Morgunblaðið - 16.03.1969, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 196»
»
BÍLALEIGANFALURhf
car rental service ©
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
Hverfisgötu 103.
Siml eftir lokun 31160.
MAGNÚSAR
skiphoiii21 si**ar2119Ó
.u.-.eftjr Lokwn *jmU40381^
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Simi 14970
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
VOLTER
ANTONSSON
hasstaréttaHögmaður
EskihKS 0
Sími 12689
Viðtalstlml 10—12
£ Komið að skuldadög-
unum
Eftirfarandi bréf er frá Aðal-
steini Baldvinssvni:
„Á UNDANFÖRNUM árum hafa
gengið yfir þe.;sa þjóð meiri hag
sældar og velmegunar tímar en
nokkur dæmi eru til i gjörvallri
tilverusögu íslenzku þjóðarinnar.
Fólkið hefur ufeð í vellystingum
praktuglega. Mikið hefur verið
byggt af stó'um vönduðum og
glæsilegum húcum, sem í mörg
um tilfellum heíðu þó mátt vera
meiia við hóf og i nánara sam-
ræmi við þarfi'- og getu hlutað-
eiganda en ekki fyrirhyggjulitl-
ar og síðar getu'eysi. Mjög mik-
ið hefur verið ti! gagns og góðs
framkvæmt í þjóðfélaginu svo
sem vegabætur, byggðar brýr og
hafnir, skólar, sjúkrahús o.fl. o.
fl Segja má að þetta líkist ævin
týri og gangi kraftaverki næst
Um þetta er gott eitt að segja
að öðru leyti en því að i mörg
um tilfellum hrfði þurft og átt
að gæta meira hófs og meiri hag-
sýni. Ávallt kemur að skulda-
dögum og er nú þjóðin fær um
að taka á sig bagga framkvæmd-
anna? Nú eru aðrir tímar gengn-
Ir í garð. Þjóðm vaknar upp af
sæludraumum hagsældar og vel-
lystinga góðu áranna.
Q Eldra fólkið verður
verst úti
Sá ömurlegi veruleiki blas-
ir nú við að við höfum étið upp
allar feitu kýruar þær mögru
eru aðeins eftir og færa heimil-
unum og þjóð.irbúinu svo litla
málnytu að hvergi nærri dugirtil
til daglegrar neyzlu og frumstæð
ustu þarfa fólksi.ns. En um þetta
þýðir ekki að íást: „Við grátum
hið liðna en giátum sem stytzt
svo grætum ei komandi tíma“.
Nú er að stinea við fótum og
sýna manndóm og þrek, það hef-
ur íslenzka þjóðin gert á langt-
um meiri eríiðleikatímum en
þeim, sem nú niæta henni. Tök-
um undir með skáldinu: „Eg
hygginn er af reynslu þó fræðsl-
an væri dýr.“ Beitum sameigin-
legu átaki til bagsældar og ham-
ingju landi oksar og þjóð. Vegna
þeirra erfiðleika, sem þjóðin á
nú í hafa ýmsar ráðstafanir ver-
ið gerðar og þar á meðal og fyst
og fremst vsrðfelling íslenzku
krónunnar, sem verða á til
styrktar og upooyggingar og von
andi að vel úitakist í því efni.
Svo sem vænta má koma þessar
ráðstafanir mjög misjafnlega nið
ur og misharkalega við ýmsa ein
staklinga í þjóðíélaginu. Ég held
þó að varla geti verið skiftar
skoðanir um að einn hópur
manna þ.e. ek'ra fólkið verði
mest og verst fyrir óhagstæðum
áhrifum og fjírhagstjóni vegna
verðfalls króm nnar.
Q Bankanum falið spari-
fé til geymslu
Á árunum í Kringum 1930 var
þröngt í búi hjá mörgum. Þá
var meiri kreppa en núna og
meiri örðugleikar hjá almenningi.
Þá munu margir oft hafa geng
ið svangir til nvílu að loknum
þungbærum degi. Hvaða fólk var
nú þetta, sem átti í svo harðri
raun daglegs lífs? Það er gamla
fólkið í dag. I að vann hörðum
höndum, sparaði, notaði, nýtti allt
til þess ýtrasta. Hagsýni og sjálfs
afneitun voru taldar sjálfsagðar
dyggðir. Með slíkri viljafestu og
manndómi .tókst líka þeirri kyn
slóð að halda uppi merki þjóð-
arinnar með sæmd og aðdáunar-
verðri þrautseigiu. Aftur birti til
og áfram var haidið. Bitur
reynsla erfið i áranna vakti til
umhugsunar uru elliárin. Hvað
yrði til hjálpar og hver yrðu
bjargráðin þegar heilsa bilaði og
kraftar þrýtu? það eina, sem hægt
var að gera, var að halda á-
fram að spara og fela svo Bank-
anum spariféð ti! geymslu og á-
vöxtunar. Þar væri það í ör-
uggri geymslu og yrði vissulega
ekki glatað. En hvernig fór?
