Morgunblaðið - 21.10.1969, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.10.1969, Blaðsíða 18
18 f’\ /i" -i: i MOftGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAG-UR 21. OKTÓBER 19«© - FJÁRLAGARÆÐA Frambald af bls. 17 um, hjá ýmsum embætbuim á veg- um ráðuneytisins. Með lögunuim um lækkun ríkisútgjalda var gert ráð fyrdr að lækka allveru- lega kostnað við löggæzlu, sem >ó var að vísu jafnframit tekið fram, að hæpið væri að auðið yrði að ná á árinu 1968, enda fór það svo, að þessi áætlaði sparnaður varð ekki raun veru.legur og löggæzlan fór 9 millj. kr. umfram fjárlagaheim- ildir. Ennfremur fór kostnaður við ýmis emfoætta sýslumianna og bæjarfógeta svo og hegningar- húsið, Litla-Hraun og bifreiða- eftirlitið nokkuð fram úr fjár- lagaheknildum. Að öðru leyti er hér um að ræða kostnað við hægri umferð, sem gjaldfærist á árinu, en eins og kunnugt er var hann að hluta á árinu 1968 greidd ur með lántöku, sem síðar mun endurgreiðast af sérstakri skatt- lagningu, en gjaldfærist engu að síður þegar útgjöldin falla til og virtkar þá sem útgjöld umfram fjárlög. Fjárlagaheimildir félagsmála- ráðuneytisins með þeim leiðrétt- ingum, sem hér hafa verið gerð- ar námu 1975 millj. kr. og gjald- færð var á árinu svo til sama fjárthæð. Fjárlagaheimildir fjármálaráðu neytisins námu á árinu 1968 367 ■mlllj. kr. Sú fjárihæð er þó of há að því leyti, að þar er með talin fjárveitdn.g til að greiða mótfram lag ríkissjóðs á móti lífeyrisið- gjaldi allra starfsmanna ríkisins. Þetta mótframlag hefúr verdð gjaldfært hjá hverri stofnun sem hluti af hennar launakostnaði, þannig að ofangredndar heimild- ir eru oftaldar sem nernur 49 mdllj. kr. og raunverulegar út- gjaldaheimildir því 318 millj. Gjöld á vegum ráðuneytisins urðu hins vegar 435 millj. kr. skv. rekstrarreikningi eða 117 m. kr. hærri en fjárlög ráðgerðu. Meginskýring þess er fólgin í muin hærri vaxtaútgjöldum en fjárlög gerðu ráð fyrir vegfoa bmnar óhagstæðu gneiðslustöðu ríkissjóðs við SeðLabankann á ár inu og til viðbótar kemur yfir 70 m.kr. aukaframlag til Ríkis- ábyrgðasjóðs, sem varð að inna af hendi ábyrgðargreiðslur um- fram innfoeimt fé, sem nam rúm- lega tvöfaldri þeirri fjárhæð, sem í fjárlögum og sparnaðarlög unum nr. 5. 1968 var ætlað til sjóðsins. Unnið að undirbún- ingi hraðbrauta Útgjaldaheimildir samgöngu- og iðnaðarráðuneytisdns að með- töldum heimildum sérlaga nam rúmum 780 millj. kr. en bókfærð gjöld eru nær 799 mttllj. en út- borganir á árinu urðu 772 millj. kr. Vegagerð ríkisins ráðstafaði á árinu um 20 millj. kr. umfram heimildir ársins, en ráðgert er að vinna þann mismun upp á árinu 1969. Aðallega voru umframút- gjöld vegna undirbúnings að hraðbrautagerð í nágrenni Reykjavíkur, og vegna heildar- áætlunar um samgöngukerfið, sem unnið hefur verið að á árinu 1968. Útgjaldaheimildir viðskipta- málaráðuneytisins skv. fjárlög- um voru rúmlega 580 millj. kr., en bókfærðar eru á árinu 563 millj. og greiddar 557 millj. Staf ar þetta af því, að niðurgreiðsl- ur á árinu urðu lægri en fjár- lög ráðgerðu, þannig að bókfærð ar niðurgreiðslur voru 551 m. kr. en fjárlög áætluðu rúmlega 569 millj. Meginástæðumar fyrir rekstr arútgjöldum umfram heimildir fjárlaga 1968 og heimildir í sér- lögum frá Alþingi á því ári eru þannig óviðráðanlegar. Annars vegar vaxtagjöld vegna slæmr- ar greiðsluafkomu og hins veg- ar stóraukin útgjöld