Morgunblaðið - 16.03.1969, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.03.1969, Blaðsíða 10
Hugsunin, búningurinn Einar H. Kvaran: RITSAFN I—n. Ásdís og Sigurður Arnalds sáu um útgáfuna. Prentsmiðjan Leiftur. Reykjavík 1968. ÆTLI VONIR sé ekki þekktasta smásaga Einars Hjörleifssonar Kvarans? Sagan er samin 1886 og fyrst prentuð 1890. Enn í dag er líf þessarar frásagnar um vesturheimsferðir íslendinga furðu áleitið, upphafsorðin gefa þeim lesanda, sem vill kynna sér verk Einars H. Kvarans svip- tið fyrirheit og innflytjandanum í sögunni: „Áfram, áfram! Áfram imóti gustinum, sólþrungnum, glóðheitum, sem andar á innflytj- andann, ef hann stingur höfðimu út úr vagnglugganum. Áfram yf- ir sléttuna, ómælilega, endalausa, fulla af friði, minnandi á hvíld- ina eilífu“. Litli-Hvammur, sem er mun lengri saga en Vonir, fæst við skyld vandamál, enda voru þess- ar sögur gefnar saman út í bók 1901: Vestan hafs og austan. Von- ir er þó miklu naktari tjáning hugrenninga en Litli-Hvammur; það líða níu ár frá samningu Voua þangað til Kvaran er reiðu- búinn að skrifa Litla-Hvamm. í sögunni um Litla-Hvamm, segir frá þeim, sem ráðgera ves’t- urferð, en fara þó aldrei; aftur á móti lýsa Vonir martröð íslend- ingsins ólafs í Vesturheimi, þar sem engir skærir litir eru á loftinu, „heldur allir slikju- nce<ndir“. Eina huggunin er „frið- ur sléttunnar“. Andstæðum sagn- anna verður best lýst með orðum Guðríðar um Litla-Hvamm, sem hún er látin segja þegar hún finnur dauðann nálgast: „Það er góð jörð — og hér er fallegra en nokkurstaðar annarstaðar. — Ég vona, að það sé einhver Litli- Hvammur á ströndinni fyrir handan". Sálfræðilegt raunsæi Einars H. Kvarans kemur hvergi betur fram en í smásögum hans. Kvar- an er meistari í smásagnagerð eins og fyrsta bindi Ritsafns hans, ber vitni um. Þótt smá- sögur hans séu stundum nokkuð langar, á hann til að bregða upp myd'um í fáum orðum, sem orka mjög sterkt á lesandann, opna honum nýjar víddir. Dæmi um þetta eru Fyrirgefning og Þurk- ur, sem Sigurður Nordal tók upp í Les'trarbók sína. Fyrirgefning Jóhann Hjálmarsson skrifar um BÓKMENNTIR EYFIRÐINGABÓK I. 256 bls. Bókaforlag Odds Björnssonar. Akureyri 1968. Eyfirðingabók séra Benjamíns Kristjánssonar ber undirtitilinn: Sögur frá umliðnum öldum. Sá titill er ekki alls kostar réttur. Til dæmis hefst bókin á minni Eyjafjarðar — erindi, sem höf- undur flutti fyrir mörgum árum á útisamkomu. Ekki er það „saga“. Aðrir þættir bókarinnar, sem eru harla misjafnir að stíl og efni, eru afrakstur og árang- ur fræðimennsku og tæpast held- ur rétt að kalla þá „sögur“. Á eftir minni Eyjafjarðar fer þátt- ur um upphaf helgistaðar á Munkaþverá. Þá eru tveir þættir um Jón biskup Arason: Hvar var Jón Arason fæddur? og Is- lands djarfasti sonur. Þeir þættir, sem á eftir fara og fylla raunar meginhluta bók- arinnar, fjalla allir um nítjándu aldar efni: Jóhanna fagra, ævin- týri eyfirzkrar heimasætu suður í löndum; Ólafur timburmeistari á Grund; tveir þættir um Eggert, bróður Tryggva Gunnarssonar: Brúðkaupið á Stóruborg heitir hinn fyrri, en seinni þátturinn ber slétt og fellt yfirskriftina: Þáttur af Eggert