Morgunblaðið - 16.03.1969, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1960
Hvers vegna er Kapla-
skjólsvegi lokað?
Á fundi Vesturbæinga með
borgarstjóra á Hótel Sögu í haust,
gerði ég fyrirspurn um ráðhús-
bygginguna. Borgarstjóri gaf
greinargóð svör og kvað ekki
mundu byrjað á neinni slíkri
byggingu, fyrr en gott samkomu
lag hefði náðst um staðinn. Það
er að segja, Reykvíkingar mega
þá vona, að ráðhúsi þeirra verði
ekki steypt ofan í tjörnina.
Aðra fyrirspurn gerði ég á
sama fundi. Hún var sú, hvers-
vegna væri sett stífla fyrir Kapla
skjólsveg, þar sem hann gengur
út frá Hringbraut. Við þessari
spurningu gaf borgarstjóri ekki
skýrt svar. Hann taldi þetta gert
vegna framtíðarskipulags Reykja
víkur og nefndi hráðbrautir, aðal
brautir, tengibrautir, húsagötur,
rólegheitagötur o. fl. Ég þóttist,
er ég fór að hugsa málið betur
seinna, í rauninni ekki hafa feng
ið neitt svar, við síðari fyrir-
spurn minni. Ég hef spurt álits
verkfræðinga, arkitekta, leigubíl
stjóra og margra íbúa við Kapla-
skjólsveg, Hringbraut og á Sel-
tjarnarnesi, en hvergi fengið önn
ur svör, en fólki þætti þetta
óskiljanleg hindrun á höfuðum-
Fosskraft
óskar eftir að ráða nú þegar tvo járniðnaðarmenn, vana rafal
niðursetningu.
Upplýsingar hjá ráðningarstjóranum, Suðurlandsbraut 32.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að undirbúa ýmsar götur í Smáíbúðahverfi
undir malbikun.
Otboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn 3000 króna
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 26. marz
n.k. kl 11 00 f. h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
AðstoSalœknar
Stöður aðstoðarlækna við lyflækningadeild Borgarspítalans
eru lausar til umsóknar. Upplýsingar varðandi stöðurnar veitir
yfirlæknir deildarinnar.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavíkur við
Reykjavíkurborg.
Stöðurnar veitast frá 1. júlí, 1. sept. og 1. nóv. 1969 í 6 eða
12 mánuði eftir samkomulagi.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur fyrir 20. apríl n.k.
Reykjavík, 14. 3. 1969.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavikur.
Góliteppobútar í bíla — ódýrt
Seljum á morgun og næstu daga 5 ferm. af bútum, sama lit,
pakkað sér i poka, á kr 750 pokinn. Takmarkað magn.
Álafoss
Þingholtsstræti 2.
ferðaæð frá norðri til suðurs og
út á Seltjarnarnes. Þetta kostar
strætisvagn, sem kemur norðan
Bræðraborgarstíg, 4 beygjur
fyrir 90° horn og lengri leið,
eftir götu sem er nýlögð og mjög
takmarkaða þýðingu hefur
(Meistaravellir). Þessi gata mun
aldrei geta haldið áfram suður
á Nesveg, vegna nýrra húsaþyrp
inga, sem þar verða á vegi.
Það er að vísu hægt að komast
út á Nes eftir Hofsvallagötu og
eftir Grandavegi vestast með
sjónum, en það gefur enga skýr-
ingu á lokun á miðbrautinni og
lagningu á Meistaravallagötunn-
ar til hliðar.
Lengi vel var Kaplaskjólsveg-
ur malárgata, oft nærri ófær bíl-
um í snjó og miklum hlákum,
en nú er hún orðin malbikuð
breiðgata, með steinsteyptum
brei'ðum gangstéttum beggja
vegna hinnar voldugu akbrautar.
Þannig byggja menn ekki húsa
götur eða rólegheitagötur, þar
sem slíkt mundi vera tilgangs-
laus feikna kostnaður.
