Morgunblaðið - 19.03.1969, Page 3

Morgunblaðið - 19.03.1969, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1969 3 Sijsrurður býður upp málverk eftir Svein Björnsson er nefnist Fiskar í leik. Helgafell Kjarvals var sleg ii á 72 þúsund kr. — húsfyllir á málverkauppboði Sigurðar Benediktssonar í gœr MÁLVERK eftir Jólhannes S. Kjarvai seldist á hæstu verði á máiverkauppboði Sigurðar Bene diktssonar í gær. Málverkið var a.f Helgafelli 98x150 cm. og var slegið á 72 þúsund krónur. Húsfyllir var á Hóteil Sögu er uppboðið fór fram, og seldust nokkrar myndir á góðu verði. Lítið olíumálverk eftir Átgrím Jónsson seldkst á 32 þús. kr., olíumálverk eftir Kjarval, Vífils- fell fór á 40 þús. kr. og litil vatnslitamynd eftir Nínu Tryggvadóttur seldist á 16 þús. kr.. Tvö málverk eftir Snorra Ar- inbjarnar voru á uppboðinu, en málverk eftiir hann eru sjaldan á boðstólum. Málverkin voru frekar lítil, 60x65 om og 65x75 om og selduist þau á 35 þús. og 45 þús. kr. Þá seldist mynd Gunn laugs Blöndals Reykjavíkurhöfn Deilt um útvarpsþátt UMRÆÐUR mm áfengislög héldu | áfram i neðri deild Alþingis í | gaer. Varð 1. umræðu lokið, en ■ atkvæðagreiðslu frestað. Snerust uimræðurnar í gær aðallega um útvarpsþáttinn „Daglegt líf“. en í honum var fjaillað u>m nætur- klúbba eigi alls fyrir löngu. Taldi Siigurvin Einarsson að slik gkoð- anakönnun, sem þar hefði farið fram, ættj engan rétt á sér. Hún gæfi ekki mynd f vilja almenn- ings, þar sem aðeins örfáir væru spurðir og þá aðila veldi stjórn- andi þáttarins. Krafðist Sigurvin þe.ss að þáttur þessi yrði lagður niður. Benedikt Gröndal, sem er for- maður útvarpsráðs, vakti athygli þingimannsins á því að þarna vseri ekki um neina skoðana- könnun að ræða, enda hefði stjórnanda þáttarins aldrei diottið í hug að kalla spjall sitt slíkt. Aðeine væri um að ræða rabb við fólk á förnum vegi í því ekyni að skapa umræðugrund- völl. Sagði Benedikt að slík vinnubrögð tíðkuðust nú hjá öll- um fjölmiðiunartækjum hérlend- is, og það bæri aðeins „öldunga- deild Framsóknarflokksins" vitni að vera á móti slíku. Þórarinn Þórarinsson (útvarps ráðsmaður) tók að nokkru undir orð Benedikts, en sagðist viður- kenna að slíkt form á umrædid- um þætti skapaði hættu á ein- hæfum málflutningi. Sigurvin Einarsson sagðist ekki undra þótt þátturinn væri svo úr garði gerður sem raun bæri vitni, af „unglingadeiild Al- þýðuflokksins“ fjallaði um hann. Taldi' hann það í áttina að út- varpsráðsmaðurinn skyldi viður- kenna, það er hann hefði bent á. Matthias Bjarnason tók einnig þátt í umTæðum, og fjallaði ræða hans um efni frumvarps- ins. Gerði hann athugasemdir við breytingartillögur er Sigurvin Einarsson og fl. flytja, auk þess sem hann skýrði af hverju frum varpið væri flutt af allsherjar- nefnd neðri deildar. á 22 þús. og landslagsmynd eftir Jón Þorleifsson seldist á 20 þús. kr. Yfirleitt var dræmari sala á málverkum yngri málaranna, en t. d. 4 máilverk eftir Kristján Davíðason voru boðin upp. Seld- ust tvö þeirra fyrir 12 þús. kr. hvort og tvö á 8 þús. kr. hvort. - BORGARSTJÓRI Framhald af bls. 24 vinnuleysistryggingasjóður hef- ur lánað 20 milljónir til þessara framkvæmda og loforð er fyrir 20 milljónum króna frá Atvinnu- málanefnd ríkisins. Vantar þá 7 milljónir króna til að ljúka þeim hitaveituframkvæmdum, sem fyr irhugaðar eru á þessu ári. Hér er um að ræða lagningu hita- veitu í öll fjölbýlishús í Árbæjar hverfi og Breiðlholtshverfi og meginhluta raðhúsahverfis í Breiðholti. Hugsanlegt er einnig, að framkvæmdir verði hafnar við lagningu hitaveitu í einbýlis hús í Árbæjarhverfi og Breið- holtshverfi. Þessum hitaveitu- framkvæmdum verður lokið á þessu ári og hefur þá hitaveita verið lögð í 95% húsa á skipu- lögðum