Morgunblaðið - 12.10.1969, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.1969, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1960 Úrval jólabdka fjöl- lendis hefði verið haldið niðri undanfarin ár, meira heldur en kostnaðaraukningu þeirra næmi. Flestir virtust sammála um að 30 prs. hækkun nú mundi verða nauðsynleg. Það mun sennilega þýða að flestar bækur kosti 500 —800 kr. En hvaða hækur verða svo á jólamarkaðinum? Morgunblaðið hafði nýlega samband við um 20 bókaútgefendur og spurðist fyr- ir um útgáfubækur þeirra. Birt- ist fyiri hluti þeirra svara nú, en eftir helgi kemur svo önnur grein. FIMM ÍSLENZKAR BÆKUR Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guð- jónssonar mun gefa út a.m.k. fimm íslenzkar bækur fyrir jól- in. Ölfusá og Sogið nefnist bók eftir Guðmund Daníelsson rithöf und á Selfossi, og mun bókin í svipuðum dúr og bók er Guð- mundur ritaði um Elliðaárnar, og út kom í fyrra. Roðskinna, nefnist bók eftir Stefán Jónsson fréttamann, og sagði Guðjón Ó. að bókin fjall- aði um veiðimenn og í henni væru leiðbeiningar til byrjenda í stangaveiði. Skot og skotfimi, nefnist bók eftir Egil Jónasson Stardal, og er í henni að finna ýmsar leið- beiningar fyrir skotmenn. í>á mun koma út skáldsaga eft ir Björn Blöndal, en nafn henn- BÓK UM STJÓRNMÁLA- ERJUR UM ALDAMÓTIN Sturla Eiríksson frá Bókaút- gáfunni Fjölva, sagði að útgáf- an gæfi út eina bók í ár. Er hún eftir Þorstein Thorarensen rithöfund, stór og mikil bók, sem fjallar um þær miklu stjórnmála erjur er voru hérlendis kringum síðustu aldamót. Enn hefur bók- inni ekki verið valið nafn. LJÓÐABÓK OG ÞÝDDAR SÖGUR Bragi Þórðarson hjá Hörpu- útgáfunni á Akranesi, sagði að forlagið mundi senda frá sér Guðmundur Daníelsson Nýjar bækur þetta er fyrsta bókin eftir hann sem þýdd hefur verið á íslenzku. Flug og flótti niefnist vo drengjabók, og sem nafnið bend ir til, er þarna um að ræða flug- og leynilögreglusögur, m.a. síð- asta sagan um Hauk flugkappa, sem sennilega er íslenzkum drengjum að góðu kunnur. MIKIÐ RITVERK UM ÍSLENZKA HESTINN Geir O. Björnsson hjá Bóka- forlagi Odds Björnssonar á Ak- ureyri, sagði að útgáfan gæfi út nokkrar bækur í ár. Fyrst bæri til að nefna gríðarlega stórt og mikið ritverk, er nefnist Ættbók og saga íslenzka hestsins á 20. öld. Er bókin eftir Gunnar Bjarna son á Hvanneyri. Sagði Geir, að bókin væri raunverulega tví- þætt. Annars vegar fjallaði Gunnar um fyrstu 10 árin, sem hann var hrossaræktarráðunaut ur, en hins vegar væri ættbók stóðhesta, og væru þar skráðir stóðhestar frá upphafi til ársins í ár. Fjöldi mynda munu prýða bókina. Sagði Geir, að þetta væri fyrsta bindið af þremur fyrirhuguðum um íslenzka hest- inn. Aðrar bækur forlagsins verða eftirtaldar: Minningar úr Goðdölum, II. bindi, — bókin er endurminning- ar Þormóðs Sveinssonar, en fyrra bindi þeirrar bókar kom út í fyrra. Bóndinn og landið — ljóða- NÚ LÍÐUR brátt að aðalver- tíð bókaútgefandanna. Upp úr næstu mánaðarmótum munu hill ur bókaverzlananna fyllast af nýjum bókum, mismunandi út- lits, mismunandi að efni og án alls vafa misjöfnum að gæðum í angum gagnrýnendanna, sem sennilega verða að leggja nótt við dag við bókalestur þegar skriðan mikla fellur. Það hefur löngum þótt eitt helzta sérkenni íslenzkrar bóka- útgáfu hversu mjög hún er bundin við jólamarkaðinn. Þær bækur sem koma út á tímabil- inu janúar til október ár hvert earu teljandi, ef útgáfa bóka- félaganna tveggja er und- anskilin. Oft hefur verið deilt