önnur hver króna horfin. Var
henni rænt eða á annan hátt glat-
að? Það vitum við ekki. Hitt er
víst að margt gamla fólkið má
nú fara á sína sveit. Það er sá
heiðurskrans, sem því er bund-
inn í æfilokin fyrir frammistöð-
una.
Q Nokkrar spurningar
Haft er eftir raerkum og mæt-
um manni, sem er framarlega á
sviði fjármálar.na, að ekki sé
hægt að bæta rýrnun sparifjárins
vegna fjárhagsörðugleika. í því
sambandi dettur manni í hug að
spyrja. Hvaðan hafa bankarnir
fjármagn til þess að kaupa lóðir
og byggja ha'.lir fyrir mörg
hundruð miltjonir? Það skyldi
nú ekki vera svo að gripið hafi
verið til einhvers hluta afhorfnu
krónum gamla fólksins? Sama
er að segja um sparifé barna og
unglinga, sem sá merki og þjóð-
holli maður Snorri Sigfússon
barðist fyrir að undirbyggja til
hollra áhrifa og festu í hugsun
og hegðun þe'i’-a ungu. Hverhirti
fimm krónur af þeim tíu, sem
barninu voru gefnar og til hvers
voru þær notaðai ?
Út frá þessum hugleiðingum vil
ég bera fram eina spurningu til
þeirra, sem að þessum aðgerðum
standa og bera ábyrgð á þeim.
Hafið þið gert ykkur ljóst að
þið eruð að ?áðast á garðinn
þar sem hann er lægstur og gang
ið á rétt lítilmagnans, barnanna
og gamalmennanna? Þetta eru
ykkar minnstu bræður, einmitt
þeir. sem Jesús á við þegar hann
segir: „Það sem þér gjörið einum
af mínum minr.stu bræðrum það
hafið þér mér gjört.“ Látið ekki
stjórnarfars- og menningarsögu
íslenzku þjóðarinnar á seinni
hluta tuttugustu aldarinnar eft-
irkomandi kynslóðum í hendur
með svo svörtum skugga, sem
aldrei yrði af þveginn. Æskilegt
væri að heyra raddir úr hópn-
um um þetta þí ðingarmikla mál-
efni.
Aðalsteinn Baldvinsson."
Q Eldvarnir
Áhugasamur skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Hinir ógnvekjandi eldsvoðar,
bæði á sjó og landi, sem hrjáð
hafa þessa þjóð að undanförnu,
hljóta að vekja almenning til um-
hugsunar, að skjótra úrbóta sé
þörf í brunavarnarmálum hér á
landi. Sé væniegs árangurs að
vænta, þarf allsherjar þjóðarvakn
ingu í þessum málum. Hita og
orkugjafi í ýmsum myndum, er
nútíma þjóðfé'.agi lífsnauðsynleg-
ur og fer þörfin ört vaxandi.
Tæknilega er hægt að beizla hann
eftir þörfum hverju sinni, en sé
ýtrasta öryggis ekki gætt í hví-
vetna er voðinn vis. Það er vart
á færi þeirra fáu einstaklinga
sem að öryggismálum starfa að
fyrirbyggja öll slys, þótt vafa-
laust megi þar gera úrbætur. AU
ur almenningur þar á meðal for-
ráðamenn skólastofftana, undir
skeleggri stjótn kunnáttu- og
ráðamanna, þarf að taka höndum
saman í herferð gegn ríkjandi
vankunnáttu og trassaskap í þess
um málum. Nýta verður fjölmiðl
unartækin til að ná til allra
landsmanna. Sýnum það i verki
að við erum framfaraþjóð og met
um hvert mannslíf og hverja
eign að verðle'kum. Hættum að
taka því sera hverjU öðru ó-
happi að fjö’-di mannslífa og
verðmætra eigna verði eldinum
að bráð. Ég vil að lokum leggja
fram tillögur sem stuðlað gætu
að auknu öryggi sjómanna:
1. Að komið verði fyrir slökkvi
tækjum (kolsýru eða þurrdufts)
með sjálfvirknm útbúnaði, í
kyndiklefum skipa, þar sem þeir
eru fyrir hendi. (Tæknilega ætti
þetta að vera auðvelt og til-
tölulega ódýrt í framkvæmd).
2. Að komið verði fyrir vatns-
úða-stútum (Sprinklers) í vistar
verum skipverja og stigagöng-
um eða öðrum úigöngum frá þeim.
(Kannski er þetta örðugt í
framkvæmd í ýmsum tilfellum en
alls ekki ómögulegt).
3. Að sköpuð sé aðstaða við
Sjómannaskólanr til þjálfur.ar I
slökkvistarfi við svipaðar aðstæð-
ur og algengastar eru um borð í
skipum og skipstjórnarmönnum
framtíðarinnar kennt hvernig
bregða skal við, ef vanda ber að
höndum."
Virðlngarfyllst.
Áhugasamur."
TIL SÖLU:
2ja herb. ný íbúS I Hraunbæ.
2ja herb. íbúð við Laugaveg.
2ja herb. kjallaraíb. í Laugarneshv.
