Morgunblaðið - 16.03.1969, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 16.03.1969, Qupperneq 32
 SUNNUDAGUR 16. MARZ 1969 AUGLYSINGAR SÍMI 22*4*80 Hjá fiskimjölsverksmiSjunni að Kletti var stöðug löndun frá kl. 2 í fyrrinótt fram að hádegi í gær. Þar komu 10 bátar að með samtals um 1550 tonn. Fylkir var með 130 tonn, Þorsteinn 220, Reykjaborg 100 tonn, Hafrún 80 tonn, Birtingur 100 tonn, Vigri 130 tonn, Ólafur Magnússon 160 tonn, Súlan 200, Þórður Jónasson 230 og Gísli Árni 200 tonn. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.) Þrír Islendingar á fund Hafbotns- og landgrunnsnefndar SÞ. Reynt að ná samkomulagi um eigna- og yfirráðarétt hafbotnssvœðisins FUNDUR Hafbotns- og land- grunnsnefndar Sameinuðu þjóð- anna sem kosinn var á allsherjar þinginu nú fyrir jólin, er að hefj ast um þessar mundir og mun standa til 28. þ.m. 1 þessari nefnd eiga sæti fulltrúar 42 ríkja, þar af frá tveimur Norðurlandanna — Noregi og Islandi. Fulltrúar Islands í nefndinni eru: Hannes Kjartansson, sendiherra, Gunnar Schram, þjóðréttarfræðingur ut- anrikisráðuneytisins og Haraldur Kröyer, sendiráðsritari. Nefndinni er ætla'ð að fást við að setja alþjóðareglur um hafs- botninn og landgrunnið, en þýð- ing þessara svæða hefur mjög vaxið eftir að farið var að vinna alls kyns jarðefni — olíu og Sáttofundur í gær SÁTTAFUNDUR hófst á ný í kjaradeilunni kl. 14 í gær og var honum ekki lokið, þegar Mbl. fór í prentun í gær. málma — af hafsbotninum. Er áformað, að starf nefndarinnar leiði til alþjóðasamnings um hafs botninn. Á fundi nefndarinnar nú verð ur reynt að ákvarða, hversu langt landgrunnið eigi að ná út, og hvar hið alþjóðlega svæði er Nokkrir með góðan loðnuafla LOÐNUBÁTARNIR voru að veiðum í fyrrinótt út af Garð- skaga og fengu nokkrir allgóð- an afla. Aflahæst var Eldborgin, en hún kom til Hafnarfjarðar með 509 tonn. Lítill afli barst til Vestmanna eyja að þessu sinni. Þar lönduðu aðeins tveir bátar samtals um 200 tonnum. Þrír bátar komu til Hafnarfjarðar, Eldborg með 509 tonn, eins og fyrr segir, Héðinn með 113 tonn, og hafði rifið nót- ina, og Bjarrni kom einnig með lítið magn, þar sem hann var líka með rifna nót. Átta bátar komu til Keflavíkur með samtals 1378 tonn. Ólafur Halldórsson var aflahæstur með 256 tonn, Jörundur 11 var með 214 tonn, Kristján Valgeir var með 196 tonn og Haraldur AK með 189 tonn. Tii Sandgerðis komu fjórir loðnubátar með samtails 372 lestir, og til Akra- ness tveir bátar með um 400 tonn — Óskar Magnússon ®g Höfrung ur III. Góð rækjuvertíð Hólmavík, 15. marz. ALLS hafa nú 340 lestir af rækju borizt á land í Hólmavík og Drangsnesi; 311 lestir til Framhald á bls. 31 „Það var einhver að taka myndir af okkur pabba" — dularfull Ijós sjást frá Kópaskeri „FREKAR gæti ég nú trúað, að þarna hafi eitthvað jarð- neskt verið á ferðinni en að ég hafi séð eitthvert aðkomu- geimfar“, sagði Ragnar Helga son, símstöðvarstjóri á Kópa- skeri, þegar hann skýrði Morgunblaðinu i gær frá dularfullu Jjósfyrirbrigði, sem hann sá í tvígang; í fyrra- kvöld og nóttina þar á undan. Ragnari sagðist svo frá: „Um tvöieytið í fyrrinótt var ég staddur úti við og varð litið til norðurs. Sé ég þá koma bjart leiftur á Snartar- staðanúp; svo bjart, að ég sá núpinn alian sem um hábjart- an dag. í sömu andránni greini ég tvö Ijós rétt austan við núpinn; annað var rauð- leitt og hitt grænteitt, og færðust þau til auaturs. Mér virtust þau vera frekar lágt á lofti og eftir skamma stund hurfu þau á bak við