Morgunblaðið - 16.03.1969, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969
SKÁKÞÁTTUR
í UMSJÓN SVEINS KRISTINSSONAR
Stórmeistarar í spumingatíma.
FYRIR rösku ári notaði ritstjóri
rússnesks skákblaðs tækifærið,
er allmargir erlendir skákmenn
voru samankomnir í Moskvu, til
að spyrja sex stórmeistara nokk-
urra samvizkuspurninga varð-
andi skák. Stórmeistararnir, sem
hann lagði spurningarnar fyrir
voru, Tal, Þjóðverjinn Uhimann,
Spassky, Argentínumaðurinn
Najdorf Júgóslavinn Glígoric og
Tékkinn Pachmann. — Ég birti
hér til gamans og fróðleiks tvær
af spurningunum, sem hann
lagði fyrir garpa þessa, svo og
svör þeirra alla:
Fyrri spurning: Er erfitt að verða
stórmeistari?
Svör:
1. Tal: >að er bersýnilega ekki
svo auðvelt að verða stórmeist-
ari, þó að ég hafi náð því marki.
Þessi titill örvar suma, en trufl-
ar aðra. Mér finnst ávallt betra
að tefla á stórmeistaramóti, held-
ur en, til dæmis, heima á lett-
neska meistaramótinu.
2. Uhlmann: Það er erfitt að
verða stórmeistarL Við stórmeist
ararnir höfum fleiri skyldur en
réttindi. Nú á dögum verða stór-
meistarar sí og æ að vera að
tefla og hafa lítinn tíma til að
stunda atvinmu sína eða hvíla
sig. Þetta reynir á kraftana, og
því verður árangurinn á skákmót
um misjafn. — Undanskildir eru
auðvitað hinir fremstu stórmeist-
arar, sem ná nær ávallt góðum
árangri.
3 Spassky: Það er erfitt að
verða góður stórmeistari.
4. Najdorf: Nú á dögum er ekki
erfitt að verða stórmeistari. Til
þess þurfa menn einungis að
uppfylla ákveðin skilyrði á skák
móti, og er þeim þá úthlutað
þessum háa titli. Sannur stór-
meistari er hins vegar sá, sem
nær góðum árangri hvað eftir
annað á skákmótum. Það er
hreint ekki svo auðvelt að verða
slíkur stórmeistari.
5. Glígoric: Það er ekki svo
mjög erfitt að verða stórmeistari,
en að verða góður stórmeistari,
það er strax öllu flóknara mál.
6. Pachmann: Skáktaflið er
eigingjarnt. Það krefst þess, að
menn helgi sig því alveg. Oft
verður maður þess vegna að
neita sér um ýmislegt, sem gefur
manni ánægju í lífinu. Undir
slíkum kringumstæðum er ekki
svo auðvelt að verða stórmeist-
ari.
Síðari spurning: Hver er að yðar
áliti bezta leiðin, til að ná sem
mestri fullkomnun í skák:
Svör:
1. Tal: Til þess eru margar leið
ir: Sú bezta er fólgin í fræðileg-
um rannsóknum, jafnhliða því
sem menn tefla. Ég hefi haft
afskaplega gott af því, hvað ég
hefi teflt mikið. Einnig held ég,
að hraðskákir séu nytsamlegar
— að sjálfsögðu innan hæfilegra
marka. Vilji maður auka skák-
styrkleika sinn, þá er óhjákvæmi
legt að tefla við sterka andstæð-
inga. — Einnig veltur mikið á
þjálfaranum.
Ég man ennþá eftir því, þegar
ég tefldi á unglingaskákmótum
1951, að þá bannaði þjálfarinn
fórnir á þeirri forsendu, að fórn
ir kæmu mjög sjaldan fyrir í
skákum heimsmeistaran-s, Bot-
vinninks. — Svo liðu tíu ár. Ég
varð sjálfur heimsmeistari. Og
sami þjálfarinn hvatti nni upp-
vaxandi skákmenn til að tefla
eins og heimsmeistarinn, vera
sókndjarfir og óragir við að
fórna. Þannig breytast tímarnir!
2. Uhlmann: Það er erfitt. En
það leiðir af sjálfu sér, að mað-
ur verður skilyrðislaust að búa
yfir góðri faglegri hæfni. Það get
ur gagnað mjög mikið að þróa
skákstyrkleika sinn í samvinnu
við aðra. Það hafa sovézku stór-
meistararnir sannfært mig um.
