Morgunblaðið - 14.11.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. N' EMBER 1968
IrnmlKmKmmi
númerið kaffihússins, sem ég bý
uppi yfir. Ef svo skyldi vilja til,
að þér þyrftuð að ná í mig,
þurfið þér ekkert að óttast að ég
fari að afklæða mig. Núorðið er
ég kyrr í fötunum, að öllu sjálf-
ráðu.
Það var ofurlítil beizkja í mál
rómnum, en þó ekki mjög Eftir
andartak var hún farin að hæð-
ast að sjálfri sér:
— Og það er víst betra fyrir
alla hlutaðeigandi.
Maigret fann ekki sjálfur fyrr
en hann hafði lokað dyrunum á
eftir henni, að hann hafði tekið
í höndina sem hún rétti honum.
Broddflugan var enn að sveima
undir loftinu, eins og hún væri
að reyna að komast út, og ám
þess að taka eftir galopnum
gluggunum. Frú Maigret hafði
látið þess getið um morguninn,
að hún mundi koma á blómatorg-
ið og spurt, hvort hann væri
laus á hádegi, og gæti hitt hana
þar. Nú var komið hádegi. Hann
stanzaði, eins og í vafa. og hall-
aði sér út um gluggann, þaðan
Svo andvarpaði hann og greip
s mann.
sem sjá mátti niður á árbakk-
ann.
— Biðjið hann Boissier að líta
lnn til mín.
Sautján ár voru liðin síðan
þessi hjákátlegi atburður gerðist
í Tunglstræti, og nú var Mai-
gret orðinn háttsettur embættis-
maður í morðdei'ldinni. Skrítin
hugdetta greip hann — næstum
barnaleg löngun. Hann greip aft
ur símann.
— Dauphine-krána!
Um leið og dymar opnuðust
og Boissier kom inn, sagði hann
í símann: — Sendið mér einn
Pernod
En er hann leit á liðþjálfann,
sem var með stóra svita-hálf-
mána á skyrtunni, í handarkrik-
unum, bætti hann við: — Hafið
þá tvo! Tvo Pernod, þakka yð-
ur fyrir.
Blásvart yfirskeggið á Boissi-
er sem var ættaður frá Provence
titraði af ánægju, og hann settist
úti við gluggann og þurrkaði
svitann af enninu.
2. kafli.
Eftir að hafa skedlt í sig gúl-
sopa af Pernod, varð Maigret að
koma sér að efninu.
— Segðu mér, Boissier hvað
veiztu um Alfred Jussiaume?
— Hann Dapra Frissa?
— Sá er maðurinn.
Og næstum samstundis færðist
skuggi yfir andlit liðþjálfans,
hann leit áhyggjufullum aug-
um á Maigret og spurði með
breyttri rödd og gleymdi að
smakka á uppáhaldsdrykknum
sínum:
— Hefur hann nú verið að
verki?
Þessi liðþjálfi var alltaf eins,
vissi Maigret. Hann vissi líka
hversvegna hann var svona, og
að það var fyrir einhverja sér-
staka lagni, að hann sjálfur var
eini fulltrúinn, sem Boissier leit
réttu auga.
Hefði rétturinn skeð, hefði
hann sjálfur átt að vera orðinn
fulltrúi og hefði líka verið orð-
inn fyrir löngu, hefði hann
kunnað nokkuð í réttritun
og skrifað öðruvísi en barna-
skólakrakki. Af þessu leiddi, að
hann hafði aldrei staðizt ein-
földustu próf.
En samt höfðu nú máttarvöld-
in — aldrei þessu vant — farið
skakkt að. Þau höfðu sett yfir
deild hans Peuchet yfirfulltrúa,
gamlan jaxl sem alltaf var hálf-
sofandi, og þannig var það Boiss
ier, sem vann allt verkið, að
skýrslugerð undantekinni, og
stjórnaði samverkamönnunum.
En sú deild hafði ekki morð-
mál til meðferðar, eins og deild
Maigrets. Og heldur ekki fékkst
hún við viðvaninga svo sem búð
armenn, sem stungu af með kass-
ann eða neitt þessháttar
6
Viðskiptavinirnir, sem Boissier
hafði til meðferðar, voru at-
vinnuþjófar allra tegunda, allt
frá gimsteinaþjófum, sem settust
að í stóru gistihúsunum við
Champs Élysées, niður í banka
ræningja og innbrotsþjófa, sem
höfðust við í lakari hverfunum,
eins og Jussiaume.
Þess vegna 'litu þeir hlutina
allt öðrum augum en mennirnir
í Sérdeildinni. Hjá Boissier voru
kunnáttumenn í báðum liðum.
Þar börðust æfðir menn báðum
megin. Það var ekki svo mjög
spurt um sálfræðikunnáttu held
ur náin kynni af sérkennum og
sérvizku allra, sem í hilut áttu.
Það var alls ekkert óalgengt
NÝ VERZLUN
Að Grensásvegi 12 hefur verið opnuð verzlun með
sælgæti, tóbak, pylsur og ýmislegt fleira.
