Morgunblaðið - 12.10.1969, Qupperneq 8
8
MOftGlTNBLAötÐ, SUKNUDAGUft 12. OKTÓBER 1909
Smurðsbrauðsstofan
BDÖRNINN
Njálsgötu 49 - Sfmi: 15105
100 þúsund litir
Því eru engin takmörk sett hvað hægt er að laga marga liti. Silki, Vitretex, Polytex, Spred og bilalökk..
Málningarverzhin Hjalta Einarssonar, Laugavegi 126.
„Epifast“
Baðemaleringin er komin aftur.
Hentug til endurnýjunar á baðkerum og
handlaugum o. fl.
Á J. Þorláksson & Norðmann hf.
Skodo Octovia til sölu
Höfum til sölu tvo Skoda Octavia árgerð 1960.
verð kr. 35.000. Engin útborgun.
Tékkneska bifreiðaumboðið á fslandi h.f.,
Auðbrekku 44—46, Kópavogi, s'mi 42600.
Kópavogsbúar
Vegna framkvæmda við Hafnarfjarðarveg verður verzlunin
Fossvogur að haetta rekstri næstkomandi mánudag þann 13.
október 1969.
Vil ég þakka hinum fjölmörgu viðskiptavinum ánægjuleg við-
skipti og viðkynningu á umliðnum árum.
Beztu kveðjur
GiSLI ÞORGEIRSSON.
FÍAT eigendur
Nýkomnir varahlutir í rafkerfið:
Startarar — Anker — Spólur — Rofar — Bendixar — Cut-out
— Fóðringar — Kol o. fl.
Einnig Cut-Out (straumlokur) í flestar bifreiðategundir.
Ódýr úrvalsvara
BÍLARAF S.F.,
Borgartúni 19
(Höfðavík v/Sætún).
Sími 24700.
Sófasett 4ra sœta
Sófasett 3ja sœta
Sófasett á góðu verði
Bólstrarinn
Hverfisgötu 74, sími 15102.
Jndversk undraveröld‘
Langar yður til að eignast fáséðan hlut?
f Jasmin er alltaf eitthvað fágætt að finna.
Orvalið er mikið af fallegum og sérkennileg-
um munum til tækifærisgjafa.
Austurlenzkir skrautmunir handunnir úr margvíslegum efnivið
meðal annars útskorin borð, hillur. vasar. skálar. bjöllur.
stjakar, alsilki, kjólefni, slæður, herðasjöl o. fl.
Einnig margar tegundir af reykelsi.
Gjöfina sem veitir varanlega ánaegju fáið þér I
JASMIN. Snorrabraut 22.
— F alskenningin
Framhald a( bls. 13
ber að líta á þennan inngang
sem sagmfræðilegt verk.
Það er því að sjálfsögðu enn
átakanlegra, að annað rit, sem
helgað er Reykjavík og er ein-
mitt ætlað að vera sagnfræði-
legt verk, skuli hafa farið svo
hrapallega af stað sem raun er á.
Hór á ég við það fyrsta bindi af
„Safni til sögu Reykjavíkur",
sem kom út á sl. ári. En skemmst
er frá því að segja, að þar fara
saman mislestur handrita, prent
villur og ýmsar rangar söguleg-
air upplýsingar, svo að nokkuð
sé nefnt. Missagnir eldri rita
eru ekki einungis endurteknar
þar athugasemdalaust, heldur er
og allmörgum nýjum bætt við.
Rúmsins vegna eru ekki tök á
að rökstyðja þetta hér, og verð
ég því að láta nægja að vísa til
ritdóms, sem mun birtast eftir
mig um þetta í næsta hefti tíma-
ritsins Sögu. En því skal bætt
hér við, að ástæða er til að
vænta, að betur takist til með
framhald verksins.
STARFSAÐSTAÐA SAGN-
FRÆÐINGA ERFIÐ
Ýmsa orsaflflir liggija Difl þess
að vísindaleg sagnfræði á frem-
ur erfitt uppdráttar hér á landi.
Sagnfræðingar verða yfirleitt
að vinna rannsóknar- og ritstörf
í hjáverkum með öðrum og oft
óskyldum störfum. Vill það þá
stundum brenna við, að rann-
sóknir á frumheimildum verði yf-
irborðskenndar og meira sé
treyst á eldri prentuð rit en
hollt er. Því er ekki heldur að
neita, að ýmsum þeim, sem við
sagnfræði fást, virðist ekki vera
nægilega rík í huga sú mikla
ábyrgð, sem þeir taka á sig bæði
gagnvart lifendum og dauðum.
Þá virðist útgefendum ekki
heldur vera það nægilega ljóst,
hvílíkt vandaverk það er að
gefa út staðgóð sagfræðirit.
Eiiga þeir því orfltast einlhverja
sök á því, er sagnfræðileg verk
eru ekki eins vel úr garði gerð
og vera bæri.
STÓRUMBÓTA ÞÖRF
I ÞJÓBSKJALASAFNINU
Það gerir meðal annars að-
stöðu maruna til vísindalegra
sögurannsókna ærið erfiða, að
mikið af heimildum varðandi ís-
lenzka sögu er geymt erlendis,
einkum í Kaupmannahöfn. Dálít
ið af þessum heimildum hefir að
visu veirið ljósritað, t.d. á vegum
Þjóðskjalasafnsins, en mjög mik
ið og kostnaðarsamt verk er hér
þó óunnið.
