Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 22

Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969 — Hugsun, ... Framhald af bls. 10 siðaprédikanir, en móralskar engu að síður. SÖgur eins og Brúin, Örðug- asti hjallinn og Á vegamóturn, lýsa því hvernig þokan greiðist sundur í samskiptum manna. Mis skilningur og heimska verða að víkja fyrir nýrri sýn. En það væri ekki sanngjarnt að halda því fram, að sögur Kvarans væru eingöngu dæmi- sögur, til dæmis um sigur kær- leikans, hátíðlegur boðskapur fyrst og fremst. Sagan í sjálfri sér er honum of hugstætt tján- ingarform, listræn íþrótt, til þess að hann gleymi því að bregða á leik. Kímni hans lejmir á sér, eins og sjá má á sögunum Marjas og Vistaskifti. Alvaran er mikil í þessum sögum en kátínan undir niðri, fjörlegar og hressandi per- sónulýsingar og atburða. í mann- lífsmyrkrinu birtast stundum leiftur annarrar ættar en vá- boðar tilverunnar. Drengurinn í Vistaskiftum sér rofa til um leið og brennivínið er komið ofan í húsbónda hans. Drengurinn í t Eiginmaður minn Guðjón Vilhjálmsson húsasmíðameistari, Úthlíð 11, Reykjavík, andaðist á Landakotsspítala 14. marz. Guðriður Rósantsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginkona mín, móðir og fóst- urmóðir okkar Ólöf Aðalbjörg Jónsdóttir Dunhaga 18, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 18. marz kl. 10.30. Hörður Hjálmarsson, Sveinbjörn Björnsson, Annabella Keefer, Anna Hjálmdís Gísladóttir. t Útför sonar okkar og bróður, Kjartans Sölva Ágústssonar, Ljósheimum 10, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. marz kl. 3. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélagið. Vandamenn. t Útför eiginkonu minnar, móð- ur okkar, tengdamóður og ömmu Sigurveigar Magnúsdóttur Bergstaðastræti 61, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. þ.m. kl. 3 e.h. Karl Þorvaldsson, Magnús Karlsson, Þórhiidur Karlsdóttir, Þorsteinn Sigurðsson, Karlotta Karlsdóttir, Einar Asgeirsson, Magnea Karlsdóttir, Sigurbjöm Guðjónsson, Guðlaug Karlsdóttir, Karl Sölvason, Þorvaldur Ó. Karlsson, Erla Jónsdóttir og barnabörn. Marjas kemst að þeirri óþægi- legu staðreynd hverju skáldskap- urinn getur komið til leiðar, en uppgötvar um leið nýtt vopn. í öðru bindi Ritsafnsins eru skáldsögurnar Ofurefli og Gull. Ofurefli kom út 1908, Guill, sem er beint framhald Ofureflis, var prentuð 1911. Ofurefli er lengri og viðameiri skáidsaga en Gull. Gull er aftur á móti uppgjör við persónur Ofureflis, og verður öll um, sem kynnst hafa þeim, svo spennandi lestur að jaðrar við skemmtisögu. En það eru sann- arlega engin skemmtitíðindi, sem Gull flytur, þó sagan sé sáttar- gjörð við lífið og manneskjurnar eins og svo oft hjá Kvaran. Eitt af því, sem gerir þessar skáldsögur sérstæðar í íslenzkum bókmenntum, er það svið, sem Kvaran velur þeim. Þær eru báð- ar Reykjavíkurskáldsögur, lýsa daglegu lífi í Reykjavík forðum daga um leið og þær fást við að kryfja til mergjar mannilega galla. Ungur prestur kemur frá útlöndum til höfuðstaðarins full- ur af nýjum hugmyndum og vilja til að láta gott af sér leiða. Hann verður fljótle’ga var við andúð og rógburð. Þeir, sem hafa komið honum 1 embætti dóm- kirkjuprests, snúast harðast gegn honum vegna þess að hann ógnar lífsmynd þeirra og sið- venjum. En hann berst við ofur- eflið, allt eðli hans er þannig að hann herðist við hverja raun og bugast ekki. Gegn prestinum er stefnt lítil- mótlegum