Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 28

Morgunblaðið - 16.03.1969, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969 ekkert til að drekka í hús- inu. Hann elti hana inn og lokaði dyrunum á eftir sér. Hún stik- aði fram og aftur og reyndi að , ÁLFTAMÝRI 7 Vblomahúsið simi 83070 Opið alia daga öll kvöld og um helgar. Blómin, sem þér hafið ánægju af að gefa, fáið þér í Blómahúsinu. laga á sér þessa hlægilegu skyrtu og leitaði að vindling- um í handtöskunni sinni. Þegar hún kom auga á sjálfa sig í speglinum, sá hún, að færi hann að hlægja, væri það að minnsta kosti ekki nema eðlilegt. Hún leit á hann, þegar hún fann ekki eldspýtur. Hann stóð rétt innan við dyrnar og nú var hann fyrir alvöru farinn að hlægja. Hún reif klútinn af höfðinu á sér og lét hárið falla niður yfir andlitið. Reiðitár blikuðu í aug- um hennar. Hún sneri sér frá hon um og þerraði þau á erminni. Hláturinn þagnaði og hún Cheerios SÓLARGEISLI í HVERRI SKEIÐ GENERAl^J MILLS NATHAN & OLSEN HF. fann hendur hans á öxlum sér. Hún sneri sér við og leit fram- an hann. Hann lagði lófann á úfið höf- uðið á henni og þrýsti því að brjósti sér. Hún gat heyrt hjart sláttinn í honum og fann ilm- inn af tóbaki og trjákenndu ilm efni og karlmanni. Hann hélt henni fast en blíðlega og hvísl- aði lágt í eyra henni: — Lísa, Lísa mín. Hversvegna ertu alltaf að st: eistast móti mér? Veiztu kannski ekki, að það þýð ir ekki nokkurn skapaðan hlut? Hann lyfti höfði hennar og kyssti hana fast á varirnar. Hún brauzt um og hataði hann, en svo allt í einu hataði hún hann ekki lengur. Hún vildi láta hann kúga sig og stjórna sér, en þó umfram allt halda henni fastar og halda henni þannig, áfram, svo hún væri ekki lengur hún 57 sjálf. Hún vildi snerta örið á honum, sem hún hafði einu sinni slegið á, og snerta það með vörunum. Eftir langa stund lyfti hann henni upp í fangi sér og lagði hana á legubekkinn, en kraup svo á hné við hliðina á henni. Þá snerti hún andlitið á honum og strauk með fingurgómunum sterklega andlitsdrætti hans, sléttaði úr djúpu hrukkurnar á enni hans og gældi við örið sem nú var svo nærri henni og svo varnarlaust. — Ég skil þetta ekki, sagði hún, þegar hún loks gat komið upp orði. — Bara ég gæti skilið það. . . allan þennan tíma, án þess a_ð segja eitt orð. . . — Ég varð að vita vissu mína, sagði hann. — Ég fór burt. . . til Kanada til að koma öllu í lag. . .og ráða ráðum mínum. Og þegar ég kom aftur, þá var hann Péter þarna. — En þú hefur alltaf verið að kvelja mig. . . sagðir aldrei eitt einasta orð. . . og jafnvel nú veit ég ekki einusinni huga þinn til mín. . . — Viltu raunverulega vita hann? Mér finnst þú vera þver úðarfull, þögul, taugaóstyrk og ólæknandi hégómleg. Þú sérð rafhlöður fyrir ÖH viðtæki Heildsala- smásala VILBERG & ÞORSTEINN Laugavegi 72 simi 10259 é' >'-V í*. Sv ■>» ■- .'Vfi d á Þ á á HUSBYGGJENDUR SPARtÐ TIMBURKAUPJÍMA , FÉ OG FYR/tiHÖFN JÖN LOFTSSON h/f hringbraut I2i,sími Jp600 s 7% K'o; ' - A' HLADIÐ HUSIÐ FLJÓ MATSTEINI FHAMLE) EITT BEZTA 00 ÓDfi) HÖFUM EINNIG FLES J T OG OfíUGGLEGA IDUM Úfí SEYÐISHÖ\L lSTA BYGGINGAREF P MATHELLUM EOA ARAUDAMÖL. SEM VÖL ER 'A. TAR AÐRAR BYGGINGAaVÖRUR. HA GKV£M!R GRt. ID5LU SKLÍMÁLÁR: ~Stvegum VERZLIÐ 5 TAÐLAÐAR TEIKNINGAR. T£KNIÞJONUS TA ^AR SEM ÚRVALIÐ ER MEST OG KJÖRINBEZT. u v/ Kr: r< ->.s z.