Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 12

Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969 STRÍÐ OG FRIÐUR GREIN þessa skrifaði Malcolm Muggeridge eftir að hann var búinn að sjá nýju rússnesku kvikmyndina, sem gerð var eft- ir skáldsögu Tolstoys, Stríð og friður. — Eins og kunnugt er er Muggeridge einn þekktasti blaðamaður og rithöfundur Breta. Auk þess er hann í fremstu röð sjónvarpsmanna þeirra, þó hann hafi allt á hornum sér, þegar hann lýsir áhrifum sjónvarps, sem hann lítur mjög niður á! Mugge- ridge hefur verið boðið í fyrstu „Víkingaferðina“ hingað til lands á sumri komanda, og fá Islendingar þá væntanlega tækifæri til að kynnast litríkri persónu hans, sem einkum er þekkt fyrir að „láta allt fjúka“. Tolstoy var 78 ára, þegar þessi mynd var tekin af honum og skáldbróður hans, Maxim Gorky á Krímskaga, árið 1900. Gorky kallaðj hann „Mann alls mannkyns" og „andlegan jötun“. Yfirleitt hef ég hina mestu skömm á kvikmyndum og horfi sjaldan á þær til enda. Þetta kemur til af því, að ég álít — nánast öllum sem ég þekki undir fertugu til mikillar hneykslunar — þetta miðlun- artæki í sjálfu sér annars flokks. Til að ná fram áhrif- um sínum finnst mér það frekar treysta á loddarabrögð en innsæi, og geta aðeins, eðlis síns vegna, kannað yfirborð mannlífsins. Kvikmyndir eru að mér finnst, dæmigerðar fyrir allsráðandi grunnhyggju aldarandans. Ég lít á uppfinningu myndavélar- innar, sem drungalegt atvik í mannkynssögunni. „Camera obscura" var sannlega rétt- trúa lyginni, dkrifaði Blake, Kvikmyndir eru að mér finnst, dæmigerðar fyrir allsráðandi grunnhyggju aldarandans. Ég lít á uppfinningu myndavélar- innar sem drungalegt atvik í mannkynssögunni. „Camera obscura“ var sannlega rétt- nefni! Þeir verða alltaf að trúa lyginni, skrifaði Blake, sem horfa með auganu en ekki í gegnum það. Mynda- vélin er mesta undratæki, sem gert hefur verið til að sjá með, en ekki í gegnum. Og guð minn góður, allar þær lygar, sem hún hefur útbreytt og gert trúlegar. Það var því sjáfum mér til mikillar furðu, sem ég sat heill aður undir nærri sjö klukku- stunda sýningu á rússnesku myndinni „Stríð og friður" í París. Það hafði verið ætun mín að laumast inn og út og horfa á stutta kafla hér og þar. Mér virtist það leyfileg aðferð og hef alltaf notað hana þegar ég hef af einhverjum á- stæðum hef orðið að vera við- staddur kvikmyndasýningu — til dæmis gagnrýnendaþáttinn hjá BBC. Oftast nægðu mér mjög stuttir kaflar. Hefði kvikmyndahúsið sem myndina sýndi í París verið fullt af áhugasömum stúdent- um, hinum nýju ráðamönnum Sorbonne-háskólans, hefði ég orðið hræddur. Mér er alltaf raun að vita sjálfan mig í ein- hverju sammála þessum ríkis- öldu og menntuðu ungu lúxus- býltingarmönnum og ég verð að segja að það kemur sjaldan fyr ir. Til allrar hamingju fyr- ir mig var ég nærri einn um kvikmyndahúsið. Þótt ótrúlegt sé, var mestallan tímann að- eins einn áhorfandi viðstaddur auk mín, og sá virtist sofa. Með því að spyrjast lauslega fyrir, komst ég að því að aðsókn hafði aldrei verið mikil að myndinni, sem að vinsældum komst ekki í hálfkvisti við Hollywood-útgáfuna (léku bæði Burtonhjónin í henni eða aðeins annað þeirra? Ég man það ekki) eða „Önnu Karen- inu“. Tjaldið var geysistórt, mynd in í skínandi litum og mynda- takan á þann veg, sem dregur mann inn í atburðarásina svo mann sundlar við. Mér var un un að horfa á hið rússneska sveitalandslag, sem ég mundi með sérstakri hrifningu og hlý hug frá því ég dvaldi þar. Ef til vill þótti mér vænna um þetta sveitalandslag fyrir lýs- ingar Tolstoys á því en