Morgunblaðið - 16.03.1969, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1809
13
S/ys á bifreiöaverkstœði
NÝLEGA var kveðinn upp í
Hæstarétti dómur í máli, sem
Haraldur Guðmundsson, Hafnar-
firði, höfðaði gegn Olíufélaginu
Skeljungi, en í máli þessu
krafðist stefnandi greiðslu skaða-
bóta að fjárhæð kr. 409.284,40
vegna slyss, sem hann varð fyr-
ir, er hann var við vinnu í þágu
Skeljungs.
Málavextir eru sem hér segir:
Hinn 27. apríl 1965 milli kl. 5
og 6 síðdegis varð stefnandi,
Haraldur Guðmundsson, fyrir
slysi við vinnu sína á bifreiða-
verkstæði stefnda, Olíufélagsins
Skeljungs hf. í Skerjafirði. Slys-
ið ber að m.eð þeim hætti að
Haraldur var að vinna við still-
ingu hemla á tengivagni bifreið-
arinnar R-3664 inni á verkstæð-
inu ásamt öðrum starfsmanni
Skeljungs. Á bifreið þessari voru
loftþrýstihemlar. Þar sem loft-
þrýstingur vildi minnka á kerfi
bifreiðarinnar, varð að gangsetja
bifreiðina við og við til þess að
ná aftur upp þrýstingnum. Har-
aldur hugðist gangsetja bifreið-
ina í þessu skyni. Hann siettist
eigi upp í bifreiðina, heldur
teygði sig inn í stýrishús hennar
til þess að styðja á gangsetning-
arhnapp vélarinnar. Kom þá í
ljós, að bifreiðin var í fyrsta gír,
og ier vél hennar fór í gang, rann
hún áfram án þess að Haraldur
kæmist upp í stýrishúsið. Reyndi
hann nú að stöðva bifreiðina, en
tókst eigi og rann hún út
úr verkstæðinu stjórnlaus og
lenti á bifreiðinni R-2557, eign
Skeljungs, sem stóð fyrir utan
verkstæðiðsdyrnar, hægra megin
séð innan frá verkstæðinu. Þegar
bifreiðin R-3664 lenti utan í bif-
reiðinni R-2557, klemmdist stefn-
andi milli stafs og hurðar á bif-
reiðinni R-3664. Hlaut hann
alvarleg meiðsli, m.a. mjaðmar-
grindarbrotnaðj hann. Var hann
óvinnufær af þessum sökum um
nær 6 mánaða skeið og hlaut
15% varanlega örorku af völdum
slyssins.
Haraldur byggði skaðabóta-
kröfur sínar í fyrsta lagi á 1.
mgr. 67. gr. umferðarlaganna nr.
26 1958, sbr. 1. mgr. 69. gr. sömu
laga, enda taldi hann að umrætt
slys hiefði orðið af völdum ö'ku-
tækis í notkun. Sú notkun hefði
ennfremur verið skyldustarf
stefnanda, sem hann hefði innt
af hendi í þágu Skeljungs. Hann
hefði leyst það af hendi svo sem
venja væri um slík störf. Taldi
stefnandi að hann hefði eigi sýnt
það mikið gáleysi við gangsetn-
ingu bifreiðarinnar að réttlætt
gæti lækkun fébóta til hans s'k.v.
heimild í 3. mgr. 67. gr. umferð-
arlaganna, nema þá að litlu
leyti. Ástæða þess að hann hefði
gangsett bifreiðina R-3664 hefði
verið beiðni annars starfsmanns,
sem mieð honum var. Hefði gang-
setningin verið nauðsynlegur
þáttur í þeirri viðgerð. Bifreiðin
hefði verið ganggett skömmu áð-
ur og því hefði stefnandi verið
grandalaus um það, að nok'kur
óvenjuleg hætta væri fyrir
hendi.
í annan stað byggði Haraldur
fébótaábyrgð á hendur Skieljungi
á 68. gr. umferðarlaganna, enda
mætti rekja slysið til áreksturs
bifreiðarinnar R-3664 á bifreið-
ina 3-2557. Báðar bifreiðarnar
séu eign Skieljungs og tryggðar
lögbundinni ábyrgðartryggingu
hjá Sjóvátryggingafélagi íslands
hf. Orsök slyssins að þessu leyti
hefði verið hin óforsvaranlega
staðsetning bifreiðarinnar R2557.
Taldj hann að bifreiðar væru
aldnei látnar stnda þannig rétt
framan við dyr verkstæðisins og
ef því hefði ekkj verið til að
dreifa i þessu tilvi'ki, hefði ekk-
iert tjón orðið í þetta skipti.
í þriðja lagi byggðd stefnandi
kröfur sínar á reglunum um
ábyrgð vinnuveitenda á tjóni,
sem hlytist af saknæmri hátt-
semi starfsmanna í starfi, en
einhver af starfsmönnum Skielj-
ungs hlyti að hafa skilið bifreið-
ina eftir í gír.
í fjórða lagi reisti srtefnandi
bótakröfur sínar á regiunum um
ábyrgð vinnuveitenda á tjóni,
sem hlýzt af hættulegum at-
vinnurekstri.