persónuieikum, en í höndum Einars H. Kvarans eiga þeir sínar góðu hliðar; jafnvel þeir, sem verstir eru o.g blindast- ir á vald sitt, eru manneskjur undir niðri 'og það gerir það að verkum, að þótt sögurnar séu að t Útför sonar míns og bróður okkar Helga Kristjánssonar Skólavörðustíg 3, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. marz kl. 3 e.h. Steinunn Jónsdóttir og systkin hins látna. t Bróðir okkar BöSvar Sveinsson frá Laufskógum 9, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju mánudaginn 17. marz kl. 1.30. Snorri Sveinsson, Jón Sveinsson. t Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir afi, bróðir og mágur Pétur Björn Jónsson Njálsgötu 20, sem lézt af slysförum 6. marz, verður jadðsunginn frá Foss- vogskirkju mánudaginn 17. marz kl. 3 e.h. — Blóm af- þökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Slysa- varnafélag íslands. Vilborg Torfadóttir, Lilja Björnsdóttir, Matthildur Kelley, Jón Pétursson, Kristinn Pétursson, Hafdís Pétursdóttir, Sveinn Pétursson, Ingibjörg Pétursdóttir, Bjarni L. Pétursson, barnabörn og aðrir ættingjar. vissu marki ádeilusögur, hrinda þær ekki lesandanum frá sér, hetldur efla þann boðskap, sem höfundurinn hefur að flytja. Hvað þetta varðar og reyndar margt annað hjá Kvaran gætu ungir skáldsagnahöfundar af honum lært. En það er ekki öll um gefin sú menningarlega hóf- semí og víðsýni, sem setur mark sitt á verk hans. í miklu ríkarj mæli en í smá- sögunum, leyfir Einar H. Kvar- an sér í skáldsögum sínum að draga fram fjölda persóna, fá ýmsum aukahlutverk í þeim ör- lagaleik, sem á sér stað í bæn- um. Þessar persónur eru margar litríkar, ólga áf lífi og verða sum ar hverjar jafn minnisstæðar og þær, sem meira pláss fá. í upphafi Gulls málar Einar H. Kvaran sína „fögru veröld“ ein.s og Tómas Guðmundsson síðar. „Ekkert er Reykjavík gefið í jafn-ríkum mæli eins og yndis- legir litir. Þær nægtir eru ótæm- andi“. Og Kvaran heldur áfram: „Á björtum sumardegi, eins og þeim sem nú s’kal sagt frá, er alt blátt, öll hin mikla umgjörð Reykjavíkur blá,. himinninn blár, hafið.blátt, fjöllin blá — alt hjúp að blárrj töfraskikkju — ekki ein litri samt — skikkju með.ótelj- andi litbrigðum, alt frá dökk- bláma suðurfjallanna, sem stund- um er nærri því sorti, upp í ljós- bláma lognrákanna, sem er nærrj því hvítur — alt blátt, blátt, yndislega og undarlega blátt“. Einar H. Kvaran er ekki spar á að lofa dýrð Reykjavíkur þegar hann semur náttúruilýsingar, sem annars eru sjaldgæfar í verkum háns. .ÞáU fjalla fyrst og síðast um það, sem gerist í djúpi manns hugans. Tíminn lætur það ekki .verða ryði að bráð. sem er jafn vand- lega úr garði gert og skáldsögur eins og Ofurefli og Gull. List Kvarans kemur hvergi betur í ljós en í því hvernig hann endar sögur sínar. Án væmni og langra heilabrota yfirgefur hann sögu- persónur sínar, skilar þeim í hendur lesandans til nýrrar s'koð- unar. Aðferð hans er mjög nú- tíma/leg, fersk. Einnig að því leyti eins og svo mörgu öðru, var Einar H. Kvaran á undan samtíð sinni, bjó í haginn fyrir unga rithöfunda, sem erfðu land ið. í minningu aldarafmælis Ein- ars H. Kvarans sá Tómas Guð- mundsson um útgáfu bókar, sem hann kallaði Mannlýsingar og Almenna bókafélagið lét prenta. Þessi bók, sem er mjög aðgemgi- leg, 'geymir aðallega ritgerðir Kvarans um samferðamenn, m.a. hina merkilegu ævisögu Gests Pálssonar eftir hann. Mannlýs- ingum fylgir ítarleg grein eftir Tómas