Þar munum vér kappkosta að að verða við öllum
óskum tilvonandi viðskiptavina.
POLARBAR.
tilUaimifU,
Jólamnrkaður
Austursfræti 17 —
LÍKAST ÆVINTÝRI
UM AÐ LITAST
— Það var bara áskorun um að kasta ekki pappír á gangstétt-
ina.
að sjá liðþjálfann sitja i gang-
stéttarkaffihúsi hjá innbrotsþjóf
í mestu rólegheitum, og hvað Ma
igret snerti, þá hefði hann tæp-
ast getað hugsað sér að sitja
þannig í hrókaræðum við morð-
ingja.
— Það er langt síðan þú hefur
hafzt nokkuð að, Julot.
— Rétt segið þér, liðþjálfi.
— Hvenær stakk ég yður inn
síðast?
— Það hlýtur að vera farið
að nálgast hálft án
— Er ekki farið að lækka í
buddunni? Ég skal bölva mér
uppá, að nú ertu eitthvað að
brugga.
Það að Dapri Frissi hefði
hafzt eitthvað við, án vitundar
Boissiers fór í taugarnar á síð-
arnefnda.
— Ég veit nú ekkert, hvort
hann hefur gert eitthvað ný-
lega, en Lengjan er rétt nýfar-
in frá mér.
Þetta nægði til að huggá lið-
þjálfann.
— Hún veit ekkert í sinn haus
fullyrti hann. A'lfred er ekki sá
maður að hann fari að blaðra
um atvinnumál við kvenmann,
jafnvel þótt kona hans sé.
Og sú mynd af Jussiaume, sem
Boissier nú tók að draga upp,
var alls ekki ólík þeirri sem
Ernestine hafði teiknað, enda
þótt hann legði meiri áherzlu á
sjálfa atvinnumennskuna.
— Ég er orðinn hundieiður á
að vera að nappa svona náunga
og senda hann í Steininn Síðast
þegar þeir gáfu" honum fimm ár,
var ég rétt farin að skamma
talsmanninn hans, fyrir vankunn
áttu. Enda er þessi lögfræðing-
ur sannkallaður óviti.
Það lé ekki beint fyrir, hvað
Boissier átti við með vankunn-
áttu, en skoðun hans varð ekki
dregin í efa.
— Það er enginn í allri París-
arborg, sem jafnast á við Al-
fred í því að brjótast inn í hús,
fullt af fólki, án þess að gefa
hljóð frá sér, svo að hann vek
ur ekki einusinni köttinn.Fag-
lega séð er hann listamaður. Og
sem meira er: hann þarf ekki
neinn til að gefa sér bendingar
eða standa á verði eða neitt þess-
háttar. Hann vinnur einn síns liðs,
án þess að hrökkva nokkurn-
tíma við. Hann drekkur ekki,
kjaftar ekki frá, og gerir ekki
uppistand á knæpunum. Með
sinni gáfu ætti hann að geta lif-
að kóngalífi. Hann kann utan-
bókar hvar hann getur fundið
hundruð peningaskápa, sem hann
hefur komið fyrir sjálfur. og lás
ana á þeim þekkir hann til full-
14. NÓVEMBER
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Gættu hófs í orði og verki. Reyndu að fylgja ekki straumnum
um of.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Reyndu að beita þér fyrir málamiðlun, en vera hægfara.
Tvíburarnir 21. mai — 20. júní
Óhóf í skemmtun er engum til gleði til lengdar. Reyndu að
spara við þig.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Reyndu að bíða átekta, það er þér sjálfum hollast.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Vertu ekki að festa fé í neinu, því að það veldur öðrum
eingöngu vonbrigðum og áhyggjum. Hagræðingar á heimilinu
verður gagnleg.
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Þú hefur mikinn lifskraft, og ert því líklegur til að bjóðast
til að vinna fleira en þúe rtmaður til að framkvæma.
Vogin 23. september — 22. október
Það góðgerðarfélag, sem þér er kærast þarfnast þín. Hafðu
fjárframtölin í lagi, því allt annað kann að verða þér dýrkeypt.
Astamálin eru nærtæk.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Haltu fast við fyrri áæltanir, því að það er dýrt að breyta
til á elleftu stundu. Notaðu daginnveltil að kynna þér aðal
áhugamál þín.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Haltu nú skapstillingu þinni. Betra er að gera svolítið minna
en að taka til við áður óþekkta hagræðingu málanna.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Taugaóstyrkur og álag kunna að leiða þig til umframútgjalda
Ráðgastu heldur við vini þína og farðu að þeirra ráðum, en segðu
engum frá því.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Notaðu almenna skynsemi i öllu. Vertu hreinskilinn og láttu
aðra um að vinza úr, það sem þeir vilja.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Ekki hagstæður tími til fjárfestingar. Sökktu þér niður í skyldu
störfin, og farðu snemma í rúmið.