Morgunblaðið - 14.11.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.11.1968, Blaðsíða 11
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMiBER 1968 11 - RÆÐA BJARNA Framhald af bls. 1 Sjálfstæðismanna um aðgerð ir ríkisstjómarinnar. Hér fer á eftir frásögn af ræðu for- sætisráðherra. Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra, sagði að þær ráðstaf- anir sem menn hefðu í fyrra gert sér vonir um að mundu nægja til þess að sigrast á erfið leikunum, hefðu strax sl. vetur reynzt ófullnægjandi. í því sam- bandi kvaðst hann vilja minna á tvær staðreyndir. Þá hefði ver ið gert ráð fyrir, að verðlag á útflutningsvörum þjóðarinnar mundi heldur fara hækkandi og aflabrögð verða skaplegri í ár en 1967, m.a. hefði verið gert ráð fyrir 10% hærra verði á þorskafurðum en þetta hefði far ið á annan veg. Verðlagsþróun- in á freðfiski hefur í heild orðið 10% lakari í ár en 1967. Þorsk- veiðin var að vísu sæmileg en verðlagsþróun og aflabrögð miklu lakari bæði á hvalveið- um og síldveiðum. Verð á síld- arlýsi og hvallýsi hefur verið í algjöru lágmarki og að auki gengu hvalveiðarnar illa og síld veiðarnar brugðust með öllu. Þetta hefur leitt til þess, að þjóð artekjur á mann hafa minnkað um 15% frá því sem var 1966. Þjóðartekjur á mann verða svip aðar og var 1962 og 1963. Út af fyrir sig er þetta ekki svo slæmt ef fallist er á að gera ekki meiri kröfur um lífshætti en þá. Ráð- stafanirnar nú miða að því að lífskjör almennings verði svip- uð og þá. Ríkisstjórnin er ekki að efna til þessarar kjaraskerðingar held •ur eru það þau ytri skilyrði, sem engin ríkisstjórn fær við ráðið, sem henni valda. Raunverulegt verðmæti útflutningsframleiðsl- unnar er helmingi minna en það var 1966. Ríkisstjórnin hefur reynt að draga úr því að afleið- ingarnar dyndu yfir fólk skyndi lega og án þess að menn fengju ráðrúm til að aðlaga lífshætti sín að breyttum aðstæðum. Gjaldeyr isvarasjóðurinn hefur verið not- aður til þess að gera afleiðing- ar þessarar þróunar léttbærari en ella á árunum 1967 og 1968. Hér ttnundu margir hafa búið við erfið kjör, ef þessi varasjóður hefði ekki verið til. Einmitt gjaldeyris varasjóðurinn, sem nú er harm- að að er búinn, en andstæðing- arnir börðust gegn að yrði safn að, hefur þegar orðið okkur að ómetanlegu gagni. Alveg með sama hætti og framkvæmdirnar við Búrfell og Straumsvík hafa forðað stórvandræðum en um þessar framkvæmdir hefur stjórn málabaráttan verið einna hörð- ust. Ríkisstjórnin hefur á þessu ári beitt sér fyrir margháttuðum ráð stöfunum til þess að halda uppi atvinnulífi í landinu. Við höfum veitt frystihúsunum meiri fyrir- greiðslu en ráðgert var í fyrra og ef sú fyrirgreiðsla hefði ekki komið til hefðu frystihúsin stöðv ast. Það hefði heldur ekki verið lagt út í hvalveiðar né síldveið- ar nema vegna þess að ríkis- stjórnin tók á sig vissar skuld- 'bindingar. Við getum gert okk- iur í hugarlund, hvernig ástatt væri, ef ekki hefði verið reynt 'að sækja á þessi mið. Ríkisstjórn In hefur því gert allt sem í henn ar valdi hefur staðið til þess að vega upp á móti þeim áföllum, ®em þjóðin hefur orðið fyrir. En þá segja sumir að of seint thafi verið hafizt handa. Það var ekki fyrr en nú á síðustu vik- um, að hægt var að sjá til hlítar hversu alvarlegt ástandið er. í fyrra voru engin skilyrði til ráð- stafana, sem