2ja herb. íb. við Ásvallag. Bílskúr.
2ja herb. íb. við Safamýri.
3ja herb. nýstandsett íb. við Laugav.
3ja herb. jarðhæð við Skólagerði.
3ja herb. íbúð við Álfheima.
3ja herb. íbúð við Blómvallag.
4ra herb. ný íb. við Skólagerði.
4ra herb. íbúð við Ljósheima.
ÍBÚÐA-
SALAN
SÖLUMAÐUR:
GÍSLI ÓLAFSS.
INGÓLFSSTRÆTI
GEGNT
GAMLA BÍÓI
SÍMI 12180.
HEIMASÍMI
83974.
4ra herb. sérhæð við Laugateig.
4ra herb. íbúð við Eskihlíö.
4ra herb. íbúð við Heiðargerði, auk 2ja
herb. 1 kjallara.
5 herb. ný íbúð í Hraunbæ.
5 herb. íbúð við Holtsgötu.
5 herb. íbúð við Háaleitisbraut.
5 herb. sérhæð við Melabraut.
5 herb. íbúð við Grænuhlíð.
Einbýlish. við Goðtún, Garðahr.
Einbýlish. við Vorsabæ.
Einbýlish. við Álfhólsveg.
I rpf m jfe
• 9 —
Létið ekki dragast að athuga bremsurnar, séu þær ekki í lagi. Fullkomin bremsuþjónusta. Stilling
Fullkomin
steypustöð
Steypustöðin h.f. býður yður stein-
steypu, milliveggjaplötur, gangstétt-
arhellur, fyllingarefni og bruna.
Steinsteypan er uppistaðan í húsi
yðar og er mikilvægt að vel sé til
hennar vandað. Steypustöðin h.f.
hefur öll þau steypuefni, sem fáan-
leg eru á markaðnum, auk þess sem
hún framleiðir og selur öðrum
steypustöðvum steypuefni.
Steypustöðin h.f. er fullkomnasta
steypustöð landsins og eina steypu-
stöðin sem verksmiðjuhrærir steyp-
una. Vegna þessara nákvæmu sjálf-
virku twkja, er öruggt að rúmmál,
sigmál og v/c tala séu hárrótt.
T.d. var steypa frá Steypustöð-
inni h.f. valin í Kópavogsbrúna þar
eð ströngustu kröfur voru gerðar
til gæða og styrkleika steypunnar.
Verzlið við Steypustöðina h.f., það
er yður hagkvæmast.
ferðaskrifstofa bankastræti 7 simar 16400 12070
Enn sem fyrr ódýrustu og beztu utanlandsferðirnar
travel
PÁSKAFERDIR 1969
Mallorka og London. — Verð frá kr. 14.800,00.
Brottför miðvikudag fyrir skírdag, 2. apríl. Flogið beint til Palma. Þér veljið um dvöl á sömu ágætu hótel-
unum, sem þúsundir islendinga þekkja af eigin raun úr SUNNUFERÐUM. Páskaferðin er í ár fyrsta ferðin
af hálfsmánaðar og síðan vikulegum reglubundnu leiguflugi SUNNU beint til Spánar, eins og undanfarin ár.
Okkur hefur tekizt að halda verðunum niðri, svo þessar vinsælu utanlandsferðir geti ennþá orðið almenn-
ingseign. Dvalið í 2 vikur á Mallorka og 2 daga í London á heimleið. íslenzk skrifstofa SUNNU í Palma
með eigin síma er farþegum mikilsverð og einstök þjónusta.
I janúarmánuði féll ný appelsínuuppskera af trjánum á Mallorka. i aprílbyrjun má re[kna með um 28 stiga
hita og sól frá morgni til kvölds. Mallorka er fjölsótt asti og vinsaelasti ferðamannastaður í Evrópu.
Kanarieyjar — (Palma—London). — Verð kr. 22.800,00.
Brottför 2. apríl. Við fljúgum með íslenzkri flugvél boint til Miðjarðarhafsins, Palma og þaðan til Tenerife.
Tenerife Playa og önnur hótel eftir vali. Dvalið 14 da ga á Tenerife og 2 daga í London á heimleið.
Ódýrar utanlandsferðir með leiguflugi.
Munið hinar ódýru utanlandsferðir SUNNU með leiguflugi. Þær haaf gert þúsundum Isiendinga mögulegt
að njóta utanlandsferða, sem annars hefðu ekki átt þess kost.
Tvær vikur á Mallorka fyrir 12.600,00.
Notum eingöngu hótel og íbúðir fyrsta flokks með baði og svölum. I sumar einnig mjög ódýrar hóp- og
leiguflugferðir til Norðurlanda með nýju sniði. Vikuferð til Kaupmannahafnar, flugferðir og hótel fyrir
kr. 11.800,— Þér getið valið um ódýrar ferðir til allra staða á Spáni, Italíu, Mið-Evrópu, Egyptalandi og
Norðurlöndum. Sumaráætlun komin.
Isunnal ferðirnar sem fólkið velur