vegna hinn ar slæmu afkomu Ríkisábyrgða- sjóðs. Stórauknar byrðar vegna ríkisábyrgða Frá því að lögin um Ríkis- ábyrgðasjóð voru sett og hinar nýju reglur um veitingu ríkis- ábyrgða hafa útgjöld ríkissjóðs vegna ríkisábyrgða farið minnk andi frá ári til árs þar til á áir- inu 1968, er gerbreyting verður til hins verra í þessu efni. Árið 1967 urðu útborganir úr sjóðn- um umfram innborganir rúmlega 70 millj. kr. og framlag ríkis- sjóðs til að standa straum af þeim halla var 65 millj. kr. Ar- ið 1968 voru útborganir umfram innborganir rúmlega 155 millj. millj. kr. og framlag úr ríkis- sjóði rúmlega 150 millj. kr. Út- gjaldaauki sjóðsins á þessu ári varð því þannig 85 millj. kr. Úti standandi kröfur Ríkisábyrgða- sjóðs vegna vanskila í árslok 1967 voru 300 m. kr. en 1 árs- lok 1968 um 445 millj. kr. Hin versnandi staða milli þessara tveggja ára stafar að megin- hluta til af verri skilum á tog- aralánum, lánum vegna síldar- verksmiðja og fleiri fiskvinnslu stöðva og einnig lánum Raf- magnsveitna ríkisins. Og loks koma til veruleg útgjöld vegna ríkisábyrgða fyrir Flugfélag ís- lands vegna þotukaupanna. Að venju munu þingmerin fá í hend- ur aðalreikning sjóðsins og geta þá áttað sig nánar á aðstöðu einstakra skuldara við sjóðinn. Þótt með löggjöfinni um Ríkis- ábyrgðasjóð og veitingu ríkis- ábyrgða hafi tvímælalaust verið stefnt í rétta átt og takmörkuð hin stórkostlega áhætta ríkis- sjóðs af ríkisábyrgðum, sem oft hafa verið veittar af lítilli fyrir- hyggju, þá sýnir þó reynsla þessara allra síðustu ára ótví- rætt, að mikla varfæmi þarf að hafa varðandi veitingu ríkisá- byrgða, og þótt með þessum hætti sé oft hægt að greiða fyr- ir mjög mikilvægum framfaramál um í þjóðfélaginu, verður þó jafnan að skoða með fullu raun- sæi þá áhættu sem rfkissjóður tekur á sig hverju sinni með veit ingu ríkisábyrgða. Er líka reynt af hálfu stjómar Ríkisábyrgða- sjóðs og ráðuneytisins að beita fyllsta aðhaldi í þessum efnum, m.a. með því að veita ekki rík- isábyrgðir á handhafaskulda bréfum, sem um fangt árabil hafa gengið kaupum og sölum og oft verið seld með veruleg- um afföllum og með því að veita ekki ríkisábyrgðir, þegar fyrir- tæki eru sjáanlega þannig stödd, að þau geti ekki staðið í skilum, enda þótt þau formlega kunni að eiga rétt til ríkisábyrgðar. Niðurstaða rekstrar- reiknings 7968 Heildarmyndin af reksturs- reikningi ríkissjóðs árið 1968 er þessi: Rekstrartekjur reyndust 6.741 millj. kr. en rekstrargjöld 6.907 m. kr. Rekstrarhalli varð því 166 millj. kr. Lánahreyfing- ar inn umfram lánahreyfingar út fyrir ríkissjóð og A-hluta stofnanir var 91,5 m. kr. sem því jöfnuður því jákvæður sem því nemur. Greiðslujöfnuður er því neikvæður sem nemur 74 m. kr. Halli á viðskiptastöðu á banka- reikningum og sjóði ríkisféhirð- is varð 315 millj. kr. Við endanlega afgreiðslu fjár laga fyrir árið 1969 lagði ég á það áherzlu, að teflt væri á mjög tæpt vað varðandi afkomu ríkissjóðs á þessu ári. Vegna al- mennra fjárhagserfiðleika í þjóð félaginu og óhjákvæmilegrar kjararýrnunar alls almennings var samt eftir atvikum talið rétt að taka þessa áhættu og afgreiða fjörlögin án nokkurrar nýrrar tekjuöflunar, ef undan er skil- in nokkur hækkun á hluta rík- issjóðs af umboðsþóknun við- skiptabankanna, sem þegar til kemur, skilaði engum teljandi tekjuauka. Við venjulegar að- etæður hefði gengisbreytingin að vísu