það sem ég sá af því sjálfur. í mínum augum er allt, sem viðkemur Rússlandi markað ímynd Tol- stoys. Ég las smásögur hans þegar ég var smástrákur — þær siðfræðilegu, eins og „Mað ur og meistari" — og þær höfðu óafmáanleg áhrif. Þegar ég sá „muzhik“-ana, fannst mér þeir komnir rakleitt úr bókum hans. í íbúð, sem ég hafði i Moskvu um tíma, í Borisogleb- sky Periulok, var gamalt rúss- neskt eldstæði, nákvæmlega eins og þau sem gamlir, úfnir og skeggjaðir þjónar lögðust til svefns á — í sögum Tol- stoys. Ég var frá mér numinn! Kvikmyndin fannst mér hríf andi gamaldags. Nærri ótrúlega I gamaldags. Ást þeirra Natösju og Andreis prins er frábærlega túlkuð og stúlkan er yndisleg, en hvergi örlar á líkamlegum eða dýrslegum tilburðum. En sá léttir! ímyndið ykkur hví- 'líkan mat nútíma leikstjóri á Vesturlöndum hefði gert úr þessu — Fellini eða Godard eða (sá allra versti) Bergman. Allt mjakið, afklæðingarnar og gretturnar. Og hvað það eT al!t saman yfirborðslegt og fyrir neðan allar hellur, þegar til kemur! f „Anna Karenina" er því lýst út í æsar, þegar Vronsky táldregur Önnu, af slíkri full- komnun, að maður skilur allt sem gerðist, hversvegna það gerðist og hvernig það gerðist. Og þetta er allt gert án þess að notað sé svo mikið sem eitt líffærafræðilegt, hvað þá held ur klámfengið orð. Berum þetta svo saman við samband Mell- ors og Lafði Chatterley, öll mælgin, öll hin aumkunarlega notkun klúryrða, hið blábera umkomuleysi — ekki kynferðis legt (það er allténd munur) heldur listrænt. Á sama hátt verða í kvikmyndinni „Stríð og friður“ dásamlega augljósir yf irburðir þess að komast af án þeirra ómerkilegu leikbragða, sem kvikmyndagerðarmenn okkar beita til að gefa í skyn líkamlega ást milli tveggja mannvera — eins og Natösju og Andreis. Tökum einnig til dæmis atr- iðin þar sem her Napoleons hörfar frá Moskvu. Hvílíkt tækifæri til ofhlæðis! Ég sé í anda menn eins og Peter Hall eða Peter Brooks smjatta yfir því. Þó gefur myndin manni — án allra gífurmeðala — mjög sterka hugmynd um herlið, sem leggur af stað út í fimbulvet- urinn og um leið takmarka- lausa heimsku mannanna, sem sanka að sér ástmeyjum og fár ánlegu herfangi. Hugarfars- breytingunni, — frá byrjun undarha'ldsins í bræði og til ör væntingar er veturinn heltek- ur þá og þeir verða úlfum og rússneskum skæruliðum að bráð — er frábærlega vel lýst. Frá- villingar skjögra yfir snævi þaktar auðnirnar eins og ölv- aðir og leita að leiðinni heim. Ég get blátt áfram ekki ímynd- að mér hve margir aukaleikar- ar leggja þarna hönd að verki, en stundum — eins og í orr- ustunni við Borodino — virð- ist engu líkara en allur Rauði herinn hafi verið kallaður út ti'l kvikmyndunar. Á nútíma mælikvarða er gangur myndarinnar að sjálf- sögðu hægur, jafnvel silalegur, og leikurinn — eins og sovézk leiklist yfirleitt — tilheyrir eldri hefð, sem er nærri útdauð í Vestur-Evrópuríkjunum og Ameríku. (En þegar ég ræddi um myndina við Peter Ustinov — sem eðlilega hafði mikinn á huga á henni og hafði séð mest an hluta hennar í Moskvu — átti hann mér til furðu einnig aðeins lofsyrði um framleiðsl- una og leikinn). Allan tímann meðan ég horfði á myndina var ég að bera hana I huganum saman við fyrstu myndir Eisen steins („Orrustuskipið Potemk- in“, „Oktober" o.s.frv.) sem all ir urðu sem hrifnastir af eftir 1920. Ekkert gat verið ólíkara. Byltingarhitann, hina algeru Sambandið á milli eiginkonu Tolstoys, Sonyu, og kvenhetju hans Natösju, er markað skýrum dráttum í kvikmyndinni. — Sonya er til vinstri. Til hægri er Ludmila Savelyeva í hlutverki Natösju. Ludmila er 26 