um afleiðingar slíkrar þró- unar og sitt hefur hverjum sýnst. Sennilega verða ekki mikl ar breytingar á þessu í náinni framtíð, a.m.k. ekki meðan bæk ur eru jafn vinsælar til jóla- gjafa og raun ber vitni. Sennilega munu bókatitlar er út koma fyrir þessi jól, svipaðir að tölu og var fyrir jólin í fyrra. Þrátt fyrir hið erfiða ár- ferði láta bókaútgefendur eng- an bilbug á sér finna. — Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn, — maður á ekki svo gott með að draga í land, sagði einn útgefandinn er Mbl. ræddi við nú fyrir skömmu. Og reynd ar er ekki ástæða til þess að ætla að bókakaup verði nú minni en vant er. Það verður allt af ósköp handhægt að kaupa bók til þess að stinga í jóla- pakkann til náungans. Öllum bókaútgefendum er við ræddum við. bar saman um að bækur í tundu hækka töiuvert í verði að þessu sinni. Þeir bentu á með rökum, að bókaverði hér Sigurbjöm Þorkelsson ar hefur enn ekki verið valið. Er þarna um að ræða aðra skáld- sögu höfundar. ^ Að lokum nefndi svo Guðjón Ó., bók eftir Steinþór Þórðarson frá Hala í Suðursveit. Verða í hentni nokkrar smásögur eftir Steinþór, svo og ýmsir fróðleiks þættir. NÝJAR BARNABÆKUR Að venju gefur Bókaútgáfa Æskunnar út nokkrar barna- bækur fyrir jólin, bæði þýddar og eftir innlenda höfunda. Með- al bókanna verður endurútgáfa af bókunum Sögurnar hennar mömmu og pabba og Söguraar Hannes J. Magnússon Þorsteinn Matthíasson bók eftir Pétur Aðalsteinsson frá Stóru-Borg í Vestur-Húna- vatnssýslu. Er það fyrsta ljóða- bók höfundar. Skjólstæðingar — dulrænar frásagnir eftir Guðlaugu Bene- diktsdóttur. Þá gefur forlagið út þýdda skáldsögu er nefnist Flugstöðin, og er hún eftir Arthur Hailey, en áður hafa komið út eftir hann tvær bækur á íslenzku: Hinzta sjúkdómsgreiningin og Hótel. Höfundur fékk nýlega við urkenningu fyrir þessa bók hjá samtökum bandariskra flug- manna. Fjöldi útgefinna bóka svipaÖur og áður, en bcekur hœkka nokkuð í verði SKÁLDSAGA EFTIR NÝJAN HÖFUND Þorkell Jóhannesson í Bókaút gáfunni Snæfell í Hafnarfirði, sagði að meðal útgáfubóka sinna yrði skáldsaga er nefnist Villi- ljós og væri eftir Unmi Eiriks- dóttur. Er þetta fyrsta skáld- saga höfu'ndar, og gerist í Reykjavík á stríðsárunum. Þá verður Þorkell með fjórar þýddar bækur, ein þeirra ætluð drengjum. Bækurnar eru: Þegar regnið kom, eftir Perry Miohtel, fjallar skáldsagan um spítalalíf, en höfundur hefur skrifað nokkrar bækur um það efni og hefur a.m.k. ein þeirra Læknir — líf er í veði, komið út á íslenzku Degy eftir Colette er þýdd af Elínu Eiríksdóttur. Kvikmynd hefur verið gerð eftir þessari sögu og var hún sýnd hér í Gamla bíó á sínum tíma. Þá er ný bók í bókaflokki er fjallar um hættulíf og svaðilfar ir, og verða í henni ýmsir þætt- ir um ævintýramenn og svaðil- farir þeirra. Þá kemur út ný bók í drengja bókaflokknum um Tom Swift og ævintýri hans. Nefnist hún For- tíðarvélin. Sagði Þorkell að bók þessi hefði reyndar komið út í fyrra, en þá aðeins í mjög litlu upplagi. SKÁLDSÖGUR — FRÓÐ- LEIKUR — BARNABÆKUR Að venju gefur Bókaútgáfan Leiftur margar bækur út. Kenn- ir þar vissulega margra grasa, og meðal bókanna verður skáld- saga eftir nýjan höfund, Krist- ínu M. J. Björnsson. Kemur sú skáldsaga til með að verða í þremur til fjórum bindum og koma tvö fyrstu bindin út núna. Nefnast þau Gréta og Víkinga- dætur. Þá gefur Leiftur út þriðja og fjórða bindið í ritsafni Einars H. Kvarans, og þriðja bindið i ævi- sögu Sigurbjarnar Þorkelssonar í Vísi. Nefnir hann