Margir þeirra hlutu sína upp-
fræðslu í skák á sérstökum æf-
ingastöðum ungra skákmanna.
3. Spassky: Það er erfitt að
svara þessari spurningu. Fyrst
og fremst verður maður að elska
skákina. Eftir það eru það hæfi-
leikar og dugnaður hvers og eins
sem úrslitum ráða. Jafnvel stór-
meistari þarf ekki endilega að
beina allri sinni ást að skáklist-
inni.
4. Najdorf: Ég tel, að næstijm
hver maður geti náð fyrsta
flokks (1. Klasse) skákstyrk-
leika. Leiðin að því marki er
ekki svo erfið. En vilji maður
jafnast á við Lasker, Capablanca,
Aljechin, Botvinnik, Tal eða
Petrosjan, þá verður maður að
hafa mikla hæfileika til að bera.
— Til samanburðar, þá eru tón-
skáld í heiminum svo mörg sem
sandur á sjávarströnd, en samt
er aðeins til einn Beethoven,
Mozart, Tschaikowski eða Rac-
hmaninow.
5. Glígroric: Þrotlaust og skap-
andi starf, í sönnustu merkingu
þess orðs. Skáklistin þolir einsk-
is konar stælingar — sérstak-
lega, ef menn hafa ekki gott vald
á henni. Sjálfstæð bugsun er að
minni hyggju mikilvægust fyrir
hvern skákmann.
6. Pachmann: Menn verða að
tengja saman „teoríu“ og „praks-
is“. Hinar fræðilegu rannsóknir
verða að vera athliða og ná yfir
öll svið skáktaflsins: byrjunina,
miðtaflið og endataflið.
Svo mæla þeir vísu menn, stór
meistararnir. Eins og fram hef-
ur komið, gera þeir mikinn grein
armun á stórmeisturum innbyrð-
is, og er það eðlilegt. Stórmeist-
aratitill veitir mönnum auðvitað
enga tryggingu fyrir því að kom-
ast í flokk allra sterkustu skák-
manna í heimi, hvað þá að halda
sér í þeim flokki um langt ára-
bil.
Það er heldur hvergi nærri ör-
uggt, að allir stórmeistarar séu
ávallt sterkari en einstakir „al~
þjóðlegir meistarar“, þótt þeir
eigi samkvæmt ritúalinu að
standa einu þrepi ofar í styrk-
leikastiganum. Sem dæmi getum
við nefnt Friðrik Ólafsson og
Pilnik, er þeir tefldu hið fræga
einvígi sitt 1955, sem Friðrik
vann með fimm vinningum gegn
einum! Pilnik var þó talinn í
hópi fremstu stórmeiítara heims
þá, hafði meðal annars nýlega
unnið sér þátttökurétt í kandí-
Framhald á bls. 25
FYRIR FERMINGARSTULKUNA
STOPPAÐIR B.H. FRÁ
KANTERS
\v
y
Eingöngu
vönduð iír
O f. SWITZERLAN D
FERMINGARUR
Nýjustu model af
hinum þekktu
svissnesku
ROAMER-
ÚRUM
Magnús E. Baldvinsson
úrsmiður,
Laugavegi 12 — Sími 22804.
KAUPIÐ ÚRIN HJA ÚRSMIÐ —
TILKYNNING
TIL ÚTGERÐARMANNA
Að gefnu tilefni óskar Landssamband ísl. útvegsmanna eftir
upplýsingum um, hvort sjómenn vanti á báta. Ef um vönt-
un á sjómönnum er að ræða, óskar L.I.Ú. eftir. að útgerðar-
menn tilkynni skrifstofu samtakanna fyrir 20. marz n.k.,
hvað marga sjómenn vanti á hvern bát.
Landssamband ísl. útvegsmanna.
STOR, ODYR STIGVELAMARKAÐUR
Seljum næstu daga vaðstígvél fyrir kvenfólk og börn, barnastígvél, stærðir 28—35, seld
fyrir kr. 105.—, 120.—, 198.—, 219.—, kvenstígvél úr vinyl, fjölmargar gerðir, verð frá
kr. 298.—. Öll verð eru síðan fyrir gengislækkun. Með hverju pari af stígvélum fylgir
ókeypis par af gúmmískóm með hvítum sóla, stærðir 25—34.
Notið þetta sérstæða tækifæri, sem aðeins varir mánudag, þriðjudag og miðvikud.
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR SKÓVAL
Laugavegi 100. Austurstræti 18. Eymundsonarkjallara.