Morgunblaðið - 16.03.1969, Page 5

Morgunblaðið - 16.03.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969 5 Á FIMMTUDAGINN hófst uim- ræða á Alþingi uim menntaakóla- frumvarpið. Má búast við mikl- um umræðum um það, enda tími til kominn að Alþinigi ræði mennta- og fræðsluimiálin á breið um grumdvelli, en frumivarpið gefur tilefni til þess, þótt það fjalli einungis um þá hlið menntamála sem snýr að menmta skólunum. Greinilega kom fram, að skoð- anir þingmanna á frumvarpinu eru skiptar, og þá sérstaiklaga á fyrsíiu grein þess, er fjallar um fjölda menntaskóla, Þrír þing- menn Sjálfstæðisflokiksins, þeir Sigurður Bjarnason, Matthías Bjamason og Jónas Pétursson hafa þegar flutt ræður um málið og gaignrýnt frumvarpið. Undir þá gagnrýni tóku þeir þingmenn Framsóknarflokiksins sem þátt tóku í umræðunum. Að uindamfömu hefur oft heyrzt um það talað að Alþingi væri að verða afgreiðslustofnun ríkisstjórnarinnar og að þing- menn stjómartflokkanna hefðu því veigaimestu hlutverki að gegna á ALþingi að rétta upp hendur sínar við atifcvæða- greiðslu, ýmist til að sam- þykkja mál ríkisstjómarinnar, eða fella mál stjórnarandstöð- umnar. Oftsinnis hefur verið bent á hið rétfa í þessiu máli. Meiriháttar mál em venjulega þrautrædd í þiragflokikunum áður en þau em lögð fram. Þar koma þingmenn stjórnarflokik- anna fram með gagnrýni sína og beita áhrifum til breytinga, ef þeir telja ástæðu til. Umræð- ur þær sem fram hafa farið um menntaskólafrum’varpið er auig- ljós sönnun á þessu. Sigurður Bjarnason upplýsti í ræðu sinni, að frumvarpið hefði ek'ki verið rætlt í þingflokki Sjálfstæðis- flokksins, áður en það var lagt fram. Ek'ki er vafi á því, að hægt hefði verið að hafa sama hátt á um þetta fmmvarp og miörg önnur, — að ná samstöðu um það áður en það var laigt fram. En óllkt hefðu þá um- ræðurnar verið litlausari en nú verður, þar sem þingmennirnir bera frarn gagnrýni sína fyrir opnum tjöldum. MenintaskólatfmmVarpið er samið af netfn-d merkra og kuinnra skólamanna og laigt fram óbreytt frá því sem þeir skiluðu þvi frá sér Kemur greinile-ga fram í frumvarpinu að netfndar- menn hatfa lagt mikla vinn-u í störf sin og reyna að kynna sér málið frá sem flestum sjónar- hornum. Segja má, að flest öll nýmæli frumvarpsins séu til stórra bóta. Til dæmis má nefna, auikið valfrelsi nemenda á náms- greinuim, heimild til að taika upp annað lokapróf en stúdentspróf, auikna aðild nemenida að stjórn skólanna og fl. Gerði mennta- málaráðherra ítarlega grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins i framsöguræðu sinni á Alþingi, en megiin'kaflar þeirrar ræðu birt- ust í Mbl. á föstudag. Að mínu liti er þó einn stór galli á gjöf Njarðar. Endurskoð- un menntaSkólalöggjatfarinnar hefði nauðsynilega þurft að vera í nánium tenigslum við heildar- endurskoðun fræðslulaganna frá 1946, sem flestir eru sammála uim að þurfi endurskoðunar við. Með þessu frumvarpi er því að- eins tefcizt á við lítinn hluta vandans, og fáar tilarunir gerð- ar til að fá svar við þeirri veiga- miklu spurningu, hvers vegna svo lág hlutfallstala uragmenna á íslandi lýkur stúdentsprófi, eða hliðstæðum prófum, ef mið- að er við nálægar menningar- þjóðir. Töluvert skortir á að umræddri fræðslulöggjöf hafi verið komið í framkvæmd á þeim 23 árum sem hú'n hefur verið í gildi. Mjög víða úti á landi, og það meira að segja í þéttbýlum og samgöngu- góðum héruðum, eru misbrestir á því að bör nog unglingar fái notið þeirrar menntunar sem lög gera ráð fyrir. Alþýðublaðið, málgagn mennta málaráðherra, hefur ritað um skólamál í leiðurum sínum í lið- inni viku og var þar m.a. kom- izt svo að orði um landsprófið: „Þegar landspróf sem inntöku- próf í menntaskóla var lögtekið fyrir meira en tuttugu árum, var það tvímælalaust mikið fram- faraspor, með því var reynt að tryggja jafnan rétt nemenda alls staðar á landinu til inngöngu í menntaskóla. Hér var um að ræða ráðstöfun til tryggingar lýðræði í skólamálum..........“ Dæmt eftir þessum orðum blaðs- ins telur það vafalítið afar slæma latínu, hversu miklir mis'brestir eru á framkvæmd fræðslulag- anna. Það skal viðurkennt, að mörg ljón eru á veginum, en þeim þarf að ryðja sem fyrst til hliðar .með .