átt að auka mjög tolla- tekjur ríkissjóðs, en ef gengis- breytingin átti að ná tilgangi sínum varð að koma til svo veru legur samdráttur í innflutningi, að heildartekjuaukning af þess- um sökum myndi ekki nema meiru en sem svaraði útgjalda- auka ríkissjóðs vegna gengis- breytingarinnar. Hefir reyndin enda orðið sú. Og þótt sú nið- urstaða hafi orðið mjög óhag- stæð fyrir ríkissjóð hefur hún orðið þjóðarbúinu í heild mjög mikilvægur ávinniingur og leitt til þess, að myndazt hefur á ný verulegur gjaldeyrisvarasjóð- ur, sem 1. október nam 1528 m. kr. Greiðsluafgangur skv. fjárlög um yfirstandandi árs nemur að- eins 10 millj. kr., sem að sjálf- sögðu er aðeins nafnið eitt þeg- ar þess er gætt að heildarniður- stöðutala fjárlaganna er tæpar 7.100 millj. kr. Strax í upphafi ársins voru tilraunir gerðar til að gera sem rækilegastar áætl- anir til þess að fylgjast með inn streymi og útstreymi tekna og gjalda yfir árið og hafa þær áætlanir verið endurskoðaðar öðru hverju jafnhliða því sem allar tiltækar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að koma í veg fyrir umframútgjöld og hraða innheimtu ríkistekna eftir föngum, þannig að ekki yrði um óhæfilegt útstreymi úr Seðla- bankanum að ræða. Þessar áætl anir ráðuneytisins hafa nokkum veginn staðizt, en þar sem tekj- ur hljóta jafnan að koma seinna inn en svarar útgjaldaþörfinni, hlýtur meginhluta ársins eða jafnvel allt árið að verða um að ræða verulegan halla á greiðslu stöðunni við Seðlabankann, enda þótt jöfnuður náist í árs- lok. Hefur enda svo farið, að yfirdráttur á viðskiptareikningi ríkissjóðs í Seðlabankanum að- eins vegna rekstrar ríkissjóðs á yfirstandandi ári hefur komizt í 7—800 millj. kr. en fer nú lækk- andi og á að halda áfram að lækka til áramóta, þótt litlar lík ur séu til að þá takizt algjör- lega að jafna hallann. Launahœkkanir opinberra starfsmanna Þótt reynt væri við afgreiðslu fjárlaga að áætla útgjöld ríkis- sjóðs það raumihæft, að ekki þyrfti að korna til umfram- greiðslna er auðvitað aldrei hægt að forðast með öllu slíkar greiðslur, enda sumar þeirra ó- fyrirséðar, þegar fjárlög eru af greidd og flestar þeirra lög- bundnar, hvað sem fjárlögum líð ur. Ekki verður á þessu stigi séð til hlítar, hverjar umfram- greiðslurnar verða, en þó er þeg ar vitað um nokkra, töluvert veigamikla liði, sem fara fram úr áætlun. Eru þar þyngstar á metunum launahækkanir opin- berra starfsmanna samkvæmt niðurstöðu Kjaradóms í kjölfar kjarasamningamna á s.l. vori. Nema þær hækkanir 1200 kr. á hvern ríkisstarfsmann mánaðar- lega í 3y2 mánuð en síðan vegna vísitöluhækkana kr. 1550 mánaðarlega í fjóra mánuði og gæti þó þessi fjárhæð orðið eitt hvað hærri í desembermánuði. Áætlað er, að launahækkanir þessar muni auka útgjöld ríkis- sjóðs um nálægt 95 m. kr. á þessu ári. Vegnia hækkana á verði landbúnaðarvara er eiran- ig vitað, að útflutningsuppbæt- ur á landbúnaðarvörur muni reynast vanáætlaðar um 24 m. kr. og ennfremur hefur komið í ljós, að jarðræktarframkvæmdir hafa vaxið svo stórfellt á s.l. ári, að jarðræktarstyrkir og framlög til framræslu, sem hvort tveggja er lögbundið, muni fara um 25 m. kr. fram úr áætlun fjárlaga. Fasteignamatið er nú búið að vera það lengi í smíð- um, af ýmsum ástæðum, að ég hefi lagt á það höfuðáherzlu, að því verði endanlega lokið á þessu ári, en ef það á að geta orðið mun það leita til umfram- útgjalda