Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969
21
inni á meðan þessi maður lifir
þar.“
Þetta er sannarlega frábær
lýsing! Hvernig hún kallar
fram í vitundina þennan ó-
venjulega mann — mann alls
mannkyns, eins og Gorky lýs-
ir honum á öðrum stað, einn
þessara jötna, sem heimsækja
jörðina öðru hvoru og eiga við
hana einhver einstæð samskipti
eiga einhvern einstæðan skiln-
ing á meðbræðrum sinum og
lifsafli alheimsins, sem við eig-
um öll hlutdeild í. Mér finnst
einnig, að ég sé ekki munaðar-
laus á jörðinni fyrst Tolstoy
hefur einu sinni lifað þar. Og
ég verð að segja, að hin há-
leita snilli þessa manns og það
Rússland, sem hann bæði tákn-
ar og túlkar svo óviðjafnan-
lega, hrifu rnig af meira afli
en nokkru sinni fyrr, þar sem
ég sat, heillaður, í hálftómu
kvikmyndahúsgímaldi í París,
og horfði á breiðtjaldsmynd í
skínandi litum af persónum og
atburðum hins mikla þjóðlega
hildarleiks sem hann mótaði úr
sitt stærsta og frægasta skáld-
verk.
Hvernig myndi honum hafa
fundizt hún? Grófgerð og
klunnaleg, býst ég við — eink
um persónumeðferðin. Það er
að vísu rétt að Napoleon er í
kvikmyndinni fremur hlægileg
afbökun, engan veginn eðlileg
persóna. En Napóleon er ekki
mikið beysnari í skáldsögunni,
þrátt fyrir yfirborðs heims-
mennsku hafði Tolstoy megna ó
beit á útlendingum (og jafnvel
enn meiri óbeit á Rússum eins
og Turgenév, sem bjuggu er-
lendis, töluðu frönsku og tóku
upp útlenda siðu) og hann ger-
ir Napoleon að tilgerðarlegu
flóni — sem hann getur vel
hafa verið!
Kutzov kom glæsilega fyrir
sjónir í kvikmyndinni — hann
er allavega stórbrotið hlutverk
fyrir skapgerðarleikara, Natas
ja er dásamlega óleikkonuleg
— í tilgerðarlausri kæti sinni
á dansleiknum fræga þar sem
hún verður ástfangin af And-
rei prinsi, svo áhrifamikil í
sorginni þegar hún, læknuð af
fyrri villu, hjúkrar honum á
banabeði. f skáldsögunni er
hún sem ung stúlka sjálf hold-
tekja hamingjunnar, eitt atriði
sem er mér ávallt í fersku
minni, er þegar hún og bróðir
hennar Nicholas og hin trygg-
lynda Sonya heimsækja gaml-
an veiðimannakofa á kaldri,
bjartri vetrarnótt. Ég efast um
að nokkursstaðar í heimsbók-
menntunum sé að finna sam-
bærilega lýsingu á ungri, leiftr
andi hamingju — hamingju, sem
Natasja hugsar um á leið heim
í sleðanum, að muni aldrei koma
aftur — sem ekki heldur varð.
í Natösju sé ég endurspeglast
minningar Tolstoys um konu
sína, Sonyu, á yngri árum, en
eins og við vitum uppfyllti hið
langa hjónaband þeirra, sem
gat af sér stóran hóp fyrir-
ferðarmikilla barna, hvergi
nærri þau hamingjufyrirheit,
sem lagt var upp með.