Gunnarssyni. Upptalningin ber með sér, að efni bókarinnar er af mörgum toga spunnið. Eitt tengir þó sam an alla þætti þessarar Eyfirðinga bókar: Þeir mega allir teljast til eyfirzkra fræða. Menn þeir, sem segir frá í bókinni, fæddust allir og ólust upp í Eyjafirði eða vörðu þar starfskröftum sínum að meira eða minna leyti. Hérað Eyjafjarðar er tengiliður þátt- anna, sem eru annars, eins og fyrr segir, sundurleitir, ólíkir og misvel skrifaðir, enda vafalaust færðir í letur með löngu milli- bili og kannski einnig vi'ð ólikar aðstæður til fræðistarfa. „Til dærnis," segir höfundur í for- mála, „er síðasti þátturinn í bók inni ritaður fyrir tuttugu árum, en sá næsti á undan honum sam inn á síðasta vetri“. ; FRÆDI „Ritgerðirnar voru uppruna- lega,“ segir höfundur ennfremur, hugsaðar sem sjálfstæðar frá- sagnir, en ekki kaflar í bók.“ Nú er séra Benjamín löngu kunnur fræðimaður og ber ég ekki brigður á vandvirkni hans sem slíks. Og sá er auðvitað fremsti kostur — eða kannski rnaður segi heldur sjálfsagðast skilyrði til að svona löguð bók komi að einhverjum notum, að jafnan sé farið með rétt mál, en ekki rangt. En séra Benjamín víll líka vera rithöfundur og skrifa læsi- lega og ekki örgrannt, að hann leitist við að dramatísera atburði — magna frásögn sína með dá- litlum tilburðum í stílnum. Og á stöku stað örlar á tilraun að framkalla spennu. Undirtitill bók arinnar, „sögur . . .“ má því gefa til kynna, hvert hugur höfundar ins hafi í raun og veru stefnt. Og vitanlega er höfundur þess arar bókar ekki eini fræðimaður inn, sem langar að vera rithöf- undur í tilbót. Þeir eru fleiri með því marki brenndir, kannski flest ir — sem betur fer. En sé litið yfir alla þessa þætti í sjónhending og sömu andrá, hygg ég megi fullyrða, að höfund ur Eyfirðingabókar sé drjúgum meiri fræðimaður en rithöfundur. Séra Benjamín tekst bezt upp. þar sem hann kemur fróðleik sín um á framfæri án verulegra útúr dúra. Hann skrifar að vísu vand aðan stíl, en naumast svo léttan, að honum láti að „setja á svið“ menn og atburði. Og skopskyni er hann hreint ekki gæddur. Þá hættir honum, eins og mörgum fræ’ðimanni, við að einangra það erfni, sem hann er að brjóta til mergjar þá stundina, horfa á hlutina frá sjónarhóli þess manns, sem hann er að skrifa um í andartakinu, en loka aug- unum fyrir öðrum sjónarmiðum og draga einstök atvik úr tengsl- um við sjálfa rás atburðanna. Sérstaklega virðist mér þessa gæta í þætti af Eggert Gunnars- syni. Ýmsar sögur hafa gengið af Eggert, sumar vafalaust ýktar, aðrar kannski lognar. Staðreynd ir þær, sem séra Benjamín segir af ævi hans, kunna að vísu allar að vera sannleikanum samkvæm ar. Engu síður efast ég um, að mynd sú, sem séra Benjamín dregur upp af Eggert, sé að sama skapi trúver’ðug. Mér finnst við- leitni séra Benjamíns, þegar hann rekur lífshlaup títtnefnds Eggerts, öll beinast í þá áttina að „gera hann sem mestan mann af“ fremur en leiða í ljós, hvað satt er og rétt. Ósköp er fallegt út af fyrir sig að fegra þannig minning löngu látins manns, sem getur ekki lengur borið hönd fyrir höfuð sér eða varið gerðir sínar. En það er ekki fræði- mennska og þarf ekki að eiga neitt skylt