við fasteignamatið, sem geta numið allt að 13 millj. kr. Löggæzla mun fara að minnsta kosti 7 m. kr. umfram fjárlög, sem stafar af þeirri ástæðu, að fjárveitingar til löggæzlu vorru lækkaðar með hliðsjón af hug- leiðingum um sparnað á því sviði, sem ekki hefur enn tekizt að framkvæma, en það mál hef- ur hlotið allrækilega athugun og hefur undanfarna mánuði ver ið í sérstakri könnun hjá undir- nefnd fjárveitinganefndar og hagsýslustofnuninni í samráði við dómsmálaráðuneytið. Varið hefur verið sérstaklega 2 millj. kr. til þess að geta haldið uppi stöðugri loðnuleit fyrir Norður- lcindi og ýmsa minni útgjaldaliði er vitað um,sem ekki skipta þó verulegu málL Auknar vaxtagreiðslur Það skal þó tekið fram, að ekki er fyrr en í lok ársins hægt að sjá til fullnustu, hvort hinir ýmsu rekstrarliðir ríkisstofnana standast áætlun og mjög óvar- legt væri að gera ekki ráð fyr- ir því, að ríkissjóður verði fyr- ir ýmsum viðbótaráföllum þeg- ar öll kuri eru til grafar komin. Er þá einn liður ótalinn, sem mun fara mjög mikið fram úr á- ætlun, en það eru vaxtagreiðsl- ur. Yfirdráttarskuld ríkissjóðs á aðalviðskiptareikningi í Seðla- bankanum hefir mestan hluta ársins verið um 1.000 m. kr. og raunar um skeið farið yfir 1.300 millj. en í fjárlögum er einung- is gert ráð fyrir rúmlega 10 m. kr. til greiðslu á vöxtum af lausaskuldum. Sennileg út- gjöld á þessum lið mun hins veg ar mega áætla nálægt 90 m. kr. 55 milljónir króna vegna þotu F.l. Þá er loks þess að geta, að allar horfur eru á, að afkoma Ríkisábyrgðasjóðs verði einnig mjög erfið á þessu ári eins og á siðastliðnu ári, þótt gera megi ráð fyrir, að innheimta reynist nú af ýmsum ástæðum eitthvað auðveldari en þá, en alvarleg- asta hættan er ríkisábyrgðin vegna þotu Flugfélagsins. Hef- ur Ríkisábyrgðasjóður vegna hennar á þessu ári orðið að leggja út mjög verulegar fjár- hæðir til viðbótar þeim 55 millj. kr., sem voru fallnar á Ríkis- ábyrgðasjóð vegna þotukaup- anna um síðustu áramót. Á veg- um Ríkisábyrgðasjóðs hafa ver- ið gerðar mjög róttækar og víð- tækar athuganir á hugsanlegum úrræðum til þess að bæta rekstr arafkomu Flugfélags fslands í samráði við stjóm félagsins. Eru því miður ekki of bjartar horfur í því efni, en óumflýjan- legt er með öllu að koma mál- efnum Flugfélagsins í það horf, að létt verði af Ríkisábyrgða- sjóði þessum geigvænlegu út- gjöldum, enda hefur stjóm Flug félagsins fullan hug á að leita allra úrræða til að svo geti orð- ið. Ekki er vitað um nema einn útgjaldalið, sem horfur em á að verði undir áætlun svo nokkru nemi, en það em niðurgreiðslur á vömverði innanlands. Er gert ráð fyrir, að útgjöld í því skyni verði um 50 m. kr. lægri en fjár lög ráðgera vegna minnkaðrar neyzlu innanlands, einkum á kindakjöti. Gera verður þá ráð fyrir, að rekstrarútgjöld ríkis- sjóðs í ár muni að minnsta kosti verða 250—300 millj. kr. umfram áætlun fjárlaga og er þó frem- ur liklegt, að sú áætlun sé of lág en of há. Lítill bifreiða- innflutningur Tekjumegin em fyrirsjáanleg- ar nokkrar breytingar firá áætl- un fjárlaga og sýnast þó flest- ir tekjuliðir vera áætlaðir ótrú- lega nærri sammi. Líklegt er, að aðflutningsgjöld verðd 70—80 m. kr. hærri en áætlað var í fjár- lögum, en þar kemur á móti til frádráttar, að enda þótt leyfis- gjald af bifreiðum væri lækkað allvemlega þá hafa gengisbreyt inigarnar tvær valddð srvo stór- felld'Uim