Sumt af því fólki, sem ég hef
spurt um uppátæki þetta, hefur
nefnt að þarna byggju barn-
margar fjölskyldur og því slysa-
hætta mikil. Rétt getur það ver-
ið, en víðar er barnafjöldi en við
Kaplaskjólsveg og mætti þá loka
Sólheimum, Álfheimum, Lang-
holtsvegi, Kleppsvegi, Háaleitis-
braut og Lönguhlið o. fl. o. fl.
Sannleikurin er sá, að við
Kaplaskjólsveg (milli stórhýs-
anna þar) eru sérlega rúmgóð
svæði, sem börn geta haldið sig
á og langt í frá að þau þurfi að
vera á götunni að leik, fremur
en á fjöldamörgum ö'ðrum stöð-
um í bænum, þar sem umferð
er ekki síður mikil. Ekki get ég
annað séð, ef þessi er ástæðan,
en hér sé framin gróf misskipt-
ing og óréttlæti milli bæjar-
hverfa, enda alls ekki meiningin,
við vegalagninguna að fremja
slíka fjarstæðu, sem lokun á höf
uðbrautinni út á Nesið.
Látum svo vera, að lokað sé
um tíma einhverjum smágötum,
ef nauðsyn krefur, en að byggja
breiða samgönguæð, á þeim
stáð, sem sjálfsagður er fyrir
hraðbraut og alltaf hefur verið
aðalbraut út á Nesið og hlaða
svo allt í einu „Berlínarmúr"
fyrir stórslagæðina og mynda
blóðtappa í æðakerfi hverfisins
af því þarna datt einhverjum í
hug að hafa „rólegheitagötu"
fyrir fjölskyldu sína. Ég get ekki
skilið að nokkurt vit sé í því, eða
nokkur rök fyrir því.
Athugum þá framtíðarskipulag
Reykjavíkur. Þótt við höfum í
huga breytt gatnakerfi á þessum
slóðum í framtíðinni, þá er alveg
ástæ'ðulaust að stífla þessa höfuð
götu núna og virðist útilokað, að
það geti þjónað því sem koma
skal. Eða hefur nokkuð verið að-
hafzt, allan tímann síðan „múr-
inn“ var hlaðinn?
Ég veit að ég sendi þessa fyrir
spurn fyrir hönd fjölda fólks,
því svo marga hef ég rætt þetta
mál við.
Hversvegna ekki setja umfeiða
ljós upp á umræddum gatnamót-
um og leyfa umferðinni að ganga
á einfaldasta hátt?
Þrátt fyrir þetta allt gætu legi'ð
þau rök fyrir þessari umferða-
stíflu sem við höfum ekki komið
auga á og vildi ég því að lokum
eindregið skora á borgarstjóra,
eða fulltrúa hans í þessum mál-
um, að gefa skýr svör við fyrir-
spurn minni sem fyrst.
Hvað á lokunin á Kaplaskjóls-
vegi að þýða?
Stefán Pálsson.
Verzlunarstjóri
Verzlunarstjóri á aldrinum 20—35 ára óskast í sportvöru-
verzlun. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu í erlendum
bréfaskriftum og bókhaldi.
Umsóknir sendist Mbl., merktar: „Sölumennska 2937".
Nýjar sendingar
enskir kvon- og karlmannaskór, góð verð.
SKÓBÆR
•Laugavegi 20, sími 18515.
Veiðijörð
Landmikil veiðijörð um 6 km akstur frá Reykjavík er til sölu.
Heppileg fyriir félagssamtök.
Jörðinni tilheyrir veiðiá og mikið berjaland, 17 ha tún og
góð gripahús.
Upplýsingar gefur
Sigurgeir Jónsson,
Sími 41175.
Póskoferð í Öræfasveit
Upplýsingar hjá Bifreiðastöð íslands, sími 22300.
Guðmundur Jónasson.
Frá Verzlunarskóla Islands
Auglýsing um próf utanskóla inn í 3. bekk V. I.
Fyrirhugað er að halda inntökupróf inn i 3. bekk Verzlunar-
skólans á vori komanda fyrir nemendur sem gagnfræðaprófi
Ijúka í vor.