við fræðimennsku. Hlutverk fræðimanns á hvorki að vera að ásaka né afsaka, held- ur að segja hverja sögu, eins og hún gerðist samkvæmt beztu heimildum. Betri og meiri en þættirnir af Eggert Gunnarssyni er frásögn af Ólafi timburmeistara á Grund; býsna fróðleg, hóflega í stíl færð; og gerir höfundur ekki öðru efni fyllri skil í þessari fyrstu Eyfirð ingabók sinni. Framhald á bls. 22 Erlendur Jónsson skrifar um BÓKMENNTIR Einar H. Kvaran er nærfærin lýsing á hugsana- lífi barns, en Þurkur segir frá gömlum og þjökuðum bónda: — „Mig sundlaði af að horfa ofan í hyldýpi örvæntingarinnar", segir sö.gumaður þegar hann greinir frá vonbrigðum bóndans. Þetta „hyldýpi" heldur vöku fyrir Einari H. Kvaran. Samúð með olnbogabörnum mannlífsins og þeim, sem eiga í sálarstríði er hvarvetna að finna í verkum hans. Sagan Vitlausa Gunna, er kannski skýrasta dæmið. Engum, sem nú les söguna um Vitlausu Gunnu, finnst líf henn- ar „hlægilega lítilfjörlegt" jafn- vel þó.tt sá samí sé með „hug- ann fuillan af stórviðburðum ver aldarinnar og mikilfenglegum og 'háleitum hugsunum". Vitlausa Gunna er að mörgu leyti ein- kennandi saga fyriT raunsæiæ skáldskap af gamla s'kólanum, kenningar Brandesar. En undir lokin birtir til. Konan, Sem lífið hefur leikið eins grátt og auðið er, eignast von um að hitta lát- inn son sinn eftir dauðanh sætt- ist við guð og menn, þannig að banalegan verður fegursti kafli ævi hennar. Beiskja í garð lífsins verður ekki í sögum Einars H. Kvarans, yfirsterkari vissunni um eitthvað betra þrátt fyrir allt. Það er nokkurrí veginn sama hvar grip- ið er niður í sögur hans; alls staðar skín Ijós kærleikans og þeirra vitsmuna, sem breyta mold í gull. Sögur hans eru ekki Framhald á bls. 22 VORIÐ 1968 komu í söngför stjórnandi um langa hríð. til Reykjavíkur góðir gestir. Eiginlega má segja, að Voru þar á ferð Suinnukóriinin þessi plata sé þriþætt. Fyrsti og Ka.rlakórinn á ísafirði. og jafnframt minnsti þáttuir- Svo vildi til, að seirnna þetta stjórmandi Ragnar H. sama ár varð beggja kóranna, Raignar, sjötugur, og í því tii- efni suogu kórarnir inn á LP plötu, sem getfin var út atf Fálkanium ekki aills fyrir löngu. En hver er Ragnar H. Ragnar, kann einhver manin- vera að spyrja. Jú, hann er Þingeyin.gur að uppruma, en fór uimgu.r ti’l ves’tuiríheims fyrst til náms, en síðam tók vettvamgur startfsins við. 1948 fluttist Ragmar svo til ísafjarðar og hefuír nú um tuttugu og eims árs skeið verið potturinn og panmam í músiklífi staðarins, því að auk þess að vera stjórnamdi beggja kóranna, Skólastjóri og aðailkeninamdi tónlis.tar- skóla bæjarins er hamn einmig samgkenm.airi í barna og gagm- f ræðasikólamum. Þessir ísfirziku kórar stamda báðir á gömílum merg. Karla- kórinn vantar þrj'á í fimm- tuigt og Suinmukóri'nn er 35 ára, og var tónsfcáldið Jónas Tómasison stofnaindi þeirra og Ragnar H. Ragnar inn er samsöngur kóranna. Syngja þair „í faðwii fjalila blárra" og „íslands fámi“ bæði lögin eftir Jónas Tómas- son. Þarna eru að verki um 65 söngraddir og gefur það vissulega nokkur fyrirheit, Framliald á bls. 22 Haukur Ingibergsson skrifar um,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.