Morgunblaðið - 11.05.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1971, Blaðsíða 1
Charlie Geo'rge, sem skoraði sig urmark Arsenal í leiknum og F rank McLintoek, fyrirliði liðsins, hlaupa um völlinn með hinn eftirsótta bikar milli sín. það tókst h j á Ar senal Sigraði Liverpool 2:1 í úrslita- leik bikarkeppninnar, eftir framlengdan leik ARSENAL tókst að leika eftir hið einstæða afrek Tottenham Hotspur frá 1961, að sigra bæði í ensku 1. deildarkeppninni og í ensku bikarkeppninni. Var leik- nr liðsins við Liverpool á Wembley-leikvanginum í Lon- don á laugardaginn kórónan á glæsilega sigurgöngu þess í vetur og verður þetta afrek liðs- ins örugglega lengi í minnum haft. Fyrirfram hafði margur talið að vigstaða Liverpool í þessnm leik væri sterkari, ekki sízt vegna þess hve Arsenal hef- ur leikið marga erfiða leika að undanförnu, en eftir gangi leiks- ins var Arsenal-sigurinn fylli- lega sanngjarn og hefði jafnvel getað orðið meiri, Áhorfendur að leiknum á Wembley voru um 100 þúsund talsins og byrjuðu þeir að streyma til leikvallarins nokkr- um klukkustundum áður en leik urinn hófst. Kom til nokkurra átaka fyrir framan völlinn milli stuðningsmanna liðanna, og varð lögreglan að taka nokkra óróaseggi í sína vörzlu. Greidd- ur aðgangseyrir að leiknum nam um 40 millj. íslenzkum krónum, en vitað var að tölu- vert var um svartamarkaðs- brask á miðum, eftir að uppselt var orðið og þess jafnvel dæmi að menn greiddu um 100 pund fyrir aðgöngumiða. Fyrri hálfleikur var fremur sviplaus og fátt um hættuleg tækifæri. Liverpool sótti heldur Víkingarnir ákveðnari — og sigruðu KR 3-2 L.TÓST er, að keppnin um Keykjavíkiirrm'istaratitilinn í knattspyrnu verðnr tvísýn og hörð i ár. Þegar mótið er rúm- lega hálfnað eiga fjögur af fimm liðum sem taka þátt í því enn möguletka á sigri. Framarar standa reyndar bezt að vigi og hafa ekki tapað leik, en Valur Vikingur og KR hafa öll hlotið 4 stig. Lítið má því út af bera til þess að staðan í mótinu geti breytzt. Framarar virðast eiga bezta liðið um þessar mundir, en hin þrjú eru mjög áþekk. Leikur Víkings og KR á Iaug ardaginn bauð upp á þokkalega Ipikkafla á tíðum, enda veður- , skilyrði til knattspyrnuiðkana eins hagstæð og þau geta fram- ast orðið hérlendis. Bæði liðin léku allvel saman úti á vellin- <um, en þegar nálgaðist mark and stæðinganna fór sóknin að losna i böndunum, og oft var sótt af meira kappi en forsjá. Fimm mörk voru þó skoruð i leiknum, og voru a.m.k. tvö þeirra lag- lega gerð, einkum þó fyrsta markið er Hafliði Pétursson lék á varnarleikmenn KR og skap- aði sér gott tækifæri að nærri ógjörningur hefði verið að mis- nota það. Gerðist þetta á 6. mín- útu í Ieiknum. Víkingar juku svo forskot sitt I 2:0 þegar 20 mínútur voru af leik, og aftur var það Hafliði sem var á ferðinni. Skömmu fyrir leikhlé tókst KR-ingum svo að rétta hlut sinn nokkuð, er hinn gamalkunni sóknarleik- maður þeirra, Sigurþór Jakobs son skoraðí. Var staðan þannig 2:1 fyrir Víking í hálfleik. Fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik sóttu KR-ingar nær stanzlaust en tókst aldrei að skapa sér verulega hættu- leg tækifæri. Þegar á leið, fóru svo Víkingarnir að taka við sér og aftur varð leikurinn næsta jafn. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af hálfleikurinn áttu KR- ingar að þvi er virtist fremur meinlausa sókn, sem endaði með skoti. Flestum á óvænt hélt Sig fús Guðmundsson í Víkingsmark inu ekki boltanum, og skoppaði hann til Baldvins Baldvinsson ar, sem ekki var seinn á sér að afgreiða hann í netið og jafna þannig fyrir KR 2:2. Sú dýrð stóð þó ekki lengi fyrir KR-inga, þvi nokkrum mín útum síðar var dæmd, á þá víta- spyrna, sem Hafliði Pétursson skoraði úr, þannig að í þessum leik náði hann hinu eftirsótta „hat trick". Fleiri mörk voru svo ekki skoruð i leiknum og dofnaði mjög yfir honum undir lokin. Beztu menn Víkings í þessum leik voru þeir Guðgeir Leifsson, sem er leikmaður sem aldrei virð ist eiga slæman dag, Hafliði Pét ursson og Eiríkur Þorsteinsson. í KR-Iiðinu stóð Jón Sigurðsson