Guðmundsson: Nokkur orð um Einar H. Kvaran. Af mörgu skarplegu, sem þar er sagt um Einar H. Kvaran og skáldskap hans, er mér einna minnisstæðaat það, sem Tómas segir um stíl hans: ,.Le style est l’homme — stíll- t Útför eiginmanns míns Jóhanns Einarssonar frá Siglufirði, sem andaðist 9. marz fer fram frá Keflavíkurkirkju mánu- daginn 17. marz kl. 2. Dagbjört Sæmundsdóttir. t Útför Þóru Eiríksdóttur Hringbraut 103, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. marz kl. 3 e.h. Vandamenn. inn er maðurinn. Þessi setninig kemur iðulega fram í hugann, þegar lesin eru rit Einars H. Kvarans. Fáir höfundar eru jafn- auðkenndir af stílfari sínu, og samt er stíllinn sjaldgæflega hljóðláfcur, laus við málskrúð og hátíðleik, engin torkennileg orð hrópa upp úr setningunum, öllu er þar haldið í skefjum, stillit í hnitmiðað hóf; höfundurinn kann til hlítar þá list að láta frernur vansagt en ofsagt. Og rödd stílsins er af sama toga. Það er einföld lifandi tunga, mælit mál, framgengið af vörum hins siðmenntaða nútímamanns." Mér finnst Tómas hafa með þessum orðum fyllilega svarað því, sem fram kemur í útvarps- erindi Einars H. Kvarans á 75 ára afmæli hans 6. desember 1934: „Einn af ágætustu mennta- mönnum vorum hefur fyrir fá- um dögum sagt það um mig í blaðagrein, að efnið, hugsunin sé mér meginatriðið, mikilvæg- ara en búningiurinn. Ég get sam sinnt því. Reyndar er óvandað- ur búningur, svo sem subbuleg íslenzka mér þjáning.“ Sigurður Arnalds segir í for- mála þess Ritsafns Einars H. Kvarans, sem nú er hafin út- gáfa á: „Að ráði sérfróðra manna hefur verið fylgt staf- setningu höfundar og einnig merkjasetningu hans — eða lestrarmerkjum — til þess að raska í engu persónulegum stíl hans og frásagnarmáta. Þannig talaði hann og þannig skrifaði hann og haggaði sjaldan orði, eftir að hann hafði fest hugsanir sínar á blað.“ Þetta er önnur heildarútgáfa á verkum Einars H. Kvarans, sú fyrri kom út 1943 — 1944 og sá Jakob Jóhannesson Smári um hana. Heildarútgáfan nýja verð- ur sex bindi. Séu fáeinar prent- villur undansikildar er Ritsafnið útgefenduim til sóma. Það er til dæmis greiði við lesendur að skýrt er frá fyrri prentunum c’ftan á titilblaði hverrar sögu. Flest, sem útgáfunni viðkemur, vitnar um alúð og virðingu fyrir verikum Kvarans. Sú þjóð, sem efcki kann að meta það tífvænlegasta í skáld- skap Einars H. Kvarans, á skilið að heita menningarlegt rekald. Vonandi verður það elkki hlut- skip*i íslendinga að missa sjónar á einum af merkustu skáldsagna- höfundum sínum á þessari öld. Jóhann Hjálmarsson. — Eyíirzk fræði Framhald af bls. 10 Þátturinn af Ólafi timburmeist ara er líka eyfirzkastur alls efnis bókarinnar: Ólafur var ekki að- eins fæddur Eyfirðingur, hann varði líka kröftum sínum til heila því héraði. Auk þess má saga Ólafs skoðast sem nokkur kapí- tuli í búnaðarsögu þjóðarinnar: með Ólafi tekur að gerast tíðara, a’ð bændaefni búi sig undir ævi- starfið með einhverju námi, og hefur smíðanám þá að sjálfsögðu komið í góðar þarfir, þar eð bóndi varð að vera sjálfum sér nógur, smiður, kóngur, kennar- inn, eins og þar stendur. í þættinum af Ólafi timbur- meistara er meðal annars að finna nákvæma lýsingu á húsa- skipun á Grund ,.