Morgunblaðið - 16.03.1969, Page 7

Morgunblaðið - 16.03.1969, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 196® 7 „Syngur lóa suður í mó" Nú er komin hláka og snjór- inn á undanhaidi, og þótt Heið- lóan sé ekki enn komin til iandsins til að kveða burt snjó- inn, er þess ekki langt að bíða, „að Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysú" birtist hér aftur sunnan úr löndum, þar sem hún hefur verið að spóka sig í vetur i Suður-Frakkiandi, já, alla leið suður í Egyptalandi, og sjálf- sagt orðin lar^mædd á þessum sífelldu skærnm þarna á landa- mærunum við Súez. ★ Man ég það kvöld, þegar við bræðurnir gengum eftir meln- um frá^ Kattagjótu að Gamla Stekk. í þetta sinn var systir okkar með okkur, því að hún var eins og víð, heilluð af allri náttúruskoðnn ekki hvað sízt hún. Sólin var að setjast bak við Akrafjallið Bæirnir hand- an Hvalfjarðarins, Kúldudalsá, Gröf og Galtarvík, voru þegar komnir í fjallskuggann, en þó mátti það vera fólkinu á þeim bæjum nokkur huggun fyrir sól armissinn, að sjá ströndina hinu megin, fjöllin bæina og túnin baðaða í aftanskininu. Auk þess fengu þeir morgunsólina fyrr hinn næsta dag. Þannig er mannlífið. Hjá einum sól í dag hinum skuggi en svo snýst þetta allt við á morgun. ★ Sólarlag í Hvalfirði er engu öðru líkt. Jafnvel skýjafarið setur á það svip sinn. Eg hef aðeins eitt til samjafnaðar, og það er sólarlagið hér í Reykja- vík, en það hygg ég, að sé eitthvert fegui sta sólarlag, sem um getur á samanlagðri heims kringlunni „Veit auga þitt nokk uð fegra — en vorkvöld í Vest urbænum?" Kvað Tómas: En sem við nú göngum upp melinn, þræðum urð og grjót, innan um bustnar þúfur með lambagrasi, sem skartar í ljós- bleiku, tízku itunum, og eins og Laxness segir í íslenzku vöggu ljóði á Hörpu: „Þar er auðsýnt þurradramb þeim sem út er borinn, eingin sól rís yfir kamb yfir döggvuð sporinn. I*ar sést hvorki lítið lamb né lambagias á vorin.“ — Þá heyrum við skyndilega flaut. Hér er mikill listamaður á ferð. Hann flautar svo, að unun er á að hlýða. ★ Við þekkjum þetta flaut, ang urvært, tregabiandið, þetta er Heiðlóan í þstta sinn er hún ekki að syngja dýrðinni lof, „dýrðin-dí“ eins og það hefur verið kallað, nei, hún er að reyna að beina athygli okkar frá litla hreiðrinu, sem hún á þar vestanvert við litla þúfu, á berum melnum, innan um Holtasóley, sem hvít og gul glitrar 1 aftanskininu, og lauf þessarar fallegu sóleyjar, rjúpna laufin, eru dökkgræn, og það er rétt eins og borið hafi verið á þau lakk, svo glansandi eru þau. Það er rétt eins og hún vilji þó segja við okkur, rétt eins og hún viti, að við viljum henni ekkert mein gera, — líkt og Þorsteinn Erlingsson kveður: s- „Heyló syngur sumarið inn, semur forlög gaukurinn, áðr en vetrar úti ’er þraut aldrei spóinn vellir graut.“ (Gamalt stef frá miðöldum.) „Þér frjálst er að sjá, hve ég bólið mitt bjó, ef börnin mín smáu þú lætur í ró. Þú manst, að þau eiga sér móður. Og ef að þau lita, þau syngja þér söng um sumariö bliða og vorkvöld- in löng. Þú gerir það, vinur minn góður" ★ Við þekkjum þetta flaut Heið lóunnar, vitum, hvað það merk ir. Nú eru aðeins egg i hreiðr- inu en væru urgarnir að brjót- ast út, farnir að kíkja út í þessa skrýtnu veröld, myndum við sjálfsagt bregða um lappir þeirra fuglamerkjum, en alls ekki vinna þeim neitt mein. Ungar mófuglanna eru fljót- ir á fætur. Þeit eru næstum sjálf bjarga, um leið og þeir skríða úr egginu. Os ungar þeirra, Heiðlóunnar, Spóans, Sandlóunn ar, Stelksins og Hrossagauks- ins, eru jafnframt einhverjir fegurstu fuglsungar, sem um get ur. Litaraftið er dýrlegt, það hefur eitthvað af guðdómnum í sér fólgið, það er ólýsanlegt, eða eins og öanskurinn segir svo fagurlega: „Det má ses.