Áreiðanlega hefur ekkert
hjónaband í sögunni verið skrá
sett jafn rækilega. Tolstoy fólk
ið skrifaði allt dagbækur af
miklum móð. Eftir háttatíma á
kvöldin í Yasnaya Polyana var
það allt párandi, ef það var þá
ekki á vakki fram og aftur til
að stelast í bækur hvers ann-
ars og kíkja á nýjustu dag-
bókarbrotin. Allar þessar dag
bækur hafa varðveitzt og verið
gefnar út. Þannig vitum við að
segja má allt, sem hægt er að
vita um sambúð Tolstoys og
konu hans, að smávægilegustu
ástalífsatriðum meðtöldum. Það
er saga ófriðar og óhamingju
sem nær hámarki sínu í hinum
síðasta, æðisgengna flótta hans
frá Yasnaya Polyana og Sonyu
og dauða hans í litlu húsi
stöðvarstjórans í Astapovo, ó-
þekktu járnbrautarþorpi, sem
dró að sér athygli alls heims-
ins á meðan Tolstoy hafðist þar
við.
Vandamál þeirra voru — eins
og flest slík vandamál — aðal-
lega út af ástalífi og pening-
um. Eftir því sem þrá hans varð
sterkari til lífernis eftir bók-
staflegri forskrift Nýja testa-
mentisins, ágerðist óbeit hans á
því yfirstéttarlífi, sem þau
lifðu, unz að því kom að hann
seldi — eins og Lear konung-
ur — allar eignirnar í hendur
fjölskyldu sinnar, með svipuð-
um óheilla afleiðingum og Lear
varð að taka. Orwell taldi að
það væru þessar hliðstæður í
örlögum Lears konungs og Tol-
stoys sjálfs, sem gerðu hann
frábitinn leikritinu — og raun-
ar öllum verkum Shakespeares.
Þetta kann að vera rétt. At-
burðasviðið í Astapovo minnir
vissulega á Blasted Heath.
Tolstoy — sem var mjög
hvataríkur maður — háði einn-
ig harða baráttu við losta sinn.
Hann þráði að ganga veg
Krists og deyja í holdinu til
að endurfæðast í andanum en
þá urðu hvatirnar honum yfir-
sterkari og ráku hann ósjálf-
bjarga út í trylltar, lostafull-
ar athafnir með konu sinn en
á eftir æddi hann hamstola um
svefnherbergi þeirra hjóna,
kveinaði „Vei! Vei!“ og reif
skegg sitt. Þetta getur varla
hafa verið greifaynjunni ti'l
mikillar ánægju, og því síður
sem hann hafði lagt böð og lí-
kamshirðingu á hilluna í þeirri
ástríðu sinni að líkjast muzh-
ikunum í einu og öllu, en sjálf-
um var honum bæði athöfnin
og eftirköstin til sárrar kval-
ar.
Hann var tvískiptur maður
með heita þrá í brjósti eftir
kristilegri góðsemi og friði en
ekki síður ríkt fegurðarskyn
og ást á jarðnesku lífi. Enda
þótt honum tækist aldrei að
fullu að sameina þessar þrár,
var það togstreita þeirra sem
mótuðu ævisögu hans sjálfs og
skáldverk (en þetta tvennt er
svo samtvinnað að ógerlegt er
að greina á milli þess sem fyrir
hann kom og þess sem hann
ímyndaði sér að gerðist).
Þegar í „Stríð og friður“ má
greina vísi að mörgum þeirra
siðrænu viðfangsefna, sem
fylltu hug hans síðarmeir. Það
er töluvert af honum sjálfum
í þremur persónanna — hinum
einlæga, ráðvanda Pétri, rauna
riddaranum Andrei og hinum
áhyggjuausa Nikuási. í mynd-
inni koma skapgerðareinkenn-
inl, sem fengin eru frá höfund-
inum skýrt fram hjá leikurun-
um þremur, sem fara með þessi
hlutverk. Pétur er klunnaleg-
ur, klaufskur og miður sín í
samkvæmislífinu eins og Tol-
stoy var oft, Andrei gengur á
vit sinna grimmu örlaga, hátt
hafinn yfir lítilfjörlegt dægur-
þras og leitar hetjudauða,
Nikúlás lætur hverjum degi
nægja sína þjáningu og kvæn-
ist að lokum hinni dyggðugu,
ófríðu og flugríku Maryu Bolk
onsky, verður iðjusamur óðals-
bóndi. Blandið þeim öllum sam-
an og margfaldið með milljón
— eða ef til vill billjón — og
útkoman verður Tolstoy, og samt
var hann svo miklu meira —
og jafnframt miklu minna.