hefðu komið í veg (fyrir þá þróun, sem orðið hefur á þessu ári. Það má segja að fyrst þegar kom fram á sumar og sást hve óhagstæð verðlags- iþróun bolfisksafurða varð og hve síldveiðar gengu treg- lega ,hafi skapazt möguleikar til þess að átta sig á aðstæðum. Þá var setzt á rökstóla, en dæmið hefur stöðugt versnað síðan. Og það tekur alltaf nokkurn tíma að átta sig til fulls á slíkum vanda. Það var í rauninni ekki fyrr en nú sem ráðlegt var að taka fulln aðarákvörðun. En þá vaknar sú spurning hvort þessar aðgerðir muni nægja. Ef aflabrestur heldur áfram á síld- veiðum, ef þorskveiðarnar bregð- ast, ef verðlagsþróunin verður enn óhagstæðari en verið hefur, þá eru engar ráðstafanir i dag, sem geta forðáð þessu, fremur en hægt er að koma í veg fyrir eldgos eða að hafís leggist að landi. Þá verður að gera ráðstaf- anir eftir því, sem atvik standa til. Það er nú svo liðið á árið, að ljóst er að síldveiðamar munu bregðast. Þáð tjáir því ekki að búast við tekjum af þeim né stórbreytingum til batnaðar á næstu misserum, þótt við vonum hið bezta. Við höfum ástæðu til að ætla að verð á frystum fiski a.m.k. versni ekki. Við getum því sagt, að ástandið sé svo slæmt, að erfitt er að sjá, að þáð geti versnað. En það er samt sem áður alveg víst að ekki mátti dragast að gera ráðstafanir til úrbóta. Ég er sannfærður um að ekki hafa verið skilyrði til þess gagnvart almenningsáliti að taka afleiðingum erfiðleikanna fyrr en allir hljóta að játa að ástandið er eins og við blasir. Við gerðum okkur grein fyrir því, að vandinn yrði svo mikill að eðlilegt væri að leita víðtækr ar samstöðu um lausn vandans. Samkomulag náðist ekki. Við höf um orðið fyrir árásum Þjóðvilj- ans og ráðamanna kommúnista flokksins, vegna þess áð við gerð umst svo djarfir, eftir að viðræð- ur hófust, að iðuaðarmálaráð- herra fór til Sviss, til þess að semja um stækkun álbræðslunn ar fyrr en áætlað var. Einnig höf um við orðið fyrir árásum vegna þess að embættismenn og ráð- herrar fóru utan á ársfundi Al- þjóðabankans og Alþjó'ðagjald- eyrissjóðsins. Með þessum árás- um var raunverulega sagt, að það væri skilyrði fyrir samkomulagi að hverfa frá stóriðju og hag- nýtingu orkulinda landsins, sem ailliir sainingj arnir menn viður- kennia aið er eitt þáð bezta, sem gert hefur verið á síðari ánum, alveg eiins og lijóst er að við komuimst ekki út úr þesisum erf- iðleikuim nema með góðri sam- vinniu við Alþjóðaigjaldeyriiasjóð- ánn. Við njótum þar trausts og viðurkenniingar á því að erfið- leikár okkar eru ekki sjálfskiap- arvíti. Við höfum því verið for- dæmdir fyrir að fr-aimfylgja því sem er Skiliyrði þetss að vamdinn verði leystur. Þetrba sýndi þegar að við þessa memn var ektki hægt að ná málefnalegu saimkomulagi. iFramsóknarmenn hafa af sinni Ihálfu lagt á það áherzlu að stjónniin ætti að segja af sót, og því hefur verið haMið fram að það hefði gjörbreytt aðlsitöðuinni ftil þess að ná samkomulagi. Það átiti sem sagt að bæta því ofan á alla aðra erfiðleika, að laindið hefði enga löglega stjóm, m.