í
ræðustólinn 1. mai og sagt: „Veð
jafnaðarinenn veð vedum“, og
svo bætir blaðið við, en það
þýðir á 'íslensku „við jafnaðar-
menn við vitum" 0. s. frv. Þetta
segir Morgunblaðið að sé kallað
skrílmál. En nú vita allir, að það
sem sérstaklega er sett út á fram-
burð Sun'nlendinga á íslenzkunni
er það, að þeix eru flámæltir,
svo eftir þessu er allur. þorri
Sunnlendinga skrill. Það furðar
engan á því, þótt Morgunblað-
ið haldi fram staðlausum ósánn-
indum um andstæðinga sína, en
að það ráðdst á alla Sunnlend-
inga með uppnefnum, það hefði
fæsta grunað. En svo finst mér,
að þeir Mogga-ritstjóramir ættu
að líta í sinn eigin bann og at-
huga sínar fjólur áður en þeir
fara aftur að vanda um við aðra,
því þeir eru nú ekki betri í rétt-
ritun en það, að þeir. geta ekki
einu sinni skrifað orðið íslenzkur
rétt. Eins og sést á setningunni:
„en það þýðdr á íslensku“. Þeir
vita sem sagt- ekki að það á að
skrifa orðið íslenzkur með z. —
Þeim veitti víst ekki af því að
fá sér nokkra tilsögn í stafsetn-
ingu, greyunum.
Ungur jáfnáðármaður.
Áheit á Strandarkirkju frá
Skuld .kr. 20,00.
Togamrnir. „Draupnir" kom af
vciðum í gærkveldi og „Arin-
björn hersir“, „Baldur" og „Gylfi“
. í nótt. Var „Baldur“ með um 80
Erum fluttir á laugaveg 6 ár
Pósthússtræti 13. Bjarni & Guðmund-
ur klæðskerar sími 240.
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur selur
falleg og vönduð húsgögn af mörgu
tægi. Vatnsstíg 3 sími 1940.
Gardfnustengui' og hringir
ddýrastir f BrSttngStu 5. —
Innrðmmun á sama stað.
NÝMJOLK fæst allan daginn í
Alþýðubrauðgérðinni.
Sængurdúkar, ffðnr og
dúnn, rekkjnvoðaefni, sæng>
urveraefni hvft og mislit,
handkiæði stór og smð, hvit
og mislit f Mnel o. f 1. nýkomið.
Vorubúðin Laugavegl 53.
Bflstjórahanskar, leður,
ódýrir f Vörubúðinni,
Nankinsfðt, ailar stærðir;
hvítir málarasloppar, nan>
kinsfðt á drengi, ailar stærð«
ir frá 2 ára, vinnnfataefni
brúnt og blátt, vinnnvetling»
ar, striga, skinn og prjón,
nærfötin sterku og ódýru,
vinnusokkar, enskar húfnr,
drengjaháfnr enskar og
matros. M er lágt verðið
hjá Georg. Vörnbáðin Lauga-
vegi 53.
MUNIÐ: Ei ykkur vantar hú»»
gögn ný og vönduð — einnlg
notuð —, þá komið í fornsöluns,
Vatnsstíg 3, sími 1738.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN,
Hverflsgötu 8, sími 1294,
tekur að sér alls kon-
ar tækifærisprentun,
svo sem erfiljóð, að-
göngumiða, kvittanir,
reikninga, bréf o. s.
frv., og afgreiðir
vinniina fljótt og við
réttu verði.
Snmarypnr.
Mikið og fallegt úrval.
S. Jóhannesdóttir.
tunnur lifrar, en hinir kringum
30—40 tn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður,
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.