Framhald á bls. 4 meira, en Arsenal-vörnin stóð sig mjÖg vel og gaf þeim aldrei tækifæri til athafna. Einna hættulegasta tækifæri hálfleiks ins kom þegar örfáar mínútur voru eftir af honum. Þá átti Alec Lindsay, bakvörður Liver- pool, þrumuskot á mark Arsen- al, sem Bob Wilson hafði hend- ur á, en hélt ekki og heppnin var með honum, því boltinn fór út fyrir og úr varð hornspyrna sem ekki nýttist. í siðari hálfleik snerist dæm- ið að nokkru við. Nú voru það Arsenal-leikmennirnir, sem voru ákveðnari og fljótari á bolt- ann og nokkrum sinnum komst liðið í ágæt færi, sem ekki tókst að nýta. Lauk hálfleiknum marklausum og var þá fram- lengt í 2x15 mínútur. ÓGLEYMANLEG FRAMLENGING Þegar leikmenn liðanna komu út á völlinn til framlengingar- innar voru margir þeirra orðnir plástraðir og vafðir, eftir smá- vægileg meiðsli, sem þeir höfðu orðið fyrir. Strax í upphafi fram lengingarfnnar náði Liverpool boltanum, og sókninni lauk með því að Steve Heighway tókst að snúa á Pat Rice og George Armstrong, varnarmenn Arsen- al og var þá ekki að sökum að spyrja. Bob Wilson Arsenal- markvörður, átti ekki minnstu möguleika á því að verja skot hans. Liverpool hafði náð for- ystunni 1:0, og fagnaðaróp Liver pool-unnenda og vonbrigðaköll Arsenal-manna voru slík að lík- ast var sem flóðbylgja færi yfir völlinn. Hafa ugglaust flestir talið að þetta mark myndi nægja til sigurs í leiknum. En svo var ekki. Á 12. mínútu framlengingarinnar var Arsenal í sókn og Eddy Kelly lék glæsi- lega gegnum Liverpool-vörnina, gaf á George Graham, sem kór- ónaði upphlaupið með því að leika einnig á Liverpool-varnar leikmenn og skora, 1:1. í síðari hálfleik framlengingar innar sótti Arsenal svo meira og þegar rúmar níu mínútur voru liðnar átti Radford góða sendingu á Charlie George, sem fékk tóm til að skjóta utan frá vítateigslínu og í netinu lá bolt- inn án þess að Ray Clemence, Liverpool-markvörður ætti tök á að verja. Hið ótrúlega hafði gerzt. Arsenal hafði ekki að- eins jafnað, heldur náð yíirhönd inni og reyndist þetta sigur- markið. Eftir að það var skorað dró Arsenal sig meira í vorn og tókst Liverpool ekki að rjúfa skörð í varnarmúrinn, þannig að hætta yrði af. Reyndar átti Liverpool hornspyrnu þegar 40 sek. voru eftir af leiknum, en Bob Wilson kom þá út úr mark- inu á réttu augnabliki og hand- samaði boltann. Óstjórnleg fagnaðarlæti urðu 1 leikslok, og voru leikmenn Ars- enal hylltir lengi og innilega, enda rækilega búnir að vinna fyrir slíku. Forsala — á landsleikinn FORSALA aðgöngumiða á lands leik íslands og Frakklands á morgun hófst í gær við Útvegs- bankann. Verður sala þar einnig í dag frá kl. 13 til 18 og á morg- un. Ennfremur verður forsala aðgöngumiða í Sportvík í Kefla vík. Fólk sem ætlaj að sjá leik inn er eindregið hvatt til þess að notfæra sér þessa þjónustu, til þess að komið verði í veg fyrir mikla þröng við aðgöngu- miðasöiuna á vellinum, þegar leikurinn er að hefjast. Landsliðið valið Tveir nýliðar Á bLaðamannafundi KSÍ í gær kynnti landsliðs- einvaldurinn, Hafsteinn Guð- mundsson, liðið, sem hanu hefur valið til þess að mæta Frökkum á Laugardalsvellin- um á miðvikudaginn. Liðið verður þannig skipað: Markvörður: Þorbergur Atlason, Fram (8) Varnarmenn: Jóhannes Atlason, Fram (16) Guðni Kjartansson, ÍBK (16) Einar Gunnarsson, ÍBK (8) Ólafur Sigurvinsson, ÍBV (2) Tengiliðir: Haraldur Sturlaugsson ÍA (4) Jóhannes Edvaldsson Val (0) Eyleifur Hafsteinss., ÍR (19) Framlínumenn: Matthías Hallgrímss., ÍA (11) Ingi Björn Albertsson Val (0) Ásgeir Elíasson, Fram (5) Varamenn: Magnús Guðmundss., KR (0) Róbert Eyjólfsson, Val (0) Þröstur Stefánsson, ÍA (0) Guðgeir Leifsson, Víkingi (0) Baldvin Baldvinsson, KR (2) Svo sem sjá má af upp- talningunni eru tveir nýliðar í íslenzka landsliðinu, þeir Ingi Björn Albetsson og Jó- hannes Edvaldsson. Fyrirliði liðsins verður Jóhannes Atla- son. Á öðrum stað í blaðinu er spjaliað við nokkra landsliðs- menn, og sagt frá undirbún- ingi liðsins fyrir leikinn á miðvikudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.