á fyrri hluta 19. aldar og um daga Ólafs timbur- meistara", og er sú lýsing í sjálfu sér gagnleg, svo fáir sem þeir standa nú eftir, gömlu bæirnir. Síður kann ég að meta marg- endurteknar tilvitnanir í kveð- Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig méð heimsóknum, gjöfum og skeytum á sjötugs- afmæli mínu 12. marz. Sér- staklega þakka ég forstjóra og starfsfélögum í vélsmiðjunni Héðni. Guð blessi ykkur öll. Þorsteinn Þórðarson frá Stakkhamri. Hringbraut 115. R. skap Ólafs og þaðan af síður kveðskapinn sjálfan, sem séra Benjamín tilfærir óspart; frá- leitlega hefur það vísnastagl ver ið ætlað til prentunar og lestrar fyrir hvern mánn. Torfbæirnir eru nú flestir horfnir og gleymdir, en á vísum frá fyrri tíð er enginn hörgull, síður en svo, og varla bætandi á þau kynstur lausavísna, sem prentaðar eru á víð og dreif í ótal ritum. Vafasamt er líka, að minning nokkurs manns sé sæmdarauki að vísum eins og þeim, sem Ólafur á Grund hefur kastað fram, þær bera ekki annars merki en hversdagslegrar fjölda- framleiðslu, eða eins og séra Benjamín arðar það: „vísnagerð var heimilisiðnaður á Grund sem börnin lærðu og tömdu sér næst um því frá því þau fóru að tala“. (Valdimar sálmaskáld var sonur Ólafs timburmeistara). Ég hef sagt hér í stuttu máli kost og löst á þessum þáttum séra Benjamíns, eins og þeir koma mér fyrir sjónir. í formála bókarinnar segist höfundur vona, „að fleiri Eyfirðingabækur megi á eftir koma,“ og finnst mér sak laust að taka undir þau orð, þar eð sæmilega er hér af stað farið. Og vitaskuld hefur hver bók af þessu tagi gildi fyrir sitt hérað auk hins almenna gildis. Um hlut útgefanda er það að segja, að hann hefur vandað sitt verk, eins og hans var von og vísa. Kápumynd í litum sýnir þekka bygg’ð Eyjafjarðar á lognkyrru sumarkvöldi. Erlendur Jónsscn. - HLJÖMPLÖTUR Framhald af bls. 10 en einhvernveginn verður þessi þáttur ökki ýkja minn- isstæðuir. Næstu 7 lög sjmgur Karla- kórinin, flest al'kuinn verk sjs. „Nú sefur jörðin sumargræn“, „Litla skáld á grænni greiin“, og „Ég lít í anda liðna tíð“, en þar syngur einsöng Herdís Jónsdóttir, sópran. Að lokuim er svo „Sverriir koniunigur“ í úteetninigu sönigstjárans. Söng ur ikairlakórsins er yfirleitt sléttur og feldur og honum hæfir greánillega mýktin bet- ur en krafturimn, enda velur sönigstjóri verkeifm skv. þvi. EJkki er óbrigðult að dæma uim einstaika raddir af upp- tökum, þar sem þá korna til sögunmar tækni'leg atriði s. s. staðsetn img hljóðmema, en af þessari plötu mætti álykta að temóraimir séu vei'kasti hlekk- ur kórsins. Er þá komið að þriðja hluta, þætti Sunnuikórsins. Þær synigja 8 lög þ. á. m. „Kata litla í koti, Vor í dail, Den farenda Svend, Sofnar lóa, Nina Nana Ladisna“, lag og texti eftir Sigurð Demeitz Frainzson, seinast er avo Ave Maria efti-r Schubert. Það er auðheyrt, að kanurnar í Sunmiukórnum hafa mikla ánægju aif söng sínum, því sönggleði fyriirfinmst í sér- hverjum tón og þær hafa á valdi sínu makkur blæbrigði all't frá gázka og glettni til Ijóðrænnar mýktar og ekki fænrd en 5 einsöragvarar koma fram með Herdísá Jónsdótur í fanarbroddi. Þaranig er það Sunnukórinn, sem mest legg- uir að mörkum til heiðurs Ragnari H. Ragnars. Um undinleik sér Hjálmar H. Ragnansson og er hann nok'kuð 'hrjúfur í leik sínum. Hljóðritun fór fram í Útvarp inu en plötuhuilstrið, sem teikraað er af Hafsiteinii Guð- mundssyni, er uninið í Erag- landi og er þar um snotrar uimbúðir að ræða, sérstafclega þó myndin af ísafirði, en hana tók Mats Wibe Lund. Haukur Ingibergsson. Schannongs minnisvarðar Biðjið um ókeypis verðskrá. ö Farimagsgade 42 Köbenhavn ö.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.