öllum tiltækum ráð- um. í menntaskólafrumvarpinu segir að landspróf miðskóla skuli eftir sem áður vera greiðasta leiðin til inngöngu í mepntaskól- ana, en jafnframt er kveðið á am að taka megi aðra nemendur inn í skólana en þá sem hafa um rætt próf. Landsprófið hefur með réttu verið kallað „stíflan“ í íslenzka skólakerfinu. Vonandi verða hin óljósu ákvæði frum- varpsins til þess að losa nokkuð um þá stíflu og veitá fleiri en áður rétt til menntaskólanáms. Má hér geta þess að einn skóli, Kennaraskóli íslands, hefur nú um nokkurt skeið tekið gagn- fræðinga í skólann, sem uppfyllt hafa ákveðin skilyrði. Eftir því sem ég bezt veit, hefur reynzla skólans af þessu verið sú, að námsárangur gagnfræðinga og landsprófsinemenda hefur verið mjög áþekkur. í menntaskólafrumvarpinu kemur fram, að nefndin fjallaði um erindi Kvennaskólans í Reykjavík, sem æskir þess að fá leyfi til að útskrifa stúdenta. Mikill meirihluti nefndarmanna var þessari málaleitan andvígur, og færir rök að afstöðu sinni. Telja má mjög vafasamt að veita einum gagnfræðaskóla öðrum fremur slík forréttindi, og á það við um Kvennaskólann sem aðra skóla, og þá ekki síður vegna þess að hann tekur ekki á sig allar þær skyldur sem aðrir gagntfræðaskólar verða á sig að taka. Um áraraðir hefur skólinn fengið að velja beztu nemendurn ar úr stórum hópi umsækjenda og á það vitanlega sinn þátt í því hve árangur skólans hefur verið góður. En ef gagnfræðaskólum væri veittur réttur til að annast menntaskólanám og útskrifa stúdenta ætti Kvennaskólinn að vera þar ofarlega á blaði. M-arg- ir gagnfræðaskólar eiga sér merka sögu sem menntastofnan- ir, og ættu að fá aukin réttindi. Ég minnist þess t.d. að á fundi einum um skólamál benti Matt- hías Johannessen á merka sögu Flensborgarskólans í Hafnarfirði, sem var í einn tíma ein merk- asta skólastofnun á landinu. Óskum eftir að ráða 3 starfsmenn í shnutsmiðju 1 skautsmiðjunni fer fram tenging forskauta (kolkubba og ál- gaffla), en þau eru síðan notuð við framleiðslu áls. Störfin eru margvísleg og krefjast lagtækra og samvizku- samra manna. Þeir umsækjeridur, sem til greina koma, verða boðaðir á fund í Straumsvík, störfunum þar lýst og vinnustaður skoðaður. Ráðning frá 12. maí 1969. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Bókabúð Olivers Steins í Hafnarfirði og Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar í Reykjavík. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 6. apríl 1969. ISLENZKA ALFÉLAGIÐ H.F., Straumsvík. Færa mætti rök að því að þessi skóli ætti að fá menntaskólarétt- indi á sama hátt og Möðruvalla- skólinn var stofn Menntaskólans á Akureyri. Sama má segja um nokkra aðra gagnfræðaskóla, bæði í Reykjavík og úti á landL Menntaskólar þurfa að komast sem víðast. Auk þess sem það mundi jafna mjög aðstöðu nem- enda til skólanáms, hafa slíkir skólar jafnan stórkostlega mikil menningaráhrif, auk þess sem viðurkennt er að æskilegast sé að námið sé sem samfelldast fyr- ir nemendur. Ekki verðiur sagt skilið við hugleiðingar um mennitaakóla- skó 1 a fr umv a gr i ð, án þess að geta um, að þegar það kom til uimræðu á Aliþingi sendi meranta- málaráðlherra þingfréttamömnufm blaða og útvarps atfrit af fram- söguræðiu sinni. Ber slíkt vitni um hu'gulsemi ráðherra, og ber það að þakka. Á fimmtuda'ginn lagði ríkis- stjórnin fram tillögu til þings- ályktuinar, sem líklaga verða eigi minni umræður um en menntaskólafrumvarpið. Er það vegaáætilunin fyrir árin 1969— 1972. Er áætlunin mjög ítarleg og gerir grein fyrir fyrir'huguð- um framkvæmdum á tímabilinu, svo og tekjuöflun. Mesta hlut- fallslega breytingin frá fyrri vegaáætlun er sú að fyrirhugað er að leggja stóraukna áherzlu á lagningu hraðbrauta með var- anlegu slitlagi. Samikvæmt til- lögunni á að verja til þessara fraimlkvæmda 360 millj. kr. á fram'kvæmdatímabilinu í sitað 40 millj. kr. áður. Aulk þes mun svo gert ráð fyrir lántöku vegna framkvæmdanina. Með tillögu þessari er mörkuð stefna í vegamálunum, sem al'lir, ekki hvað sízt bifreiðaeigendur, mii'nu fagna. Steinar J. Lúðvíksson. Afgreiðslumaður í byggingavöruverzlun óskast strax. Uppl. um menntun og fyrri störf sendist Mbl. fryir miðvikudagskvöld merktar: „Reglusamur — 2968". A> AUSTURBAKKI í SÍM|: 38944 r /Œ\ FERÐASKRIFS' FOFA 1 WEJ RtKISIKS Verð aðeins kr. (2 sólarhringar Verð aðeins kr. (3 sólarhringar 6.750.00 fyrir tvo 8.250.00 fyrir tvo gesti). gesti). HVÍLDARFERÐIR í PÁSKALEYFINU Njótið hvíldar og hressingar á fyrsta flokks hóteli í fögru umvherfi. Fljogið til Hornafjarðar með Fokker Frienáhip flugvéLum Fluigtfélags íslands, gistið á hótel Höfn, nýtízkiuihóteli, sem býður full- komna þjónustu, fyrsta flokks veitingar, góð her- bergi með baði, þægilegar setustofur ásamt gutfu- baðstofu. TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF LÆKJARGÖTU 3, REYKJAVÍK, SfMI 11540

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.