öo., að meirihliutaflokfkar yrðu svipt- ir því valdi, sem þeir m.a. hafa til þess að rjúfa þiinig. Jafnframt var þess krafist að við höfnuð- um þéirri frjáisræðisstefnu sem a.m.k. fram til árváns 1966 hefur valdið örari framþróun en nokkru sinni fyrr í sögu þesearar þjóð- ar. Samkomulag byggist ekki á því að meirihhitaflokkar ofur- selji sig kröfum miirunihiljut'a- flokka með þessum hætti. Enda er það svo að þær tiflllögur sem þássir flokkar lögðu frarn gátu engum úrslitum ráðið um vanda þjóðarinnar. Þeir hafa t.d. hamr- að á vaxbálækkun. Ætla má að allir vextir útvegsins merni um 490 milljónum króna. Rótitæk vaxbalækkun t.d. urn fjórðung mundi nema um 190 milljónum. Þá hefðu fjárfestingansjóðirnir minini tekjur sem þesisu nœmi og þeirra þyrfti að afla með álög- um á álmenning jafnframt því sem lækka yrði inmláinsvexti iþannig að sparif járeigendur yrðu enm iakar settir. Dúðvík Jós epsson hefur sagt að það mætti spara í ríkisrekstrinum 390 miillj ónir. Lúðvík hefur hvohki fyrr né síðar nefnt eiltt eipaistia ispamað- airafriði sjálfur. Hiamn segir að aðrir eigii að gera það. Þetta eru auðvibað hreinar blekkimgar tilrauinir ef menn nefinia ekkd ákveðin dæmi sjálfir. Það hefur komið 'areinilega fram, að það sam fyrst og fremst skilur á milli er það, hvort menin vilja hér athafnafrelsi og viðskipta- frelisi eða vaxandi höft og arukna íhlutun rí'kisvaldsins. Það er tlal- að um að stöðva eigi innflutn- ing. Gengislækkuinin hlýtur að leiða til minnkunar innflutnings. Það getur komið til greima að bannia alveg innflutninig ákveð- iinma vörutegunda, ef það er 'hægt án þess að korna á fót beinu haftakerfi en það er ástæðulaust að athuga um slíkt fyrr en sést, hvort innflutningurinn dettur ekki svo mikið niður að það sé ástæðulaust enda jniunidi þetita hiafa svo íitia jþýðingu, að enig- um úrslitum réði. Andstæðingar okkar hafa ekki fengizt til þess að segja hvaða meginleiðir ætti að fara. Þeir hafa bent á ýmsar hliðarrá'ðstaf- anir og játað að róttækar ráð- stafanir þyrfti til viðbótar en þeir fást ekki til þess að segja hverjar þær ættu að vera. Það hefur verið talað um alls- herjar niðurfærslu og sú leið mun hafa verið rædd í Alþýðu- flokknum en fékk þar lítinn byr og engan hjá okkur. Sú leið er bæði seinvirkari og hefur óhag- stæ'ðari áhrif á kjör almennings og skapar meiri vandamál en gengislækkun. Það er líka til sú leið að leggja á skatt til upp- bóta. Þessi leið hefur verið reynd bæði fyrr og síðar, í ríkum mæli af vinstri stjórninni og einnig öðrum. Hún hefur ýmsa ann- marka, flókið uppbótakerfi, flók- ið skattakerfi, gífurlega ríkisí- hlutun og mundi ekki hvetja menn til nýrra framkvæmda. Eg hygg að allir hafi sannfærzt um að þessi leið var ekki fær þar sem hér var um svo stórar upp- hæðir að ræða að erfitt væri að ná þeim með sköttum og jafn- framt hlaut hún að verða iðnaðin um til trafala nema þá með upp bótakerfi til hans einnig og það hefði verið nær óframkvæman- legt. Gengislækkun fylgja margir ó- kostir og ég hef í lengstu lög viljað fara aðrar leiðir en nú er sannast sagna ekki um önnur úrræði að ræða. Hún lýsir þeirri kjaraskerðingu sem er komin fram en spurningin er aðeins sú, hvort sú kjaraskerðing á að velta skipulagslaust yfir almenn ing með glundroða og atvinnu- leysi eða þannig að hún valdi sem minnstum skaða. Gengislækkunin kemur illa við marga, ekki sízt verzlunar- stéttina, sem hefur orðið fyrir áföllum bæði í fyrra og nú. Þetta er ill nauðsyn en þetta er leið sem gerir það að verkum að hægt er að komast út úr þessum örðugleikum án stórkost. legra ríkisafskipta. Þegar krepp- :an mikla byrjaði og gripið var .fil haftanna vonuðu menn að þau mundu aðeins standa um stund- ársakir, en þau stóðu heilan mannsaldur. Éf við veljum nú höftin erum.við að vekja upp '.draug, en það er ekki búið að kveða hann niður. Það er því um iað gera að velja þá leið, sem iVeitir einstaklingum og athafna- imönnum mest svigrúm til að njóta áræðis síns og dugnaðar. iGengislækkunin dregur úr inn- (flutningi og ferðalögum og skap- lar námsmönnum erfiðleika og (það þarf að hlaupa undir bagga (með þeim. En hún hvetur út- 'vegsmenn og athafnamenn til Iþess að leita nýrra möguleika, tnýrra leiða. Ekki má heldur igleyma því að gengislækkunin (skapar íslenzkum iðnaði jafn- (réttisaðstöðu á við sjávarútveg- (inn — iðnaðinum sem veitir (flestum atvinnu. Hér er einnig um það að ræða, hvort við eigum að halda áfram þeirri einangrun, sem við höfum verið í og smátt og smátt hefur gert okkur ósamkeppnisfæra á brezkum markaði og skapað okk ur erfiðleika annars staðar, eða hvort við eigum að kanna að- ild að EFTA. Það hefur stórkost lega þýðingu fyrir útvegin, frystiiðnað, síldariðnað, hvort við höfum frjálsan aðgang að þeim mörkuðum sem kaupa 40% útflutningsafurða okkar. Vilð verðuim að læra af þessum örðuigleiikum, gera okkur grein fyrLr því að atvkunuvegimir verða alð vera fjölhreyttari. Það er vonlaust að h'aLda uppi nú- tímaþjóðfélaigi á svo einhæfu ait- vinnulífi, isem hér hefur verið. Þetta höfum við Sjálflstæðiismeinn margsaigt í mörg ár. Vi'ð yerðum að skjóta fleiri stoðum undir at- vinnulíf okkar. Okkar eiinia úr- ræði er að nýta öl!l landsins gæði og óhikaið í aamviranu við aðra. Við eiguim einnig að nota miainmaflia okkar til 'hlýtar tii iðn aðar, til viin'nsíu úr afurðuim okk ar, en það er t.d. þýðimigarlaust að aulka vinnslu úr sj ávaraflan uim ef við eruim útilokaðir frá niauðsynlegum mörkuðum vegna h'árara tolla. Við eigum í vök að verjast. Við höfum orðið fyrir miklu á- falli. En við erum ekki í neinni neyð. Það er um að gera að halda þannig sjálf á málum að það verði okkur ekki til tjóns. Við megum ekki gerast okkar eigin böðlar. Ef við leggjum okkur öll fram, af djúpri ábyrgðartilfinn- ingu, staðráðin í að berjast fjrrir gó'ðum málstað mun það enn reynast svo að mörg vopn verða Islandi til giftu og við skulum beita þeim þannig að björt fram- tíð bíði þjóðarinnar á næsta leiti. Að lokinni ræðu forsætisráð- herra tóku þessir til máls: Ing- ólfur Möller, Haraldur Ólafsson, Sveinn Benediktsson, Þorkell Sig urðsson, Sigurjón Björnsson, Ól- afur Einarsson og Sigurður Magn ússon. - BRETAR Framhald af hls. 1 herrafundinum geta ekki leitt til þess að tollurinn verði afnum- inn, sagði talsmaðurinn. Norðmenn benda á í þessu sam bandi að þegar EFTA var stofnað árið 1959 hafi það verið ein helzta tilslökun Breta að heim- ila tollfrjálsan innflutning á frystum fiski. Viðurkenna Norð- menn að Bretar hafi þá áskilið sér rétt til að endurskoða ákvæð ið um tollfrjálsan innflutning, ef árlegt heildarmagn yrði meira en 24 þúsund tonn, en telja hins vegar að vegna sí-aukinnar inn- byrðis verzlunar EFTA-ríkjanna og aukinnar fiskneyzlu sé heild- Frá Varðarfundinum armagnið alltof lágt ákvarðað. f norska Stórþinginu ræddi Káre Willoch verzlunarmálaráð herra þetta mál í dag. Sagði hann að undanfarna mánuði hefðu fulltrúar Norðurlandanna þriggja, Noregs, Dnmerkur og Svíþjóðar, átt