Leir- hafnarfjöll. í fyrstu hugði ég þetta vera fiugvél en féll svo frá þeirri skoðun; hraðinn var e(kki nægur og svo sá ég bæði ljósin samtímis. Hugsa ég, að þetta hafi verið einhver hlut- ur með ljósi í báðum endum en hvað þetta var, gat ég ekki gert mér grein fyrir. Svo aftur í gærkvöldi, laust fyrir miðnætti, er ég aftur staddur úrti við og 6 ára sonur rninn með mér. Skyndilega verður albjart í krinig um okkur og virtist mér það samskonar leiftur og ég sá koma á Snartarstaðanúp nótt- ina áður. Þá komum við báðir auga á ljósin og voru þau nú talsvert vestar og nær en áður og eiginlega beint yfir Kópaskeri, að því er mér virtist. Að liðnum eittihvað um tveimur mínútum kom annað leiftur en síðan færð- ust ljósin tvö til austurs og hurfu. Leiftrin minntu mjög á „f)ash“-ljós og sagði sonur minn, þegar við komum inn: „Mamma, mamma. Það var einhver að taka myndir af okkur paibba". Nokkrir unglingar, sem voru á leið heim af akóla- skemmtun sáu ljósin en urðu leiftranna ekki varir.“ talið byrja. Reynt verður að ná samkomulagi nú um meginregl- ur varðandi eignarrétt og yfir- ráð á hafábotninum, en sú skoð- un á miklu fylgi að fagna, að hann skuli teljast alþjóðlegt svæði, sem Sameinuðu þjó'ðirnar stjórnuðu, og gæti e.t.v. haft einhverjar tekjur af, bæði til eigin starfsemi og einnig til að- stoðar þróunarlöndunum. Enn- fremur verður rætt um hernað- arlega hlið hafsibotnsins, þ.e. að banna vopn á þessu svæði. Nefndin hefur skipt með sér verkum, og fjallar önnur undir- nefndin um tæknileg- og efna- hagsleg atriði hafsbotnsins, en hin um hin lögfræðilegu atriði. Falsarinn enn í Þýzka- landi AVlSANAFALSARINN, sem komst úr landi fyrir nokkru, en var handtekinn af Interpol í Þýzkalandi, er enn á þýzkri grund. Agnar Kl. Jónsson, ráðu- neytisstjóri, skýrði Morgunblað- inu frá því í gær, að öll skjöl í málinu hefðu verið send til sendi ráðsins í Bonn, sem annast samn inga við þýzk yfirvöld um fram- sal á manninum. Sagði Agnar, a'ð alls konar formsatriði þyrfti að taka með í reikninginn í svona málum og er reynslan sú, að þau taka frek ar langan tíma en skamman. Þingvnllnvegur fær LITLAR breytingar urðu á á- standi vega í gær frá því á föstu dag. Þó tókst að opna leiðina fyrir Ólafsvíkurenni og enn- fremur til Siglufjarðar strax í fyrradag, og gert var ráð fyriir að Þingvallavegur yrði fær um miðjan dag í gær. Ymsar húsmæður hafa nú gert tilraunir til að matreiða loðnu, og hafa þeir, sem reynt hafaþennan mat, látið vel af. Mikil loðna barst að í gær hér í Reykjavík, og hér sjáum við unga pilta, sem kváðust vera að ná í soðið fyrir móður sína. Rekstur Air Bahama hefur gengið vel — í höndum Loftleiða FULLTRÚAR Loftleiða h.f. komu heim í fyrrinótt frá fund- um við fulltrúa Air Bahama. Fundir þessir tóru fram í Frank furt og sagði Sigurður Magnús- son, blaðafulltrúi Loftleiða, Morg unblaðinu, að rætt hefði verið um ýms skipulagsatriði í sam- bandi við reksturinn á flugleið Air Babama en eins og kunnugt er annast Loftleiðir nú þann rekstur fyrir Aair Bahama. Sagði Sigurð.jr, að sér væri ekki kunnugt um annað en að reksturinn hefði gengið vel síð- an Loftleiðir tóku við honum en um hugsanleg kaup Loftleiða á Air Bahama vildi Sigurður ekk- ert segja. Auk Sigurðar tóku þátt _ í Frankfurtviðræðunum þau ís- laug Aðalsteinsdóttir, farskrár- deildarstjóri, Martin Petersen, sölustjóri, Fleming Holm, yfir- maður endurskoðunardeildar og Jóhannes Sölvason deildarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.