Hið mikla sögúlega baksvið
er, eins og kemur svo prýði-
lega fram í myndinni, hin
þrjózka og hetjulega varnar-
barátta Rússlands — seinlátur,
þrákelknislegur muzhik gegn
örlyndum og kvikum poilu,
Kutuzov gegn Napoleon, slav-
neskur gegn rómönskum. Við
sem höfum horft á líkan hild-
arleik, leikinn á svipaðan hátt,
eigum gott með að skilja. Mað-
Atvinno óskast
Ungur maður vanur skrifstofu-
og verzlunarstörfum óskar eftir
atvinnu sem fyrst. Tilboð send-
ist Morgunblaðinu merkt „At-
vinna 2886”.
VX-6
CADMIUM
lögurinn eyðir súlfat-
myndun í rafgeymi
yðar, eykur endingu
geymisins um ÁRABIL
og tafarlausa ræsingu.
Heldur Ijósunum jöfn-
um og björtum.
Fæst hjá öllum benzín-
afgreiðslum.___
NÚ ER
VOLVO
ORÐINN ENNÞÁ FULLKOMNARI
Sterkari vél.
Forhitari fyrir blöndunga.
Ryðstraumsrafall.
Nýtt áklæði, hlýtt á vetrum.
Sjálfvirk, hitastýrð vifta á stærri vélinni.
Ýmsar aðrar nýjungar.
VOLVO P 142
VOLVO P 144
VOLVO P 145
VOLVO AMAZON
Sýningarbíll, árgerð 1969, á staðnum.
ur bjóst nærri því við skrið-
drekum í st-að hesta, gráum ein-
kennisbúningum í stað blárra.
Hliðstæðan hlýtur vissúlega að
hafa staðið þeim fyrir hugskot-
sjónum, sem gerðu myndina.
Auk skáldsögunnar, sem hún
er byggð á dregur hún fram
stóratburði úr hinni raunVeru-
legu sögu Rússlands. Hún er
ljóslifandi saga, séð yfir, ekki
aðeins hálfrar annarrar aldar
tímabil, heldur bilið milli
tveggja ólíkra heima.
Tolstoy var sá fyrsti af hin-
um miklu, klassisku rithöfund-
um Rússa, sem fékk aftur náð
fyrir augum byltingarmanna,
en Dostoévsky kom í humátt-
ina á eftir. Enda þótt hug-
myndir hans væru bölvun í
augum Lenins (eins og hug-
myndir Lenins hefðu áreiðan-
lega verið honum hefði hann
þekkt þær) var frægð Tolstoys
slík, að hann var viðurkennd-
ur, ef ekki tignaður, af hinni
nýju stjórnskipun frá byrjun.
Yasnaya Polyana var haft op-
ið eins og safn — þegar ég var
í Moskvu hitti ég meira að
segja eina dóttur hans, sem var
gáfur af bókum hans, frá því
fyrir byltinguna, gengu manna
í milli og voru lesnar með á-
kefð. Síðar komu nýjar, glæsi-
legar útgáfur í stríðum straum
um frá prentsmiðjunum.
Það er undarlegt að hugsa
til þess að Tolstoy greifynja
lifði það að sjá byltinguna,
hann var horfinn — og þó ekki.
Slíkir menn hverfa ekki í raun
og veru.
ATHAFN
MENN
Nýjung í snióum,
valin efni og ekki
sízt NOBELT mittis-
strengurinn, fóðr-
aður, mjúkur við-
komu og alltaf jafn-
strengdur, gera
Activity nærföt að
sérstakri gæða vöru.
Ásamt milljónum
manna um allan
heim, hljótið þér
aukna vellíðan þeg-
ar þér notið Activity
nærföt.
☆
ENSKIR
FRAKKAR
*
NÝJAR
GERÐIR
☆
^A&í'ftclhúttttnÍAJcó
HERRADEILD