samningaviðræður við fulltrúa brezku stjórnarinn- ar. Hefðu Norðmenn í þeim við- ræðum lýst sig fúsa til að ræða um takmörkun á tollfrjálsum fiskinnflutningi miðað við 24 þús und tonn á ári, en á móti þyrftu að koma ákvæði um álögur á það magn, sem umfram yrði. Willoch sagði, að einhliða á- kvörðun Breta um að leggja nú 10% innflutningstoll á frystan fisk frá aðildarríkjum EFTA væri andstæð anda þeim, er lægi bak við EFTA-samninginn. Benti ráðherrann á að í EFTA-samn- ingnum frá 1959 væri ákveðið að hafnar yrðu samningaviðræð ur ef innflutningur á frystum fiski frá Norðurlöndunum til Bretlands yrði meiri en 24 þús- und tonn á ári fyrir 1. janúar 1970. Segir í samningnum að ræða skuli hugsanlega aukningu innflutningsins „með tilliti til ástandsins í fiskiðnaðinum og neyzlu-aukningar á brezka mark aðinum." Þótt brezkir útgerðar- menn eigi nú við margskonar erfiðleika að stríða, hefur orðið mikil aukning á neyzlu frysts ifisks í Bretlandi frá stofnun EFTA. Sú aukning hefur að sjálf sögðu leitt til aukins innflutn- ings, sagði Willoch, en einnig til 90% framleiðsluaukningar hjá frystiiðnaðinum brezka. Það er tilgangur EFTA að auka viðskipti milli landanna, sagði ráðherrann og kvaðst ekki geta séð að erfiðleikar brezkra út- gerðarmanna eigi neinar rætur að rekja til mjög takmarkaðs innflutnings frá Norðurlöndun- um þremur. Benti hann einnig á, að það lága verð, sem verið hefur á fiskafurðum að undan- förnu, gilti ekki eingöngu á brezka markaðinum, heldur væri það alheimsfyrirbæri. - VIET CONG Framhald af bls. 1 orðið mjög vonsvikinn þegar Richard M. Nixon nýkjörinn for- seti lýsti yfir samstöðu með John son fráfarandi forseta varðandi stefnuna í Vietnam. Ton That Thien upplýsinga- málaráðherra Suður-Vietnam hefur átt tfðrætt við fréttamenn í Saigon að undanförnu, og boð- aði hann enn til fundar með þeim í dag. Var tilefni fundarins aðallega þau ummæli Cliffords varnarmálaráðherra að Banda- ríkjamenn ættu að hefja viðræð- ur við fulltrúa Viet Conig og Norður-Vietnam án tillits til þess hvort Suður-Vietnam tæki þátt í þeim. Sagði Thien ráð- herra þessi ummæli hafa komfð meðráðherrum sínum mjög á ó- vart, og bætti þvf við að stjóm- in í Saigon gæti aldrei viður- kennt neina samninga um hags- muni landsins, er gerðir væru án vitundar hennar eða aðildár. í frétt frá Saigon í dag segir að enn hafi komið til árekstra við hlutlausa beltið á mörkum Norður- og SuðurVietnam. Hafi stórskotalið kommúnista enn á ný skotið á stöðvar hersveita Bandaríkjanna og Suður-Viet- nam sunnan markanna. 1 ræðu sinni í gær varaði Clark Clifford við afleiðingum, sem þessar árás ir gætu haft, og í dag var aðvör- un þessi ítrekuð í yfirlýsingu, sem Nicholas Katzenbach aðstoð- ar-utanríkisráðherra gaf út í f jar veru Dean Rusks utanríkisráð- 1 herra. í aðvörun Katzenbachs segir að áframhaldandi árásir komm- únista frá hlutlausa beltinu geti spillt friðarviðræðunum í Paris. Segir ráðherrann að Bandaríkja- stjórn Iíti þessar árásir alvarleg- um augum, og hafi fulltrúar Bandaríkjanna í París skýrt full- trúunum frá Norður-Vietnam frá því. Ennfremur bendir ráðherr- ann á að þegar Johnson forseti j fyrirskipaði stöðvun loftárása á Norður-Vietnam, hafi það verið gert gegn því skilyrði að átökum yrði hætt við hiutiausa beltið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.