Morgunblaðið - 15.06.1969, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.06.1969, Qupperneq 23
MORjGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1969 23 T N jarðvíkurhreppur — skrifstofustarf Stúlka óskast strax eða fljótlega til skrifstofustarfa. VerziunarsKOIaprot eða hliðstaeð menntun æskileg, vélritunar- kunnátta nauðsynleg. Skrifleg umsókn óskast, ásamt upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf. Upplýsingar í síma (92)1202 og (92)1473 eftir vinnutíma. Hagsýnir velja Skoda Skoda er sparneytínn Skoda eródýr Benzíneyðsla; 7 l.á 100 km. Verð: tæpar kr. 212.000.oo tæpar kr. 142.000.oo til öryrkja Ný sending: Eftirmyndir af frægum listaverkum. Eallegt úrval. Húsgagnaverzlun Árna Jónssonar, Laugavegi 70, sími 16468. - AF INNLENDUM VETTVANGI Framhald af bls. 11 landi svo og til þess að berjast gegn ýtni SAS í garð Flugfélags- ins er ekki sterk. Við höfum lítið að bjóða í staðinn, en þá verður að tjalda því sem til er. Sterkasta röksemdin, sem við höfum er tvi- mælalaust sú, að hefðin helgi rétt íslenzku flugfélaganna til þess að halda sínum hlut á þessum flug- leiðum. Þau hafi byggt upp þessa markaði og fara ekki fram á annað en halda sínum hlut. Flugfélögin íslenzku velta samtals um 1700— 1800 milljónum á ári og hafa tölu- vert á annað þúsund manns í þjónustu sinni. Þau afla verulegra gjaldeyristekna. Hér eru því miklir hagsmunir í veði. En meginniðurstaðan er þó sú, að í Ijósi þeirrar stað- reyndar að staða beggja flug- féiaganna hefur veikzt verulega frá því sem áður var, sé nú höf- uðnauðsyn, ef ekki á illa að fara í flugmálum okkar á næstu árum, að Loftleiðir og Flugfélag Islands taki upp nánari samvinnu en verið hefur, sem ef til vill gæti leitt til sameiningar þeirra með tímanum. Hvaða vit er í því, að íslenzku flugfélögin hafi tvær skrifstofur í Kaupmannahöfn. Osló, London og Frankfurt? Og hvaða vit er í þvi að þessi sömu félög bítist um sömu farþegana með þeim hætti, sem þau gera? Með samvinnu Flugfélagsins og Loftleiða væri t. d. hægt að svara ásókn SAS og hinum breyttu við- horfum á Norðurlandamarkaðnum með því að þota Flugfélagsins flytti farþega frá IMorðurlöndunum, sem héldu áfram með Loftleiðum til Bandaríkjanna og öfugt. Hin endanlega og eðlilega nið- urstaða er hins vegar auðvitað sameining íslenzku flugfélaganna. Vera má, að sameinað islenzkt flugfélag gæti fengið það viður- kennt innan IATA, að sá sem flýgur hægar megi bjóða lægri fargjöld. Viðurkenning IATA á því grundvallaratriði mundi gera sam- einuðu íslenzku flugfélagi kleift að halda með sæmilegum hætti þeim hlut, sem Loftleiðir hafa unnið sér með æmu erfiði á flugleiðinni yfir IM-Atlantshafið. Það er einnig hugsanlegt, að Loftleiðir hafi þegar unnið sér slíkt nafn í Evrópu og Bandaríkjunum, að félagið gæti haldið uppi þotu- flugi til þessara staða á lATA-far- gjöldum, en reynslan frá Norður- löndunum spáir ekki góðu um það. Hitt er alveg Ijóst, að verði ekki innan tíðar tekin upp sam- ræmd stefna í málefnum íslenzku flugfélaganna með öflugum til- styrk islenzkra stjórnarvalda bend ir allt til þess, að eftir nokkur ár neyðist þau til einhvers kon- ar samvinnu við öflugar samsteyp ur á borð við SAS og þar með er sjálfstæði okkar í flugsamgöngum úr sögunni. Styrmir Gunnarsson. TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ISLANDI H.F Austurstræti 17. Með því að smíða hina nýju Elna Lotus, fyrstu ferðasaumavél í heimi hafa Elnaverksmiðjurnar skapað nýtízkulega og l'pra saumavél. Á nokkrum augnablikum er vélin tilbúin til notkunar, hvar sem henni hefur verið komið fyrir. Elna Lotus opnast og lokast jafnauðveldleoa og blóm. Hún er svo fyrirferðarlítil og einfðld í útliti, að hægt er að fara með hana, hvert sem er, jafnvel á ferðalög. Þegar vélin er opnuð, mynda hlífðarlokurnar saumaborð. Fylgihlutunum er öllum komið fyrir í innbyggðu hólfi ofan á arminum. Komið í Austurstræti 17, sem hefur Elnavélar 3 boðstólum og kynnizt af eigin raun, hversu margir möguleikar eru við notkun Elna Lotus hversu auðveldlega hún leikur sér að því að sauma gegn um allar feMingar í efninu, vegna þess að spenna tvinnans og fótþrýstinguiinn er hvort tveggja sjálf- stillt. Og jafnvel þó saumaskapur hafi alls ekki freistað yður hingað til, þá er Elna Lotus þannig úr garði gerð, að hún getur auðveldlega tekið hug yðar allan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.