Prófað verður í þessum námsgreinum: Islenzku, dönsku, ensku,
þýzku. stærðfræði, bókfærslu. vélritun og landafræði.
Skráning fer fram á skrifstofu skólans og lýkur henni 30. apríl.
Blöð með upplýsingum um námsefni og prófkröfur fást á
skrifstofu skólans.
SKÓLASTJÓRI.
Litla Crund
í FEBRÚARMÁNUÐI bárust eft-
irtaldar gjafir: Vistkona áGrund
kr. 5.000.00. Margrét Albertsdótt-
ir kr. 200.00 — Lilja Margrét Jó-
hannsdóttir kr. 5.000.00 — S. J.
kr. 200.00. — Samtals krónur
12.400.00. Eru því nú um mánaða
mótin komnar á hlaupareikning
nr. 19 hjá Búnaðarbanka íslands
samtals krónur 74.089.93.
Gefendum færi ég beztu þakk-
ir fyrir skilning þeirra og vel-
vild. Ef til vill skilja það fáir,
nema þá helzt þeir, sem komnir
eru á efri ár, hversu oft erfitt
það er, að vera að reyna að vekja
áhuga á málum ellinnar. Unga
fólkið hefur nægan tíma — elli
kerling, hún er hvergi nærri. Mið
aldra fólkið hugsar flest sem svo
— við sjáum um okkur sjálf á
sínum tíma eða börnin gera það.
Allt tal og ráðagerðir um elli-
heimili vill það ekki hlýða á —
nema þegar það er komið sjálft
í vandræði með foreldra sína eða
aðra nánustu vandamenn, þá er
nú málið öðru vísi. — Hvers
vegna er ekkert. vistpláss? Af
hverju hafa fleiri elliheimili ekki
verið reist — af hverju eru alls
staðar allar dyr lokaðar. Svarið
er ofur einfalt. Fólk er yfirleitt
svo sinnulaust í þessu, sem öðru
Allt er látið reka á reiðann og
svo á að gera allt á svipstundu,
þegar í vandræðin er Komið.
Þess vegna er nú farið að safna
fé í nýtt elliheimili Sumir telja
reyndar að elliheimili séu úr-
elt og bezta og eina lausnin sé,
að blessað fólkið verði í heima-
húsum. Einfalt ráð, en ég held
að slíkt sé þó oft ráðleysi — ög
stundum hrein vitleysa.
Litla Grund — hún kemur —
en hvenær? Um það hafið þér
lesandi minn atkvæði með fjár-
framlagi yðar. Án efa hafið þér
í morg horn að líta og erfiðleik-
ar eru framundan á ótal sviðum.
En þrátt fyrir allt þá ætti það
að vera létt verk, að safna sam-
an talsverðu fé til þess að leysa
úr vandræðum fólksins, sem braut
ina ruddi og nú er orðið lúið,
þreytt og oft lasburða, æði margt
— ef áhugi er fyrir hendi og
fórnarlund.
Ekki mun ég oft skrifa svona
blaðagrein. Mér þykir það leitt,
en það er þó nauðsynlegt. Við
gefum yður tækifæri til þess að
vera með í, að koma upp Litlu
Grund — einhvern tímann verð-
ið þér þar ef til vill sjálfur eða
nánustu vandamenn.
Gísli Sigurbjörnsson.
SAMKOMUR
Samkoma
verður í Færeyska sjómanna
heimilinu sunnudaginn kl. 5.
BAHCO
Heimilis-
viftur.
BAHCO
'hankett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hljóð og velvirk, hefur varan-
legar fitusíur, innbyggt Ijós og
rofa. Falleg og stílhrein. Fer
alls staðar vel.
BAHCO
SILENT
er ágæt eldhúsvifta á útvegg
eða í rúðu, en hentar auk þess
alls staðar, þar sem krafizt er
góðrar og hljóðrar loftræst-
ingar.
BAHCO ER SÆNSK GÆÐAVARA
fyrsta
FLOKKS
FRÁ ....
SÍMI 2-4420 - SUÐURG. 10 - RVÍK