* ■. wm. ekki skóginn fyrir eintómum trjám — og ég vil fá þig eins og þú ert. . . alltaf. Ég held við ættum bara að gifta okkur. Viltu það Lísa? Viltu það? — Já, Blake. Vitanlega vil ég það, sagði hún eins og stein- hissa. — En þá er hann Símon. Hvað verður um hann? — Húrra fyrir Símoni. Þú yrð ir hvort sem er ómöguleg án hans. sagði Blake. — Hvernig heldurðu, að hann mundi kunna við sig í Kanada? Ég á þar kost á fínni stöðu. Hætti alveg að fljúga. Þetta er mikil staða sem forstjóri fyrir stóru flugfélagi. Hvernig lízt þér á það? Nú heyrðist mikið „mjá“ utan úr dyrum og Lísa leit skefld á Blake. — Nei, það þýðir ekkert. Mér lízt ágætlega á það, en ég gæti bara ekki farið, sagði hún. — Hversvegna ekki? — Það er hún Suki. Ég gæti ekki yfirgefið hana aftur, sagði hún og varirnar skulfu. — Þess þarftu alls ekki. Sím- on reiknar með Suki, sem ein- um af fjölskyldunni, og það geri ég líka. Auðvitað kemur hún með okkur. Hún teygði sig upp og kyssti á örið, og vissi ekki, hvort hún var að hlægja eða gráta. — Úr því við erum að tala um dýr, sagði hann og seildist eftir einhverju í vasa sínum — Þá bað hann vinur okkar frá Nýja-Sjálandi mig að færa þér þetta. í lófanum á honum var litli björninn. — Hann sagði eitt hvað á þá leið, að hann hefði tekið hann til að nota við ein- hver hátíðahöld, sem svo ekkert varð úr. Hann sagði, að þú mundir skilja það, og ég átti að minna þig á, að þetta væri lukku gripur. Hún tók björninn og stakk honum í töskuna sína, án þess að segja neitt. Einhverntíma skyldi hún skrifa Peter. Hann var meiri maður en hún hafði haldið hann vera. Allt í einu reisti' Blake hana upp á fæturna og með armana hvort utan um armað, gengu þau út í garðinn. Kötturinn malaði og neri sér upp að fótum þeirra. Allt var svo enikennilega þög- ult og draumkennt. Blake leit upp, eins og að gá til veðurs. — Þetta er táknrænt, sagði hann. Svona verður það alltaf hjá okkur. Augu hennar litu í sömu átt og hann var að horfa í og gegn um þoku ástar og sólskinsblíðu, sá hún að himinninn var ótrú- lega heiðblár og ekkert ský á himni að sjá. (Sögulok) Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl Vertu mikið meðal fólks fyrri partinn, annars kann einhver mis- . skilningur að verða. Farðu snemma í rúmið, morgundagurinn verður ' erfiður. Nautið, 20. apríl — 20. maí Þér reynist erfitt að meðtaka, að þeir, sem þú áleizt vini, eru ekki of sólgnir í að liðsinna þér. Frændur og fjármunir eru oft andstæður. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní Það, er tekið eftir öllum athöfnum þínum, svo að þú skalt njóta athyglinnar, og skarta. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí Reyndu að fara eitthvað út með ættingjana, svo að þú hafir eitt- hvað afrekað að kvöldi. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst Skapsmunir þínir reynast erfiðir, en það borgar sig að sitja á sér. Meyjan, 23. ágúst — 22. sept. Einbeittu þér að því að slaka á taugunum, annars er hæjt við’ þvi, að heilsufarið hraki. Vogin, 23. sept. — 22. okt. Haltu þér við einkamélin, og blandaðu þér ekki í illdeilur annarra. Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv. Það er réttara að láta aðra tala, en varast sjálfur alla sleggjudóma, eða raup. Bogamaðurinn, 22. nóv. — 21. des. Reyndu að nota afl þitt til góðs, en láttu fjölskylduna í friði. Heppilegt að lagfæra eitthvað heima fyrir. Steingeitin, 22. des. — 19. jan. Látalæti eru lítilsverð. Talaðu út, þá er það frá. Snertu ekki spari- fé þitt í dag, og neitaðu að ljá öðrum fé. Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr. Þér finnst stafa kulda frá fóliki. Einbeittu þér að fjölskldumálefnum, og vertu heima. Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz Þótt þú sért illkvittinn, skaltu reyna að halda aftur af þér, því að annars kanntu að sjá eftir því síðar. Það er ekkert, sem getur hjálpað þér annað en að verða yfirsterkari ilium öflum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.