svæðum í Reykjavík en kostnaður við upphitun með hitaveitu er nú innan við 60% af kostnaði við upphitun með oliu. Borgarstjóri sagði, að þeg- ar þersum áfanga væri lokið hefðu skapazt skilyrði til að leggja hitaveitu í ný hús um leið og flutt væri í þau en það byggðist þó á' því, að nægilegt varmamagn væri fyrir hendi. Geir Hallgrímsson skýrði frá því, að um ármót hefðu 1087 íbúðir verið i smíðum í Reykja- vík og þar af 785 fokheldar eða lengra á veg komnar. Við telj- um að til viðbótar þessu sé búið að úthluta lóðum fyrir 300-400 íbúðir, sagði borgarstjóri. Hann upplýsti ennfremur, að nú hefði borgin á boðstólum lóðir, sem verða byggingarhæfar í vor, fyr- ir raðhús og einbýlishús. Sem stendur væri búið að úthluta öll- um lóðum fj'rir fjölbýlishús en framkvæfndir væru ekki hafnar á þeim ölium. Sagði borgarstjóri, áð lítii eftirspurn væri eftir lóð- um um þessar mundir. Þá skýrði Geir Hallgrímsson einnig frá því að í sumar mundu verða tilbúnar lóðir undir 180 íbúðir, sem Fram kvæmdanefnd byggingaráætlun- ar hyggst byggja. Borgarstjóri var inntur eftir því, hvort þær forsendur, sem Aðalskipulag Reykjavíkur byggir á um þróun íbúafjö'idans á höfuðborgarsvæð- inu hefðu staðizt og sagði hann ' svo ekki vera. Aðalskipulagið i hefði byggt á 2% fólksfjölgun á ári en hún væri komin niður í i 1,8% og hefði verið enn minni í Reykjvík á sl. ári. Geir Hallgrímsson sagði, að I gert hefði verið ráð fyrir, að j íbúafjöldi Reykjavíkur yrði um 110 þúsund á árinu 1983 en hæp- ið væri að það stæðist. Hinn 1. des. sl. hefðu íbúar Reykjavíkur verið 80.900. Hins vegar hefði verið gert ráð fyrir örari fólks- fjölgun í nágrannasveitarfélögun um og að byggðin færðist heldur suður á bóginn. Geir Hallgrímsson skýrði frá þvi, að á þessu ári yrði unnið við fjölmarga skóla á vegum borgar- innar. Framkvæmdir eru hafnar við Breiðholtsskóla, Vogaskóla, Gagnfræðaskóla verknáms og Álftamýrarskóla og ennfremur yrði unnið við Hvassaleitisskóla og Árbæjarskóla i'vo og Æfinga- skóla Kennaraskólans og Iðnskól ann, en borgin greiðir hluta af byggingarkostnaði þessara skóla. Þá er unnið við myndlistar- húsið á Miklatúni og stúkuna í Laugardal. Ennfremur verður unnið við nokkur barnaheimili, í Sóllheimum, Fossvogi og Breið- holti. Á dagskrá eru svo bygging íbúða fyrir aldraða, sem væntan- lega verður hafizt handa um í sumar og bygging hjúkrunar- heimilis en óvíst er hvort unnt verður að hefja framkvæmdir við það í sumar. Borgarstjóri upplýsti, að nú hefði verið boðin út malbikun Smáibúðahverfis og ennfremur yrði boðin út gangstéttarlagning innan tíðar. - Geir Hallgrímsson sagði, að svo sem jafnan áður yrði starfsliði fjölgað í vor og ■umar vegna þessara fram- kvæmda. Þá skýrði hann frá því, að atvinnumálanefnd borgarinn- ar hefði verið falið að gera til- lögur um sumarvinnu fyrir ungl- inga. Fjölmörgum fyrirspurnum var beint til borgarstjóra um atvinnu mál yfirleitt í Reykjavík og kvaðst hann hafa nokkrar álhyggj ur af því, að 3-4 fiskibátar hefðu verið seldir úr borginni út á land og lagði áherzlu á, að ráðstafan- ir til atvinnuaukningar út um landsbyggðina mætti ekki verða til þess að atvinnuleysi skapaðist í Reykjavík. Hann benti á, að ýmsar ráðstafanir vegna byggða- jafnvægis væru neikvæðar fyrir atvinnurekstur í Reykjavík, svo sem jöfnunarverð á olíu, sem kæmi sér mjög illa fyrir togara- útgerð. Skíðoferð til ísafjorðar Skíðið með Kristni Ben ó skíða með Kristni Ben 22—23.marz vikuno u ísafirði yfir póskano Skipulögð skíðaferð af Kristni Benediktssyni og Útsýn á skíða- Hví ekki að slappa af í viku og njóta fjalla- vikuna á Isafirði. loftsins og útiverunnar í Seljalandsdal og Flogið verður frá Reykjavik 1., 2., 3. april og til Reykjavikur lærið á skíðum hjá Kristni Benediktssyni? frá Isafirði mánudaginn 7. apríl. Dvalizt verður í skíðaskálanum á Selja- Búið verður á hótelum og einkaheimilum. landsdal. Verð frá 4.600 kr. 1250 m löng skíðalyfta, sú lengsta á íslandi. Allar nánari upplýsingar hjá Fyrir þá sem þess óska verður séð fyrir skiðakennslu. Skemmtanir fyrir þátttakendur. Farmiðasala og allar aðrar upplýsingar hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn Ferðaskrifstofnnni Útsýn Austurstræti 17, sími 23510 og 20100. Austurstræti 17, sími 20100 og 23510. 