ára gömul ballettdansmær frá Leningrad, gift og móðir, og var hún valin úr hópi 3000 umsækjenda. Þetta er fyrsta leikhlutverk hennar. fyrirlitningu á fortíðinni og öllu sem henni tilheyrði, var hvergi að finna. Til dæmis í hinu stórbrotna atriði fyrir orrustuna við Boro dino, þegar Kutuzov tekur þátt í hátíðlegri messugjörð, bjó ég mig undir þá barnalegu skop- stælingu á trúarathöfn, sem áð ur var jafn algeng í sovézkum kvikmyndum, leikritum og blaðamennsku og í ádeiluleikj- um BBC. En annað varð uppi á teningnum. Skeggjaðir, söngl andi prestarnir, trúræknir bændurnir og hermennirnir, Kutuzov sjál'fur og liðsforingj- ar hans — allir voru sýndir upptendraðir af sönnum trúar- eldmóði. Viðlíka lotning og ást á fortíð Rússlands gekk eins og rauður þráður gegnum alla myndina. Sveitasetur og landareignir rússneskra aðalsmanna með hin um glæsilegu trjágöngum, voru uppbyggð af alúð og natni og næmum höndum farið um fjöl- skyldulífið á heimilum Andreis prins og Natösju, þar vottaði ekki fyrir háði eða fyrirlitn- ingu. Það er aðeins þegar faðir Andreis, hinn sérvitri Bolkon- sky prins er sýndur á morg- ungöngu í garðinum skreyttur öllum orðum sínum, sem manni verður ljóts hversu barnalegt sovétveldið er í afstöðu til keisaraveldisins, sem það koll- varpaði, þrátt fyrir hálfrar ald, ar sigurstrangleik. Það minnti mig á samtal sem ég átti einu sinni um þetta efni við eina raunverulega prinsinn sem ég hef nokkurntíma þekkt — Mirsky prins, einkennilegan og fremur geðfelldan mann, sem barðist með Hvítrússum í borg- arastríðinu, snerist síðan á sveif með Lenin og fluttist af miklu fyrirhyggjuleysi aftur til Moskvu, þar sem ég kynntist honum nokkuð. Óþarfi er að taka fram að hann var síðar líflátinn og það fyrir þá kald- hæðnislegu sök að hann hafði í einni bókmenntagrein sinni í Pravda kallað Pusjkin hirð- þjón, án þess að vita að flokks- línan var breytt og Pusjkin orðinn þjóðhetja á ný. Samtalið, sem ég hef í huga, átti sér stað, er við Mirsky vorum á leið inn í National gistihúsið, sem er alveg ótrú- lega ljót, þóttaleg og klúr bygg ing, varla janfoki Moskvu-há- skóla í því efni, en kemst al'l- nærri því. Ég lét þau orð falla um hrikalegt útlit hússins og herfilega innanhússkreytingu. „fmyndið yður,“ sagði Mirsky, „hvernig broddborgaralegur glæsileiki og lífsþægindi hafa litið út, þegar blínt var á þau öfundaraugum innum upplýsta glugga af dimmri götu á nóv- emberkvöldi og þér munuð verða fær um að skilja mikið af sovézkri list, byggingarstfl og siðfræði". Þetta var mjög opinská athugasemd og varpar þó nokkru ljósi á Bolkonsky prins á morgungöngu með all- ar orður sínar og heiðursmerki. Ef ég ætti að benda á sér- staka ástæðu fyrir því hve mér þótti varið í myndina, held ég að ég myndi nota orðin, „sak- leysi“ og „hreinleiki". Það er undarleg kaldhæðni, að bolsé- vikabyltingin, sem átti að koll- varpa siðferðilegum verðmæt- um burgeisastéttarinnar, hefur leitt til stjórnskipulags, sem eitt heldur þrákelknislegan vörð um þau í heimi siðiferðis- legrar spillingar. Við þurfum því ekki að furða okkur á að eina framhaldsleikritið, sem sovézk yfirvöld hafa keypt frá Vesturlöndum — og það fyrir beinharða peninga — skuli vera ekki „Coronation Street" eða „Þar til dauðinn aðskilur okk- ur“ heldur „Saga Forsyte-ætt- arinnar"! Alltaf þegar ég hef verið staddur í kommúnista- ríki (að Kína meðtöldu — og ef til vi'll einkum þar) hef ég fyrst af öllu fundið til fagn- aðarléttis. Þá spyr ég sjálfan mig hvað þessu valdi, þar sem ég hef megna andúð á öllu við Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.