Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 15

Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ líMiS 15 Fraklcar ætla að hundsa WEU París, 14. marz — AP-NTB DE GAULLE Frakklandsforseti, sagði Kurt Kiesinger, kanzlara Vestur-Þýzkaiands, í dag, að Frakkar mundu ekki sitja fundi Vestur-Evrópubandalagsins (WEU), þar sem þeir teldu að stofnskrá bandalagsins hefði ver- ið brotin, að því er talsmaður frönsku stjórnarinnar skýrði frá í dag. Bandalagið, en aðild að því eiga Bretland og hin sex aðild- arríki Efnahagsbandalagsins, héldu nokkra fundi í London ný- lega um ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs þrátt fyrir mótmæli Frakka. í lok tveggja daga viðræðna Kiesing- ers og de Gaulles í dag sagði Frakklandsforseti: „Þar sem stofnskráin hefur verið brotin sækjum við ekki fleiri fundi“. De Gaulle sagði Kiesinger, að hann hefði ekki ætlað að taka þetta miál fyrir en orðið að gera það úr því að hann vakti máls á því. „Ég hef ekki minnzt á Vestur-Evrópubandalagið, en þar sem þér hafið minnzt á það vil ég segja yður, að við höfum eng- an áhuga á þessu máli“, sagði de Gaulle, að sögn talsmanns frönsku stjórnarinnar. Garöeigendur Ennþá er hægt að afgreiða fydr vorið hin vinsælu dönsku HB GRÓÐURHÚS • HB gróðurhúsið lengir sumarið um tvo til þrjá mánuði. • HB gróðurhúsið er auðvelt í uppsetningu. • HB gróðurhúsið er til sýnis að Suðurlandsbraut 12 í verzl- uninni Valviður í dag, sunnudag frá kl. 1 til 6 eftir hádegi. INNFLYTJANDI. HEIMSMET í BRUNATJÓNI? Á ÍSLAND HEIMSMET í BXUNATJÓNI? Við vitum það ekki, en víst er, að tjón af völdum elds hefur verið gífurlegt hér á landi undanfarin ár. Þér vitið, að eldsvoði gerir ekki boð á undan sér, og þess vegna hafið þér brunatrygginguna ævinlega í lagi. En hafið þér tryggingu gegn ÚTBREIÐSLU elds í húsnæði yðar? Þá tryggingu getum við boðið yður. Hún heitir ASBESTOLUX eldtraust klæðning á veggi, loft, kyndiklefa, stálbita o s frv., o. s. frv. ASBESTOLUX er einkar þægilegt í allri meðferð. Það má saga, negla, skrúfa, bora og fasa með venjulegum handverkfærum. Venjuleg plötustærð: 122x244 sm. Loftflisar: 61x61 sm. SPÁIR BREYTINGUM Á blaðamannafundi sagði Kies inger að de Gaulle væri enn mót fallinn aðild Breta að Efnahags- bandalaginu, en þó kvaðst hann vera ánægður með viðræðurnar og sambúðina við Frakka þrfátt fyrir ágreining, sem ríkt hefði í viðræðunum. í viðræðunum hvatti de Gaulle til þess að Efna- hagsbandalagið yrði eflt og að dregið yrði úr spennunni í Evrópu. De Gaulle spáði því að deilur Rússa og Kínverja gætu gerbreytt samskiptum austurs og vesturs og sagði, að Rússar virt- ust hafa meiri áhyggjur af ógn- uninni frá Kína en erfiðleikum sínum í vestri, að sögn vestur- þýzks talsmanns. Hann sagði, að Rússar vildu auka samskipti sín við Vesturlönd og hvatti til þess að því yrði tekið vel. Hann sagði, að Bandaríkjamenn hefðu of margra skuldbindinga að gæta, en lagði á það áherzlu að engin sundrung ríkti innan Atlantshafs bandalagsins þótt Frakkar hefðu dregið sig út úr hernaðarsam- vinnunni. Forsetinn lagði áherzlu á nauðsyn einingar Evrópu og sagði, að þessi eining yrði að þróast í nánum tengslum Einkaumboð á islandi: Netasalan h.f., Ægisgötu 10. Sími 14690, pósthólf 128, Reykjavík. Lager & dreifing: Byggingavöruverzlun Kópavogs, Kársnesbraut 2, Kópavogi. Sfmar: 41849 & 41010. Upplýsingar einnig gefnar hjá Byggingaþjónustu Arkitektafél. islands, Laugavegi 26, Reykjavík. Sími 22133. Rambler American „440" 4ra dyra 1969 2ja mán. afgr.t.) Ásetlað verð: sem einkahíll um kr. 565.000 — sem leigubíll um kr. 487.000.— Beztu bílakaupin í dag: IGN LOITSSON HF. Hringbraut 121, sími 10600 Pantið Rambler American ‘69 STRAX FYRiR VORiÐ Getum af sérstökum ástæðum boðið nokkra nýja Rambler American af 1968 árgerðinni með niðursettu verði frá verksmiðjunum og því er hér ÖRUGGLEGA um beztu bílakaupin í dag að ræða. Einnig getum við boðið yður betri kjör á þessum örfáu American bilum, — sem eru til afgreiðslu strax — en nokkru sinni fyrr og/eða upprtöku gamla bílsins. Aætluð verð „á götuna" með söluskatti, tectyl, ryðvörn, standsetningu og hinum frábæra „Standard" Rambler American útbúnaði, er sem hér segir: Rambler American „220“ 2ja dyra um kr. 409.000.— — — „220“ 4ra dyra um kr. 430.000.— — — „440“ 4ra dyra um kr. 467.000.— Til leigubílstjóra: Rambler Amcrican „220“ 4ra dyra um kr. 370.000.— — — „440“ 4ra dyra um kr. 399.000.— Munið að Rambler American er í dag — eins og undan- farin ár — einn eftirsóttasti bíllinn hérlendis enda styrk- leikinn og sparneytnin viðurkennd. — Sýningarbílar RAMBLER GÆÐI - RAMBLER KJÖR - RAMBLER ENDING Aðeins örfáir bílar eftir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.