samdnætti í brfreiðainn- flutningi, að tekjur af innflutn- ingsgjaldi bifreiða munu vænt- anlega verða rúmum 70 m. kr. lægri en fjárlög gera ráð fyrir. Hins vegar getur söluskattur ársins orðið um 100 m. kr. um- fram áætlun fjárlaga og horfur em á, að hagnaður af rekstri Áfengis- og tóbaksverzlunair rík isins verði 75 m. kr. hærri en fjárlagaáætlun. Vonast er til, að önnur firávik varðandi hina ýmsu tekjustofna ríkissjóðs jafn ist nokkurn veginn út. Tekju- hækkun umfram áætlun fjárlaga gæti því orðið um 175 m. kr. og gæti þá halli ársins orðið um 100 m. kr., sem mér sýnist eftir öll- um aðstæðum verða að teljast mjög viðunandi niðurstaða. 540 millión króna skuld hjá Seðlabankanum í árslok 1968 var skuld á að- alviðskiptareikningi ríkissjóðs í Seðlabanka íslands sem nam um 540 m. kr. í árslok 1966 var inn stæða á þessum reikningi, sem nam tæpl. 100 m. kr., þegar greiðsluhalli áranna 1964 og 1965 hafði verið jafnaður. í árs- lok 1967 var skuld á reikningum, sem nam tæpl. 200 m. kr. og nú um s.l. áramót eins og áður sagði 540 m. kr. í skjótu bragði kunna þessar tölur að koma mönnum spánskt fyrir sjónir og ýmsum reynast torvelt að skilja þessa skuldasöfnun, þegar reikningur ríkissjóðs 1967 sýnir neikvæðan greiðslujöfnuð 73 m. kr. og reikningur 1968 74 m. kr. til viðbótar, eða samtals 147 m. kr. Þetta á sér þó eðlilegar skýr- ingar þegar betur er að gáð. Skattar eru samkvæmt nýju lög- unum um ríkisbókhald færðir til tekna þegar þeir eru lagðir á, en talsverður hluti þeirra inn- heimtist ekki fyrr en árið eftir álagningu. Þannig má segja, að á sama tíma sem ríkissjóðuir safnaði lausaskuldum á aðal- reikningi í Seðlabanka hafi hann safnað kröfum, mest skött- uim, sem ekki hafði tekizt að inn heimta vegna minni tekna hjá skattgreiðendum. Þannig getur orðið veruleg skuldasöfnun í Seðlabankanum, þótt rekstraraf koma ríkissjóðs geti verið harla góð. Það má því með fullum rök um segja, að raunverulega hafi hagur ríkissjóðs síðustu tvö ár- in ekki versnað meira ein sem nemur þeim 147 m. kr., sem rík- isreikningar þessara ára sýna sem neikvæðan greiðslujöfnuð, enda þótt skuld á aðalviðskipta- reikningi í Seðlabankanum hafi numið 540 millj. um síðustu ára- mót. Orsakir þeirtrar skuldar- aukningar eru auk hallans þrjár. í fyrsta lagi var á ár- inu 1967 ráðstafað rúmum 200 millj. kr. af hinum reiknings- lega greiðsluafgangi ríkissjóðs 1966, sem réttlætist af þeinri stefnu ríkisstjórnarinnar að beita verðstöðvuín til þess að koma í veg fyrir almenna kjara rýmun á árinu 1967 í trausti þess, að verðhrun sjávaraflans væri aðeins tímabundið fyrir- bæri. f öðru lagi hefur staða að- alviðskiptareikniings gagnvart innheimtufjárreikningum ríkis sjóðs batnað allverulega og í þriðja lagi sem ekki vegur minnst, eru hin nýju lagafyrir- mæli að færa til tiekna hjá rík- issjóði öll álögð gjöld á árinu, enda þótt alltaf hljóti að vera verulegar fjárhæðir óinnheimt- ar um áramót. Með hækkandi fjárlögum má gera ráð fyrir vax andi eftirstöðvum og því hækk- andi yfirdrætti ríkissjóðs hjá Seðlabankanum, nema framfylgt verði þeirrii stefnu í fjármálum ríkissjóðs, að gera Táð fyrir svo háum tekjum umfram útgjöld að tekjumismunurinn nægi að veru legu leyti að minnsta kosti til þess að standa undir rekstran- fjárþönfinni á hverjum tíma. Þetta er einmitt sú stefna, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.