1 STAKSIEIHAR Nýtum íjáimagn fjöldans í aKhyglisverðri ræðu, sem Árni Grétar Finnsson , hrl. í Hafnarfirði flutti fyrir skömmu á fundi Sjálfstæðismanna > Reykjaneskjördæmi setti hann fram ákveðnar hugmyndir um úrbætur á skattalöiígjöfinni og í öðrum efnum til þess að greiða fyrir þátttöku almennings í at- vinnurekstrinum. f ræðu sinni sagði Árni Grétar Finnsson m.a.: „En hvað er til úrbóta? Er hægt að skapa einstaklingunum tækifæri til að leggja fjármagn í atvinnureksturinn. Ég vil skjóta hér fram nokkrum hug- myndum. 1. Ákveðinn arður af hluta- bréfaeign verður að vera skatt- frjáls, alveg eins og hlutafélög þurfa ekki að greiða skatt af arði og eins og sparifé er skatt- frjálst. I þessu efni kemur bæði til greina að miða við ákveðna prósentutöiu af nafnverði hluta- bréfa eða ákveðið hlutfall af nettóhagnaði fyrirtækja. Ein- staklingarnir fenjgju þá eðlilegan arð af þvi fé, sem lagt er til at- vinnureksturs. Þetta er frumskil- yrði fyrir því að fjármagn fjöld- ans renni til atvinnufyrirtækj- anna. 2. Taka verður upp ákveðinn skattafrádrátt af fjármagni, sem lagt er til kaupa á hlutabréfum, t. d. að 50% af því verði ekki skattskylt, það árið Sem það er lagt fram í atvinnureksturinn. Mér er sagt að slíkar reglur gildi sumstaðar erlendis. Með þessum hætti yrðu þeir verðlaunaðir, sem verja fé sínu til uppbygg- ingar atvinnulífsins, í stað þess að leggja það í neyzlu eða eyðslu. Hið opinbera kann að missa tekjur af þessum sökum, en á móti kemur sparnaður í al- mennri neyzlu og eyðslu og upp- bygging atvinnufyrirtækja, sem skapa aukin verðmæti í þjóðfé- Iaginu.“ Kaupþing Árni Grétar Finnsson .sagðl ennfremur: „3. Nauðsynlegt er að koma upp kaupþingi. Seðiabankanum hefur verið falið það hlutverk, en það hefur enn ekki komizt til framkvæmda. Bankinn hefur borið því við, að hér væri ekki um að ræða á markaðnum verð- bréf, sem framboð eða eftirspurn væri eftir. 4. Koma þarf upp stofnunum í hinum ýmsu starfsgreinum, sem undirbúa eða láta í té aðstoð við stofnun stórfyrirtækja, en vísir að slikri stofnun er Iðnað- armálastofnun íslands. Slikar stofnanir væru einnig trygging fyrir almenning, sem vildi verja fé sínu til atvinnureksturs. 5. Ríkissjóður verji ákveðnu fjármagni árlega til kaupa á j hlutabréfum í nýjum fyrirtækj- I um, sem síðan yrðu seld almenn- 1 ingi eftir að reksturinn væri j kominn vel á veg og fjármagnið j notað á ný til kaupa á hlutum i í nýjum fyrirtækjum, sem væru j að hefja starfsemi.“ Loks sagði Árni Grétar Finns- son: Jafnan þegar ráðast þarf í stórverkefni hér á landi ’ í atvinnumálum er einbílnt á ríkið. Þeir peningar, sem hið opinb'era hefur til þess að leggja í slík verkefni eru ekki sóttir annað en í vasa ein- staklipþanna. Á árinu 1966 voru þjóðartekiur íslendinga um 24 j milljarðar á þáverandi gengi. Ef | einungis 10% ef þessu fjár- i magni hefði runnið til stofnunar og unpbyggingar nýrra atvinnu- j fyrirtækja. hefði þar verið um 2400 milli^nir króna að ræða. Þetta sýnir að einstaklinearnir búa yfir því afli sem þarf, en i við þurfum að hafa löggjöf sem i gerir þeim kleiff að beina bessu 1 fjármagni i atvinmm»ksturinn.“ .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.