Að því er Þjóðskjalasafnið
varðar, er það mála sannast
að það er mjög vanbúið að
gegna því sjálfsagða hlutverki
að vera miðstöð íslenzkra sögu-
rannsókna og raunar annarra fé
lagsvísinda. Þetta ræddi ég all-
ýtarlega í grein, sem birtist í 2.
hefti Samvinnunnar 1968, sem
helgað var íslenzkum bókasöfn-
um, og læt ég nægja að vísa til
henmar, þar eð of langt mál væri
að endurtaka aðalatriði hennar
hér. Ég get þó ekki látið hjá
líða að minna á, að aukin
kennsla í félagsvísindum í Há-
skóla íslands, hlýtur að hafa í
for með sér nýjar og auknar
kröfur á hendur Þjóðskjalasafn
inu. Við þeim kröfum getur safn
ið því aðeins orðið, að starfsemi
þess verði stórum aukin og efld,
en til þess þarf bæði stórauk-
in fjárframlög, meira húsrými og
fleira og fjölbreyttara starfslið.
Grundvallarabriði er það líka,
að starfsmenn safnsins fái að-
stöðu til að kynna sé skipulag
og starfsemi erlendra skjala-
safna, sem taka mætti til fyrir-
myndar, en að því, sem ýmsu
öðru leyti, verður Þjóðskjala-
safnið að teljast býsna einangr-
að.
NÝSKIPAN ÞJÓÐSKJAUA-
SAFNSINS OG SAGNFRÆÐI-
STOFNUN FYRIR 1974
Margvíslegar tillögur hafa
verið uppi um það, hvernig
minnzt skuli 11 hundruð ára af-
mælis fslandsbyggðar. Ein
þeirra var á þá leið, að gefið
verði út nýtt og staðgott rit um
sögu þjóðairinnair. Þetta er
vissulega ágæt hugmynd, enda
hæfir hún afmælinu svo sem
bezt verður á kosið. Það er líka
staðreynd, að hin s.n. Saga ís-
lendinga er harla ófullkomið
verk og mikið skortir á, að því
hafi nokkru sinni verið lokið á
þann hátt, sem ráðgert var, enda
aðstæður á margan hátt erfiðar
til þess.
Nýtt og staðgott heildarrit um
sögu lands og þjóðar krefðist
meðal annars mjög umfangsmik
illa frumrannsókna, því að auk
gamalla missagna, sem þarf að
leiðrétta, hafa sumar hliðar þjóð
areögunnar verið furðuimikið
vanræktar, t.d. flest það, er að
hagsögu lýtur, svo veigamikið
dæmi sé nefnt. Hér er semsé um
að ræða langtum viðameira
verkefni en hægt væri að ljúka
fyrir afmælið. Hins vegar er af-
ar mikilvægt að hafizt verði
handa sem fyrst við að búa í
haginn fyrir það. Mikilvægasta
skrefið í þá átt er að Þjóðskjala
safninu verði komið í svipað
horf og bezt gerist í öðrum
menningarlöndum. Við safnið
þyrfti og að koma á fót sagn-
fræðistofnun, sem hefði meðal
annars með höndum skipulagn-
ingu og ritstjórn umræddrar ís-
landssögu, en ekki skal farið
nánar út í það að sinni, hvern-
ig haga ætti framkvæmd þess
verks. Hlutverk sagnfræðistofn
unar væri auk þess vísindaleg
útgáfa heimilda, ýmiss konar að
stoð og leiðbeiningar til handa
sagnfræðingum, sem vinna að
verkefnum á eigin spýtur, o.s.
frv.
Aðeins með því að stórbæta
alla aðstöðu Þjóðskjalasafnsins
og koma á fót umræddri sagn-
fræðistofnun tel ég að íslenzk-
um sagnvísindum verði komið í
það horf, sem samboðið er menn
ingarþjóða. Er hér því uim verfc-
efni að ræða, sem san/nar-
lega væri full ástæða til að
hrinda í framkvæmd fyrir 11
hundruð ára afmæli íslands-
byggðar árið 1974.
T résmíðaverkstœði
Lítið trésmíðaverkstæði til leigu strax.
Upplýsingar í síma 15271.
Skrifstofustúlka
vön vélritun óskast hálfan daginn,
eftir hádegi.
Sími 13863 aðeins á skrifstofutíma.
Skriistofustúlka
Stúlka með Verzlunarskólapróf og 5 ára reynslu í skrifstofu-
störfum. óskar eftir starfi á skrifstofu nú þegar.
Tilboð óskast sent Mbl. fyrir 15. okt. n.k.. merkt: „8816".
Tannlæknir
Tannlæknir óskast til starfa á Patreksfirði.
Ný tannlæknatæki og stofa fyrir hendí.
Nánari upplýsingar gefur
Sveitarstjóri Patreksfjarðar.
Vouxholl Victor Station
árgerð 1969 til sölu, ekinn 5000 km. Skipti á góðum bíl, árgerð 1963—1965 koma til greina.
Upplýsingar í síma 51587.
MOSAIK
Japanskar mosaikflísar
í miklu úrvali.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Fokheld íbúð
140 ferm. efri hæð ásamt bílskúr á jarðhæð til sölu.
Glæsilegt útsýni. Verð 900 þús. kr. ef samið er strax.
Til sýnis í dag milli kl. 1 og 7 að Nýbýlavegi 30 B.