“ ★ Og áfram höldum við leið okkar eftir melnum. Blóðberg- ið, sem gamla fólkið þurrkaði og hellti upo á te úr, og hið fjölbreytilega blóm, Meyjar- auga, lífga upp á lífvana mel- inn. Þegar Heiðlóan finnur, að við ætlum ?kki einu sinni að nálgast hreiðnð hennar, hvað þá að vinna þvi mein, hættir hún flautinu, stígur á stokk, flýgur spottakern, og þá heyr- ist hún syngja um dýrðina, „dýrrindí", eins og Jónas Hall- grímsson mótaði í sínu Heið- lóarkvæði: „Snemma lóan litla í lofti bláu „dirvindí" undir sólu syngur: „Lofa gæzku gjafarans, grænar eru sveitir lands, fagur himinhringur. Ég á bú í ber jamó. Börnin smá i kjrrð og ró heima í hreiðri bíða. Mata ég þau af móðurtryggð, maðkinn tíni þrátt um byggð eða flugu fríða. Lóan heim úr lofti flaug, — Ijómaði sól um himinbaug, blómi grær á grundu, — til að annast unga smá. — Alla étið hafði þá hrafn fyrir hálfri stundu." ★ „Þannig ferst dýrð heimsins", sögðu spekingar fyrri alda. í þessu kvæði Jónasar er mikinn lærdóm að finra Stríðið er ekki alltaf okkar mannanna. Það nær til allra skepna miskunnarlaust og tilgangslaust. Þarna er það hrafninn að gleypa lóuunga, hjá okkur er það hungur í Biafra að deyða lítil svört börn, með- an stórveldin s*tt á hvað mata stríðsaðila á vopnum til að kála hverjigm öðrum. Ósköp er mannskepnan enn á lágu menn ingarstigi. I París rífast þeir um borð, meðan helmingur heimsins veit ekki, hvað hann á að borða í næsta mál. Mál er að linni. — Við höld- um heim af melnum. Það fór að kólna eftir sólarlag, en við arineldinn heima er hlýtt, og móðir okkar gefur okkur heitt kakao, sem j'ljar okkur öllum. Næst munum við ef til vill leita annað til náttúruskoðunar. Við vorum aldrei lött slíkra fara, •he’jdur vorum við hvött, — og að því búum við langa ævi. — Fr. S. AKUREYRII\ÍGAR - AKUREYRIKGAR Góð 4ra—5 herbergja íbúð óskast til leigu frá 1. júní eða fyrr, ef óskað er, jafnvel strax. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í símum 2 14 50, Akureyri og 2 26 79, Reykjavík. Tilboð óskast í jörðina Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi. Á jörðinni eru góðar og varanlegar byggingar. Laxveiðihlunnindi. Uppl. gefur: Haraldur Bjarnason, Reynimel 28, sími 1-6660. Fermingarskór á telpur nýkomnir, margir litir. SKÓSKEMMAN BANKASTRÆTI, sími 22135. NÝKOMIÐ Hanzkar, slæður og undirfatnaður Einnig maigt til fermirpgargjafa. fyrir fermingartelpur. VERZLUNIN SÓLRÚN, Kjörgarði, sími 10095. Austiirðingamótið 1969 verður haldið 22. marz naestkomandi í húsakynnum Her- manns Ragnarssonar við Háaleitisbraut 58—60. — Vegna minnkandi fjárhagsgetu almennings og til þess að sem flestir geti verið með, fellur niður að þessu sinni sam- eiginlegt borðhald. Upplýsingar og tilkynning um þátttöku í síma 34789 og 37974. Nánar auglýst síðar. ________________ STJÓRNIN. íbúður- og verzlunorhús Til sölu er járnvarið timburhús, tvær hæðir á steyptum kjall- ara og stórri hornlóð í Laugarneshverfi. 1 húsinu eru þrjár íbúðir, 2ja, 3ja og 5 herb ásamt verzlunarplássi. Verzlunin og 5 herb. íbúðin laus nú þegar. Nánari upplýsingar gefur NÝJA FASTEIGNASALAN, Laugavegi 12, sími 24300, og utan skrifstofutíma 18546. ARABIA-hreinlætístæki Hljóðlaus W.C. — kassi. Nýkomið: W.C. Bidet ITandlaugar Baðker Fætur f. do. W.C. skálar & setur. Fullkomin varah’utaþjónusta. Glœsileg vara. Verð hvergi lcegra Einkaumboð fyrir ísland: HANNES ÞORSTEINSSON lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.