bindið: Áfram liggja sporin. Syndugur maður segir frá, nefnist ævisaga Magnúsar Mag- nússonar fyrrverandi ritstjóra blaðsins Storms. Myndbrot nefnist bók eftir Steinunni S. Briem. Fyrir þrem- ur árum kom út bók eftir hana, er nefnist í svipmyndum, og er Myndbrot síðari hluti þeirrar bókar. í bókinni eru viðtalsþætt ir við fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Austan blakar laufið, nefnist bók eftir hinn kunna fræðimann, Þórð Tómasson frá Vallnatúni, kennara í Skógarskóla. Er bók- in ættarsaga undan Eyjafjöllum og frásagnimar framlag til sögu Rangárþings á 19. öld. Beriðabólstaður, nefnist bók eftir Vigfús Guðmundsson frá Engey. Segir Vigfús í bók sinni sögu staðarins frá fyrstu tíð og greinir frá ábúendum og prest- um sem setið hafa Breiðabólstað frá því á 11. öld. hennai ömmu og afa, eftir Hann- es J. Magnússon skólastjóra, en bækur þessar nutu mikilla vin- sælda á sínum tíma og eru löngu uppseldar. Af öðrum barna- og uniglinga- bókum eftir innlenda höfunda, nefndi Kristján Guðmundsson hjá Æskunni, eftirtaldar: Dýra- bókin, eftir Bjöm Daníelsson skólastjóra á Sauðárkróki, í Krukkuborg, eftir Odd Bjöms- son, Leikrit eftir Þóri Guðbergs son kennara, er nefnist Páska- dagsmcrgunn, ný drengjabók eft ir Hannes J. Magnússon skóla- stjóra er nefnist: Úr fátækt til frægðar. Af þýddum bókum útgáfunnar nefndi Kristján bókina Á leið yfir slcttuna, eftir Elmer Horn, sem Eiríkur Sigurðsson hefur þýtt, en Æskan hefur áður gefið út bækur eftir þennan höfund, og stúlknabokina Eva, sem Guð- jón Guðmundsson þýddi. fjórar bækur á jólamarkaðinn. Er þar fyrst til að nefna ljóða- bók eftir Ref bónda (Braga Jóns son frá Hoftúnum) er nefnist Tófugrös. Refur bóndi er löngu landsþekktur fyrir stökur sínar, en þetta er hans fyrsta ljóða- bók. Ást og ótti nefnist þýdd skáld- saga eftir Bodil Forsberg. Ger- ist sagan í Frakklandi á stríðs- árunum og fjallar um sænska stúlku. Skúli Jensson þýddi bókina. Kafbátadeildin, eftir Alexand- er Fullerton fjallar um störf kaf- bátaforingja á stríðsárunum. Hefur höfundurinn ritað nokkr- ar bækur um þetta efni, en Barna- og unglingabækur for lagsins verða: Gullroðin ský, ævintýri eftir hinn kunna barna bókahöfund Ármann Kr. Einars son. Er bókin annað bindið í heildarútgáfu á verkum höfund ar. Ennfremur kemur útdrengja bókin Leyndardómar Lundeyja eftir Guðjón Sveinsson frá Mána bergi í Breiðdalsvík, en forlag- ið hefur áður gefið út unglinga- bækur eftir þann höfund. HEIMAEYJARFÓLK STRINDBERGS Bókaútgáfan Bláfell gefur út eina bók að þessu sinni. Er það Heimaeyjarfólkið, eftir August Strindberg í þýðingu séra Sveins Víkings. Gerð hefur ver- ið kvikmynd eftir þessari frægu sögu, og var hún sýnd sem fram- haldskvikmynd í sjónvarpinu sl. vetur. Enginn fiskur á morgun, nefn- ist skáldsaga eftir unga skáld- konu á Sauðárkróki, Unu Þ. Arnadóttur. Er þetta önnur skáldsaga höfundar og fjallar um líf unga fólksins í sveit og við sjó. Gamantregi, er bók eftir Örn Snorrason. Fjallar höfundur í bók sinni um hinair broslegu hlið ar mannlífsins. Eldflugan dansar, nefnist þýdd saga eftir Elick Moll. Seg- ir sagan frá hæglátum vefnaðar- vörukaupmanni, sem fer til Jap- an í verzlunarerindum og kynn- ist þar japaraskri stúlku. Guð- jón Guðjónsson skólastjóri hef- ur þýtt bókina. Ég raka ekki í dag, góði, nefn- ist svo bók eftir Þorstein Matthíasson kennara og rithöf- und. í bókinni eru þættir, við- töl og minningar. Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.