Skeljungur hf. krafðist sý'knu
í málinu og byggði sýknukröfu
sína á þeim rökum, að slysið
yrði eingöngu rakið til ógætni
stefnanda sjálfs. Það hefði verið
mikii óvarkárni af hálfu stefn-
anda að setja bifreiðina í gang
án þess að fara sjálfur inn í hana
og sitja í stýrishúsi þannig að
hann hefði fulla stjórn á henni.
Jafnframt hefði hann sýnt óvar-
kárni er hann gekk eigi úr
skugga um að bifreiðin væri í
hlutlausum gír. Mótmælti Skelj-
ungur hf. öllum þeim rökum,
sem stefnandi byggði 'kröfugerð
sína á.
Niðurstöður máls þessa urðu
þær sömu í héraði og fyrir
Hæstarétti. Segir svo í forsend-
um héraðs’dómsins:
„Rétturinn litur svo á, að slys
það, siem stefnandi varð fyrir,
verði hvorki rakið til hand-
vammar samstarfsmanns hans í
umrætt sinn, né heldur til bil-
unar eða galla á tækjum, er
stefndi (Skeljungur) beri ábyrgð
á. Ekki verður heldur á það fall-
ist, að starf það, sem stefnandi
vann að, er slysið varð, falli und-
Nýtt fyrir húsbyggjendur frú
SOMMER
somyyl
UTAVER
Þeir sem eru að byggja eða lagfæra eldri hús ættu
að kynna sér hina miklu kosti sem Somvyl-vegg-
klæðningin hefur. Klæðir vel hrjúfa og holótta veggi.
Hentar vel á böð, e’.dhús, ganga og stigahús. Á lager
í mörgum litum.
ir hættulega starfsemi sam-
kvæmt íslenzkum rétti.
Þá er það skoðun réttarins, að
fébótaábyrgðarreglux 67. gr. 1.
mgr. umferðarlaganna nr. 26
1958 sbr. 1. mgr. 69. gr. sömu
laga, eigi ekki við í tilviki því,
aem hér er um fjallað, þar sem
stefnandi var að gera við bif-
reiðina í umrætt sinn og slasað-
ist vegna mistaka sinna við
framkvæmd þeirrar viðgerðar,
en eigi vegna notkunar bifneið-
arinnar í skilningi 1. gr. 67. gr.
laganna. Ekki verður heldur tal-
ið, að 68. gr. umferðarlaganna
eigi hér við, þar sem bifreiðin
R-2557 var mannlaus og kyrr-
stæð, þá slysið vildi til, og vierð-
ur því eigi litið svo á, að hér
hafi verið um að ræða árekstur
í merkingu nefndrar lagagreinar.
Samkvæmt því, sem nú hefur
verið rakið, Verður að telja, að
höfuðorsök slyssins hafi verið
stórkostlegt gáleysi stefnanda
sjálfs, sem hafði bílpróf og var
vaiiur bílaviðgerðum, með því að
setjast eigi undir stýri bifreiðar-
innar og huga að stjórntækjum
hennar, áður en hann gerði til-
raun til að gangsetja hana, í stað
þess að standa fyrir utan bifreið-
ina, á felguboltum hennar og
seilast þaðan með höndina á ræs-
inn, án þess að athuga, hvort
bifreiðin væri í gír eða ekki.
Af þeim sökum, sem nú hefur
verið getið, vierður stefnandi að
bera allt tjón sitt sjálfur. enda
verður eigi talið, að slysið sé
vávæn afleiðing, af staðsetningu
bifreiðarinnar R-2557 í umrætt
sinn.“
Olíufélagið Skieljungur hf. var
því sýknað af kröfum stefnanda
í máli þessu.
f . * ORAS *
BLÖNDUNAR
i TÆKI
HURÐASTAL
STALVORUR
(fápjjfótt
STAÐLAÐI rA^TNSLAS
sérsmíðiI J HVERJUM
VASKI
SKOLVASKAR
ELDHÚSVASKAR
SMIÐJUBÚÐIN
VIÐ HÁTEIGSVEQ - 21222.
REYKIÐ HEIMSINS
BEZTA REYKTÓBAK
— ÓKEYPIS —
í neðangreindum verzlunum getið þér fyllt pípuna með hinu
heimsþekkta EDGEWORTH reykíóbaki. Þér getið sannreynt hve
lengi EDGEWORTH logar í pípunni, þér notið minna tóbak í hvert
sinn og pakkinn endist því lengur.
Brisiol
Bankastræti
Hjortorbúð
Suðurlandsbraut 10, sími 81529
Hnmrakjör
Suðurveri
Tóbaksverzlunin London
Austurstræti
Verzlunin Vesturguta 53
Slúturiélag Suðurlands
Austurveri, Háaleitisbraut
Tóbuksverzlun Tómusur
Laugavegi 62, sími 13776
Tóbuksverzlunin ÞöII
Veltusundi
Silli & Vuldi
Austurstræti
Aðalstræti 10, Laugavegur 43, Vesturgata 29,
Laugavegur 82, Hringbraut 49, Laugholtsvegur 49,
Háteigsvegur 2, Freyjugata 1, Ásgarður 22,
Laugarnesvegur 114.
Kron
Skólavörðustíg
Tunguvegi 19, Dunhaga 20, Langholtsvegi 130,
Stakkahlíð 17, Grettisgötu 46, Bræðraborgarstíg 47,
Álfhólsvegi 32, Hlíðarvegi 29, Borgarholtsbraut 19,
Snorrabraut 56